Dagur - 13.07.1991, Page 20
Akureyri:
Kviknaði í potti á eldavél
- í mannlausu húsi við Lerkilund
Slökkvilið Akureyrar var kvatt
að íbúðarhúsinu Lerkilundi 17
í gær. Mikiil reykur var í hús-
inu þegar að var komið, mest-
ur í eldhúsinu þar sem kviknað
hafði í potti á eldavél.
Nágranni gerði slökkviliðinu
aðvart um að kviknað væri í hús-
inu, en þá lagði reyk þaðan. Hús-
ið var mannlaust, en mikinn reyk
lagði úr eldhúsinu þar sem pottur
hafði verið skilinn eftir á hita á
eldavél. Þegar slökkviliðið kom á
staðinn uppgötvuðust upptök
reyksins fljótt. Mikla og sterka
reykjar- og brunalykt lagði frá
húsinu, og talið er víst að
skemmdir hafi orðið innan dyra
af völdum reyksins. Þær voru þó
ekki fullkannaðar í gær. EHB
Týndu brefdufurnar:
Dasaðar og ná ekki áttum
- mikið hringt til Dúfnaræktar-
sambandsins
Heimtur á bréfdúfunum til
Reykjavíkur, sem sleppt var á
Þórshöfn um síðustu helgi,
hafa ekki mikið farið batnandi.
Að sögn Halldórs Guðbjörns-
sonar hjá Dúfnaræktendasam-
bandinu hefur hann fengið
margar upphringingar frá
Norðlendingum sem hafa das-
aðar bréfdúfur hjá sér.
Sem kunnugt er var 100 bréf-
dúfurn sleppt á Þórshöfn en
aðeins um 20 hafa skilað sér til
Reykjavíkur og nágrennis. Ein
dúfa sem send var suður var dauð
þegar komið var á ákvörðunar-
stað. Halldór sagði það vera
greinilegt að hitabylgjan hafi gert
dúfunum mjög erfitt fyrir. „Þær
hafa einfaldlega ekki þolað þenn-
an hita og ekki náð áttum,“ sagði
Halldór.
Margir af þeim sem hafa hringt
til Dúfnaræktarsambandsins hafa
ekki getað náð til dúfna sem þeir
hafa séð og sagði Halldór það
sanna að einhverjar væru
sprækar. „Þær eiga eftir að skila
sér þó jafnvel mánuður líði þang-
að til,“ sagði Halldór. Meðal
staða sem hafa tilkynnt um bréf-
dúfur eru staðir í V-Húnavatns-
sýslu, á Vesturlandi, Hofsósi,
Kópaskeri, Mývatnssveit, Sauð-
árkróki og í Eyjafirði. Þá hafði
Halldór fregnað af dúfu hjá sund-
lauginni við Hafralækjarskóla en
ekki getað náð sambandi þangað
í síma. -bjb
Nú er unnið við uppgröft á lóð Síðuskóla og hefur svæðið verið girt af meðan á framkvæmdum stendur. Fyrir haust-
ið verður steypt upp á plötu en síðan verður gert hlé á framkvæmdum. Mynd: G r
Þriðji áfangi Síðuskóla:
Fjölnismenn byijaðir að grafa
- byggingin tekin í notkun haustið 1992
Framkvæmdir eru hafnar við
þriðja áfanga Síðuskóla á
Akureyri. Fimm tilboð bárust í
verkið og var samið við lægst-
bjóðanda, Fjölnismenn hf. Til-
boð fyrirtækisins hljóðaði upp
á 41,3 millj. kr. sem er 84,8%
af kostnaðaráætlun.
Fjölnismenn vinna nú af full-
um krafti við að grafa grunn fyrir
bygginguna en á skrifstofu fyrir-
tækisins fengust þær upplýsingar
að fyrir haustið ætti að steypa
upp á plötu, síðan myndu fram-
kvæmdir liggja niðri í vetur.
Framkvæmdahraðinn miðast við
fjárhagsáætlun bæjarins og þetta
er um tveggja mánaða vinna sem
nú liggur fyrir.
Næsta vor verður síðan byrjað
á uppsteypu og haldið áfram uns
byggingin er fullbúin, en frarn-
kvæmdum á að ljúka 1. ágúst
1992. Þá um haustið verður því
hægt að taka nýja álmu við Síðu-
skóla í notkun, en skortur á
húsnæði hefur sett mark sitt á
starfsemi skólans og hefur þurft
að grípa til þess ráðs að kenna í
skúrum sem settir voru niður við
skólann. SS
Gjaldþrot Álafoss hf. og ístess hf.:
Skellur bæjarsjóðs Akureyrar er
talinn nema um 60 milljónum króna
- bæjaryfirvöld skoða hvaða verkefnum er bægt að slá á frest
Kjölur og Sprengisandur:
Vegir færir og
mMumferð
Að sögn vegaeftirlitsmanna
á Blönduósi og Húsavík eru
hálendisvegirnir um Kjöl og
Sprengisand færir og mikil
umferð er um vegina.
