Dagur - 16.11.1991, Qupperneq 19
Laugardagur 16. nóvember 1991 - DAGUR - 19
Popp
Magnús Geir Guðmundsson
Egill Ólafsson - Tifa, tifa:
Vei heppnað verk
Egill Ólafsson hefur um langt
árabil verið einn besti og vinsæl-
asti dægurlagasöngvari þjóðar-
innar. í um tvo áratugi hefur hann
verið í sviðsljósinu með Stuð-
mönnum, Spilverki þjóðanna og
Þursaflokknum, sem allar hafa
verið framvarðarhljómsveitir í
íslensku poppi, hver á sínu sviði
og tíma.
Nú er Egill hins vegar að hasla
sér völl sem einherji, ef svo má
að oröi komast, með þessari
plötu, Tifa, tifa, og er ekki hægt
að segja annað en að hann byrji
vel í því hlutverki þegar á heildina
er litið. Reyndar hefur poppskrifari
Dags hrifist meir af Agli Ölafssyni
leikara heldur en Agli Ólafssyni
söngvara I seinni tíð og það ekki
af ástæðulausu. Hann hefur
nefnilega unnið mikla sigra í leik-
listinni ekki síður en í tónlistinni
og nægir þar að nefna hlutverk
hans í Magnúsi, þar sem hann
lék titilhlutverkið óaðfinnanlega,
og í Ryð, mynd Lárusar Ýmis
Óskarssonar eftir leikriti Ólafs
Hauks Símonarsonar, Bílaverk-
stæði Badda.
Egill Ólafsson „tiplar um troðnar
slóðir", en er samt líka ferskur.
En burtséð frá leiklistinni og
sigrum Egils þar, þá er ekki ólík-
legt að hann sé að vinna viðlíka
sigur með Tifa, tifa. í það
minnsta hafa landsmenn tekið
plötunni mjög vel. Er þar líka
hægt að vera sammála lands-
mönnum, því eins og áður segir
þá tekst Agli vel upp. Semur
hann öll lögin á plötunni, tíu að
tölu, sjálfur auk textanna og spil-
ar á hljómborð ásamt söngnum.
Eru lagasmíðarnar á vissan hátt
samblanda af áhrifum frá Stuð-
mönnum og Þursaflokknum
samanber lagið Sigling, sem er í
hinum brokkandi takti, sem ein-
kenndi verk Þursanna mörg hver
og lagið Ekkert þras, sem nú nýt-
ur mikilla vinsælda, er hæglega
myndi sóma sér vel á Stuð-
mannaplötu. Virkar þessi blanda
bara býsna vel, eins ólík sem
efnistökin I henni eru.
En það kennir fleiri grasa á
plötunni. Til að mynda er eitt
besta lag plötunnar, Hertu upp
hugann, með sterkum fransk/
latneskum keim, sem minnir
menn á listamenn á borö við
Edith Piaff. Þá er einnig mjög
mögnuö ballaða sem er nokkuð
sérstök í tvísöng Egils og Sigrún-
ar Hjálmtýsdóttur (Diddú) sem
nefnist Það brennur. Tifa, tifa er
því sem sagt hinn eigulegasti
gripur sem aðdáendur söngvar-
ans og aðrir geta verið ánægðir
meö. Er þaö næsta víst að Egill
sjálfur hefur vart getað óskað sér
betri byrjunar á einherjaferlinum.
Stórstjarnan Bryan
Adams til íslands
Árið 1991 ætlar að verða sögu-
legt hvað varðar heimsóknir
frægra tónlistarmanna hingað til
lands. Er nú svo komið að maður
hefur vart tölu á öllum þeim við-
burðum sem orðið hafa á þessu
sviði á árinu og það sem meira er
að allt er ekki búið enn. Það er
nefnilega von á sjálfum stórrokk-
aranum frá Kanada, Bryan
Adams, sem er án efa ein skær-
asta stjarna í dægurlagaheimin-
um í dag.
Mun Adams halda eina tón-
leika í Laugardalshöllinni í
Reykjavík þann 17. desember.
Eins og kunnugt er og greint hef-
ur verið frá hér á Poppsíðu, hefur
lag Adams úr myndinni Robin
Hood, (Everything I do) I do i.t for
you, notið gríðarlegra vinsælda
og sat t.a.m. í 16 vikur á toppi
breska vinsældalistans, sem er
einsdæmi í sögu þess lista.
Miklar vinsældir eru þó engin
nýlunda fyrir Bryan Adams, því á
þeim rúma áratug sem liðinn er
siðan hann kom fram á sjónar-
sviðið með sína fyrstu samnefndu
Bryan Adams kemur til íslands í
desember og heldur tónleika í
Laugardalshöll.
plötu, hefur frægðarsólin lengst-
um leikið við hann. Það var þó
ekki sem tónlistarmanns að nafn
Adams varð fyrst þekkt, heldur
sem lagahöfundar, en lagið
Straight from the heart, sem
hann samdi með félaga sínum
Jim Vallence, (eins og reyndar
flest annað) varð vinsælt um all-
an heim í flutningi hinnar skosku
Bonnie Tyler árið 1983.
Ekki löngu seinna náði svo
Adams sjálfur að koma laginu inn
á topp tíu í Bandaríkjunum, sem
endanlega braut ísinn. Seldist
platan Cuts like a knive, sem
geymir Straight from the heart,
mjög vel I kjölfar vinsælda lags-
ins og var þar lagður grunnurinn
að frekari vinsældum Adams.
