Dagur - 04.07.1991, Blaðsíða 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
74. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 4. júlí 1991
123. tölublað
Bílvelta á Moldhaugnahálsi í gær:
Kraftaverk að ökumaðurinn
skyldi ekki stórslasast
Ökumaður fólksbifreiðar slapp
ótrúlega vel úr hremmingum
sem hann lenti í um hádegisbil-
ið í gær. Bifreiðin fór út af
þjóðveginum á Moldhaugna-
hálsi og stöðvaðist hátt í
hundrað metra frá veginum
eftir að hafa farið a.m.k. tvær
Sléttbakur EA á heimleið:
Mettúr hjá
togaranum í
krónum talið
— aflaverðmætið
66 milljónir
Útgerð togara Útgerðarfélags
Akureyringa hf. gengur með
ágætum og skipin koma til
löndunar með fullfermi hvert
af öðru, nema Kaldbakur EA
sem verður í slipp næstu vik-
urnar.
Að sögn Þorleifs Ananías-
sonar hjá ÚA, er Svalbakur EA
nýfarinn til veiða eftir að hafa
landað fullfermi. Aflinn var
blandaður, þorskur og karfi.
Hrímbakur EA er við bryggju
með fullfermi og gamli Sólbakur
EA kemur til löndunar á mánu-
dag. Séttbakur EA, annar frysti-
togara ÚA, var við Horn um
miðjan dag í gær á heimleið eftir
nær mánaðar útivist.
„Veiðiferðin hefur gengið með
ágætum. Þetta er mettúr hjá okk-
ur í krónum talið. 580 tonnin
gefa f.o.b. 66 milljónir. Áður
höfum við fengið mest 600 tonn á
svipuðum tíma, en verðið var
ekki eins gott. Hér er hafís rétt
utan við okkur, en siglingaleiðin
er greiðfær,“ sagði Kristján Hall-
dórsson, skipstjóri, um borð í
skipi sínu norðaustur af Horni.
ój
veltur en ökumaðurinn var
fluttur með sjúkrabíl á FSA lít-
ið meiddur.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Akureyri átti slysið
sér stað um kl. 12.30 í gær. Fólks-
bifreið lenti út af veginum á
Moldhaugnahálsi, þaut 80-90
metra út í móa og fór að minnsta
kosti tvær veltur áður en hún
stöðvaðist.
Bíllinn er gjörónýtur en öku-
maðurinn, sem var einn í bílnum,
slapp betur en á horfðist og telur
lögreglan það furðu sæta og
ganga kraftaverki næst hve lítið
hann slasaðist.
Þá var ekið á mann á gang-
braut á Hörgárbraut í gær og var
hann fluttur á sjúkrahús en
meiðsl hans ekki talin alvarleg.
SS
Brosað í blíðunni. Reyndar fengu Akureyringar bæði rigningu og moldrok í gær og vist var vætan kærkomin, en
sólin fór fljótt að glenna sig á ný. Mynd: Goiii
Lánveitingar til byggingar og kaupa á félagslegum íbúðum:
Norðurland vestra fékk aðeins 8 Mðir
- Norðurland eystra fær svipað hlutfall af heildarúthlutun og síðustu ár
Húsnæöismálastjórn hefur
samþykkt lánveitingar úr
Byggingarsjóöi verkamanna til
byggingar eða kaupa á allt að
594 íbúðum, sem áætlað er að
nemi samtals 3,6 milljörðum
króna. Gert er ráð fyrir að þar
af komi 860 milljónir króna til
útborgunar í ár en 2.740 millj-
ónir króna á næsta ári. Hlutur
Norðlendinga í þessari úthlut-
un er 87 íbúðir, 8 á Norður-
landi vestra og 79 á Norður-
landi eystra.
