Dagur - 08.10.1991, Qupperneq 16
Kodak ^
Express
Gæóaframköllun
Akureyri, þriðjudagur 8. október 1991
★ Tryggðu filmunni þinni
Jaesta cPedíomyndir'
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Færð á vegum:
HáJka á Öxnadalsheiði
- lítill snjór á hálendinu en færð þó tekin
að spillast - einkum austantil
Vegurinn yfir Öxnadalsheiði
var ruddur í gærmorgun en
nokkuð hafði snjóað uin nótt-
ina og veruleg hálka náð að
myndast. Víkurskarð var
greiðfært í gær og sömuleiðis
leiðin frá Dalvík að Múlagöng-
um. Lágheiði lokaðist hins veg-
ar í síðustu viku og aðeins er
fært jeppum og stærri bílum
um Oxarfjarðarheiði og
Möðrudalsöræfi. Lítill snjór er
á Hveravöllum en meira hefur
snjóað austar á hálendinu.
Samkvæmt upplýsingum vega-
gerðarinnar á Akureyri var snjó
rutt af veginum um Öxnadals-
heiði í gærmorgun. Nokkuð hafði
snjóað og mikil hálka náð að
myndast. Vegurinn um Víkur-
skarð var talinn auður síðdegis í
gær þótt gránað hefði í skarðinu.
Skotfæri er til Ólafsfjarðar en
vegurinn um Lágheiði niður í Fljót
varð ófær í síðustu viku og verð-
ur ekki opnaður á meðan engar
breytingar eru fyrirsjáanlegar á
veðri. Þá er Öxarfjarðarheiði
einungis fær jeppum og bílum
með drif á öllum hjólum og færð
er einnig farin að versna á
Möðrudalsöræfum.
Að sögn Hörpu Lindar Guð-
brandsdóttur á Hveravöllum er
lítill snjór þar efra ennþá. Þó hef-
ur skafið nokkuð á veginn og
sagði hún að færð gæti eitthvað
verið farin að versna af þeim
sökum. Meiri snjór væri austar á
hálendinu og kvaðst hún hafa
heyrt í jeppamönnum um helg-
ina, sem verið hefðu á ferð á
Sprengisandi þar sem færð hefði
verið farin að versna verulega.
Vegaeftirlitsmenn vegagerðar-
innar á Akureyri sögðu að nú
væri nauðsynlegt að búa ökutæki
til vetraraksturs ef menn ætluðu að
leggja á fjallvegi því alltaf mætti
búast við hálku er þessi árstími
færi í hönd. ÞI
Þingað í Þverárrétt sl. sunnudag.
Mynd: Golli
Náttúruverndarráð vill stöðva kísilgúrtöku úr Mývatni hið fyrsta:
Ákvörðun verður að taka fyrir áramót
segir Róbert Agnarsson, forstjóri Kísiliðjunnar hf.
„Ég er þeirrar skoðunar að
menn taki þá ákvörðun að
Kísiliðjan fái að vera hér áfram
lengur en Náttúruverndarráð
gefur til kynna,“ segir Róbert
Agnarsson, framkvæmdastjóri
Enghin hiti 1
nágrenni Hofsóss
- tilraunaborunum hætt
Tilraunaborunum eftir heitu
vatni í nágrenni Hofsóss var
hætt skömmu fyrir helgi eftir
að boraðar höfðu verið sex
holur og enginn hiti fundist.
Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða sá um verkið, en til
stóð að boraðar yrðu tíu holur.
„Þeir sáu ekki ástæðu til að
bora fleiri en sex holur því engar
vísbendingar voru um að heitt
vatn væri á þessu svæði. Sýni
voru samt tekin og verða þau
send í rannsókn og hitinn mældur
í holunum eftir mánuð. Það er
samt ekki útlit fyrir að við getum
yljað okkur við það í skammdeg-
inu í vetur að eiga von á heitu
vatni,“ segir Jón Guðmundsson,
sveitarstjóri Hofshrepps.
Boraðar voru 40-60 metra
djúpar holur og bergsýni tekin.
M.a. var borað hjá svokölluðum
Reykjarhól, en að sögn Jóns
virðist hafa rokið upp af þeim hól
af öðruni ástæðum en jarðhita
þegar hann fékk nafn sitt, því þar
var jarðvegur hvað kaldastur.
SBG
Skógrækt ríkisins á Vöglum:
Fjögur gróðurhús
fiiku í óveðrinu
í óveðrinu sem gerði á
Norðurlandi aðfaranótt
fimmtudags urðu töluverðar
skemmdir hjá Skógrækt ríkis-
ins á Vöglum. Að sögn Sigurð-
ar Skúlasonar, fuku fjögur
gróðurhús. Tvö gróðurhús-
anna voru 120 ferm. að stærð
en einnig fuku tvö önnur minni
hús.
Þessi hús voru komin til ára
sinna enda elstu gróðurhúsin á
staðnum og notuð undir sáning-
ar. Nokkrar minni háttar aur-
skriður féllu í landi Sigríðarstaða
og náði ein þeirra inn á tún.
Á föstudag féll síðan aurskriða
úr fjallinu milli Háls og Birn-
ingsstaða. Skriðan náði niður að
gamla þjóðveginum sem liggur
austur Ljósavatnsskarð. Nokkrar
skemmdir urðu á girðingum og
einn staur í rafmagnslínu bæj-
anna Birningsstaða og Kambs-
staða brotnaði.
Óhemju mikil úrkoma hefur
verið hér í dalnum og muna sum-
ir ekki eftir öðru eins. MG/Hálsi
Kísiliðjunnar hf. í Mývatns-
sveit.
