Dagur - 08.10.1991, Page 3
Þriðjudagur 8. október 1991 - DAGUR - 3
Fréttir
Blönduvirkjun:
Fyrsta aflvélin af þremur formlega tekin í notkun
- kostnaður við virkjunina rúmir 13 milljarðar króna
Fyrsta vélin af þremur í
Blönduvirkjun, var formlega
ræst og tekin til notkunar sl.
laugardag. Hver vél er 50 MW
og er virkjunin því alls 150
MW að afli. Önnur vél verður
tilbúin til notkunar um n.k.
áramót og hin þriðja í byrjun
mars á næsta ári. í frétt frá
Landsvirkjun kemur fram að
kostnaður við byggingu
Blönduvirkjun er áætlaður
N autakj ötsmarkaðurinn:
Getum ekki greitt fuflt verð
meðan aðrir gera það ekki
- segir Sigfús Jónsson hjá Ferskum afurðum á Hvammstanga
„Mér finnst það vera í verka-
hring bændasamtakanna að
ráðast í víðtækar aðgerðir í
þessum nautakjötsmálum. Við
norðanmenn getum auðvitað
ekki staðið í að greiða út fullt
verð þegar aðrir borga ekki
nema hluta af grundvallar-
verði. Sem stendur er ég
hræddastur um að þetta skili
sér ekki til neytandans,“ segir
Sigfús Jónsson, framkvæmda-
stjóri Ferskra afurða á
Hvammstanga, aðspurður
hvort fyrirtækið hyggist lækka
skilaverð á nautakjöti til
bænda í framhaldi af vaxandi
framboði.
Eins og fram hefur komið hafa
tveir sláturleyfishafar á Suður-
landi lækkað verð á nautakjöti
vegna offramboðs. Sigfús segir
ljóst að eigi aðrir sláturleyfishaf-
ar að keppa við sunnlensku aðil-
ana á markaðnum verði þeir, fyrr
eða síðar, að gera slíkt hið sama.
Sigfús segir Ijóst að kúabændur
geti engum öðrum en sjálfum sér
kennt um hvernig komið er enda
hafi þeir alla aðstöðu til að
stjórna þessum málum. „Ég held
því að menn verði að setjast
niður, viðurkenna staðreyndir og
stíga sig út úr vandanum. Það er
kúabænda sjálfra að taka á þessu
máli og geri þeir það ekki þá eru
þeirra samtök verri en engin,“
segir Sigfús.
Sigfús segir að það hafi legið í
loftinu í allt sumar að framboð á
nautakjöti í haust yrði mikið.
Samtök bænda hafi legið fram á
lappir sínar og því verið óviðbún-
Dalvík:
Miimingarstofti um dr.
Kristján Eldjárn
komið upp í Hvoli
Ákveöið hefur verið að koma
upp sérstakri minningarstofu
um dr. Kristján Eldjárn, fyrr-
verandi forseta íslands, í safna-
húsinu Hvoli á Dalvík. Þegar
er byrjað að innrétta minning-
arstofuna og er við það miðað
að hún verði opnuð fyrir 6.
desember nk., fæðingardag dr.
Kristjáns, en þá hefði hann
orðið 75 ára gamall.
Stjórn byggðasafnsins hefur að
undanförnu átt viðræður við frú
Halldóru Eldjárn og Þórarin
Eldjárn um að setja upp minn-
ingarstofu um dr. Kristján heit-
inn og heiðra þannig minningu
hans, en eins og kunnugt er var
liann Svarfdælingur að ætt og
uppruna. Þau mæðgin tóku mjög
vel í hugmyndina og í framhaldi
af því var tengdasyni dr.
Kristjáns, Stefáni Erni, falið að
gera teikningar að innréttingum í
minningarstofunni.
Vel verður til hennar vandað
og mun Dalvíkurbær m.a. leggja
fjármuni til hennar.
Samkvæmt upplýsingum Dags
verður minningarstofan í Hvoli
þar sem áður voru ýmsir munir
tengdir Jóhanni Svarfdælingi.
Þeir munir eru nú komnir upp á
efstu hæð hússins.
í minningarstofunni verður
m.a. handrit sem dr. Kristján
skrifaði, bækur sem eftir hann
liggja, bæði frumsamdar og
þýddar, fjöldi mynda og síðast en
ekki síst afsteypa af brjóstmynd
Sigurjóns Ólafssonar af dr.
Kristjáni.
Stjórn byggðasafnsins Hvols
vill koma því á framfæri að fólk,
sem kynni að eiga í fórum sínum
merkilegar ljósmyndir eða annað
sem tengist dr. Kristjáni, hafi
samband við stjórnarmenn. Þeir
eru Gylfi Björnsson, Júlíus
Kristjánsson og Kristján Ólafs-
son. óþh
IVleðal inuna, scm verða í minning-
arstofunni, er afsteypa af brjóst-
mynd Sigurjóns Ólafssonar af dr.
Kristjáni Eldjárn.
in þegar fram á haustið kom. „Ég
þekki ekki annað eins framboð
eins og nú er. Hugsanlega hefur
magnast upp einhver taugaveikl-
un í kringum þetta en það er ekki
skýringin. Okkur stendur ein-
faldlega mikið til boða,‘
Sigfús.
10,9 milljarðar kr. og fjár-
magnskostnaður 2,3 milljarðar
kr. eða samtals 13,2 milljarðar
kr. á verðlagi á miðju þessu
ári.
Vinna við virkjunina hófst með
jarðgangagerð haustið 1984 og
var þá stefnt að því að rekstur
gæti hafist haustið 1988. Mark-
aðsaðstæður breyttust hins vegar
skömmu síðar og varð niðurstað-
an sú að stíflugerð og vélaniður-
setningu var frestað og gangsetn-
ing ákveðin í byrjun október
1991.
Af þessu ástæðum hefur fram-
kvæmdatíminn orðið mun lengri
en venja er um virkjanir. Hlé
hefur þó ekki orðið á fram-
kvæmdum nema veturinn 1988 til
1989. Fram að þeim tíma var
mannfjöldi við verkið á bilinu 30-
130 en síðan hafa starfsmenn ver-
ið mun fleiri og urðu flestir um
500 á miðju sumri 1990. í sumar
urðu starfsmenn flestir um 380.
Verkinu var skipt í mjög
marga verkþætti, sem boðnir
voru út sérstaklega og urðu
verksdmningar alls rúmlega
tuttugu talsins auk allmargra
samninga um uppsetningu vinnu-
búða og ýmis smærri verk. Þessi
skipting verksins var meiri en
áður hefur tíðkast við virkjanir
og var til þess gerð að auðvelda
íslenskum verktökum þátttöku.
Leiddi þessi tilhögun til þess að
íslensk fyrirtæki hafa átt aðild að
öllum byggingarsamningum
verksins, ýmist ein sér eða í sam-
vinnu við dönsk, norsk, og sænsk
fyrirtæki. Verktakar að megin-
hluta vél- og rafbúnaðar eru hins
vegar frá Japan, Noregi, Frakk-
landi og Júgóslavíu, með nokk-
urri þátttöku íslenskra aðila.
Hönnun virkjunarinnar hefur
verið í höndum íslenskra ráðgjaf-
arfyrirtækja en Landsvirkjun hef-
ur sjálf annast eftirlit með fram-
kvæmdum. -KK
Potta-
plöntn-
markaðtir
40 TEGUNDIR
stærðir frá 20 cm til 2 m
ERICULYNG
STORIR PALMAR
verð sem kemur öllum á óvart
Blómahúsið
Glerárgötu 34 Akureyri • S 22551