Dagur - 04.07.1991, Síða 7
Fimmtudagur 4. júlí 1991 - DAGUR - 7
Árdís Björnsdóttir, matráðskona, í uppvaskinu í eldhúsi matarvagnsinS hjá
Króksverki. Mynd: -bjb
Hef ámiðinn og
Hraundrangana
- spjallað við Árdísi Björnsdóttur,
matráðskonu hjá Króksverki
Matráðskonan í búðum Króks-
verks hf. á bökkum Þverár og
Öxnadalsár er Árdís Björns-
dóttir, frá Vatnsleysu í Skaga-
firði. Árdís er orðin með
reyndari matráðskonum í
vegavinnuskúrum því hún hef-
ur starfað við ekki minni fram-
kvæmdir en Múlagöng og
Blönduvirkjun. í samanburði
við þær framkvæmdir er verk-
ið í Öxnadal smámunir. En
hún er ein að þessu sinni og því
nóg að gera við að matbúa fyr-
ir 15-20 manns í sumar.
Árdísi líkar matráðskonustarf-
ið vel og segist aldrei fá leið á því
þrátt fyrir mikinn eril. „Þetta
búðalíf er þægilegt og rúllar
áfram af sjálfu sér,“ segir Árdís
Króksverk hefur komið upp
ágætis búðum þarna og er matar-
vagninn með öllum græjum. Að
vísu vantar örbylgjuofninn í eld-
húsið en Árdís sagði að hann
væri á leiðinni.
Árdís bakar allt sætabrauð
ofan í starfsmennina en fær sent
matarbrauð frá Akureyri, ásamt
öllum mjólkurvörum 2-3 sinnum
í viku. Árdísi tókst að semja við
mjólkurbílstjórana hjá KEA um
að koma við hjá sér með mjólk-
urvörurnar.
Aðspurð sagði Árdís að starfs-
menn Króksverks væru ekki mat-
vandir og borðuðu flest allt það
sem hún býður upp á. „Þegar
menn vinna langan vinnudag þá
þurfa þeir bæði góðan og mikinn
mat,“ sagði Árdís. Árdís sagði að
hún reyndi að hafa fiskmeti tvisvar
sinnum í viku og ýmsa kjöt-
rétti þess á milli. Króksverks-
merin fá líka sinn skammt af grill-
uðu kjöti því Árdís tók stórt grill
með sér að heiman og sagðist hún
grilla úti a.m.k. einu sinni í
hverju úthaldi. Fram að þessu
hefur aldeilis verið veður til að
grilla.
Árdís fer upp kl. 6 á morgnana
og útbýr morgunmat áður en
starfsmennirnir hefja vinnu kl. 7.
Síðan er morgunkaffi kl. 10,
hádegismatur, miðdegiskaffi,
kvöldmatur og síðan kvöldkaffi.
Eins og sjá má er ærið nóg að
gera hjá Árdísi en hún sagðist fá
sínar frístundir inn á milli. „Ég
reyni þá að gleyma starfinu og
leggst út í sólbað. Ég hef árnið-
inn í eyrunum og Hraundrangana
fyrir augunum. Ekki amalegt
útsýni það,“ sagði Árdís hress í
bragði. Þess má geta í lokin að
starfsmenn Króksverks mega
eiga von á lærissteik í matinn á
morgun, föstudag, þannig að þeir
geta byrjað að hlakka til. „Ég hef
alltaf góðan mat á föstudögum,"
sagði Árdís að lokum og tók til
við að undirbúa hádegismatinn.
Kartöflurnar voru komnar í pott-
inn og byrjaðar að sjóða og því
tímabært fyrir blaðamann Dags
að halda af stað. -bjb
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
Áskriftar^S? 96-24222
Bleikt og blátt komið út
Fyrsta tölublað tímaritsins Bleikt
og blátt er komið út eftir að
SAM-útgáfan tók við rekstrin-
um, en SAM gefur sem kunnugt
er út tímaritin Hús & híbýli,
Samúel og Vikuna.
