Dagur - 09.05.1991, Síða 1
74. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 9. maí 1991
86. tölublað
Steinullarverksmiðj an:
Margrét Lára
1 • •• •
kjonn
stjórnarformaður
Aðalfundur Steinullarverk-
smiðjunnar hf. á Sauðárkróki
var haldinn fyrr í vikunni.
Nokkrar mannabreytingar
urðu í stjórn félagsins og var
María Lára Kristjánsdóttir
kosin formaður stjórnar og er
það í fyrsta skipti sem kona
gegnir því embætti.
Aðrir sem sitja í nýrri stjórn
eru: Árni Guðmundsson, Jón
Helgi Guðmundsson, Jón -Ingi-
marsson, Stefán Guðmundsson,
Esa Tikka og Peder Biese. Þeir
tveir síðastnefndu eru fulltrúar
finnska fyrirtækisins Partek sem
er eignaraðili að Steinullarverk-
smiðjunni.
Rekstrartekjur voru 369,6
milljónir króna á síðasta ári og
rekstrargjöld voru 267 milljónir
króna. Hagnaður eftir fjármagns-
kostnað var 47,9 milljónir króna
og er það í fyrsta skipti sem
Steinullarverksmiðjan skilar
hagnaði.
Fjármunamyndun var 58,5
milljónir á síðasta ári og eigin-
fjárhlutfall var 26,3 milljónir
króna. Steinullarverksmiðjan
hefur nú þegar getið sér gott orð
fyrir gæðaframleiðslu og sölu-
horfur eru nokkuð góðar á árinu.
kg
Tími vorverkanna.
Mynd: Golli
Eyja^örður:
Árið 1990 var metár í
gróðursetnmgu plantna
Á félagssvæði Skógræktarfé-
lags Eyfirðinga voru gróður-
settar 289 þúsund plöntur á
síðasta ári, sem er það mesta
sem hefur verið gróðursett á
einu ári til þessa. Þá hafa
aldrei áður verið framleiddar
fleiri plöntur í uppeldisstöð
félagsins í Kjarna og aldrei
hafa verið friðuð stærri lönd til
trjáræktar á félagssvæðinu og
á síðasta ári. Þetta kom fram í
máli Hallgríms Indriðasonar,
framkvæmdastjóra Skógrækt-
arfélags Eyfírðinga, á aðal-
fundi þess í gærkvöld.
í svokölluðu „Landgræðslu-
skógaátaki" var plantað 106 þús-
und plöntum. Par af var 80 þús-
und plöntum plantað á Melgerð-
ismelum, 7 þúsund í Hrísey og 19
þúsund í Ólafsfirði.
Samkvæmt samningi Akureyr-
arbæjar og Skógræktarfélags Ey-
firðinga frá árinu 1972 annast
félagið framkvæmd og skipulagn-
ingu útivistarsvæða á Akureyri.
Á síðasta ári var lokið við friðun
á nýju útivistarsvæði í Eyrar-
landshálsi, samtals um 1000 ha.
Bæjarsjóður og Landgræðslan
stóðu sameiginlega að friðuninni.
Alls voru gróðursettar 56 þúsund
Atvinnuhorfur framhaldsskólanema í sumar:
Útlitíð betra en síðustu tvö ár
Atvinnumálanel'nd Akureyrar-
bæjar gerði nýverið könnun á
atvinnuhorfum framhalds-
skólanema á Akureyri á kom-
andi sumri. Niðurstöður
könnunarinnar sýna að
atvinnuhorfur framhaldsskóla-
nema eru betri nú en á svipuð-
um tíma í fyrra og mun betri en
vorið 1989.
Könnunin var gerð þann 17.
apríl í Menntaskólanum og
Verkmenntaskólanum. í heild
svöruðu 1083 nemendur í
könnuninni í skólunum báðum.
Ef litið er til heildarinnar kem-
ur í ljós að 76,2% aðspurðra
töldu sig hafa vísa sumarvinnu.
Petta hlutfall er um 3% hærra en
í sambærilegri könnun í fyrra.
2,1% aðspurðra svöruðu því
þannig til að þeir hafi vísa vinnu
hluta úr sumri en 17,3% sögðu
óvíst um sumarvinnuna. Hlutfall
þeirra sem enga vinnu höfðu vísa
var 4,4%.
Ef aðeins eru teknir Akureyr-
ingar í framhaldsskólunum kemur
í ljós að 72% þeirra höfðu um
miðjan apríl orðið sér úti um
sumarvinnu. 2,4% aðspurðra
höfðu vinnu hluta úr sumri en
20,1% töldu óvíst um vinnu.
Atvinnuhorfur pilta og stúlkna
eru mjög áþekkar. Þannig reynd-
ust 74,5% piltanna með vísa
vinnu en 77,5% stúlknanna. Pá
voru 17,7% piltanna í óvissu um
sína vinnu en 16,8% stúlknanna.
Einnig var hærra hlutfall pilta
sem enga vísa vinnu hafði en
K. Jónsson & Co.
Jón Þór Gunnarsson ráðinn
stúlkna.
