Dagur - 22.01.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 22. janúar 1992
14. tölublað
Vel klæddur
í fötum frá
enrabudin
HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
BERNHARDT
Thc Tailor-l.iK)k
Óhappið við Laxá í Kjós:
Flutninga-
bifreið frá
Dreka mjög
illa farin
Vörutlutningabifreið og tengi-
vagn frá Dreka hf. Akureyri
tók upp í vindhviðu skammt
frá brúnni yfir Laxá í Kjós að
kvöldi mánudagsins. Bifreiðin
er mikið skemmd ef ekki ónýt
og bílstjórinn hlaut meiðsl.
Dreki hf. á Akureyri gerir út
sjö vöruflutningabifreiðar á leið-
ina Akureyri-Reykjavík-Akur-
eyri. Á mánudagskvöld voru þrír
bílar á leið norður, þar af tveir
frá Dreka hf. Misvinda var um
allt Vesturland en færð var góð.
Er aftasti bíllinn nálgaðist Laxá
fékk hann á sig öflugan vindhnút
sem reif bíl og vagn á loft af veg-
inum. Aflið hefur verið mikið því
bíll og vagn eru 36 tonn. Bíllinn
og vagninn skullu niður á hinn
vegarhelminginn með miklum
skruðningum. Að sögn Jóhanns
Gunnars Jóhannssonar, fram-
kvæmdastjóra Dreka hf. var unn-
ið að losun bifreiðar og vagns í
gær til að hægt yrði að koma bíln-
um á hjólin aftur.
„Ökumaðurinn sem er þaul-
vanur langferðabílstjóri er rif-
beinsbrotinn, meiddur á öxl,
skrámaður á höfði og illa marinn
á fótum og víðar. Slysin gera ekki
boð á undan sér og telja má að
ökumaðurinn hafi sloppið vel
miðað við allar aðstæður. Fyrsti
bíllinn var við Laxá fimmtán
mínútum áður en slysið varð og
þá var ekki hvasst við ána. Þessi
vindhnútur reið á sem byssuskot
og slíkt er ekki hægt að varast,“
sagði Jóhann Gunnar Jóhanns-
son. ój
Þökulagt á Sauðárkróki í janúar
Sunnanblíðan sem lagt hefur undir sig íslenska grund á þeim tíma árs sem Vetur konungur er vanur að
ráða ríkjum, virðist engan endi ætla að taka. Bæjarstarfsmenn á Sauðárkróki nýttu sér blíðuna sl.
mánudag til að leggja þökur og sögðust að vísu stundum hafa verið að þökuleggja í desember, en aldrei
áður í endaðan mörsug. SBG
Bæjarstjórn Akureyrar:
Leiktæki amáJið
«
verði skoðað
Á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar í gær var samþykkt að
vísa bókun bæjarráðs frá 19.
desember sl. um að lengja
opnun leiktækjasala um þrjár
kíukkustundir, til annarar
umræðu og frekari umfjöllun-
ar bæjarráðs.
Fyrir fundinum lá bókun
íþrótta- og tómstundaráðs frá 20.
janúar sl. þar sem það „lýsir ein-
dreginni andstöðu sinni við fyrir-
hugaðar breytingar" og harmar
að bæjarráð hafi ekki haft sam-
ráð við íþrótta- og tómstundaráð
áður en þessi ákvörðun var tekin.
Bent er á að ef bæjarstjórn stað-
festi þessa samþykkt bæjarráðs,
væri hún að ganga þvert gegn
vilja skólastjórnenda og foreldra-
félaga í bænum.
Sigrún Sveinbjörnsdóttir, for-
maður félagsmálaráðs, vísaði á
bæjarstjórnarfundinum í gær til
bókunar félagsmálaráðs frá 8.
janúar sl. þar sem segir að það
telji „ekki ráðlegt að rýmka regl-
ur um starfsemi þessa frá því sem
nú er.“ óþh
Halldór Jónsson, bæjarstjóri, um skattlagningarhugmyndir stjórnvalda:
Gæti þýtt að 3-5% af skatttekjum
Akreyrarbæjar flytjist til ríkisins
Halldór Jónsson, bæjarstjóri á
Akureyri, var harðorður í garð
stjórnvalda í ræðu á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar í gær
þar sem hann fylgdi fjárhags-
áætlun Akureyrarbæjar fyrir
árið 1992 úr hlaði. í máli hans
kom fram að sú skattlagning
sem rætt hefur verið um og
birtist m.a. í svokölluðum
„bandormi", gæti flutt 3-5% af
skatttekjum Akureyrarbæjar
til ríkisins.
„Á sama tíma og sveitarfélög
eru að ljúka gerð sinna fjárhags-
áætlana, hangir boðuð skattlagn-
ing ríkisins á sveitarfélög yfir
okkur óafgreidd enn. Slíkt er
auðvitað ekki ásættanlegt. Gildir
íslenskir sjávarréttir hf. á Húsavík:
Sfldin fer suður í þorratrogin
„Við virðumst alveg halda
okkar hlut í markaðnum og
framleiðum svipað og gert hef-
ur verið undanfarin ár,“ sagði
Hólmfríður Sigurðardóttir,
einn eigenda Islenskra sjávar-
rétta hf. á Húsavík.
