Dagur - 09.05.1991, Side 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 9. maí 1991
Fimmtudagur 9. maí 1991 - DAGUR - 9
1946
Arthur Gook, kristniboði, reisti hermannabragga við
vatnið Ástjörn í Kelduhverfi árið 1945. í þessum
bragga hugðist hann koma á fót sumarbúðum fyrir
börn. Fyrstu börnin dvöldu á Ástjörn sumarið 1946,
stúlkur í eina viku, drengir í eina viku. Helsti aðstoðar-
maður Arthurs var Sæmundur G. Jóhannsson. Þeir
nutu hjálpar margra úr Sjónarhæðarsöfnuðinum á
Akureyri, þar á meðal Boga Péturssonar, núverandi
forstöðumanns.
1956
Heilsu Arthurs fór stöðugt hrakandi og því hvíldi starfið
mikið á Sæmundi G. Jóhannssyni og fleirum. Fór að
lokum svo að Arthur var ráðlagt að flytja í hlýrra
loftslag, heilsu sinnar vegna. Það varð því úr að Arthur
fól starfið í hendur Sjónarhæðarsafnaðar. Fljótlega upp
úr því var hafist handa við að byggja nýtt hús á Ástjörn,
því gamli bragginn var löngu búinn að sprengja starfið
utan af sér.
1959
Sæmundur G. Jóhannsson sem veitt hafði starfinu
forstöðu frá því að Arthur flutti erlendis hafði nú fundið
konuefni og tók þá ákvörðun að hverfa frá starfinu við
Ástjörn til þess að sinna eigin fjölskyldu. Bogi Péturs-
son, ungur maður í söfnuðinum var fenginn til þess að
taka við starfinu. Auðmjúkur tók hann við þessari miklu
ábyrgð með þeim orðum að það væri hans bæn að
Guð mætti nota hann sem sinn þjón.
1967
Það hafði hvílt þungt á Boga í nokkurn tíma að viss
áhætta væri í því fólgin að hafa svona stóran hóp á
Ástjörn, því heimilið var símalaust. Hann tók þá
ákvörðun að sími yrði að koma á Ástjörn og gekk frá
samningi þess efnis við Símamálastjóra. Þótti mörgum
sem þarna væri ráðist í of stóra framkvæmd fyrir litlar
sumarbúðir, en Drottinn blessaði framkvæmdina og
þennan hjall tókst að kljúfa. Nokkru seinna bættist svo
rafmagnið við tækniundrin á Ástjörn.
1976
Á afmælisári sumarbúðanna var Ástjörn gefið lítið hús,
fjögurra manna svefnskála, hlaut hann nafnið
Hvammur. Þar með var kominn vísir að enn frekari
stækkun á Ástjörn, því slík var aðsóknin að færri kom-
ust að en vildu.
1978
Haustið 1977 var auglýstur til sölu svefnskáli sem þjón-
að hafði verkamönnum í Kröflu. Bogi fór af stað til þess
að kanna hvort það væri möguleiki fyrir Ástjörn að
eignast húsið. Hann leitaði meðal annars til Bræðra-
safnaðanna í Færeyjum sem í gegnum árin höfðu
styrkt starfið við Ástjörn og úr varð að húsið var keypt.
Vorið 1978 var svo ráðist í að flytja húsið frá Kröflu til
Ástjarnar. Og á aðeins 44 dögum var húsið rifið í
Kröflu, grunnur steyptur við Astjörn og húsið sett
saman, börnin gátu flutt inn. Þetta hús hlaut nafnið
Maríubúð.
Fríður flokkur fólks á leið til Ástjarnar seint á sjötta áratugnum.
Það er vinsælt að skreppa út á tjörnina á bát eða skútu.
Sumarbúðirnar á
Ástjöm 45 ára
Mikill fjöldi íslendinga hugsar með hlýju til sumarbúðanna á
Astjörn í Kelduhverfí, sem í ár halda upp á 45 ára starfsafmæli.
Þúsundir ungmenna hafa notið sumardvalar á þessum fagra
stað með kristilegri fræðslu í starfi og leik, síðustu þrjá ára-
tugina undir handleiðslu Boga Péturssonar forstöðumanns.