Húsnæðisstofnun ríkisins vildi
í gær ekki gefa upp hver skipting-
in væri milli einstakra sveitarfé-
laga þar sem svör hafi ekki verið
send öllum enn. Samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins mun Akureyr-
Laugafiskur í Reykjadal:
„Við eram nokkuð
ánægðir með aJkomuna“
„Hér er aldrei dauður dagur,“
sagði Lúðvík Haraldsson,
framleiðslustjóri hjá Lauga-
físki hf. í Reykjadal. Hjá fyrir-
tækinu eru unnin 13-15 ársverk
við þurrkun á þorskhausum,
hryggjum og dálkum, og er
jarðhiti, heitt vatn, notað sem
orkugjafí við þurrkunina. Jöfn
vinnsla er orðin allt árið, en þó
er heldur meira um að vera yfir
sumarið.
Eigendur Laugafisks hf. eru
Fiskiðjusamlag Húsavíkur,
Útgerðarfélag Akureyringa og
Kaldbakur hf. á Grenivík. Lauga-
fiskur hóf starfsemi sína í sept.
’88, eftir að eignir þrotabús
Stokkfisks höfðu verið keyptar. í
fyrstu var unnið við þurrkun
hausa en þurrkun dálka og
hryggja er stöðugt að aukast og
nemur nú um 20% af hráefninu.
Aðaláherslan er lögð á þurrkun
hausanna en hitt notað meira til
uppfyllingar, þegar minna berst
að af hráefni til vinnslu. Fram-
leiðslan fer öll á Nígeríumarkað.
Sagði Lúðvík að neytendur næðu
sama bragðinu í súpuna sína af
dálkum og hryggjum, en fyrir
verulega lægra verð.
Lúðvík sagði að Laugafiskur
fengi um 80% af hráefni sínu frá
eigendunum en einnig fengi hann
hráefni víðar, m.a. frá Raufar-
höfn og Kópaskeri. „Við erum
nokkuð ánægðir með afkomuna
og erum vel yfir núllinu. Nígeríu-
markaður hefur þótt nokkuð
varasamur og sveiflukenndur, en
þetta gengur ágætlega eins og
sakir standa, og verðið hefur
sjaldan verið betra,“ sagði Lúð-
vík og var nokkuð bjartsýnn á
framtíð fyrirtækisins. IM
arbær hafa fengið 49 íbúðir í
þessari úthlutun en sótti um 66 en
fyrir utan þessa úthlutun eru lán-
veitingar til Búseta og byggingar
stúdentagarða. Þá fær Ólafsfjarð-
arbær 8 íbúðir sem er í samræmi
við umsókn. En á öðrum þéttbýl-
isstöðum á Norðurlandi var ekki
kunnugt um úthlutun, þegar
blaðið spurðist fyrir í gær.
Sé litið á heildarskiptingu
framkvæmdalánanna yfir landið
kemur í ljós að um 65% af íbúð-
unum er úthlutað til Reykjavíkur
og Reykjaness en þessi úthlutun
til Reykjavíkur nú er um 7% yfir
meðaltali síðustu fimm ára.
Þau kjördæmi sem verst fara út
úr úthlutuninni, miðað við með-
altalsúthlutun síðustu fimm ára,
eru Vesturland, Vestfirðir og
Norðurland vestra.
Alls barst 91 umsókn frá ýms-
um félagslegum framkvæmda-
aðilum með óskum um fram-
kvæmdalán til að byggja eða
kaupa alls 1.915 íbúðir. Áf þess-
um umsóknum voru 1.716 gildar.
Framkvæmdalán voru veitt 55
félagslegum framkvæmdaaðilum
til byggingar eða kaupa á 594
íbúðum. Skiptast þær þannig að
242 eru félagslegar eignaríbúðir,
158 félagslegar leiguíbúðir, 121
félagsleg kaupleiguíbúð og 73
almennar kaupleiguíbúðir.
