Dagur - 23.01.1992, Blaðsíða 16
®M!E
Akureyri, fímmtudagur 23. janúar 1992
Hadegistilboð alla daga
Súpa og salatbar ásamt okkar nýbökuðu brauðum fylgja öllum aðalréttum og pizzum
Frí heimsendingarþjónusta allan daginn
Alvöru veitingahús
V E I T I : * U S I Ð
Glerárgötu 20 • ® 26690
Skagstrendingar kaupa snjóbíl:
„Nauðsynlegt öryggistæki“
Skagstrendingar hafa ákveðið
að festa kaup á snjóbíl til
björgunarstarfa sem og annarra
starfa sem slíkt tæki getur
sinnt. Að sögn Magnúsar B.
Jónssonar, sveitarstjóra, er
snjóbíll nauðsynlegt öryggis-
tæki fyrir staðinn.
Auk Höfðahrepps taka skíða-
deild ungmennafélagsins og slysa-
varnadeild staðarins þátt í að
fjármagna kaupin. Boðið var í
níu ára gamlan snjótroðara með
Grenivík:
Þokkalegur
afli línubáta
Aflabrögð báta frá Grenivík
hafa verið nokkuð góð að
undanförnu. Afli Fengs ÞH í
síðustu viku var 9 tonn og
Kóps ÞH 5,6 tonn, en bátarnir
hafa verið með línu í og út af
Eyjafírði. Sjöfn ÞH, sem er
200 tonna skip, sækir mun
lengra og dýpra og vikuaflinn
var um 31 tonn.
„Við höfum fengið reiting á
línuna. Aflinn frá áramótum er
um 75 tonn og í gær fengum við
14 tonn. f dag erum við að draga
línuna austan í Sporðagrunninu
og hann er tregur það sem af er.
Já, þorskurinn er smár og erfitt
að hitta í hann. Nokkrir bátar eru
í Reykjafjarðarál og þar er ekk-
ert að hafa. Þar er þorskurinn
fullur af loðnu og því veiðist lítið
á línuna," sagði Oddgeir ísaks-
son, skipstjóri á Sjöfn ÞH. ój
tönn sem Bláfjallanefnd auglýsti
til sölu og áttu Skagstrendingar
hæsta tilboðið. Að sögn Magnús-
ar er verið að ganga frá samning-
um um kaupin, en ákveðið var að
kaupa snjótroðara vegna góðrar
reynslu af slíkum tækjum, m.a. á
Seyðisfirði.
„Hér eru oft hörð vetrarveður
og mikill snjór og því skiptir
miklu máli að hafa eitthvert tæki
sem ræður við hvaða aðstæður
sem er í snjó. T.d. hefðum við
komið vatni miklu fyrr á bæinn í
óveðrinu í byrjun síðasta árs ef
við hefðum haft snjóbíl. Bíllinn
er því fyrst og fremst hugsaður
sem öryggistæki, en keyptur er
troðari þannig að einnig sé hægt
að nota hann í skíðabrekkunni,“
segir Magnús. SBG
Opinberír starfsmcnn héldu fjölmennan fund í Alþýðuhúsinu á Akureyri í gær. Svanhildur Kaaber formaður HÍK
í ræðustól
Mynd: Golli
„Þeir sem einu sinni voru
sundraðir standa nú saman“
sagði Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, á flölmennum baráttufundi á Akureyri
„Opinberir starfsmenn una
ekki hótunum ríkisstjórnarinn-
ar um skert starfsréttindi og
fjöldauppsagnir. Opinberir
starfsmenn krefjast þess að
ríkisstjórnin virði samningsrétt
og sanngjarnar kröfur stéttar-
félaganna. Opinberir starfs-
menn hvetja alla launamenn til
að snúa vörn í sókn og verja
velferðarkerfíð á íslandi.“
Þannig hljóðar niðurlag álykt-
unar tjölmenns fundar opin-
berra starfsmanna, sem hald-
inn var í Alþýðuhúsinu á
Akureyri síðdegis í gær.
Ögmundur Jónasson, formað-
ur BSRB, minnti í ræðu sinni
meðal annars á það fyrirheit
ríkisstjórnarinnar eftir næturfund
á síðasta hausti að nú væri hægt
að ná árangri. Árangurinn hefði
Lamandi áhrif snjóleysis og óumbeðinnar blíðu:
ADir sem gera út á frost
og snjó horfa til himins
Örlítið snjóaði í Hlíðarfjalli
aðfaranótt miðvikudags og var
dálítil föl í skíðabrekkunum
þegar blaðamenn Dags skoð-
uðu aðstæður í gær. Ivar Sig-
mundsson, forstöðumaður
Skíðastaða, var ekki ánægður
með stöðu mála og var á hon-
um að heyra að veðurguðirnir
væru nískir. Og snjóleysið
virðist hafa haft Iamandi áhrif
víðar en á skíðasvæðunum.
ívar var skiljanlega orðinn
þreyttur á því að standa í stíma-
braki við veðurguðina ár eftir ár,
en skíðavertíðin hófst mjög seint
í fyrra vegna hlýindakafla sem
kom upp úr miðjum janúar og
stóð fram í miðjan febrúar. Eftir
það tók við stutt en allgóð vertíð.
Nú þarf stórhríð í nokkra daga
til að brekkurnar í Hlíðarfjalli
verði færar skíðafólki en ekki er
mikinn snjó að finna á kort-
um veðurfræðinganna enn sem
komið er. Og ástandið er auðvit-
að svipað í öðrum skíðalöndum á
Norðurlandi.
