Dagur - 12.07.1991, Blaðsíða 7
Föstudagur 12. júlí 1991 - DAGUR - 7
Veiðiklóín
Silungsveiðimenn sannreyndu ýmislegt í hitunum við Laxá í Aðaldal:
Urriðiim virti berrassaða veiðimenn ekki viðiits
„Áin var orðin yfir 20 gráðu
heit þannig að silungurinn
hreyfði sig lítið. Sumir veiði-
menn brugðu því á aðra
skemmtun og syntu í ánni og
töluðu við silungana á sama
plani. Þeir stóðu líka berrassa
niður í Vörðuflóa og veiddu en
það hafði engin áhrif en hins
vegar gekk einum veiðimanni
betur sem var á nærbuxunum
og strigaskóm einum fata. Það
virðist því vera að silungurinn
sé síður hriflnn af allsnöktum
veiðimönnum,“ sagði Hólm-
fríður Jónsdóttir á Arnarvatni
í Mývatnssveit um veiðina á
silungasvæði Laxár í Aðaldal.
Heldur hefur glæðst silungs-
veiðin í Laxá á síðustu sólar-
hringum og segir Hólmfríður að
líkast til muni þar mestu um að
vatnshiti árinnar er kominn niður
í 10 gráður og þá kemst meiri
hreyfing á fiskinn. Rigning yrði
líka vel þegin til að auka súrefni í
ánni.
Kunnugir veiða - aðrir
ekki
„Fiskurinn sem núna hefur veiðst
er nokkuð góður. Stærstu urrið-
arnir eru 4-5 pund en að meðal-
tali er fiskurinn hér um 2,5 pund.
Fram að þessu hefur veiðin verið
svona eins og maður segir; la, la.
í júní komu 703 silungar á land
og í raun er það ekki slæmt en 2-
300 fiskum minna en oft áður í
þessum mánuði. Veiðin hefur
Samkvæmt nýútkominni
skýrslu Veiðimálastofnunar
um stangaveiðina á síðasta ári
er Húseyjarkvísl í Skagafirði
efst á blaði hvað varðar væn-
leika laxa. Meðalþyngd laxa úr
ánni var 10,64 pund, næst kom
Flókadalsá með 10,63 pund,
þá Laxá í Aðaldal með 10,55
pund, Víðidalsá með 10,41
pund og loks Þorvaldsdalsá í
Eyjafirði með 10,33 pund.
Sé litið á meðalveiði í nokkr-
um ám á tímabilinu 1974 til 1990
kemur í ljós að Laxá í Aðaldal er
á toppnum með 1999 laxa en á
síðasta ári var áin nokkuð fyrir
verið jöfn allan þennan tíma og
aldrei komið toppar og það er
einna leiðinlegast við þetta það
sem af er,“ sagði Hólmfríður.
„Þegar svona ástand er á ánni
er borin von að þeir sem hingað
eru að koma í fyrsta skipti veiði
nokkuð nema hafa þeim mun
betri leiðsögn. Þeir sem hafa ver-
ið hér oftast veiða þó áin sé svona
heit en aðrir ekki. Mannamunur
er því talsvert mikill."
neðan þetta meðaltal.
í yfirliti Veiðimálastofnunar
kemur fram að í efsta sæti yfir
aflahæstu urriðaveiðiárnar á síð-
asta ári er Laxá í Aðaldal ofan
Brúa með 4247 en næst kemur
Fremri Laxá á Ásum. Af sex afla-
hæstu bleikjuveiðiánum var
Flókadalsá í Fljótum hæst með
2134 en í næstu sæti röðuðu norð-
lenskar ár sér einnig eins og t.d.
Eyjafjarðará, Hörgá, Vatnsdalsá
og Svarfaðardalsá.
Stangveiddir laxar í fyrra urðu
29.443 en miðað við fyrsta
þriðjung tímabilsins í ár má ætla
að veiðin verði nú minni. JÓH
Myndavélin gott
hjálpartæki!
Mismunandi aðferðum er beitt til
að fá silunginn til að bíta á.
Fluguveiðimenn eru misklókir að
sjá út hvaða flugu er best að nota
í hvert sinn en danskur veiðimað-
ur á silungasvæði Laxár kunni
gott ráð. Hólmfríður segir að
hann hafi myndað undir vatns-
borðinu og á myndunum sást
þegar' flugan var að klekjast á
botninum og hvernig lit lirfa
spann sig upp frá botninum. Út
frá myndunum voru hnýttar flug-
ur með litum lirfunnar og árang-
urinn var eftir því góður.
Víðar góð silungsveiði
Veiðiklóin veit til að víðar hafi
veiðst vel á síðustu dögum. Eins
og fram hefur komið veiddust
góðar bleikjur í Eyjafjarðará í
vikunni og segja kunnugir að
fiskur sé að ganga upp um alla á.
Á hádegi á miðvikudag lauk 10
stanga holl veiði á silungasvæði
Vatnsdalsár eftir þrjá dagana
með um 180 fiska. Fiskurinn var
vænn og tók bæði flugu, maðk og
spún þó flugan hafi heillað hvað
minnst. Vart varð við tvo laxa hjá
þessum veiðimönnum, í öðru til-
fellinu misstist fiskurinn strax en
í hinu reif hann alla línu út af
stönginni og sleit.
Laxveiðmenn bíða
stórstraums
Laxveiðimenn eru miskátir. í
Laxá í Aðaldal hefur lítil breyt-
ing orðið á og vonast til að stór-
straumur í dag ýti á eftir göngum
í ána. Úr ánni eru nú komnir um
170 fiskar.
Heldur hefur lifnað yfir veiði-
mönnum á Vopnafirði eftir
afburða slaka byrjun. Komnir
eru 42 laxar á land úr Hofsá, þar
af 17 á þremur vöktum á síðustu
tveimur sólarhringum. Þetta seg-
ir það sem segja þarf um breyt-
inguna þar eystra á síðustu
dögum. JÓH
Laxveiðin á síðasta ári:
Húseyjarkvísl með
hæstu meðalviktma
Scout Terra, árg. 79
Hann er til sölu gamli höfðinginn.
Hann hefur fengið toppviðhald og er í besta lagi.
Einn ökumaður frá upphafi.
Vél 345, 8 cyl, 4ra gíra kassi.
Óskum eftir tilboði!!!
Upplýsingar gefur Kristján Gunnarsson, Mjólkur-
samlagi KEA, í símum 985-20397, 30401 og 96-
22112, á kvöldin.
Til viðskiptamanna
Vegna sumarleyfa starfsfólks verður skrifstofa
okkar lokuð frá 15. júlí til 6. ágúst 1991.
Vakin er athygli að þrátt fyrir lokun Málflutningsstof-
unnar verður Fasteigna- og Skipasala Norðurlands
opin alla virka daga frá kl. 13.00 til 17.00 og á
morgnana eftir samkomulagi. Sími fasteignasölunar
er 11500 og heiniasími Péturs Jósefssonar sölu-
stjóra 24485.
Málflutningsstofa Benedikts Ólafssonar.
1111 FRAMSÓKNARMENN ||4|
AKUREYRI
Bæjarmálafundur
Bæjarmálafundur verður haldinn að Hafnarstræti 90,
mánudaginn 15. júlí kl. 20.30.
Rætt um dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar.
Þeir sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ á vegum Fram-
sóknarflokksins eru eindregið hvattir til að mæta og einnig
varamenn.
Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar.
Friðrik K
mins
íit íslands
(Messpforte) og félagar
staður fyrir lifandi fólk