Dagur - 09.05.1991, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 9. maí 1991 - DAGUR - 13
Minning:
Ý Baldvin Ólafsson
Fæddur 3. júní 1945 - Dáinn 2. maí 1991
Á morgun kveöjum við félagar í
Iþróttafélaginu Pór á Akureyri
einn félaga okkar hinstu kveöju.
Baldvin Ólafsson lést í hörmu-
legu slysi í Englandi í síðustu
viku, og eftir stöndum við félagar
hans vanmáttugir gagnvart
almættinu og spyrjum hvers
vegna.
Við spyrjum okkur hvers
vegna góður drengur í blóma lífs-
ins er frá okkur tekinn og hvers
vegna við fáum ekki oftar að
njóta samvista við Baldvin og
finna þann mikla Þórsanda sem
ávallt geislaði frá honum. Svör
fáum við auðvitað engin, hér hef-
ur eitthvað okkur æðra tekið í
taumana og við verðum að
beygja okkur og sætta okkur við
það sem gerst hefur þótt það sé
sárt.
Baldvin var einn af þeim
mönnum sem við viljum kalla
ekta Þórsara. Hann gekk ungur
til liðs við félagið, lék með því í
yngri flokkum á sínum tíma og
þótti mikið efni. Ekki fór þó svo
að hann ílentist í félaginu sem
íþróttamaður, en meiri Þórsari
en Baldvin var allt til dauðadags
er vandfundinn.
Mér er sérstaklega minnisstætt
er Baldvin gerðist starfsmaður
Þórs fyrir nokkrum árum. Það
var ekki lítið verkefni sem hann
tók að sér, enda kom það í hans
hlut að sjá um allt vallarsvæði
Þórs í Glerárhverfi, vinna þar að
uppbyggingu og halda í horfinu
því sem fyrir var. Og það var
ekki slegið slöku við.
Það skipti ekki máli hvaða
vikudagur var, eða hvaða tíma
sólarhringsins þurfti að vinna.
Alltaf var Baldvin tilbúinn og
það kom oft fyrir, sérstaklega yfir
sumartímann að hann var á svæð-
inu svo til allan sólarhringinn.
Baldvin vann ómetanlegt starf á
svæði Þórs. Ekki var launa-
kröfunum fyrir að fara og mér er
næst að halda að hann hefði verið
tilbúinn að starfa á svæði félags-
ins endurgjaldslaust. Svo kom að
því að Baldvin hugðist flytja suð-
ur til Reykjavíkur sem hann og
gerði fyrir nokkrum árum. Við
reyndum mikið til að halda í
hann, enda vandfundinn maður
sem var tilbúinn að leggja annað
eins á sig fyrir félagið sitt.
En þótt Baldvin flytti suður, þá
var hann alltaf sami góði Þórsar-
inn í hjarta sínu, og hann fór ekki
leynt með það. Um það geta þeir
líka borið vitni íþróttamenn Þórs
sem hafa haldið suður í keppnis-
ferðir undanfarin ár. Alltaf var
Baldvin mættur þar sem félagið
hans var að keppa, og hvatning-
arópin voru ekki spöruð.
Mér er það sérstaklega minnis-
stætt er handboltalið Þórs var að
keppa í Kópavogi fyrir skömmu.
Þegar ég kom í íþróttahúsið var
fjölmennt á áhorfendapöllunum,
langmest heimamenn að hvetja
lið sitt. En Baldvin var líka
mættur, og það leyndi sér ekki.
Hann fór langt með það einn að
yfirgnæfa heimamenn sem þó
voru fjölmargir og höfðu hátt.
Svona var Baldvin. Hann var
Þórsari fram í fingurgóma og
okkur ómetanlegur liðsmaður.
En nú er hann horfinn okkur í
bili. Við fáum ekki oftar að skipt-
ast á skoðunum við hann um
íþróttir, heyra og finna ákafa
hans þegar slík mál ber á góma,
hlusta á stórbrotnar skýringar
hans á hinum ýmsu atburðum og
hlæja með honum á góðri stund.
