Dagur - 09.05.1991, Side 3
Fimmtudagur 9. maí 1991 - DAGUR - 3
Margrét Þórhallsdóttir gjaldkeri kvennadeildar SVFÍ á Akureyri og Svála
Halldórsdóttir formaður deildarinnar með veggspjaldið. Mynd: Golli
Kvennadeildir SVFÍ:
Létu hanna veggspjöld
um öryggismál sjómanna
Kvennadeildir Slysavarnafé-
lags íslands hafa látið hanna og
framleiða veggspjöld um
öryggismál sjómanna, til
notkunar um borð í öllum
íslenskum skipum. Vegg-
spjaldið ber nafnið „Til
áminningar fyrir sjómenn“.
Það er í tveimur stærðum og
munu slysavarnakonur dreifa
því til allra skipa sem skráð eru
á íslandi.
í ávarpi Láru Helgadóttur, 2.
varaforseta SVFÍ, sem flutt var í
marsmánuði um borð í Sæbjörg-
inni í Reykjavíkurhöfn, sagði
m.a. þetta: „Kvennadeildir
Slysavarnafélags íslands hafa allt
frá stofnun Slysavarnaskóla
sjómanna látið sér mjög annt um
það starf sem hér er unnið, og
reynt að styðja skólann á allan
hátt. Þegar hugmynd kom fram
um að láta hanna veggspjald sem
dreift yrði í öll skip til áminning-
ar fyrir sjómenn, fannst okkur
það vera í takt við tímann og það
sem er að gerast í öryggismálum
sjómanna í dag. Þetta spjald er
hannað af frú Erlu Sigurðardótt-
ur í Kópavogi, en Þórir Gunnars-
son og fleiri aðstoðuðu við gerð
texta og kann ég þeim bestu
þakkir fyrir.
Bæði mynd og texti eru unnin
út frá orðunum KANNTU-
VEISTU-MUNDU, og á að
vekja menn til umhugsunar um
að vera sífellt vakandi fyrir
umhverfi sínu, sem er skipið í
þessu tilfelli. Þá vil ég minna á að
kvénnadeildir SVFÍ hafa, hver á
sínum stað, látið setja upp við
hafnir landsins skilti til að minna
á tilkynningarskyldu íslenskra
skipa. Allt eru þetta liðir í að
gera það öryggiskerfi sem byggt
hefur verið upp fyrir sjómenn og
sæfarendur eins skilvirkt og kost-
ur er.“ EHB
Austurland:
Bergþór ráðinn um-
dæmisstjóri Flugleiða
Bergþór Erlingsson, sem gegnt
hefur stööu afgreiöslustjóra
hjá Flugleiðum hf. á Akureyri,
hóf nýverið störf sem
umdæmisstjóri Flugleiða hf. á
Austurlandi með aðsetur á
Egilsstöðum.
Að sögn Bergþórs hóf hann
störf hjá Flugleiðum hf. fyrir
rúmum tólf árum og hefur starfað
á Akureyrarflugvelli alla tíð þar
til nú.
„Nýja starfið leggst mjög vel í
mig. Verið er að lengja flug-
brautina í 2000 metra og í beinu
framhaldi af því verki verður
brautin lengd í 2400 eða 2700
metra. Þegar þeim áfanga er náð
getur flugvöllurinn þjónað sem
varaflugvöllur fyrir millilanda-
flugið. Um 50.000 farþegar fara
um Egilsstaðaflugvöll og til að
anna umferðinni er verið að bæta
húsakostinn. Fastir starfsmenn
eru 6 og nú stendur til að fjölga í
starfsliðinu. Auk afgreiðslu Flug-
leiða hf. annast starfsmenn
afgreiðslu á flugvélum Flugfélags
Norðurlands hf. og Flugfélags
Austurlands hf.“ sagði Bergþór
Erlingsson, umdæmisstjóri. ój
Dalvík:
Nauðungaruppboð á
lausafé þrotabúa
Nauðungaruppboð á lausafé
þrotabúa tveggja fyrirtækja á
Dalvík, fiskeldisfyrirtækisins
Öluns hf. á Dalvík og Fóður-
stöðvarinnar hf., verður haldið
föstudaginn 17. maí á Dalvík.
