Dagur - 22.01.1992, Page 5
Miðvikudagur 22. janúar 1992 - DAGUR - 5
Leiklist
Gosi á Blönduósi
- uppsetning Leikfelags Blönduóss
Föstudaginn 17. janúar frum-
sýndi Leikfélag Blönduóss sjón-
leikinn Gosa, sem byggður er á
samnefndri sögu eftir C. Collodi.
Leikgerðin er eftir Brynju Bene-
diktsdóttur og er hún leikstjóri
uppsetningar Blönduósinga á
verkinu. Undirritaður gat ekki
komið því við að vera á frumsýn-
ingu, heldur sá aðra sýningu
verksins, laugardaginn 18. janú-
ar.
Leikgerð Brynju er lipurlega
gerð og fagmannlega unnin. Inn í
hana fléttar höfundurinn upprifj-
un í gamalli leikhúshefð; lát-
bragðsleik um Herlekín, Kol-
umbínu, Pantalon og Pérró, þær
alþekktu persónur í leikhússög-
unni, sem orðið hafa fyrirmyndir
margra frægra leikara allt fram á
okkar daga. Einnig nýtir leik-
stjórinn ýmis brögð leikhússins á
skemmtilegan hátt og tekst það
vel á hinu víða og háa sviði Fé-
lagsheimilisins á Blönduósi, sem
einmitt er betra til þessa, en jafn-
vel nokkurt annað hús á Norður-
landi.
Gallalaus er leikgerð Brynju á
Gosa ekki. Verulegt spennufall
verður í verkinu eftir hlé og í
raun nær það ekki raunveruleg-
um hápunkti.
Margt ungmenna tekur þátt í
sýningunni. Eru það nemendur
úr Grunnskóla Blönduóss og
standa sig með prýði til dæmis í
látbragðsleiknum. Par eru Jakob
Jóhannesson í hlutverki Harlek-
íns, Elísabet Esther Sveinsdóttir
í hlutverki Kólumbínu, Þórður
Pórðarson í hlutverki Pantalons
og Elísabet Helgadóttir í hlut-
verki Pérrós.
Guðmundur Karl Ellertsson
fer með hlutverk Gosa. Hann
gerir marga hluti stórvel. Má þar
nefna dansatriði hans, sem eru
lipurleg og fjölbreytt. Pá tekst
honum að gæta hófs í örvæntingu
og eymd persónunnar og einnig
kemur ráðaleysi hennar og
reynsluleysi vel fram. Guðmund-
ur mætti vera nokkru spýtukarls-
legri fyrst eftir að Gosi vaknar til
lífsins en annars er fátt að frammi-
stöðu hans að finna.
Jón Ingi Einarsson Ieikur
Flökkujóa, sem heilladísin gerir
að samvisku Gosa. Jón á góðan
leik í þessu hlutverki, sem fellur
að honum nálega sem hanski að
hönd.
í hlutverki Láka leikfanga-
smiðs er Njáll Pórðarson. Njáll
skilar persónunni vel og
skemmtilega. Pó eru handahreyf-
ingar hans með söng heldur ein-
hæfar á stundum.
Hulda, heilladísin, er leikin af
Svanbjörgu Sverrisdóttur. Petta
hlutverk er ekki átakamikið, en
Svanbjörgu tekst að gæða það
virðuleika, sem hæfir persón-
unni. Gönguhreyfingar hennar
eru þó nokkuð stirðlegar, sem
væntanlega er eðlilegt, þar sem
hún gengur á stultum undir síð-
um kjólnum.
Kisa og Refur eru leikin af
Hrafnhildi Jónsdóttur og Sturlu
Pórðarsyni. Pau skila bæði vel
sínum persónum og ná að túlka
undirferli þeirra og smjaður
skemmtilega jafnt í fasi sem
raddbeitingu.
Loga leikhússtjóra leikur Bene-
dikt Blöndal Lárusson af þrótti
og ákveðni. Kaldlyndi og harð-
ýðgi persónunnar kemur vel fram
í túlkun Benedikts og skapar
ákveðna andstæðu við aðrar
persónugerðir leiksins.
Ari ökumaður er leikinn af
jvari Snorra Hallgrímssyni. Fas
ívars í hlutverkinu er gott, en
framburður hans mætti vera skýr-
ari. Stelpu leikur Kristín Hall-
dórsdóttir og skilar hlutverki sínu
lipurlega.
Mikil tónlist er í Gosa. Hún er
eftir Sigurð Rúnar Jónsson.
Flutningur tónlistarinnar er í
höndum lítillar hljómsveitar, sem
komið er fyrir aftast á sviðinu.
