Dagur - 13.07.1991, Blaðsíða 7
Laugardagur 13. júlí 1991 - DAGUR - 7
EFST í HUGA Kristján Kristjánsson
Hver ber ábyrgðina þegar
fyrirtæki verða gjaldþrota?
Það er ekki laust við að sú ómuna
veðurblíða sem glatt hefur landann
síðustu vikur sé manni ofarlega í
huga þessa dagana. Hitamet hafa
fokið eitt af öðru víða á landinu og
er ekki annað hægt en að gleðjast
yfir því. Vel flestir landsmenn og
svo og hinir fjölmörgu ferðamenn
eru himinlifandi yfir tíðarfarinu en
þó hafa heyrst óánægjustunur yfir
því að allt of heitt sé í veðri.
En það er annað og heldur
óskemmtilegra, sem er mér einnig
ofarlega í huga um þessar mundir.
Það eru fréttirnar um öll gjaldþrotin
sem dynja yfir landsmenn þessa
dagana.
Þegar slík staða kemur upp,
velta margir vöngum yfir því hver
sé ábyrgur. Eru það yfirmenn fyrir-
tækjanna og stjórnarmenn, eða er
kannski enginn ábyrgur? Miðað við
hvernig tekið er á þessum málum,
virðist mér enginn ábyrgur. Einnig
er rætt um hina pólitísku ábyrgð,
þegar stjórnmálamenn sem ráða
stórum sjóðum, moka almannafé í
„vonlaus“ fyrirtæki.
Varðandi pólitísku ábyrgðina, þá
virðist hún ekki vera mikil, alla
vega ekki að mati Jóns Sigurðs-
sonar iðnaðarráðherra. Jón var
spurður í útvarpsviðtali nýlega um
ábyrgð stjórnmálamanna og sagði
hann eitthvað á þá leið að hún
kæmi fram í kosningum á fjögurra
ára fresti. Hafi stjórnmálamenn
ekki staðið sig, geti þeir átt á hættu
að verða dæmdir í kosningum og
að það væri hin pólítíska ábyrgð.
Það sem ég las út úr þessu viðtali
við Jón er að stjórnmálamenn geta
sóað fjármunum almennings að
vild og mokað þeim í „vonlaus"
fyrirtæki en gætu á móti átt á hættu
að detta út af þingi í næstu kosn-
ingum á eftir. Er það í raun öll
ábyrgð stjórnmálamanna? Er von
að spurt sé.
Einnig hefur það verið áberandi
þegar gjaldþrota fyrirtæki eru
endurreist, að þá eru það yfirleitt
sömu stjórnendur og áður sem eru
í forsvari. Jafnvel þeir sömu og eru
taldir eiga einhverja sök á því
hvernig komið er. Eg heyrði einu
sinni þau rök fyrir háum launum
forstjóra og framkvæmdastjóra,
væri sú að starfinu fylgdi svo mikil
ábyrgð. En hvar það kemur fram er
mér ómögulegt að skilja. Hér er
ekki verið að benda á nein sérstök
tilfelli, heldur aðeins verið að velta
þessum málum upp.
FJÖLMIÐLAR Þröstur Haraldsson
Ríkisstyrkír til biaöa
eru lýöræöinu nauösyn
Þorvaldur Gylfason hagfræðingur ritaði ný-
lega greinaflokk í Morgunblaðið um veldi ís-
lenskra stjórnmálaflokka. Þar var margt sagt
um flokkavaldið og samtryggingakerfið sem
flest hefur verið sagt áður og óþarfi að dvelj-
ast lengi við það. Hins vegar vék hann í
fyrstu grein sinni að valdi flokkanna yfir fjöl-
miðluninni og þar var margt ágætlega sagt
en annaö hæpnara eins og gengur.
Þorvaldur vék m.a. að blaöastyrkjunum
sem hægrimenn hafa löngum séð ofsjónum
yfir. Að mati Þorvaldar eru þeir til þess eins
fallnir hér á landi að halda uppi nokkrum
flokksblöðum sem að öðrum kosti væru
löngu dauð og grafin. Hann sagði réttilega aö
íslensku styrkirnir væru á engan hátt sam-
bærilegir við blaðastyrki á Norðurlöndum.
Undirritaður hefur áður tekið í svipaðan
streng um blaðastyrkina. Það er að sjálf-
sögðu úrelt kerfi og fáránlegt að dreifa út-
gáfustyrkjum til blaða í gegnum stjórnmála-
flokka. Fyrir það fyrsta er engin trygging fyrir
því að styrkirnir nái tilgangi sínum þvf oftar
en ekki hafa flokkarnir lagt hald á þá, ekki
síst eftir að auglýsingastofurnar fóru að
blanda sér í kosningabaráttuna. í öðru lagi
viðheldur slíkt fyrirkomulag því ástandi að
flokkarnir ráðskist meö blöö landsmanna og
standi eðlilegri þróun þeirra fyrir þrifum.