Sl. föstudag sendi Náttúru-
verndarráð frá sér umsögn um
skýrslu Sérfræðinganefndar um
Mývatnsrannsóknir og er þar lagt
til að kísilgúrtaka úr Mývatni
verði stöðvuð hið fyrsta. Ráðið
leggur til að gengið verði frá
námunni á skipulegan hátt og
endanleg mörk svæðisins og
„tímamörk vinnslunnar verði
ákvörðuð út frá námunni á vís-
indalegum forsendum,“ eins og
segir orðrétt í umsögninni.
„Náttúruverndarráð hefur til
grundvallar skýrslu Sérfræðinga-
nefndar um Mývatnsrannsóknir,
sem við höfum lesið út úr að væri
mjög jákvæð í garð Kísiliðjunnar
og þeirrar starfsemi sem hér fer
fram. Við erum greinilega með
öðruvísi gleraugu en þeir sem
sitja í Náttúruverndarráði," sagði
Róbert.
Auk álits Náttúruverndarráðs
liggur fyrir umsögn stjórnar Nátt-
úrurannsóknastöðvarinnar við
Mývatn um skýrslu Sérfræðinga-
nefndarinnar. Þar kemur m.a.
fram það álit að dæling á Bolum
eða annars staðar sunnan Teiga-
sunds sé ekki ásættanlegur kostur
og lagt er til að þegar verði haf-
inn undirbúningur að formlegri
friðun vatnsbotnsins þar. í bókun
frá einum stjórnarmanna rann-
sóknastöðvarinnar, Sigurði Rún-
ari Ragnarssyni, sveitarstjóra
Skútustaðahrepps, segir hins veg-
ar að hann telji ekki að áhætta af
vinnslu á nýju svæði á Bolum
réttlæti að landamæralína verði
dregin fyrir hana um Teigasund.
í Náttúruverndarráði sitja nú
sem aðalmenn Arnþór Garðars-
son, prófessor í dýrafræði, for-
maður, Birna G. Bjarnleifsdótt-
ir, skólastjóri Leiðsöguskólans,
varaformaður, Bryndís Brands-
dóttir, jarðfræðingur við HÍ,
Einar E. Sæmundsson, garð-
yrkjustjóri Kópavogs, Gísli Már
Gíslason, prófessor í vatnalíf-
fræði við HÍ, Ingvi Þorsteinsson,
deildarstjóri á RALA, Jón Birgir
Jónsson, yfirverkfræðingur
Vegagerðar ríkisins og Þórunn Þ.
Reykdal, líffræðingur.
Umsögn Náttúruverndarráðs
fer til Eiðs Guðnasonar,
umhverfisráðherra, sem mun
væntanlega senda umsögn um
málið fyrir hönd umhverfisráðu-
neytisins til Jóns Sigurðssonar,
iðnaðarráðherra. Það er síðan
hans að ákveða endanlega um
framtíð Kísiliðjunnar.
Róbert Agnarsson lagði á það
áherslu í samtali við Dag í gær að
stjórnsýslan yrði að taka endan-
lcga ákvörðun um framhald kísil-
gúrvinnslu hjá Kísiliðjunni hf.
fyrir áramót. Ekki væri búandi
við slíka óvissu öllu lengur.
Bróðurpartur umsagnar Nátt-
úruverndarráðs um Sérfræðinga-
skýrsluna birtist á blaðsíðu 4.
óþh
Norðurland vestra:
Erill hjá lögreglu
Töluverður erill var hjá lög-
gæslumönnum á Norðurlandi
vestra um helgina. Aðfaranótt
Iaugardags tók Iögreglan á
Blönduósi tvo ökumenn fyrir
meintan ölvunarakstur á
Skagaströnd.
Á laugardeginum var síðan
réttað m.a. í Víðidalstungurétt í
V-Hún og Laufskálarétt í Skaga-
firði. I tengslum við réttirnar
voru réttardansleikir í Víðihlíð
og Miðgarði. Um þúsund manns
sóttu skagfirska dansleikinn, en
þar lék hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar og að sögn lögregl-
unnar á Sauðárkróki var töluvert
um pústra á dansleiknum og fyrir
utan samkomuhúsið. Þau tvö
sem flytja þurfti á sjúkrahús
slösuðust þó ekki í slagsmálum,
en ein stúlka missteig sig illilega
og fótbrotnaði og einnig þurfti að
sauma nokkur spor í höfuðleður
pilts er hrasaði utandyra. Dans-
leikurinn í Víðihlíð fór aftur á
móti vel fram. SBG
Óveður spillir loðnuleit:
Leitarskipin í vari í gær
- Höfrungur og Súlan vör við loðnu
á sunnudag
Óveður hefur hamlað loðnu-
leitinni sem hófst um helgina.
Súlan EA tekur þátt í leitinni
og hélt skipið úr höfn á Akur-
eyri á laugardag en var komið í
var fyrir veðrinu á sunnudags-
kvöld. Þar lá skipið enn síðast
er fréttist í gær.
„Hér er brjálað veður og við
höfum lítið getað leitað," sagði
Helgi Ásmundsson, skipverji á
Súlunni, þegar haft var samband
við skipið síðdegis í gær.
„Við náðum að skoða aðeins í
morgunsárið á sunnudag en það
var lítið. Við urðum varir við
eitthvað „ryk“ þá en það var ekk-
ert veiðanlegt,“ sagði Helgi.
Leitarskipið Höfrungur varð
einnig vart við loðnu um helgina
og þá á Dohrnbanka. Spáð var
batnandi veðri fyrir síðastliðna
nótt og ættu leitarskipin þá að
geta byrjað á nýjan leik en búist
er við að loðnuleit standi næstu
tvær vikur. JÓH