Þess í stað verðum við að láta
okkur nægja að ylja okkur við
minningarnar um góðan dreug,
góðan Þórsara sem bar hag
félagsins síns ávallt fyrir brjósti
Ólafsfjörður - Dalvík,
Akureyri og nágrannasveitir.
Útvega öll gögn, ökuskóli eða
sérnám.
Hluti kennslu í heimasveit.
Ódýrara og hagkvæmara nám.
Greiðslukort og sérsamningar.
Matthías Ó. Gestsson,
simi 21205 og 985-20465.
ÖKUKENNSLR
Kenni á Galant, árg. '90
ÖKUKENNSLA - ÆFINGATÍMAR
Útvegum öll gögn, sem með þarf,
og greiðsluskilmáiar við allra hæfi.
JÓN 5. HRNRSON
SÍMI 22335
Kenni allan daginn og á kvöldin.
Tölvubúnaður
Kristniboðsfélag kvenna
hcldur sinn síðasta fund á þessu
vori, laugardaginn 11. maí kl. 15.00
að Víðilundi 20 (hjá Ingileif).
Séra Lárus Halldórsson hefur hug-
leiðingu.
Stjórnin.
Kvennfélagið Framtíðin heldur
félagsfund í Skjaldarvík, mánudag-
inn 13. maí.
Farið verður frá Ráðhústorgi kl.
20.00.
Félagsmenn! Mætið vel og stundvís-
lega.
Stjórnin.
Akureyrarprestakall.
Fyrirbænaguðsþjónusta verður í dag
fimmtudag kl. 17.15 í Akureyrar-
kirkju.
Allir velkomnir.
Sóknarprestarnir.
Akurey rarprestakall.
j Messað verður í Akur-
eyrarkirkju kl. 14.00 á
11 uppstigningardegi, sem
er sérstaklega helgaður
öldruðum.
Jóhann Sigurðsson, smiður mun
prédika. Kór aldraðra mun leiða
sönginn undir stjórn Sigríðar
Schiöth, sem verður organisti.
Eftir messu er öldruðum boðið til
kaffidrykkju í Safnaðarheimilinu.
Þar mun Kór aldraðra syngja og auk
þess verður almennur söngur o.fl.
Aldraðir eru hvattir til þess að fjöl-
Bræðrafélagsfundur verður eftir
messu. g ^
Möðruvallaprestakall.
Guðsþjónusta verður í Skjaldarvík á
uppstigningardag, fimmtudaginn 9.
maí kl. 14.00.
Sóknarprestur.
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
verða með fyrirlestur í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju, fimmtu-
daginn 9. maí kl. 20.30.
Séra Sighvatur Karlsson talar um
sorg og sorgarviðbrögð.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Samkomur
Hjálpræðisherinn,
rOTv)’l Hvannavöllum 10.
I’östud. 10. maí, kl.
’ííaítáí^ 18.30, yngri æskulýður,
kl. 20.30, æskulýður.
Sunnud. 12. maí, kl. 11.00, helgun-
arsamkoma, kl. 13.30, sunnudaga-
skóli, kl. 19.30, bæn, kl. 20.00,
almenn samkoma.
Brigaderarnir Imma og Óskar Jóns-
son stjórna og tala.
Ath.! Breyttan samkomutíma.
Mánud. 13. maí, kl. 16.00, heimila-
samband.
Þriðjud. 14. maí, kl. 17.30, yngri-
liðsmenn, kl. 20.30, hjálparflokkur.
Fimmtud. 16. maí, kl. 20.30, Biblía
og bæn.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
HVÍTASUtltlUKIRKJAM wsmkdshlíd
Fimmtudagur 9. maí (uppstigning-
ardagur), kl. 20.30, almenn sam-
koma.
Föstudagur 10. maí, kl. 20.30, bæn
og lofgjörð.
Laugardagur 11. maí, kl. 20.30,
æskulýðssamkoma.
Sunnudagur 12. maí, kl. 20.00 (ath.l
Breyttur samkomutími), vakningar-
samkoma, ræðumaður Jóhann
Pálsson.