Annar nýrra eigenda ritstýrir
þessu tölublaði af B&B ásamt
öðrum fyrri eigenda. Eru það
þeir Þórarinn Jón Magnússon,
sem jafnframt stýrir áðurnefnd-
um tímaritum SAM, og Örn
Friðrik Clausen, sem gaf út síð-
asta tölublað B&B ásamt Hrafn-
hildi Stefánsdóttur.
Þess var gætt að breyta B&B
ekki hið minnsta frá því sem það
var, hvorki í útliti eða efnistök-
um. Vandað er mjög til efnisvals
og m.a. notið aðstoðar þriggja
íslenskra lækna í þessu fyrsta
tölublaði.
Meðal efnis í blaðinu er grein
um getuleysi og þær úrlausnir,
sem íslenskir karlmenn hafa
fengið þar að lútandi. Aðstoðar-
landlæknir, sem nú stýrir nefnd
sem vinnur að forvarnarstarfi
vegna alnæmis, fjallar um sjúk-
dóminn í fróðlegu viðtali. Og
birtur er kafli úr íslensku kynlífs-
bókinni, sem Óttar Guðmunds-
son læknir ritaði og gefin var út
síðastliðinn vetur. Fjallar bókar-
kaflinn um forleikinn.
Þá eru í blaðinu afar fróðlegar
greinar um það er karlmönnum
er nauðgað af bæði körlum og
konum, sjúklega ást og geðræn
vandamál þar að lútandi og loks
má geta svara við 66 spurningum
um karlmenn og kynlíf.
Sem fyrr er vandað til mynd-
efnis og fyrirsæturnar íslenskar.
Áætla nýir útgefendur að
koma B&B út sex sinnum á ári.
Hefur verð blaðsins verið lækkað
og kostar það nú aðeins 389
krónur í lausasölu.
Framkvæmdastjóri SAM-
útgáfunnar og meðeigandi Þórar-
ins Jóns í útgáfunni er Sigurður
Fossan Þorleifsson.
5TJORHIM
TVÖ
LÍF
á Morðurlandi um helgina 4.-7. júlí.
Fimmtud. 4. júlí: HRÍ5EY — TónleiKar - DansleiKur Kl. 21-01.
Föstud. 5. júlí: 5KJÓLBREKKA - Mývatnssveit- DansleiKur Kl. 23-03.
Laugard. 6. júlí: ÓLAF5FJÖRÐUR -TónleiKar - DansleiKur Kl. 19-03.
Sunnudagur 7. júlí — SJALLINM AKureyri.
Fjölskylduskemmtun - Tónleikar - Söngvarakeppni
kk 17.00-19.00.
5TJÓRMIIÍ leiKur lög af nýútKominni plötu sinni TVÖ LÍF og að sjálf-
sögðu öll eldri lögin....
Söngvarakeppni fyrirjiressa krakka á aldrinum 5-15 ára.
Ekkert mál, vejjið 5TJÓRNAR-lag og syngið hluta úr því með
aðstoð 5iggu og Qrétars.
Mljómsveitin leiKur undir.
1. verðlaun: LA-0ear sportsKór- hljómplata - dagatal - plaKat- merKi - mynd.
2. verðlaun: LA-Qear bolir - hljómplata - dagatal - plaKat - merKi - mynd.
3. verðlaun: LA-Qear húfa - hljómplata - dagatal - plaKat - merKi - mynd.
Allir þátttakendur fá áritað plakat af fótjórninni.
Allir gestir fá nýjar Stjórnarmyndir og límmiða.
Skráning T söngvarakeppni fer fram kl. 15.00
sama dag T Sjallanum.
Aðgangseyrit: Hr 700.- Frítt fyrir yngri en 5 ára.
srjómm l.r. sear^ I!>