Hákonarson, sem starfa við
markaðsmálin í Reykjavík.
Hólmfríður segir að breytingar
hafi verið gerðar hjá fyrirtækinu
eftir að nýju eigendurnir tóku
við, meira unnið hráefni sé keypt
af verkendum síldarinnar í stað
þess að flaka síld sem áður hefur
verið fryst. Nú sé síldin flökuð
beint í pækil og sé mikið mýkri.
„Þetta gengur ágætlega. Við ætl-
um okkur stærri hlut þegar fram í
sækir, en flýtum okkur samt
hægt,“ sagði Hólmfríður. IM
þar einu hvort slík skattlagning
er vegna þjónustu við fatlaða,
svokallaður lögregluskattur eða
er kennt við bandorm. Allt
hljómar þetta jafn illa og veldur
stjórnendum og íbúum sveitar-
félaga áhyggjum. Ljóst er að á
erfiðleikatímum þurfa allir að
leggja eitthvað að mörkum, ef
vel á að takast til um lausnir. í
því efni skorumst við ekki undan,
ef nauðsyn krefur. Spurningin er
frekar um leiðir og þær aðferðir,
sem viðhafðar eru, við slíkar
ákvarðanir. Samráð ríkis og
sveitarfélaga hlýtur að teljast
æskilegt til þess að ná sameigin-
legum árangri, en til þess að það
náist eða takist þurfa báðir aðilar
að vera aðilar að slíku samkomu-
lagi,“ sagði Halldór.
Hann sagði að ef þær skatt-
lagningarhugmyndir, sem nú væri
verið að tala um, næðu fram að
ganga, gætu 3-5% af skatttekjum
Akureyrarbæjar horfið ofan í
ríkiskassann, sem myndi hafa
veruleg áhrif á getu bæjarins til
rekstrar og framkvæmda.
Við þetta má bæta að eftir
snarpar deilur í sölum Alþingis í
gær var atkvæðagreiðslu um
umræddan „bandorm“ frestað og
er gert ráð fyrir að atkvæði verði
greidd í dag.
Halldór sagði í yfirgripsmikilli
ræðu sinni að þessi fjárhagsáætl-
un væri raunsæ miðað við ástand
og horfur í rekstri bæjarins.
Kapp væri lagt á að fjármála-
stjórn bæjarfélagsins yrði traust.
Þess vegna væri aðhalds gætt í til-
lögum til rekstrar og fram-
kvæmda. Forsendur þriggja ára
áætlunar Akureyrarbæjar væri sá
heildarrammi, sem stuðst væri
við.
Stefnt er að síðari umræðu um
fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar
4. febrúar nk. óþh
Þorrablótsvertíðin er hafin og
þá er háannatíminn hjá þeim sem
tilreiða síld fyrir neytendur. „Það
er svona rétt að við höfum við,“
sagði Hólmfríður, en mest af
Kúttersíldinni frá íslenskum sjáv-
arréttum hf. er þessa dagana á
leið í þorratrogin hjá Sunnlend-
ingum. Fyrirtækið framleiðir
marineraða síld, kryddsíld og
síld í sex tegundum af sósum.
Núverandi eigendur keyptu
íslenska sjávarrétti af Fiskiðju-
samlagi Húsavíkur og hafa starf-
rækt fyrirtækið í sex mánuði, það
eru auk Hólmfríðar: Geirfinnur
Svavarsson og Margrét Magnús-
dóttir, en þau þrjú starfa við
framleiðsluna á Húsavík, og
Grímur Leifsson og Kristmundur
Afli Norðlendinga á síðasta ári:
Veruleg aukning á Akureyri
- 52.502 tonn á móti 39.756 árið áður
Til Akureyrar bárust alls
52.502 tonn af flski á árinu
1991 á móti 39.756 tonnum
árið 1990. Til Siglufjarðar
komu 27.397 tonn (82.148),
Þórshafnar 19.392 (49.437) og
til Ólafsfjarðar 14.612
(22.029).
Næstu verstöðvar á Norður-
landi eru Dalvík með 12.991 tonn
(13.481), Raufarhöfn 12.834
(51.422), Skagaströnd 11.420
(11.841), Húsavík 9.544 (9.207)
og Sauðárkrókur 9.049 (10.645).
Þessar tölur eru teknar úr yfir-
liti Fiskifélags íslands og má sjá
að samdrátturinn milli ára er
mikill á þeim stöðum sem taka á
móti loðnu til bræðslu.
Akureyri kemur vel út í þess-
um tölum svo og flestir staðir við
Eyjafjörð. Grímseyingar veiddu
2.553 tonn á móti 2.313 árið
áður, Hríseyingar 3.199 á móti
2.287, Grenvíkingar 3.237 á móti
2.656 en til Árskógsstrandar kom
minni afli en árið áður, 2.845 á
móti 3.065.
Rækjuveiðar voru leyfðar að
nýju í Öxarfirði og komu 297
tonn af rækju til vinnslu á Kópa-
skeri. Heildaraflinn 1991 var 556
tonn á móti 332 árið 1990. SS