Vegurinn um Kjöl er þokka-
legur. í síðustu viku var mikið í
syðstu ánni, Þegjanda, en nú
hefur sjatnað í ánni enda öllu
kaldara í veðri. Vegurinn um
Sprengisand er allgóður. Búið
er að hefla veginn og lagfæra
vegaskemmdir sem hlutust af
vatnavöxtum. ój
Raufarhöfn:
Drukkiim maður
handtekinn
- hafði í hótunum
Lögreglan á Raufarhöfn
handtók mann og færði í
vörslu lögreglunnar á Húsa-
vík í gærmorgun. Maðurinn
hafði í hótunum við fólk og
sagðist vera með byssu, en
lögreglan fann ekki byssu í
húsinu sem hann var í.
„Þetta var bara fylliríisröfl,"
sagði lögreglúmaður á Húsavík
eftir að maðurinn var kominn í
geymslu þar á lögreglustöðinni.
Handtakan fór fram í húsi nær
Raufarhöfn en Húsavík. 1M
Skellur bæjarsjóðs Akureyrar
vegna gjaldþrots Álafoss hf. og
ístess hf. er talinn nema allt að
60 milljónum króna, sam-
kvæmt upplýsingum Heimis
Ingimarssonar, formanns
bæjarráðs Akureyrar. Auk
þess tapa veitustofnanir bæjar-
ins umtalsverðum upphæðum
á gjaldþrotunum, eins og Dag-
ur hefur áður greint frá. A
bæjarráðsfundi sl. fimmtudag
var rætt ítarlega um þessa
alvarlegu stöðu og til hvaða
aðgerða Akureyrarbær gæti
gripið. Ljóst má vera að bær-
inn verður að bregða niður-
skurðarhnífnum á loft, en á
þessu stigi liggur ekki fyrir
hvaða framkvæmdum á vegum
bæjarins verður slegið á frest.
Heimir Ingimarsson, formaður
bæjarráðs, sagði í samtali við
Dag að ákveðið hefði verið að
óska eftir upplýsingum frá
embættismönnum bæjarins um
stöðu einstakra framkvæmda og
að þeim fengnum myndi verða
tekin afstaða til þess ltvar og
hvernig verði skorið niður. Hann
kvað nauðsynlegt að niðurstaða
fengist í næsta mánuði.
„Lauslega áætlað erum við að
missa um 60 milljónir króna, sem
gert var ráð fyrir á árinu. Um er
að ræða tekjutap á yfirstandandi
ári, auk skuldbreytingar, sem
gerð var fyrir Álafoss á sínum
tíma. Einnig eru inni í þessari
tölu ábyrgðir vegna ístess og
gjaldatap vegna þess. Þarna er
hins vegar ekki tekið tillit til tap-
aðs hlutafjár í ístess.
Þetta er auðvitað alvarlegt mál
og við getum ekkert annað en
mætt þessu með niðurskurði.
Bæjarráð hefur óskað eftir upp-
lýsingum frá embættismönnum
bæjarins um stöðu framkvæmda
á vegum bæjarins. Spurningin er
hvaða verkefni sé hægt að hætta
við, sem ekki er þegar byrjað á.
Ég tel að ef við grípum inn í mjög
bráðlega, þá höfum við mögu-
leika á að skera niður sem svarar
þessari upphæð," sagði Heimir.
Hann tók þó fram að mjög erfitt
og nánast útilokað væri að grípa
inn í verk, sem þegar hefðu verið
gerðir bindandi samningar um.
óþh
Helgarveðrið:
Hægnorðanátt
Gert er ráð fyrir lítið breyttu
veðri á Norðurlandi um helg-
ina frá því sem verið hefur
undanfarna daga, hægri
norðanátt en hitastig mun ekki
hækka mikið.
í dag er gert ráð fyrir að
norðanátt ríki áfram og úr-
komulaust verði víðast á
Norðurlandi. Veðurhorfur á
morgun, sunnudag, eru þær að
gert er ráð fyrir að dragi úr
norðanáttinni og að veður verði
bjartara. Minnkandi hæð er yfir
Grænlandi. EHB
Hlaup í Kverká og Kreppu:
Um 100 ferðalangar stranda-
glópar í Herðubreiðarlindum
Vegurinn beggja vegna Jökuls-
ár á Fjöllum ofan Lambafjalla
er ófær allri umferð vegna
vatnavaxta. Að sögn Kára
Kristjánssoiiar, landvarðar í
Herðubreiðarlindum, voru
hátt í 100 ferðalangar tepptir í
Herðubreiðarlindum í gær-
morgun og biðu þess að hlaup-
ið í Kverká og Kreppu sjatn-
aði.
Hlaup kom í Kverká sem fellur
í Kreppu aðfaranótt föstudags.
Kreppa fellur í Jökulsá á Fjöllum
og um miðjan dag í gær var veg-
urinn í Herðubreiðarlindir ófær
með öllu. „Umferð um hálend-
isvegi íslands er mikil miðsum-
ars. Af því leiðir að margir eru
nú strandaglópar í Herðubreiðar-
lindum. Hér eru tvær stórar rútur
svo og nokkuð margir einkabílar.
Vel fer um fólkið sem bíður þess
að vegurinn niður með Jökulsá
verði fær á ný. Þeir sem eru á
„duglegum“ bílum geta komist
héðan um Suðurárbotna niður í
Bárðardal og eins er hægt að
komast héðan á fjallabílum um
Gæsavatnaleið,“ sagði Svavar
Jónsson, vegaeftirlitsmaður frá
Húsavík, en hann var staddur í
Herðurbreiðarlindum í gær. ój