Á nauðungaruppboðinu verð-
ur selt að kröfu bústjóra þrotabús
Öluns hf. plastbátur með utan-
borðsmótor, súrefnismælir, íjósa-
vél, kvíar, flotbryggjur, sjódælur
o.fl. Að kröfu bústjóra Fóður-
stöðvarinnar verður hins vegar
boðin upp Scania-bifreið, árgerð
1973. Þá verða að kröfu tollstjór-
ans í Ólafsfirði seld minka- og
refabúr og net. óþh
Staðsetning nýrrar réttargeðdeildar:
„Hef viljað kanna það til hlítar
að hún verði staðsett á Akureyri“
- segir Sigmundur Sigfússon yfirlæknir Geðdeildar FSA
Guðmundur Bjarnason fráfar-
andi heilbrigðis- og trygginga-
ráðherra skipaði Láru Höllu
Maack, lækni, til þess að vera
yfirlæknir nýstofnaðar réttar-
geðdeildar ráðuneytisins frá og
með 1. maí. Á yfirstandandi
ári er gert ráð fyrir 22 milljóna
króna framlagi til þessa verk-
efnis. Einnig hefur fengist
heimild til kaupa á húsnæði til
nota sem heimili fyrir geðsjúka
afbrotamenn.
Guðmundur Bjarnason hefur
lagt áherslu á að kannaðir verði
til hlítar möguleikar á rekstri
slíkrar deildar í tengslum við
Geðdeild Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri, sérstaklega þann
þáttinn er varðar vistunarmál.
„í skýrslu nefndar sem lagði
upp þessar hugmyndir, segir að
réttargeðdeildin skuli starfa í
tengslum við geðdeild einhverra
stóru sjúkrahúsanna, þ.e. Land-
spítalans, Borgarspítalans eða
FSA,“ sagði Guðmundur Bjarna-
son í samtali við Dag.
Guðmundur sagði að eins og
alltaf sjái menn einhverja agnúa
á því að fara með slíka starfsemi
út á land. „Þetta er svolítið við-
kvæmt mál og menn verða að
vera búnir undir átök við íbúa í
næsta nágrenni við réttargeð-
deildina. Slík mál hafa komið
upp víða og nú síðast á Seltjarn-
arnesi, í sambandi við einhverfu
börnin."
Sigmundur Sigfússon yfirlækn-
ir á Geðdeild FSA segir að verk-
efni nýráðins yfirlæknis réttar-
geðdeildarinnar verði skipulagn-
ing og þróun deildarinnar og að
ákveða stærð og staðsetningu
hennar og setja upp fjárhagsáætl-
un.
„Svona deild þarf að hafa góða
samvinnu við almenna geðdeild
og því er talað um að tengja hana
við eina af þremur geðdeildum í
landinu. Ég hef viljað athuga það
til hlítar að hafa réttargeðdeild-
ina hér fyrir norðan og tel að það
myndi styrkja mína deild rnikið,"
sagði Sigmundur.
Hann segir að mörgun þyki
það fráleitt, í fyrstu alla vega, að
slík stofnun sé staðsett utan
höfuðborgarsvæðisins. „En
svona sérhæfða deild á alveg að
vera hægt að byggja upp á Akur-
eyri. Það tekur kannski lengri
tíma að fá sérhæft fólk norður til
starfa en það er vel hægt ef vilj-
inn er fyrir hendi.“
Sigmundur sagði að andrúms-
loftið hefði verið kannað hjá
ráðamönnum bæjarins gagnvart
staðsetningu slíkrar stofnunar
hér á Akureyri og þar hefði ekki
borið á neikvæðni. „Það er mjög
mikilvægt, ef að þessu yrði, að
það verði gert á mjög traustvekj-
andi hátt. Þetta er stofnun sem
minnir jafnmikið á fangelsi og
heilbrigðisstofnun, þ.e.a.s. hún á
að vera mannheld," sagði Sig-
mundur. -KK
Karlakór Akur-
eyrar-Geysir:
Tónleikum
frestað vegna
veikinda
- ákveðið að halda tón-
leikana 19. og 20. maí
Veikindi setja strik í reikning-
inn meö tónleikahald Karla-
kórs Akureyrar-Geysis. Kór-
inn ætlaði aö halda tónleika í
kvöld, uppstigningardag, og
nk. laugardag, en vegna veik-
inda hefur þeim verið frestað.
Ingvi Rafn Jóhannsson, for-
maður kórsins, sagði að karla-
kórsmenn hefðu þó síður en svo
lagt árar í bát og ákveðið væri að
efna til tónleika í íþróttaskemm-
unni á Akureyri hvítasunnu-
dagana 19. og 20. maí nk.
óþh
You&Me [4*. Cfih
JffJ
HERRADEILD