Dagur fékk á þessum tímamótum nánasta samstarfsmann
Boga, bróðurson hans, Pétur Björgvin Þorsteinsson, til að
rifja upp nokkur söguleg atriði og lýsa starfínu, en í sumar
munu nálega 300 drengir og stúlkur úr öllum landshlutum
dveljast að Ástjörn.
líka lengst, fyrsta árið var drengj-
unum boðið að dvelja í eina viku
við Astjörn en stúlkum í aðra en
fljótlega breyttist það á þá lund
að drengirnir fengu að dvelja í
tvær en stúlknaflokkurinn lagður
af. í dag er drengjum á aldrinum
sex til tólf ára boðið að dvelja á
Ástjörn frá tveim vikum upp í tíu
vikur og í fyrsta sinn á síðasta ári
bauðst stúlkum að dvelja við
Ástjörn ásamt drengjunum síð-
ustu tvær vikurnar. Svo verður
einnig í sumar, en fjölbreytnin á
Ástjörn verður sífellt meiri, nú á
Það þurfti mikið áræði og
sterka trú til þess að hefja sumar-
búðarekstur á fimmta áratugn-
um. Þetta áræði og þessa trú
hafði kristniboðinn Arthur
Gook. í skjólsælum hvammi við
lítið vatn í Kelduhverfi valdi
hanri sumarbúðunum stað og að
fengnu leyfi landeiganda var
reistur braggi í þessum hvammi.
Fyrsta húsið var risið við
Ástjörn, það skyldi hýsa sumar-
búðirnar um ókomin ár.
Strax frá upphafi var ljóst að
þarna var að fara af stað starf
sem naut velvildar margra. Þeirri
velvild er ef til vill best lýst með
orðum Sigríðar í Ási sem þá var
landeigandi: „Margir hafa sóst
eftir landinu og mörgum hef ég
neitað, en börnunum get ég ekki
neitað".
Bragginn er löngu horfinn og í
hans stað komin önnur hús, enda
barnafjöldinn orðinn sextánfald-
ur í dag frá því sem hann var
fyrsta árið. Dvalartíminn hefur
Bogi Pétursson forstöðumaður með
tvo unga sveina framan við húsið á
Ástjörn á frumbýlisárum starfsem-
innar.
45 ára afmælisári sumarbúðanna
verður sérstakur unglingaflokkur
fyrir 13 ára og eldri.
Bogi Pétursson hefur veitt
sumarbúðunum forstöðu frá
1959. Hann er sonur hjónanna
Péturs Jónssonar, bílstjóra á
Héraði og seinna skósmiðs á
Akureyri og Sigurbjargar Péturs-
dóttur. Bogi er skósmiður að
mennt og þótti það tíðindum
sæta að skósmiður skyldi verða
fyrir valinu til þess að veita
sumarbúðunum að Ástjörn for-
stöðu. Af einstakri elju og í trú
hefur Bogi staðið frammi fyrir
nýjum hóp á hverju sumri, boðið
börnin velkomin og fallið svo inn
í hópinn, ungur í anda eins og
börnin, en samt Bogi á Ástjörn,
sem börnin líta upp til og elska.
Sumarbúðirnar við Ástjörn
voru lengst af byggðar upp á ann-
an hátt en aðrar sumarbúðir að
því leyti, að frekar hefði mátt tala
um sumardvalarheimili, því það
tíðkaðist ekki á Ástjörn að einn
hópur kæmi í annars stað, heldur
dvöldu allir drengirnir lungann úr
sumrinu á Ástjörn. í tímans rás
hefur þetta þó breyst á þá lund að
hægt er að dvelja á Ástjörn í tvær
vikur hið minnsta, en allt að tíu
vikur hið mesta. Og reyndin er
orðin sú að flestir byrja sitt fyrsta
sumar með tveggja vikna dvöl,
en með árunum lengist dvölin.
Margur kann að spyrja hvort
möguleiki sé á að halda uppi
dagskrá í sumarbúðum í tíu vikur
samfleytt, hvort það verði ekki
leiðigjarnt fyrir þá sem dvelja
allan tímann. Pví er til að svara
að á Ástjörn er ekki stundaskrá
fyrir hvern dag, því eitt af grund-
vallaratriðum starfsins á Ástjörn
er að þó að heimilið sé stórt, þá
er heimilisfólkið ein fjölskylda og
hvað hver gerir á hverjum degi er
að mestu undir honum komið.
Hvort heldur barnið velur að fara
út á hjólabát, skútu eða árabát,
taka þátt í fótboltaleik eða fara
með vinum sínum út í skóg, þá er
það frjálst og óheft í hinni
íslensku náttúru þjóðgarðsins við
Jökulsárgljúfur.
í frjálsum leik og starfi líður
hver dagur á fætur öðrum þar
sem hver þeirra ber eitthvað nýtt
í skauti sér, nýja upplifun. Og að
degi loknum er gott að halla
höfði, spenna greipar og biðja til
Guðs, hann hlustar.
Arthur Gook stofnandi sumarbúöanna að Ástjörn
ásamt konu sinni Kristínu Steinsdóttur Gook.
