Dagur - 09.05.1991, Side 11
Fimmtudagur 9. maí 1991 - DAGUR - 11
tónlist
HaJldór Haraldsson
Þeir, sem lögðu leið sína á tón-
leika Halldórs Haraldssonar í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
sunnudaginn 5. maí, áttu þar
ógleymanlega stund. Hinn mikli
Petrof-flygill Tónlistarfélags
Akureyrar lék í höndum Halldórs
og hann dró fram lir hljóðfærinu
blæbrigði verkanna með listileg-
um og glæsilegum hætti. Slíkir
gestir sem hann hljóta ævinlega
að vera hverjum tónlistarunn-
anda kærkomnir og mikið eftir-
væntingarefni, þegar þeirra er
von.
Efnisskrá tónleika Halldórs
Haraldssonar var fjölbreytt. Hún
hófst á hinu mikla píanóverki
Beethovens, Sónötu í c-moll op
13, „Pathétique“. Þetta magn-
þrungna verk naut sín vel í túlk-
un Halldórs. Hann laðaði fram
blæ þess og brag af natni. Notkun
hans á hóflegu „rúbató" og
„tenútó" var afar smekkleg og
gæddi verkið tilfinningu.
Annað verkið á efnisskránni
var einnig eftir Beethoven. Það
var Þrjátíu og tvö tilbrigði í c-
moll. Þetta verk, sem byggir á
litlu stefi, sýnir vel sem næst
óþrjótandi hugkvæmni tón-
skáldsins. Flytjandans er að gæða
hin fjölbreyttu tilbrigði lífi og sál.
Þetta tókst Halldóri Haraldssyni
mjög vel, hvert tilbrigði hafði
sinn blæ í túlkun hans og hverju
sinni við hæfi.
Eftir hlé lék Halldór Haralds-
son fyrst þrjú ungversk þjóðlög í
útsetningu Bartóks. Þessi litlu lög
með sínum sérkennilega og
nokkuð framandlega blæ nutu
sín vel í leikandi og léttum flutn-
ingi píanóleikarans.
Verkið Oiseaux tristes, eða
Daprir fuglar, eftir Ravel, sem
var næst á efnisskrá tónleika
Halldórs Haraldssonar, var mjög
skemmtilegt áheyrnar í flutningi
hans. Þetta verk túlkar „mókandi
fugla í myrkviðum frumskógarins
á heitasta tíma sumarsins". Hér
er í raun um prógrammúsík að
ræða, en hún krefst natni í flutn-
ingi eigi áhrif hennar að nást.
Halldór laðaði fram úr flyglinum
hljóð frumskógarins af stakri
Þessar ungu dömur, Anna Guðrún Árnadóttir og Anna Margrét Jónsdóttir,
efndu til hlutaveltu fyrir skömmu og söfnuðu með henni 2.170 krónum, sem
þær gáfu síðan til Glerárkirkju. Mynd: Golli
Skógræktarfélag Eyfirðinga:
Plöntusala fyrr en venjulega
Það hefur víst ekki farið fram
hjá Norðlendingum að vor-
koman er með fyrra móti í ár
og hlýir vindar leika um þá
þessa dagana. Þessi góða tíð
hefur m.a. gert það að verkum
að Skógræktarfélag Eyfirðinga
er nú að hefja árlega plöntu-
sölu, þrem vikum fyrr en venja
er til.
Að sögn Hallgríms Indriða-
sonar, framkvæmdastjóra Skóg-
ræktarfélags Eyfirðinga, gerir
óvenju gott tíðarfar það að verk-
um að hægt er að hefja plöntu-
söluna þrem vikum fyrr en venju-
lega.
Hallgrímur sagði að á sama
tíma í fyrra hefði verið mikill snjór
yfir öllu í Kjarnaskógi, en nú er
hins vegar allt autt og undanfar-
inn hálfan mánuð hafa starfs-
menn Skógræktarfélagsins unnið
að kappi utan dyra.
Eins og venja er til hefur Skóg-
ræktarfélagið á boðstólum fjöl-
breytt úrval plantna í garða og
fyrir skógrækt. Þá selur það
áburð og fræ. óþh
kúnst, svo að unun var á að
hlýða.
Næstsíðasta tónskáldið, sem
átti verk á efnisskrá tónleikanna í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
5. maí, var Debussy. Eftir hann
lék Halldór Haraldsson Pour le
piano. Þetta tæknilega erfiða
verk lék hann af glæsibrag jafn-
framt því, sem hann hlóð túlkun
sína tilfinningu og dýpt.
Efnisskrá tónleikanna lauk á
tveim verkum eftir Chopin. Hið
fyrra var Noktúrna í cís-moll op.
posth., en hið síðara hin sívin-
sæla og margflutta Polonaise í
As-dúr op. 53. Fyrra verkið er
viðkvæmt og ljúft og var það í
túlkun Halldórs, en hið síðara er
magrtþrungið og þróttmikið og
hefur þess vegna hlotið heitið
„Hetju-pólónesan“. Halldór
gæddi þetta verk að fullu þeim
blæ, sem við átti.
Tónleikagestir þökkuðu Hall-
dóri innilega með langvinnu lófa-
^aki fyrir glæsilegan leik hans og
:allega túlkun á þessari fjöl-
breyttu og blæbrigðaríku efnis-
skrá og hann lék eitt verk enn í
lokin. Það var Preludía eftir
Rachmaninov; giæsilegur enda-
punktur stórgóðra tónleika.
Haukur Agústsson.
Aðalfundur
Krabbameinsféiags Akureyrar og nágrennis
veröur haldinn fimmtudaginn 16. maí 1991 kl. 20.30
aö Glerárgötu 36, 2. hæö.
Dagskrá:
1. Fræðsluerindi um húðkrabbamein.
Fyrirlesari er Ellen Mooney læknir.
2. Venjuleg aöalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Allir velkomnir.
Félagar sérstaklega hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Lauf-fundir
Fræðslufundur á vegum NA-landsdeildar LAUF
verður að Hótel KEA laugardaginn 11. maí kl.
14.00.
Brynhildur Briem, næringar- og lyfjafræðingur, flytur
fræðsluerindi um mataræði og svarar fyrirspurnum.
Aðalfundur deildarinnar verður haldinn að Hótel
KEA fimmtudaginn 30. maí kl. 20.00.
Kaffiveitingar.
Nýir félagar velkomnir.
Deildin þakkar kærlega þann mikla stuðning
sem LAUF fékk í Landssöfnun 3. maí sl. til
kaupa á heilasírita.
Stjórnin.
Einingabréf
ávaxta fé
Bílasala • Bílaskipti
MMC Pajero stuttur V-6
Ekinn 25.000. Verð 1.670,
MMC Coit GL árg. '89.
19.000. Verð 690.000.
Ekinn
Subaru Sedan Turbo árg.
18.000. Verð 1.250.000.
Ekinn
CH Camaro árg. ’82. Ekinn 96.000.
Verð 670.000.
Daihatsu Feroza EL-2 árg. ’89,
Ekinn 25.000. Verð 1.200.000.
MMC Space Wagon4x4 árg. ’88. Ek. i iat Uno 45 árg. ’86. Ekinn aðeins Honda Cívic Shuttle 4x4 árg. ’87.
40.000. 7 m. bíll. Verð 1.150.000. 13.000. Verð 320.000. Ekin 69.000. Verð 750.000.
Vegna míkillar sölu
vantar bíla
á staöinn.
bÍIASÆLWW
Möldursf.
BflASAlA
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.
I