Hljómsveitin er létt og skemmti-
leg í flutningi sínum og gætir vel
hófs í styrk jafnt í sönglausum
atriðum sem í söng. Hann er
almennt vel af hendi leystur og
virðast áhugaleikarar Leikfélags
Blönduóss ekki hafa talið ástæðu
til mögnunar, enda reyndin sú,
að raddir þeirra berast ágætlega
til áheyrenda án hennar. Hljóm-
sveitar- og söngstjórn er í hönd-
unt Benedikts Blöndals Lárus-
sonar og er vel unnin.
Leikmynd er skemmtileg og
vel fullnægjandi. Hún er unnin af
Manfred Lemke og Hjördísi
Bergsdóttur. Búningar eru góðir.
Peir eru sumir fengnir að láni frá
Þjóðleikhúsinu. Lýsingu annaðist
Ingvar Björnsson. Hún er víðast
góð og undirstrikar almennt vel
framgang verksins. Þó var hún
eitthvað á reiki í upphafi þeirrar
sýningar, sent undirritaður sá.
Það er nokkur skaði, að upp-
setning Leikfélags Blönduóss á
Gosa er væntanlega ekki hönnuð
til ferðalaga. Verkið ætti fullt
erindi á svið víðar á Norðurlandi
til upplífgunar og skemmtunar
fyrir jafnt börn sem fullorðna.
Haukur Ágústsson.
Umhverfismennt
á 10. áratugniim
- norrænt samstarfsverkefni
Ákveðið hefur verið að
umhverfismál og umhverfis-
fræðsla verði eitt af forgangs-
verkefnum í norrænni sam-
vinnu á næstu árum. Verið er
að koma af stað nýju sam-
starfsverkefni þar sem tak-
mörkuðum fjölda leikskóla,
grunnskóla og framhaldsskóla
er boðið til samvinnu og
keppni um að móta heppilegar
og árangursríkar aðferðir við
umhverfismennt. Jafnframt er
þeini boðið upp á endurmennt-
un og ráðgjöf í því skyni.
Kynning á verkefninu var send
í alla leikskóla, grunnskóla og
framhaldsskóla um miðjan des-
ember ásamt sérstöku eyðublaði.
Þeir skólar sem vildu vera með
skiluðu því útfylltu fyrir 20.
janúar. Síðan verða 5-10 skólar
valdir til þátttöku á grundvelli
þessara eyðublaða. Þeim býðst
síðan viss endurmenntun og ráð-
gjöf við framkvæmd tilraunarinn-
ar og skila inn niðurstöðum fyrir
lok þessa árs. Kennsluverkefnin
verða þá metin og fá öll viður-
kenningu og þau bestu verða
verðlaunuð.
Norðurlöndin hafa í 15 ár haft
með sér samstarf um að efla
umhverfisfræðslu, fyrst um náms-
efnisgerð en síðan um að halda
stórar ráðstefnur og sýningar
annað hvert ár í höfuðborgum
Norðurlandanna. „Miljö 91“ sem
haldin var í Reykjavík í júní sl.,
var fimmta og síðasta ráðstefnan.
Markmið þessa nýja verkefnis
er það sama og áður, nefnilega
að útbreiða og bæta unthverfis-
mennt. Þó er ætlunin að huga
nieira að samhengi umhverf-
isvandamála og að fegurð og sið-
rænum verðmætum. Enn fremur
er stefnt að þvf, með hjálp fjöl-
miðla, að verkefnið og árangur
þess hafi sem mest áhrif á
umhverfisvitund almennings.
/ /
Utsala-Utsala
Útsala á töhonn og tölvubúnaði verður hjá
Tölvuírœðslumii Akureyri
finuntudaginn 23. janxiar frá 13.00-18.00
föstudaginn 24. janúar frá 09.00-18.00.
Á útsölunni verður meðal aimars:
★ Tölvur AT-vélar
★ Prentarar
★ Stólar
★ Teilíniborð
ineð teiknivél
★ Mýs
★ Skjásíur
★ Disldingar
★ Modem
★ Tölvur PC-vélar
★ Skálckort
★ Raflilöðuhleðslutæki
★ Ljósritunarvél
★ Scanner (myndlesari)
Komið og gerið _
góð kaup IE ,1
Tölvufræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34, III. hæð, AkureyTi, sími 96-27899.
Bændaíundir með
Jóni Baldvin
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra, boðar til funda með bændum um
GATT-samninginn og önnur mál, sem hér segir:
Miðvikudaginn 22. janúar, kl. 21.00
í matsal Bændaskólans á Hvanneyri.
Fimmtudaginn 23. janúar, kl. 21.00
i Miðgarði, Skagafirði.
Föstudaginn 24. janúar, kl. 14.00
í ídölum, Aðaldal, S-Þingeyjarsýslu.
Bændur, komið og kynnið
ykkurmálin - milliliðalaust.