Dagur - 28.03.1991, Page 19
Fimmtudagur 28. mars 1991 - DAGUR - 19
til umhugsunar
h~
í ijarlægð atburðanna
í fréttatíma sænska sjónvarpsins
laugardagskvöldið 16. mars var
sýnt viðtal við Saddam Hussein
íraksforseta, þar sem hann lýsti
því meðal annars yfir að hann
stefndi að auknu lýðræði í landi
sínu. í sama fréttatíma bárust
fréttir af því að uppreisn gegn
honum breiddist út bæði í suðri
og einnig í norðri þar sem Kúrdar
telja sig eiga harma að hefna fyrir
langvarandi yfirgang valdhafa í
Bagdad. Yfirlýsingar Saddams
um bætt stjórnarfar virkuðu
augsýnilega sem skrýtla á við-
stadda og fyrr um daginn höfðu
mótmæli verið höfð uppi í Stokk-
hólmi gegn stjórnvöldum í Irak.
Á meðan íslendingar voru
uppvægir af tækniundrum verald-
ar í formi beinna sjónvarpsút-
sendinga heimshorna í milli og
fylgdust spenntir með upphafi
stríðsaðgerða fjölþjóðahers
bandamanna gegn írak, eins og
þeir væru að horfa á fótboltaleik
eða ameríska stríðsmynd eftir
miðnætti, settu raunverulegar
áhyggjur meiri svip sinn á við-
brögð Svía. Mér hefur verið tjáð
að síðustu daga fyrir stríðs-
aðgerðir bandamanna hafi
spenna magnast í landinu. Og þá
var ekki átt við spennu stjórn-
málamanna og viðskiptajöfra
heldur fyrst og fremst almenn-
ings. Þess fólk sem gengur til
daglegra starfa langt frá þeim
skarkala sem einkennt hefur
heimsviðburðina það sem af er
þessu ári.
✓
Islendingar horfðu á fréttir
eins og bíómyndir meðan
óhug sló á Svía
Svíar tengjast atburðum í Mið-
austurlöndum með ýmsum hætti.
Sænskir viðskiptajöfrar hafa um
langan tíma leitað fanga um víða
veröld fyrir framleiðslu sína og
þá ekki síst á sviði drápstóla. Þótt
vopn séu framleidd vfðar á
Norðurlöndum verða þeir að telj-
ast verulegir vopnaframleiðendur
einir Norðurlandaþjóða. Því má
vel vera að ýmsum hinna rólegu
miðstéttarmanna sem gangast
upp við að virða allskyns lög og
reglur og halda lífi sínu í sem
föstustum skorðum hafi verið
hugsað til sænska stálsins þegar
herskár foringi í Miðaustur-
löndum býður heiminum birg-
inn. ivfargt fólk af íslömsk-
um uppruna býr í Svíþjóð.
Fáar þjóðir hafa opnað land
sitt meira fyrir útlendingum
en þeir og þangað hefur fólk
streymt, sem stundum flýr harð-
stjórn og ofsóknir en þó mikið
oftar fátækt og bjargarleysi
heimalandsins. Þessa velvild Svía
hafa margir notfært sér, einkum
fólk frá Austur-Evrópu og Mið-
austurlöndum. Þegar sænskum
símaskrám er flett staðnæmast
augun fljótt við þau mörgu ættar-
nöfn sem bera blæ Miðaustur-
landa eða má rekja til Múhamm-
eðs spámanns. Þótt margt af
þessu fólki lifi sæmilegu lífi í Sví-
þjóð og mun betra en það ætti
kost á í heimalöndum sínum lifa
tilfinningar þess til heimkynna
sinna og þess menningar- og trú-
arheims sem það er runnið úr
góðu lífi.
Þegar Saddam Hússein hótaði
stríðsaðgerðum um öll Vestur-
lönd ef fjölþjóðaherinn Iéti til
skarar skríða þá var hann meðal
annars að höfða til þessa land-
flótta fólks og hvetja það til að
sýna heimkynnum sínum og
hugsunarhætti hollustu ogþ>erjast
við óvininn hvar sem hann
finndist. Því var ekkert aó undra
þótt óhug slægi á fólk í landi sem
hýsir mikinn fjölda manna af
arabískum uppruna. Hverjir
tækju áskoranir stríðsforsetans í
írak alvarlega og færu að búa til
sprengjur og annan vopnabúnað
sem skæruliðum og hermdar-
verkamönnum er jafnan innan
handar ef á þarf að halda og létu
hann dynja á sænskum mann-
virkjum og jafnvel almenningi.