En Akureyringar horfa líka til
þess að færra fólk kemur til
bæjarins en eðlilegt er í janúar og
þykjast menn merkja það hjá
flugfélögum, hótelum og veit-
ingastöðum. Snjóleysið veldur
tekjutapi þar eins og hjá Skíða-
stöðum því skíðaferðir til Akur-
eyrar liggja niðri. Þá koma
hlýindin illa við kaupmenn sem
selja skjólfatnað og vörur til
vetraríþrótta.
Á móti kemur sparnaður hjá
Akureyrarbæ vegna minni snjó-
moksturs, sem menn telja þó að
sé e.t.v. ekki svo mikill þegar
tekið er tillit til þess að nagla-
dekkin spæna upp autt malbikið
og viðhaldskostnaður við gatna-
kerfið verður meiri en ella.
Þeir sem Dagur spjallaði við
voru því nokkuð sammála um að
auð jörð og hlýindi um hávetur
væru alls ekki ákjósanlegar
ástæður, heldur lamandi fyrir
bæjarlífið í heild. SS
síðan komið í ljós eftir að stjórn-
in hefði hækkað vexti upp í nýtt
Islandsmet - árangurinn væri
skerðing og aftur skerðing. Hann
sagði að þjóðin vildi sjálf ákveða
hvar ætti að spara - hún teldi að
ekki ætti að skerða möguleika
sjúkra, öryrkja og barnafólks.
Ógmundur ræddi einnig um að
nú væri reynt að koma á kerfi
aukinnar miðstýringar í stað
skynsamlegrar hagræðingar og
ráðist væri að þeirri uppbyggingu
sem átt hefði sér stað og hún
brotin niður. í lok ræðu sinnar
sagði hann að staða launafólks
væri nú þessi. „Þeir sem áður
voru sundraðir standa nú
saman.“
Páll Halldórsson, formaður
BHMR, sagði að ríkisvaldinu
væri fúlasta alvara með að koma
áformum sínum fram og aðeins
hatrömm andstaða fólksins gæti
hrætt stjórnvöld - þar væri verka-
lýðshreyfingin eina aflið er kom-
ið gæti við sögu og nú yrði að slá
skjaldborg um velferðarkerfið.
Svanhildur Kaaber, formaður
HÍK, sagði meðal annars að hug-
myndir um samhjálp hefðu nú
vikið fyrir gróða- og markaðs-
hyggju og hugtök sem notuð
hefðu verið í framleiðslu og iðn-
aði væru nú viðhöfð um launa-
fólk. Velferð á varanlegum
grunni og sú hagsæld í anda
mannúðar, sem ríkisstjórnin
boðaði birtist síðan meðal annars
í skerðingu á möguleikum fólks
til þess að afla sér menntunar.
Fundinum bárust margar bar-
áttukveðjur víðsvegar að og mikill
einhugur ríkti á meðal fundar-
manna með að snúa vörn í sókn í
kjaramálunum. ÞI
Versnandi færd á Lágheiði
V'yíý W
ívar Sigmundsson sýnir hvað hann þarf að fá mikinn snjó til að skíðabrekk-
urnar í Hlíðarfjalli verði nothæfar. Hann stendur nú í svipuðum sporum og
á sama tíma í fyrra og bíður eftir snjó, eins og skíðamenn almennt. Mynd: Goiii
Fært hefur verið fyrir jeppa og
stærri bfla yfír Lágheiði að
undanförnu. Snjó tók upp í
hlýindunum en vegurinn hefur
ekki verið mokaður. í gær var
veður farið að versna á heið-
inni og búist við að hún lokað-
ist ef éljagangur með skafrenn-
ingi héldi áfram.
Að sögn Gísla Friðrikssonar
hjá Vegagerð ríkisins á Sauðár-
króki hefur Lágheiði verið fær
fyrir jeppa og stóra bíla að
undanförnu. Vegurinn hafi þó
ekki verið ruddur og ástæða þess
einkum sú hvað hann hefur verið
blautur og ekki talið óhætt að
fara með þung moksturstæki um
hann. Síðdegis í gær var veður
farið að versna á heiðinni - gekk
á með éljum og skafrenningi og
kvaðst Gísli búast við að vegur-
inn myndi lokast ef ekki birti
fljótlega upp. Hann sagði að eng-
in ákvörðun hefði verið tekin um
hvort hann yrði opnaður að nýju
en ætlunin væri að bíða og sjá til
hvað yrði úr þessu veðri. Ef veð-
ur héldist gott og bleyta minnk-
aði yrði athugað hvort unnt verði
að opna veginn. ÞI
Skagfirðingur seldi
í Þýskalandi
Skagfíröingur SK-4 seldi í
gærmorgun físk á markaði í
Þýskalandi fyrir 16,9 milljónir
króna. Meirihluti aflans var
karfí.
Aflinn sem Skagfirðingur seldi
var 129 tonn og þar af 32 tonn af
ufsa. Meðalverð fyrir aflann í
heild sinni var 131 króna fyrir
kílóið, sem er í lægri kantinum.
Ástæðuna segir Gísli Svan Ein-
arsson, útgerðarstjóri hjá Fisk-
iðjunni Skagfirðingi hf., vera
ufsinn, en meðalverð fyrir kílóið
af honum var ekki nema 97 krón-
ur sem telst þó gott ufsaverð.
SBG