Dagur - 09.05.1991, Side 16
Sr. Egill vígður
til þjónustu
á Skagaströnd
Sr. Egill Hallgrímsson verð-
ur vígður til
Skagastrandarprestakalls í
Húnavatnsprófastdæmi í
Dómkirkjunni í Reykjavík
nk.sunnudag.
Auk sr. Egiis munu sex aðr-
ir guðfræðikandídatar vcrða
vígðir til prestþjónustu í Dóm-
kirkjunni á sunnudaginn.
Eins og kunnugt er gekk
lengi vel illa að fá prest til
starfa á Skagaströnd og var sr.
Egill að lokum kallaður til
þjónustu. Hann mun mjög
fljótlega hefja störf á Skaga-
strönd. óþh
Akureyringar í
hjálparsveitum
í Panama
Miklar hörmungar hafa
geisað víða um heim að
undanförnu. Mikið hjálpar-
starf á sér stað, sem
Hjálpræðisherinn tekur
virkan þátt í. Mikil neyð er
nú í Kostaríku og norður-
hluta Panama af völdum
jarðskjálfta. Hjálpræðisher-
inn biður íslendinga um
Ijárhagslega aðstoð til að
mæta þessari neyð.
„Neyðarbíll frá Hjálpræðis-
hernum ásamt níu rnanna liði
frá Panamaborg er nú kominn
á jarðskjálftasvæðin. Þarsinn-
ir hjálparliðið aðkallandi
neyðaraðstoð. Mcðal þeirra
níu sem eru í hjálparfiokknum
er Ingibjörg Einarsdóttir frá
Akureyri, en hún hefur starf-
að síöastliðinn vetur í
Panama," segir m.a. í bréfi frá
Hjálpræðishernum þar sem
bent er á söfnunarreikning,
gíróreikning 11314 í banka
0513, og að þeir sem vilja veita
lið merki framlag sitt „hjálpar-
starf Miriam". ój
Norðanátt og
kuldi í dag
Vorið er ekki komið fyrir
fullt og allt því búast má við
allhvassri norðan og norð-
vestan átt í dag með snjó-
eða slydduéljum um mcstan
hluta Norðurlands, en gert
er ráð fyrir að veðrið fari að
ganga nokkuð niður síðdeg-
is.
Samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar er gert ráð
fyrir allhvassri norðanátt og
kulda í dag og á morgun um
allt norðanvert landið. Búist
er við að draga muni nokkuö
úr veðurhæð síðdegis og á
morgun lciki norðlæg breyti-
lcg átt meö einhverjum
slydduéljum um Norðlendinga
og að hiti komist upp fyrir
frostmark. pl
Máni Jóhannesson með smyrilinn áður en honum var veitt frelsi í gær.
Mynd: Golli
Rögnvaldur Steinsson,
bóndi á Hrauni á Skaga:
Fann flöskuskeyti frá
blómarós á Nýfundnalandi
Rögnvaldur Steinsson bóndi
fann heldur óvenjulega send-
ingu þegar hann var að huga
að vitanum á Hrauni á Skaga. I
fjörunni skammt frá vitanum
fann Rögnvaldur flöskuskeyti
frá ungri blómarós á Ný-
fundnalandi. Stúlkan vill eign-
ast vini og notar til þess þessa
óvanalegu aðferð.
Stúlkan sem sendi flöskuskeyt-
ið heitir Stacey Roebatham og
setti hún flöskuna í sjóinn við
strendur Nýfundnalands þann 17.
júlí árið 1989.
Aðspurður sagðist Rögnvaldur
efast um að stúlkan hafi átt von á
að skeytið færi til hans en sagðist
engu að síður svara bréfinu. „Ég
verð að svara stúlkunni þó ég sé
ekki góður í enskunni, ég fæ ein-
hvern til að þýða fyrir mig,“ sagði
Rögnvaldur. í bréfinu segir stúlk-
an að þetta sé þriðja bréfið sem
hún sendir en hún hafði ekki
fengið nein svör hingað til.
Að sögn Rögnvaldar er ekki
mjög óvanalegt að flöskuskeyti
reki á Skaga en vanalega koma
þau styttra að. Til dæmis var
seinasta skeyti sem kom ekki
lengra að komið heldur en frá
Blönduósi. kg
Flugmódelfélag Akureyrar:
Byggir upp flugaðstöðu
á Melgerðismelum
Áhugi fyrir að smíða og fljúga
flugmódelum fer ört vaxandi á
Akúreyri. Flugmódelfélag
Akureyrar var stofnað árið
1979. IJndanfarna vetur hefur
félagið haft smíðaaðstöðu í
Iþróttavallarhúsinu og nú er
félagið að byggja upp flugað-
stöðu á Melgerðismelum
ásamt öðrum flugáhugamönn-
um.