Reckless, sem kom út 1984,
seldist í milljónum eintaka um all-
an heim og gerðu lög eins og
Run to you, Summer of ’69 og It’s
only love, þar sem Tina Turner
syngur dúett með Adams, allt
vitlaust. Þótt Into the fire, sem
fylgdi í kjölfar Recless 1987,
næði ekki eins mikilli hylli, þá hélt
hún nafni Adams vel á lofti.
Nýja platan, Waking up the
neighbours, sem út kom fyrir
skömmu, er hins vegar líkleg til
að gera gott betur en svo, því
hún fór hvarvetna á topp vin-
sældalista þegar hún kom út og
er ekki loku fyrir það skotið að
hún slái jafnvel Reckless við
hvað vinsældirnar snertir.
Það ætti því að vera Ijóst aö
koma Bryan Adams hingað til
lands er mikill viðburður og ættu
þeir norðlensku rokkunnendur
sem kost eiga á, ekki að láta sig
vanta á tónleikana. Hefur Adams
alltaf þótt mjög góður á sviði og
er ekki að efa að hann muni
„trylla” vel íslenska tónleika-
gesti. Það er fyrirtækið Borgar-
foss, sem stendur að komu hans
hingað til lands.
Leiðrétting
í grein fyrir hálfum mánuöi um
finnskt rokk var sagt að gítar-
leikarinn Jorma Kankonen væri
látinn. Virðist heimild Poppskrif-
ara í þeim efnum nú hins vegar
málum blandin, þannig að kápp-
inn mun að öllum líkindum vera í
fullu fjöri ennþá. Er því hér með
tekin aftur þessi ómeðvitaða
„aftaka” á Kankonen.
Athyglisvert myndband
væntanlegt með The Cure
Breska popphljómsveitin The
Cure á sér stóran og fjölbreyti-
legan aðdáendahóp víða um
heim, enda hefur hún lagt sig í
líma við að vera sem fjölbreyti-
legust í tónlistarsköpun sinni.
Nú er beðið með nokkuri eftir-
væntingu eftir nýrri plötu frá
hljómsveitinni, sem er í smíðum
og kemur væntanlega út
snemma á næsta ári, en rúm tvö
ár eru liðin síðan síðasta hljóð-
versplatan, Disintegration, kom
út.
Til að gera biðina styttri og þol-
anlegri fyrir æsta aðdáendur
sína, sendir Cure frá sér nýtt
myndband nú á mánudaginn,
sem er hið merkilegasta. Er um
að ræða tveggja klukkustunda
efni þar sem góð innsýn er gefin
í starfsemi hljómsveitarinnar.
Kallast myndbandið The Cure
play out og inniheldur það meðal
annars upptökur með falinni
myndavél af hljómsveitinni við
ýmis skemmtileg tækifæri, upp-
tökur frá tónleikum, þar sem þrjú
ný lög, Wendy time, The big
hand og Away, heyrast og uppá-
komu í sjónvarpi. Þá getur enn-
fremur að líta viðtöl við hljóm-
sveitina og svipmyndir frá æfing-
um hennar.
Að síðustu má svo nefna að
fjórða nýja lagið verður að finna á
þessu myndbandi The Cure,
sem nefnist A letter to Elise, sem
leikið er án rafmagnshljóðfæra. Á
þessari upptalningu má sjá að
hér er um hið eigulegasta mynd-
band að ræða, sem gleöja mun
hvern aðdáanda The Cure.
Laus staða
Við embætti bæjarfógetans á Akureyri er laus til
umsóknar hálfsdagsstaða skrifstofumanns.
Vinnutími kl. 13-17. Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar undir-
rituöum fyrir 30. nóvember nk.
Bæjarfógetinn á Akureyri, 14. nóvember 1991.
Elías I. Elíasson.
Nuddari óskast,aa
Nemi af heilsugæslubraut eða með sambærilega
menntun kemur til greina.
Mjög góð aðstaða.
Umsóknir og helstu upplýsingar sendist í pósthólfi 287,
602 Akureyri fyrir 25. nóv. Merkt: „Nudd“.
Öllum umsóknum svarad.
Læknaritari
óskast
í fullt starf við Heilsugæslustöðina
á Húsavík frá 1. janúar 1992.
Upplýsingar gefur læknafulltrúi í síma 41333.
Umsóknarfrestur er til 29. nóv.
Heilsugæslustöð Húsavíkur.
Dalbær
heimili aldraðra
Sjúkraliðar
Dalbær - heimili aldraðra, Dalvík, óskar eftir að ráða
sjúkraliða.
Vinnuhlutfall eftir samkomulagi.
Góður vinnuandi.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Vilhjálmsdóttir, hjúkrunarfor-
stjóri í síma 96-61378.
Óskum eftir að ráða
kjötiðnaðarmann eða
mann vanan úrbeiningum
til framtíðarstarfa. Þarf aö geta hafið störf sem fyrst.
Óskum einnig eftir starfskrafti til hreingerninga
hluta úr degi.
Upplýsingar í síma 25832 frá kl. 8-17 alla virka
daga.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafmagnstæknifræðingur/
rafmagnsverkfræðingur
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir aö ráöa raf-
magnstæknifræðing/rafmagnsverkfræðing meö
aösetur á Blönduósi.
Nánari upplýsingar um starfiö veitir svæðisrafveitu-
stjóri á Blönduósi.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf
sendist fyrir 6. desember n.k.
Rafmagnsveitur ríkisins
Ægisbraut 3 • 540 Blönduósi