Akureyringar sem í þessum
skólurn eru, og þegar hafa útveg-
að sér sumarvinnu, sækja hana
að stærstum hluta í bænum sjálf-
um en þó eru 3,9% þeirra sem
leita sér vinnu á Eyjafjarðar-
svæðinu, þ.e. utan Akureyrar, og
rösk 10% leita út fyrir svæðið eft-
ir vinnu. Þær atvinnugreinar sem
þetta fólk sækir mest í eru bygg-
ingariðnaður og annar iðnaður,
afgreiðslustörf og störf hjá ríki og
sveitarfélögum.
Stærstur hluti þessa fólks kem-
ur á vinnumarkaðinn um eða upp
úr næstu mánaðamótum, um
60% fyrir mánaðamót og um
26% á fyrstu 10 dögum næsta
mánaðar. JÓH
plöntur í útivistarsvæðin á árinu
1990.
Á síðasta ári var unnið að
grisjun í Vaðlareit, grisjað var
lerki frá 1957. Féll til nokkurt
ntagn af nytjaviði, auk girðingar-
efnis. Gróðursettar voru 18 þús-
und plöntur í skógarreiti og á
jörðum bænda voru gróðursettar
109 þúsund plöntur.
Á sl. ári var hafin bygging á
400 fermetra gróðurhúsi í Kjarna
sem nú stendur fullbúið til notk-
unar. Heildarkostnaður við það
er um 4,7 milljónir króna. Nú er
unnið að byggingu skrifstofu- og
afgreiðsluhúss í Kjarna.
Framleiddar voru rúmar 405
þúsund skógarplöntur í Kjarna á
síðasta ári og voru afgreiddar
323.500 plöntur. Plöntusala á
árinu var að andvirði 14,6 millj-
ónir króna og hafði aukist um
38% í krónum talið frá fyrra ári.
óþh
Æðarbændur í
startholunum
Æðarbændur á Skaga eru farn-
ir að búa í haginn fyrir æðar-
fuglinn en nú þegar er fuglinn
farinn að hópast í grennd við
vörpin. Útlit er fyrir að verð á
æðardún verði heldur lægra en
í fyrra en þá fengust rúmlega
fjörutíu þúsund krónur fyrir
kílóið af hreinsuðum dún.
Að sögn Rögnvaldar Steins-
sonar bónda á Hrauni á Skaga er
baráttan við minkinn eitt helsta
vandamálið sem takast þarf á við.
„Við höfum drepið fjóra minka
hér í kring nýlega. Það er nóg af
þessum kvikindum en með því að
hreinsa vel í kringum varpið hef-
ur okkur tekist að losna við skað|
síðustu ár,“ sagði Rögnvaldur
Steinsson á Hrauni.
Grásleppuveiðar hafa gengið
treglega það sem af er. ðvana-
lega margir eru við grásleppu-
veiðar í vor, sennilega hátt í
helmingi fleiri en á sama tíma í
fyrra. Nokkuð gott verð er á
grásleppuhrognum en meðalveiði
hjá grásleppubændum er um
þrjátíu tunnur um þessar mundir
og er það minna en í meðalári.
kg
framkvæmdastjóri 1. júlí nk.
- Kristján Jónsson verður áfram stjórnarformaður
Jón Þór Gunnarsson, iðnaðar-
verkfræðingur, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri K.
Jónssonar & Co hf. á Akur-
eyri frá og með 1. júlí nk. Frá
sama degi lætur núverandi
framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins, Kristján Jónsson, af því
starfí, en hann mun þó áfram
starfa sem formaður stjórnar
fyrirtækisins.
Eins og kunnugt er, er K. Jóns-
son & Co hf. eitt öflugasta og
rótgrónasta fyrirtæki á Akureyri.
Það var stofnað árið 1947 af Jóni
Kristjánssyni og fleirum og síðar
komst fyrirtækið í eigu sona
Jóns, Kristjáns núverandi fram-
kvæmdastjóra og Mikaels, sem
nú er látinn. Núverandi eigendur
eru Kristján Jónsson og börn
hans ásamt Sæplasti hf. og Sam-
herja hf., sem um síðustu áramót
keyptu 30% af hlutafé fyrirtækis-
ins.
Á síðasta ári nam framleiðslu-
verðmæti fyrirtækisins 800 millj-
ónum króna og varð aukning í
rækju- og kavíarvinnslu, en sam-
dráttur í síldarvinnslu. Um 70
manns starfa hjá fyrirtækinu.
Jón Þór Gunnarsson hefur frá
því í janúar 1988 starfað hjá
Skinnaiðnaði Sambandsins á
Akureyri, þar af hefur hann verið
framleiðslustjóri síðan í ágúst
1988. óþh
Akureyri:
Nýr veitingastaður að opna
Á næstunni verður opnaður
nýr veitingastaður að Geisla-
götu 7 á Akureyri en þar var
veitingahúsið Hlóðir áður til
liúsa. Húsnæðið er í eigu
Hótel Norðurlands og mun
nýtt hlutafélag taka það á
leigu og hefja rekstur innan
skamms.
Stofnun þessa hlutafélags er
ekki frágengin en að sögn Guð-
rúnar Gunnarsdóttur, hótel-
stjóra Hótel Norðurlands,
munu að því standa einstakling-
ar á Akureyri. Hótelið sjálft á
ekki aðild að þessunt rekstri en
mun kaupa mat fyrir hótelgesti
af staðnum enda hann í sama
húsi.
Guðrún sagði að á næstunni
verði kunngert hverjir standi að
hinum nýja veitingastað og að
hann verði opnaður í mánuðin-
um. JÓH