Skipverjar á togaranum Kaldbak fengu
óvænta heimsókn á miðunum:
Smyrill í fóstri í átta sólarhringa
- lenti örþreyttur á skipinu miðja vegu
milli Grænlands og íslands
„Smyrillinn settist í neta-
geymsluna hjá okkur og virtist
vera orðinn svo örþreyttur af
fluginu að hann gat ekki kom-
ist á loft aftur. Fyrstu tvo sólar-
hringana óttuðumst við um
hann en eftir það fór hann að
hressast og var með okkur í 8
sólarhringa og kom með okkur
í land,“ sagði Máni Jóhannes-
son, háseti á togaranum Kald-
bak frá Akureyri en í fyrra-
kvöld komu skipverjar með
óvenjulegan farþega að landi,
nefnilega fullorðinn smyril sem
gefist hafði upp á fluginu yfir
hafið og kosið sér þá lífsbjörg
að hvílast á skipinu á leiðinni.
fataskápnum í klefa sínum og þar
undi smyrillinn sér hið ágætasta.
Ekki vildi hann þó leyfa skipverj-
um að fylgjast um of með sér því
ef einhver var í klefanum sat
hann og fylgdist grannt með öllu
sem fram fór. „Hann sneri því
aldrei baki í mann nema því að-
eins að geta nokkuð auðveldlega
fylgst með manni. En hann sætti
sig samt við þetta allt saman,“
sagði Máni.
Fuglinn fékk frelsi sitt í gær því
um hádegisbil sleppti Máni hon-
um við hús Dags á Akureyri en
áður hafði fuglinn verið merktur.
Smyrillinn tók stefnuna til fjalls,
líkast til frelsinu feginn og þakk-
látur skipverjum fyrir lífsbjörg-
ina. JÓH
í fréttatilkynningu segir að í
maí hefjist á Melgerðismelum
jarðvegsskipti fyrir malbikaðan
flugvöll þó ekki verði malbikað
fyrr en 1992. Væntanleg flug-
braut verður 8x100 metrar.
„Flestir geta smíðað og flogið
flugmódelum en yfirleitt er betra
að fá tilsögn í smíði og flugi.
Félagar í Flugmódelfélaginu eru
allir reiðubúnir til að aðstoða þá
er þess óska. Þegar velja á byrj-
endamódel er nauðsynlegt að
velja rétt og margt ber að varast.
Möguleikarnir í módelsmíði og
flugi eru nær ótakmarkaðir og má
þar nefna þyrlur og þotur sem ná
yfir 200 km hraða,“ sagði Kjart-
an Guðmundsson, formaður
Flugmódelfélags Akureyrar. ój
Skjöldur hf.:
Fékk viðurkenningu frá Coldwater
- 99,1% framleiðslunnar gæðavara
Togarinn var að grálúðuveið-
um um 120 mílur úti af Straum-
nesi, á svokölluðu Torgi, þegar
smyrillinn kom á skipið. Máni
segir að þeir hafi sett sig í sam-
band við fuglaáhugamenn og
fengið þar þær skýringar að líkast
til hafi smyrillinn verið á leið frá
Grænlandi til íslands en hreppt
svo vont veður á leiðinni að þrek-
ið til flugsins hafi þrotið.
„Það er algengt að smærri fugl-
ar komi á skipið en ekki fuglar
eins og þessi. Þeir hins vegar lifa
yfirleitt ekki af en smyrillinn náði
að jafna sig. Hann át aðallega
hrátt kjöt hjá okkur og reif í sig
kótelettur með bestu lyst,“ sagði
Máni.
Máni bjó til búr fyrir fuglinn úr
Hraðfrystihúsið Skjöldur á
Sauðárkróki fékk á miðviku-
dag afhenta viðurkenningu fyr-
ir gæðaframleiðslu. Verðlaun-
in voru afhent af fulltrúum
Coldwater, sölufyrirtækis
Sölumiðstöðvarinnar í Banda-
ríkjunum. Er þetta fimmta
viðurkenningin sem Skjöldur
hf. fær.
Tvö önnur fyrirtæki á Norður:
landi fengu viðurkenningu en
það voru Þormóður rammi á
Siglufirði og Útgerðarfélag
Akureyringa. Einnig hlutu Hrað-
frystihús Eskifjarðar, Fiskiðjan í
Vestmannaeyjum og íshúsfélag
ísfirðinga viðurkenningar fyrir
gæðaframleiðslu.
Alls lentu 99,1% framleiðslu
Skjaldar hf. í fyrsta flokki sem
verður að teljast frábær árangur.
Að sögn Árna Guðmundssonar
framkvæmdastjóra Skjaldar hf.
er þessi frábæri árangur fyrst og
fremst að þakka metnaðarfullu
og hæfu starfsfólki fyrirtækisins.
Páll Pétursson yfirmaður gæða-
eftirlits Coldwater afhenti full-
trúum Skjaldar hf. viðurkenning-
arskjöldinn. kg
Öxnadalsheiði:
Vegagerðin semur við Hött
Gengið hefur verið frá samn-
ingum við verktakafyrirtækið
Hött í Strandasýslu um vega-
framkvæmdir á Öxnadalsheiöi
í sumar.
Höttur var með lægsta tilboðið
í uppbyggingu 4,2 km vegarkafla
á heiðinni, að upphæð kr.
22.900.000, rúmlega 62% af
kostnaðaráætlun Vegagerðarinn-
ar.
Jónas Snæbjörnsson, unt-
dæmisverkfræðingur Vegagerðar
ríkisins á Sauðárkróki, segir að
Hattarmenn hyggist hefja fram-
kvæmdir við þetta verk mjög
fljótlega. óþh