Dagur - 09.05.1991, Page 7
Fimmtudagur 9. maí 1991 - DAGUR - 7
Svipmyndir frá æfingu verksins „í teiti hjá prinsessunni á bauninni“.
Petý: „Jú, þá hefði alltaf þurft
að stoppa á milli.“
- En verður ekki hlé á leikrit-
inu?
Petý: „Margrét er ekki búin að
ákveða það enn.“
Björn H.: „Jú, hún er búin að
ákveða það. Hún sagði í dag, að
hún vildi bara renna leikritinu
öllu í gegn í einu á þessari
æfingu.“
- Hvað er leikritið langt?
Petý: „Ég veit ekki. Ætli það
sé ekki rúmir tveir tímar.“
- Tveir tímar. Það er frekar
mikið. Kvíðið þið fyrir?
Margraddað: „Nei, já, nei,
já...“
Petý: „Ég kvíði fyrir því, ef
fólkið í salnum svarar mér ekki,
þegar ég er að tala við það.“
- Vildirðu, að það væri nefnt
við fólk áður?
Petý: „Það vita það nú nokkuð
margir. Margar konur hafa verið
að vinna við leikritið."
- Þær geta þá hjálpað?
Petý: „Ég ætla að vona það.“
Einhver: „Þær eru nú búnar að
sjá leikritið.“
- Eru margir búnir að sjá
leikritið?
Björn H.: „Konurnar, sem
hafa verið að passa þá, sem bíða
eftir að leika, hafa fylgst með.
Svo kemur fólk kannski frá
Kópaskeri til að sjá leikritið.“
Björn R.: „Og kannski frá
Svalbarði, Mývatnssveit, Þórs-
höfn, Húsavík og víðar, við von-
um það að minnsta kosti.“
- Hvort kvíðið þið meira að
leika fyrir fólkið, sem kemur að,
eða fólkið, sem býr hérna?
Björn H.: „Aðkomufólkið."
Ægir: „Hvorugt."
- Þú kvíðir ekkert fyrir?
Ægir: „Nei.“
- En nú er þetta leikrit ekki
bara ævintýri, heldur einnig
raunveruleiki samtímans eins og
hjá þér, þar sem þú ert að spila í
lottó. Þetta er svona nýtísku
ævintýri.
Ægir: „Já, t.d. kemur kóngs-
sonurinn á mótorhjóli inn í
salinn.“
Petý: „Höfundurinn er búinn
að breyta persónunum svona
örlítið. “
- En Þyrnirós sefur í hundrað
ár.
Björn H.: „Svo höfum við
rennihurð í staðinn fyrir þyrni-
gerði.“
Petý: „Það er nú vafamál,
hvort þetta er rennihurð eða
þyrnigerði.“
Björn H.: „Lína langsokkur
fór í sund og þar var allur kirkju-
kór Raufarhafnar í sundi til þess
að ná af sér spikinu.“
Erna: „Megrunarsund, svo
kórinn ætti betra með að komast
upp á háa C-ið.“
- Hvað viljið þið segja í lokin?
Smá þögn.
- Þið hlakkið bara mjög mikið
til að fara að sýna þetta fyrir
fjöldann allan af fólki. Hlakkið
þið ekki til?
Margraddað: „Jú, jú, jú ógeðs-
lega mikið til.“
- Nú syngið þið mikið.
Erna: „Ekkert voðalega mikið,
en það er fín hljómsveit, Simsons-
fjölskyldan.“
Ægir: „Jú, jú, það eru nokkrir
söngvar í þessu leikriti."
Erna: „Við syngjum: „Ari er
lítill“ og „Guttavísur“.“
Björn H.: „Og „Öxar við ána“
og „Afi minn fór á honum
Rauð“.“
- Já, og ég sá á æfingunni, að
þið farið í leikfimi og syngið upp-
hafslag og lokalag, og svo er
dansað og líka myndlistarsýning
- myndir úr ævintýrum?
Allir: „Já, já.“
- Ég þakka ykkur bara fyrir og
gangi ykkur vel.
Texti: Einar E. Sigurðsson
Myndir: G.M.Ó.
Aðalfundur
Aðalfundir Samvinnutrygginga g.t. og Líftrygg-
ingafélagsins Andvöku verða haldnir í Ármúla 3,
Reykjavík, miðvikudaginn 5. júní nk. og hefjast
kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Á aðaifundi Líftryggingafélagsins Andvöku verða
bornar fram tillögur um breytingar á samþykktum,
félagsslit og yfirfærslu á starfsemi félagsins til Líf-
tryggingafélags (slands hf.
Stjórnir félaganna.
L!FTRYGG1NGAFELAGIÐ
ANDVAKA
SAMVINNU
TRYGGINGAR
AKUREYRARBÆR
Akureyringar!
Lóðahreinsun og
fegrunarvika
Eigendur og umráðamenn lóða á Akureyri eru
áminntir um að hreinsa af lóðum sínum allt
sem er til óþrifnaðar og óprýði og hafa lokið
því fyrir 18. maí nk.
Hin árlega fegrunarvika á Akureyri er ákveðin
13.-17. maí nk. Starfsmenn Akureyrarbæjar
munu fjarlægja rusl sem hreinsað hefur verið af
íbúðarhúsalóðum og sett er í hrúgur á götukanta
framan við lóðir eftirgreinda daga.
Mánudag 13. maí:
Innbær og suðurbrekka sunnan Þingvallastrætis
og austan Mýrarvegar.
Þriðjudag 14. maí:
Lundarhverfi og Gerðahverfi.
Miðvikudag 15. maí:
Miðbær og ytribrekka norðan Þingvallastrætis og
austan Mýrarvegar.
Fimmtudag 16. maí:
Oddeyri og Holtahverfi.
Föstudag 17. maí:
Hlíðahverfi og Síðuhverfi.
Nánari upplýsingar varðandi hreinsunina verða
gefnar á skrifstofu heilbrigðiseftirlitsins, Kaupangi
v. Mýrarveg, sími 24431.
Atvinnurekendur eru sérstaklega hvattir til að
hreinsa lóðir fyrirtækja sinna sömu daga.
Athygli er vakin á því að heilbrigðisnefnd er hei-
milt að fjarlægja númerslausar bifreiðar og bílflök
að undangenginni viðvörun með álímingarmiða.
Heilbrigðisfulltrúi.
Um
íður ásamt
NNI