Mikill og fjölbreyttur söngur.
Samskot tekin til kirkjubyggingar-
innar.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Stcfán Pétursson, Seljahlíð 13 f, var
60 ára í gær, 8. maí.
liann tekur á móti gestum í starfs-
niannasal KEA, Sunnuhlíð 12, laug-
ardaginn 11. maí, milli kl. 15.00 og
20.00.
Minningarkort Akureyrarkirkju fást
í Bókvali og Blómabúðinni Akri í
Kaupangi.
Vinarhöndin, Styrktarsjóður Sól-
borgar, selur minningarspjöld til
stuðnings málefna þroskaheftra.
Spjöldin fást í: Bókvali, Bókabúð
Jónasar, Möppudýrinu í Sunnuhlíð
og Blómahúsinu við Glerárgötu.
og studdi það í blíðu og stríðu.
Um leið og við þökkum fyrir
samfylgdina og kynnin góðu
sendum við öllum ástvinum
Baldvins okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Þeirra missir er
mikill, eins og okkar.
F.h. íþróttafélagsins Þórs,
Aðalsteinn Sigurgeirsson.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum eignum
fer fram í skrifstofu
embættisins, Húsavík,
á neðangreindum tíma:
Sveinbjarnargerði 2 c, Svalb.str.,
þingl. eigandi Jónas Halldórsson,
mánud. 13. maí 1991, kl. 13.10.
Uppboðsbeiðendur eru:
Stofnlánadeild landbúnaðarins,
Eggert B. Ólafsson hdl. og Benedikt
Ólafsson hdl.
Sveinbjarnargerði 2, Svalbarðs-
strönd, þingl. eigandi Jónas Hall-
dórsson, mánud. 13. maí 1991, kl.
13.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Stofnlánadeild landbúnaðarins, inn-
heimtumaður ríkissjóðs, Ólafur B.
Árnason hdl., Gunnar Sólnes hrl.,
Árni Pálsson hdl., Eggert B. Ólafs-
son hdk, Benedikt Ólafsson hdl. og
Sigríður Thorlacius hdl.
Bæjarfógeti Húsavíkur,
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
Oskum eftir laghentum
manni eða trésmiði
til starfa í einingarverksmiðju.
Lágmarksaldur 20 ár.
Uppl. í síma 21255.
^MÖ
MOL&SANDUR HF.
« STREN0JA-
VZJ stetpan hf
v/SÚLUVEG - PÓSTHÓLF 618 " 602 AKUREYRI - SÍMI (96I2125S
Oska eftir starfskrafti
við bakstur
á Dvalarheimilinu Hlíð
100% vinna.
Upplýsingar gefur matreiöslumaður, föstudaginn 10.
maí og mánudaginn 13. maí, ekki í síma.
Dvalarheimilið Hlíð.
Nú fá fleiri tækifæri!
Okkur vantar nú fleiri góða sölumenn.
Reynsla er æskileg en ekkert skilyröi.
Viö bjóöum sölumönnum okkar upp á námskeiö.
Viö erum fyrirtæki í örum vexti og ef þú:
- vilt komast áfram,
- ert jákvæö(ur), úrræöagóð(ur) og drífandi,
- ert 20 til 35 ára,
- vilt geta skammtað þér laun eftir afköstum,
- hefur bíl og síma,
- getur ráöiö tíma þínum sjálf(ur),
- og hreint sakavottorö,
hringdu þá í síma 96-11116, föstudaginn 10. maí kl. 09.00
til 16.00 og fáöu nánari upplýsingar hjá Helenu Sigfúsdótt-
ur.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURBJÖRG FRÍMANNSDÓTTIR,
Solvöllum, Akureyri,
lést að Hjúkrunarheimilinu Seli, 6. maí.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju, þriðjudaginn 14. maí
kl. 13.30.
Áslaug Þorleifsdóttir, Sigfús Stefánsson,
Sturla Þorleifsson,
barnabörn og barnabarnabörn.