Frá Stokkhólmi er ekki
lengra til Eystrasalts-
landanna en til Gautaborgar
Skömmu eftir að sprengjurnar
féllu í írak var kastljósi fjölmiðl-
anna beint að botni Eystrasalts,
þar sem sovéski herinn réðst að
óbreyttum borgurum er kröfðust
þess að Eistland, Lettland og Lit-
háen yrðu leyst úr ríkjasambandi
Sovétríkjanna og fengju að njóta
fulls sjálfstæðis. Umsvif hersins í
Vilníus og fleiri borgum gáfu til
kynna að um afturhvarf væri að
ræða hjá sovétskum stjórnvöld-
um og jsau vildu nú hverfa af vegi
upplýsinga- og framfarastefnu
sinni þegar ríkjasambandið væri í
hættu. Þessir atburðir yfir-
skyggðu fréttir frá Persaflóa um
skeið og höfðu áhrif á fjölda
manns. Á meðan íslenskir stjórn-
málamenn kepptust um að láta
sem hæst í sér heyra og reyndu að
ná hylli stjórnvalda í Eystrasalts-
ríkjunum og almennings heima-
fyrir sló óhug á almenning í Sví-
þjóð sem varð hugsað til fólksins
fyrir botni Eystrasaltsins ef
Rauði herinn léti af alvöru til
skarar skríða. Svíar og eflaust
fleiri Norðurlandabúar fundu til
nálægðarinnar við Eystrasaltsríkin
enda ekki meiri vegalengd þang-
að frá Stokkhólmi en til Gauta-
borgar.
Sevardnase sagði í sjón-
varpsviðtali að Gorbatsjov
geti aldrei orðið harðstjóri
Fyrir rúmum tveimur vikum síð-
an sýndi sænska sjónvarpið viðtal
við Eduard Sevardnase fyrrum
utanríkisráðherra Sovétríkjanna.
Sevardnase sagði meðal annars í
viðtalinu að hann þekkti Gorbat-
sjov það vel að hann vissi að
hann gæti aldrei orðið harðstjóri.
Sevardnase sagði einnig að
sovétski herinn hefði tekið vöidin
í Eystrasaltsríkjunum í janúar en
ekki farið eftir fyrirskipunum frá
forseta ríkjasambandsins. Af
þeim ástæðum var réttmætt að
óttast um hvaða völd Garbatsjov
í raun og veru hefði og hvort ver-
ið væri að steypa honum af stóli.
Sevardnase sagði enrifremur að í
hvert skipti sem hann kæmi út á
götu í Moskvu þá skammaðist
hann sín fyrir að vera fulltrúi
þessa kerfis sem algerlega hefði
mistekist. Hann ræddi um afsögn
sína og hina tilfinningaþrungnu
afsagnarræðu sem sjónvarps-
stöðvar á Vesturlöndum birtu.
Hann skýrði frá því að Gorbatsjov
hefði ekki vitað um fyrirætlan
sína í þinginu þennan dag og
hefði afsögnin því komið honum
algerlega á óvart. Viðtalið við
þennan réttsýna fyrrum utanrík-
isráðherra Sovétríkjanna sýnir að
vandamálin þar eystra eru engar
ýkjur og enn er langt í land að
þjóðfélagsþróun innan Sovétríkj-
anna sé á enda runnin.
íslendingar tileinka sér
heimsviðburði í þeirri vissu
að þeir séu víðs fjarri
En af hverju er vert að velta
þessu fyrir sér? Erum við ekki
langt í burtu frá Miðausturlönd-
um? Erum við ekki einnig langt í
burtu frá Sovétríkjunum nema
þegar við þurfum að selja þangað
síld og ullartrefla? íslendingar
hafa um langa tíð haft ótrúlega
mikinn áhuga á heimsmálum.
Þeir hafa gjarnan talið sig vita
lausnir á flóknustu vandamálum
mannkynssögunnar. Þegar Bret-
ar hernámu ísland í heims-
stryjöldinni 1939 til 1945 kom
þessi heimsmálaáhugi íslendinga
hermönnunum, sem hingað
komu mjög á óvart. íslendingar
höfðu skoðun á öllum hlutum og
einnig vit á flestum atburðum
þótt þeirra væri víðs fjarri að
leita. Af hverju sem þessi áhugi
er sprottinn þá byggist hann fyrst
og fremst á því að sjá atburði úr
mikilli fjarlægð. íslendingar hafa
tileiknað sér að hugleiða heims-
viðburði og mynda sér skoðanir á
þeim í þeirri trú og vissu að
hversu hörmulegir sem atburðir
geta orðið þá séum við víðs
fjarri. Hafið verndi okkur frá því
að þær ógnir, sem hrjá íbúa
ýmissa annarra landa geti orðið á
okkar grund. Ótti íslendinga var
því af allt öðrum toga en ótti
þjóða eins og Svía sem vissu að
þeir gætu orðið þátttakendur að
stríðsatburðum líðandi stundar
þótt á óbeinan máta yrði.