í gögnum frá Húsnæðisstofnun
kemur fram að við undirbúning
lánveitinganna var tekið tillit til
húsnæðisþarfar einstaklinga og
fjölskyldna, en þessar upplýsing-
ar fylgja umsóknum sveitarfé-
laga, lánveitingar síðustu 2ja ára
til félagslegra íbúða í hverju
byggðarlagi voru til hliðsjónar
sem og hvort fyrri lánveitingar til
byggingar eða kaupa á félagslegu
húsnæði hefðu verið notaðar. Þá
var og tekið tillit til þess hvort
sveitarstjórnir þær sem hlut áttu
að máli hafi undanfarið hafnað
forkaupsrétti á félagslegum íbúð-
um og hvort félagslegar íbúðir
hafi verið seldar einstaklingum
sem hafi verið yfir gildandi
tekjumörkum eða ef of litlum
fjölskyldum hafi verið úthlutað
óhóflega stórum íbúðum.
Atvinnuástand og búsetuþróun á
hverjum stað var höfð í huga.
í gögnum Húsnæðisstofnunar
segir að samkvæmt skýrslu
Byggðastofnunar um íbúðaþörf
og félagslegar íbúðir, útgefinni á
síðasta ári, þurfi að byggja á
landinu öllu að meðaltali 1.457
íbúðir árlega á næstu fimm árum.
Þörfin sé misjöfn eftir landshlut-
um en miðað við sambærilega
fólksflutninga eins og árin 1987-
1989 þurfi að byggja 1.200 þess-
ara íbúða á höfuðborgarsvæðinu
en aðeins rúmlega 200 í öðrum
landshlutum. JÓH
Öxarijarðarhreppur:
Kraftur í atviimulífinu
- þensla ríkjandi
og enginn mælir göturnar
Atvinnuástand er blómlegt í
Öxarfjarðarhreppi, enginn á
atvinnuleysisskrá og í sumum
fyrirtækjum vantar jafnvel fólk
í vinnu. Þó liggur vinna niðri
hjá rækjuvinnslunni Geflu hf.
á Kópaskeri en önnur fyrirtæki
hafa úr nægum verkefnum að
moða og töluvert er um fram-
kvæmdir á vegum sveitarfé-
lagsins.
Ingunn St. Svavarsdóttir, sveit-
arstjóri Öxarfjarðarhrepps, sagði
að jafnvel mætti tala um að
þensluástand ríkti í hreppnum
vegna þess að frekar vantaði fólk
í vinnu en hitt.
„Það er mikið að gera hjá Tré-
máli, nýja tré- og málningarfyr-
irtækinu. Þeir eru með mjög mik-
ið af verkefnum og sjá varla út úr
því sem þeir hafa að gera. Hjá
Fjallalambi er feikilega mikið að
gera og þeir virðast vera að auka
söluna. Þá er vinna í Útnesi núna
þannig að það er gott hljóð í
fólki,“ sagði Ingunn.
Af framkvæmdum á vegum
hreppsins má nefna að í síðustu
viku lauk vinnu við holræsakerfi
og ýmislegt fleira er á döfinni.
Ingunn sagði að ræktunarstarfi
hefði verið haldið áfram en skóg-
ræktarátak hófst á síðasta ári.
Vegna þurrka hefur þurft að
endurbæta vökvunarkerfið í
reitnum og eru úðarar linnulítið í
gangi. SS
Veðrið á Norðurlandi:
Skin og skúrir
„Rigningin í gær gerði gróðrin-
um gott. í dag verður skýjað
og rignir lítilsháttar, en síðan
birtir til á ný,“ sagði Gunnar
Hvanndal, veðurfræðingur, er
hann var spurður um veður-
horfur næstu daga fyrir
Norðurland.
Veðurspá Veðurstofa íslands
fyrir daginn í dag gerir ráð fyrir
sunnan- og suðvestanátt um allt
Norðurland með rigningu eða
skúraleiðingum. Á morgun fer að
glaðna til og laugardagurinn
verður sólríkur. „Á sunnudaginn
dregur til suðaustanáttar með
rigningu og hitastigið verður 12-
14 gráður. Því má segja, að á
næstu dögum skiptast á skin og
skúrir um allt Norðurland,“ sagði
veðurfræðingurinn. ój