En því má ekki gleyma að styrkir til útgáfu
eru margvíslegrar tegundar. í fyrsta lagi eru
það styrkirnir sem ég var að ræöa um, þe.
styrkir sem Alþingi útdeilir til flokkanna eftir
þingstyrk. í ööru lagi eru það blaðakaup ríkis-
ins. Og í þriðja lagi eru það margs konar fríö-
indi sem blöð njóta, ekki síst undanþágur frá
sköttum. í fjórða lagi mætti svo nefna auglýs-
ingar frá ríkinu.
Þegar talið berst að blaöastyrkjum er yfir-
leitt átt við fyrstnefndu tegundirnar tvær. Af
skiljanlegum ástæðum eru skríbentar DV og
Moggans - sem hreykja sér ranglega af því
að þiggja enga ríkisstyrki - ófúsir að ræða
um óbeinu styrkina sem þessi blöð hagnast
langmest á í krafti stæröar þeirra og út-
breiðslu. Aðföng og velta Moggans eru langt-
um meiri en aðföng og velta Dags og þar af
leiöandi eru styrkirnir sem Mogginn fær í
formi undanþágu frá viröisaukaskatti þeim
mun hærri. Og vegna útbreiöslu sinnar fær
Mogginn miklu fleiri og stærri auglýsingar frá
hinu opinbera en önnur blöö.
En svo viö höidum okkur við fyrstnefndu
flokkana tvo þá er ég sammála um að þaö
beri aö afnema flokkastyrkina. Flokkarnir
eiga rétt á styrkjum til starfsemi sinnar, en
það er annaö mál og óskylt blaðaútgáfu.
Hins vegar finnst mér eðlilegt að ríkiö og
stofnanir þess kaupi blöð. Hversu mörg ein-
tök eru keypt skal ósagt látið. Þá tölu má ef-
laust deila um bæði lengi og.hart.
í tíð síðustu ríkisstjórnar var unniö nokkuð
starf við að endurskoða útgáfustyrki ísienska
ríkisins. Þar voru ýmsar skynsamlegar hug-
myndir komnar á blað, en af einhverjum
ástæðum lognaðist nefndarstarfið út af áður
en hugmyndirnar komu til umræðu í ríkis-
stjórninni.
í þeim drögum sem undirritaður sá var
rætt um að koma á einskonar iðnlánasjóði
menningarinnar sem tæki einnig til blaða og
Ijósvakamiðla. Þar gætu fjölmiölar fengiö lán
og í vissum tilvikum styrki til aö endurnýja
tækjakost, standa straum af nýjungum eða
komast yfir erfiða hjalla (rekstrinum. Að sjálf-
sögðu átti að meta láns- og/eða styrkþörf
fjölmiðia á faglegan hátt en ekki deila út fé
eftir pólitískum valdahlutföllum. Og það átti
aö gera kröfur um að styrkveitingar bæru
árangur í rekstri fjölmiöla en færu ekki ein-
göngu í einhverja hít.
Meö því að setja einhverjar reglur í þessa
veru hefði mátt koma á skynsamlegu kerfi
sem tryggöi þaö að lýðræðisieg þjóðfélags-
umræða liði ekki fyrir skort á vettvangi. Því
miður tryggja flokksþlöðin ekki að slík um-
ræða búi við ákjósanleg skilyrði, en meira um
það seinna.
Spurning vikunnar
Ætlarðu í ferðlag um komandi
verslunarmannahelgi?
Guðmundur Jónsson
sjómaður:
Ég verð úti á sjó um verslun-
armannahelgina en er í sumar-
fríi núna. Það verður því lítið
um ferðalög hjá mér þá helgi.
Kolbrún Halldórsdóttir
blómadrottning
á Ráðhústorgi:
Ég er ekki búin að ákveða það
en fer sennilega í Ásbyrgi með
kærastanum og einhverju fleira
fólki ef ég fer þá eitthvað um
þessa helgi.
Tómas Búi Böðvarsson
slökkviliðsstjóri:
Það hefur ekki enn verið ákveð-
ið. Ég hef á undanförnum árum
gert hvorutveggja þ.e. bæði
ferðast og verið heima. Það er
mjög rólegt og gott að vera
heima um þessa helgi. Einnig
var ég stundum áður á bakvökt-
um um verslunarmannahelgina
og var því eðlilega heima við.
Svo er ég nú að fara í ferðalag
skömmu eftir verslunarmanna-
helgina svo það er alveg eins
líklegt að ég verði heima að
þessu sinni.
Valgerður Jónsdóttir (býr á
mölinni):
Ég hugsa að ég verði heima hjá
mér þá. Ég er nú í sumarfríi hér
á Akureyri nú en byrja svo aftur
í fríi um verslunarmannahelg-
ina. Ætli við tökum því ekki
rólega um helgina og förum svo
eitthvað þegar hægist á
umferðinni eftir þessa helgi.
Sigurður Halldórsson úr
Reykjavík:
Ég er nú ekki búinn að ákveða
það ennþá. Ég er á ferðlagi
hérna um Norðurland núna en
er á leið til Snæfellsness og
Vestfjarða því þar er blíðan
núna. Ég er í fríi um verslun-
armannahelgina og fer eitthvað
en ætla að láta veðrið ráða því
þegar nær dregur helginni.