Stuðningur okkar við
Eystrasaltsríkin getur gert
þeim eitthvert gagn en
auglýsir einnig íslenska
stjórnmálamenn heimafyrir
Sá hluti sem liðinn er af þessu ári
hefur verið óvenju viðburðarík-
ur. Margir gengu út frá því sem
gefnu að aldrei hafi verið frið-
vænlegri horfur í heiminum en nú
þegar múr austurs og vesturs væri
hruninn. Þróunin hefur orðið
önnur eins og atburðarás síðustu
mánaða hefur sýnt. Og óvissan
ríkir enn. Hver verða örlög
íraks? Blossa átökin aftur upp í
Miðausturlöndum? Þetta eru
spurningar sem enginn getur
svarað á þessari stundu. Hver er
framtíð Sovétríkjanna? Verða
vopin látin tala og skera úr um
hvort þau verða ríkjasamband
eins og nú er eða leysast upp í
sjálfstæð og misjafnlega bjarg-
álna lýðveldi. Á síðustu mánuð-
um hefur Afríka að mestu leyti
gleymst. Þar heldur fólk áfram að
berjast og deyja úr hungri.
Stuðningur okkar við Eystrasalts-
ríkin getur hugsanlega gert þeim
eitthvert gagn. En stuðningur
okkar við Landsbergis og aðra
Eystrasaltsleiðtoga er einnig vel
til þess fallinn að auglýsa ein-
staka íslenska stjórnmálamenn
heimafyrir á kosningaári. Við
íslendingar höfum tamið okkur
að hugleiða viðburði heimsins af
þekkingu. En það er til umhugs-
unar hvort við höfum ekki tamið
okkur um of að líta þá í svo
mikilli fjarlægð að þeir geti aldrei
snert okkur. Einnig er til
umhugsunar hvort við höfum
ekki horft á fréttasendingar frá
átakasvæðunum við Persaflóann
og Eystrasaltið, með svipuðum
augum og stríðmyndaframleiðslu
kvikmyndaveranna í vestri.
Hvort við hugsum ekki í fjarlægð
atburðanna.
SKAUTASVÆÐIÐ
KRÓKEYRI
Páskaopnun
Nú er hver að verða síðastur að bregða sér
á skauta því að þriðjudaginn 2. apríl verður
skautasvellinu á Krókeyri lokað.
Þangað til verður opið fyrir almenning sem hér segir:
Fimmtudag 28. mars, skírdag .... 13-16 og 20-22
Föstudaginn langa ................... lokað
Laugardag 30. mars .......... 13-16 og 20-22
Sunnudag 31. mars, páskadag .. 13-16 og 20-22
Mánudag 1. apríl ............ 13-16 og 20-22
Munið að veðrið getur sett strik í reikninginn og þá er
að hringja í símsvarann - 27740 -
til að fá nánari
upplýsingar um svellalög.
Gleöilega páska!
Skautafélag Akureyrar.
Forfallakennsla
Gagnfræðaskóla Akureyrar vantar forfallakenn-
ara í dönsku frá 1. apríl til maíloka.
Uppl. gefur skólastjóri í síma 21018 og skólaskrif-
stofa Akureyrar í síma 27245.
Frá fræðslustjóra Norðurlandsumdæmis eystra:
Lausar stöður
við grunnskóla
Umsóknarfrestur er til 26. apríl.
Grunnskóli Svalbarðshrepps:
Staða skólastjóra og almenn kennarastaða.
Grunnskóli Raufarhafnar:
Almennar kennarastöður.
Grunnskóli Akureyrar:
Almenn bekkjarkennsla, danska, enska, stærðfræði, raun-
greinar, samfélagsgreinar, tónmennt, myndmennt, íþróttir,
heimilisfræði, handmennt, sérkennsla, smíðar.
Hvammshlíðarskóli:
Lausar stöður sérkennara, meðal kennslugreina íþróttir,
handmennt.
Grunnskólinn Hrísey:
Almenn bekkjarkennsla, byrjendakennsla, sérkennsla,
íslenska.
Grunnskóli Svalbarðsstrandarhrepps:
Almenn kennarastaða ásamt yngri barna kennslu, heimil-
isfræði, handmennt og myndmennt.
Grunnskólinn Kópaskeri:
Almenn kennarastaða.
Lundur, Öxarfirði:
Tvær stööur almenn kennsla.
Árskógarskóli:
Almenn kennarastaða.
Hafralækjarskóli:
Almenn kennarastaða og staða smíðakennara.
Stórutjarnaskóli:
Lausar stöður, æskilegar kennslugreinar handmennt, tón-
mennt og smíðar.
Dalvíkurskóli:
Lausar stöður í íslensku, samfélagsfræði, raungreinum,
tölvufræðum og almennri bekkjarkennslu.
Ennfremur lausar stöður við eftirtalda skóla:
Barnaskóla Húsavíkur.
Grunnskóla Húsavíkur.
Barnaskóla Ólafsfjarðar.
Gagnfræðaskóla Olafsfjarðar.
Grunnskólann Grímsey.
Húsabakkaskóla.
Grunnskóla Saurbæjarhrepps.
Grenivíkurskóla.
Litlulaugaskóla.
Grunnskólann Þórshöfn.
Fræðslustjóri Noröurlandsumdæmis eystra.