Dagur - 16.11.1991, Blaðsíða 12

Dagur - 16.11.1991, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 16. nóvember 1991 IJVdÆjW heilsugæslustödin á akureyri_ Mænusóttar- bólusetning Almenningi er boöið upp á bólusetningu gegn mænusótt (lömunarveiki) mánudaginn 18. nóvember kl. 17-19, í Hafnarstærti 104, 2. hæö (Ungbarnaeftirlitið). Nauðsynlegt er að viðhalda ónæminu með bólusetn- ingu á 4-5 ára fresti. Hafið meðferðis ónæmisskírteini. Bólusetningin kostar 200 kr. Heilsugæslustöðin á Akureyri. Góðir gestir í Grenivíkurkirkju Góðir gestir í Grenivíkur- kirkju. Það er stundum notað sem rök fyrir því hve vont sé að búa á „landsbyggðinni“ svokallaðri að þar fari menn á mis við alla almennilega list- viðburði. Víst missum við af ýmsu sem ekki búum á Suð- vcsturhorninu. En einangrun okkar þarf ekki að vera algjör. Jafnvel ekki í fámennum sveit- um. Það sannast stöku sinnum. S.l. laugardag voru haldnir tónleikar í Grenivíkurkirkju. Par voru á ferðinni tvö tríó; annars vegar Margrét Bóasdóttir, sópran, Þuríður Baldursdóttir, alt og Michael Jón Clarke, bari- tón, hins vegar Chamelaux tríóið sem skipað er klarínettuleikurun- um Sigurði I. Snorrasyni, Óskari Ingólfssyni og Kjartani Óskars- syni. Á efnisskránni var Svíta eft- ir J. Ch. Graupner, fimm sálm- forleikir fyrir þrjú klarinett og sópran eftir J. S. Bach, sex Næt- urljóð fyrir sópran, alt, baritón, klarinettur og bassett-horn eftir W. A. Mozart og Tríó í c-dúr op. 87 eftir L. van Beethoven. Þetta voru eftirminnilegir tónleikar þeim sem á hlýddu. Kom þar einkum tvehnt til, óvenjuleg hljóðfæraskipan og flutningur sem er hafinn yfir alla gagnrýni. Verkin, sem flutt voru, voru þannig valin að þau létu vel í eyr- Félagsmanna- afsláttur 18. nóvember til 7. desember Kaupfélag Eyfirðinga veitir félagsmönnum sérstakan afslátt í Vöruhúsi KEA, og sömuleiðis af ýmsum vörum í Raflagnadeild og Byggingavörudeild. s I verslunum KEA utan Akureyrar gilda sömu kjör á sömu vörum. Afslátturinn miðast við staðgreiðslu. Nýir félagsmenn geta einnig notið sömu kjara. Ef þú vilt gerast félagsmaður fyllir þú út eyðublað í Vöruhúsi, Raflagnadeild, Byggingavörudeild, Fjármáladeild KEA eða í útibúum KEA og þú getur verslað strax. um áheyrenda, líka þeirra sem ekki hlusta á klassíska tónlist að öllum jafnaði. Hápunkturinn voru Næturljóð Mozarts sem eru slíkt konfekt að maður brennur í skinninu að fá að heyra aftur. Áheyrendur voru því miður allt of fáir. Þannig þurfti endilega að hittast á að svo til allt starfslið frystihúss Kaldbaks hf. og fleira fólk var á Akureyri að snæða góðan mat og skemmta sér. En þeir sem á hlýddu fóru þakklátir heim. Fyrr um daginn hafði lista- fólkið haldið tónleika í Þórodds- staðarkirkju í Kinn. Þar var hús- fyllir. Þarna var ekki verið að velja fjölmenna staði þar sem von væri á mörgum áheyrendum heldur að koma með listina til þeirra sem eiga ekki greiðan aðgang að tónleikasölum. Því miður harla óvenjulegt sjónar- mið en því meiri ástæða til að þakka fyrir þegar listamenn sýna slíkt framtak. Hafið heila þökk fyrir komuna. Mættum við fá meira að heyra. Björn Ingólfsson. Höfundur er skólastjóri Grenivíkurskóla. Lögmannshlíðarsókn: Jólakortasala Sóknarnefnd Lögmannshlíðar- sóknar Glerárprestakalli er um þessar mundir að hefja sölu á jólakortum. Jólakortasalan er liður í fjáröflun vegna byggingar Glerárkirkju. Unglingar úræsku- lýðsfélaginu Glerbroti vinna við pökkun kortanna og munu þeir ganga í hús í Glerárþorpi og bjóða kortin til sölu. Aðaldalur: íbúðarhús í smíðum í frétt í Degi föstudaginn 8. nóvember er rætt um helstu framkvæmdir í Aðaldal. Þar kemur fram að ekkert íbúðarhús muni vera í smíðum í sveitinni. Þetta er ekki rétt því syðst í Aðaldalnum, í Fagraneskoti er Guðmundur Jónsson, bóndi að byggja sér íbúðarhús, sem nú hefur náð fokheldisstigi. Þarna hefur Dagsmönnum yfirsést og eru hlutaðeigandi beðnir velvirð- ingar. IM Áskorun til vélsleðamanna Á almennum fundi félaga Landssambandi íslenskra vél sleðamanna í Vín við Hrafna gil, miðvikudaginn 13. nóv 1991, var samþykkt eftirfar andi áskorun til vélsleða manna. „Félagsmenn skora á alla öku- menn vélsleða að hafa það í huga er þeir aka um bæjarlandið og nágrenni þess, að hlífa viðkvæm- um svæðum við akstri, velja leið- ir með tilliti til þess og takmarka akstur innanbæjar." STÖÐVUM BÍLINN ef við þurfum að tala í farsímann! I\ mIumferðar n MÍS J\

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.