Fyrsta vatnsveitan á Ástjörn var sett upp árið 1949. Þó hún hafi ekki verið
flókin, kom hún að góðum notum. Á myndinni er María Pétursdóttir systir
Boga en hún var ráðskona á Ástjörn ■ 11 ár.
1985
17. apríl þetta ár, kom tilkynning til Akureyrar um fyrsta
tjónið í sögu Ástjarnar. Vatn hafði flætt inn á neðri hæö
elsta hússins. Þegar var haldið til Ástjarnar og seint um
kvöldið kom Bogi ásamt nokkrum úr fjölskyldu sinni til
Ástjarnar. Við blasti hörmuleg sjón, í borðsal var allt á
kafi í vatni og augljóst að nokkur tími var síðan vatnið
komst inn í húsið því klaki var mikill i vatninu. í neyð
sinni kraup þessi hópur niður og bað góðan Guð um
hjálp. Þegar börnin komu til Ástjarnar 19. júní var búið
að einangra borðsalinn, nýjar klæðningar komnar á
veggina, uppvöskunarvélin verið endurnýjuð og fleira.
Sem fyrr sýndi Guð þeim er starfa á Ástjörn náð sína.
1986
Fjölmennasti dagur við Ástjörn rann upp, einn dag
þetta sumar voru 100 börn í dvöl í sumarbúðunum auk
28 manna starfsliðs. Sumarbúðirnar voru orðnar full-
orðnar, 5 hús á lóðinni og líf og fjör í hverju horni.
1988
Með góðri hjálp frá Færeyjum var byggt sérstakt
þvottahús á Ástjörn. Bygging þess húss var liður í
skipulagsbreytingum við Ástjörn. Tekin hafði verið sú
ákvörðun að fækka dvalargestum á hverjum tíma á
Ástjörn niður í 80 börn þannig að rýmra yrði um hvern
einstakling. Þess í stað var dvölin lengd í tíu vikur í
stað átta vikna áður.
1990
Síðasta sumar við Ástjörn dvöldu um 300 börn alls. (
fyrsta skipti var boðið upp á dvöl fyrir stúlkur. Dvölinni
var skipt þannig upp að fyrstu átta vikurnar voru fyrir
drengi en í níundu og tíundu viku var stúlkum boðið að
vera með drengjunum við Ástjörn. Sem fyrr var miðað
við aldurinn 6 til 12 ára.
Félag hjartasjúklinga
á Eyjafjarðarsvæðinu
heldur aðalfund
laugardaginn 11. maí nk. kl. 15.30 í Gler-
árkirkju.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Jón Þór Sverrisson, hjartasérfræðingur, flyt-
ur erindi og svarar fyrirspurnum.
Nýir félagar velkomnir.
Félagsstjórnin.
( \
-I- M • 0
Takið eftir!
Ákiæði og gluggatjaldaefni
Glæsilegt úrval - frábært verð,
frá kr. 280 kr. per. m.
Svampdýnur fyrir heimilið, sumar-
húsið, hjólhýsið eða tjaldvagninn.
Latexdýnur, eggjabakkadýnur.
SVAMPUR OG BÓLSTRUN
Austursíða 2 (Sjafnarhúsið), sími 96-25137.
V____________________________________y
Lögtaksúrskurður
Hér með úrskurðast lögtök til tryggingar eftirtöldum
gjöldum, álögðum eða áföllnum 1991 á Akureyri,
Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu.
Vanskilafé, álagi og sektum skv. 29. gr. 1. nr. 45/
1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 14. gr.
1. nr. 90/1987 fyrir 02 og 03 greiðslutímabil 1991
með eindögum 15. mars og 15. apríl sl.
Vanskilafé og álag skv. 1. nr. 50/1988 um virðis-
aukaskatt fyrir janúar til febrúar 1991 með eindögum
5. apríl 1991.
Einnig tekur úrskurðurinn til viðbótarsöluskatts og
söluskattshækkana til þessa dags og stöðvunar-
brotsgjalds skv. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Loks tekur úrskurðurinn til þinggjaldahækkana,
dráttarvaxta og kostnaðar.
Fer lögtak fram að liðnum 8 dögum frá birtingu
úrskurðar þessa.
Bæjarfógetinn á Akureyri og
Dalvík, sýslumaðurinn í
Eyjafjarðarsýslu.
8. maí 1991.
Plöntusalan
er hafin
★ Fjölbreytt úrval af trjám og runnum.
★ Skógarplöntur í miklu úrvali.
k Garðáburður, grasfræ og gróðurmold.
Opið virka daga frá 9-18.
Laugardaga frá 10-17.
Skógræktarfélag Eyfirðinga
Gróðrarstöðin í Kjama
Sími 24047.