Dagur - 05.02.1992, Blaðsíða 6

Dagur - 05.02.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 5. febrúar 1992 Spurning VIKUNNAR Hvað finnst þér skemmti- legast í sjónvarpinu? (Spurt í Síðuskóla á Akureyri) Torfi Brynjar Sverrisson: „(þróttahomið. Mér finnst skemmtilegast að horfa á fót- bolta.“ Ottó Sverrisson: „Spennumyndir, t.d Tortímand- ann. Svo er gaman að horfa á fótbolta." Ásgeir Halldórsson: „Spennumyndir og framhalds- myndir. Derrick og Matlock eru bestir. Ég horfi meira á Sjón- varpið, við höfum ekki mynd- lykil." Gunnar Valur Gunnarsson: „íþróttir og spennumyndir. Fót- bolti er skemmtilegastur." Gunnar Sigmundsson: „Iþróttir, t.d. fótbolta og hand- bolta. Mér finnst barnaefnið í sjónvarpinu leiðinlegt." Starfsfræðslunámskeið fyrir sjómenn ísfisktogara: „Á að gera sjómemuna meðvitaðri um til- ganginn með þeirra starfi“ - segir Jörundur Garðarsson, einn leiðbeinenda Oft er talað um að sjávarútveg- urinn sé aðalatvinnuvegur landsmanna og er það að öllum líkindum rétt ef litið er á þann fjölda fólks sem starfar í tengslum við hann. Sjávar- útvegsafurðir gáfu á síðasta ári 80% prósent af útflutnings- tekjum okkar Islendinga svo hægt er að segja með sanni að mikilvægt sé að fiskurinn sem við seljum sé hágæðavara. Einn þáttur í að tryggja betri meðferð á flskinum á leið hans gegnum vinnsluferlið, er að viðkomandi starfsfólk sé með- vitað um vinnu sína. Þess vegna hafa verið lialdin starfs- fræðslunámskeið fyrir flsk- vinnslufólk vítt og breitt um landið og þess vegna er Fisk- vinnsluskólinn starfræktur. Nýr þáttur kom inn í þetta fræðslustarf í lok síðasta árs, en þá hófust námskeið á Sauð- árkróki fyrir sjómenn á ísflsk- togurum. Fiskiðjan-Skagfirðingur hf. sem gerir út togarana Hegranes, Skafta og Skagfirðing átti frum- kvæðið að þessu námskeiðahaldi og má segja að hugmyndin hafi komið frá útgerðarstjóra fyrir- tækisins, Gísla Svan Einarssyni. „Hugmyndin er sú að eftir því sem menn hafa meiri þekkingu og ná betri tökum á vinnu sinni þá geti menn náð betri árangri. Ég hef frá því árið 1986, þegar „Þurfum að selja fiskinn út á gæðin,“ Jörundur Garðarsson leiddi sjómenn námskeið fyrir fiskvinnslufólk byrjuðu, tekið þátt í að leiðbeina á þeim námskeiðum og oft verðið spurður af fiskvinnslufólkinu hvers vegna ekki væri farið með sjómennina í gegnum þetta líka. Hugmyndin að þessu námskeiða- haldi hefur síðan verið að gerjast og síðasta vor settum við inn í fiskverðssamninga, ákvæði um að við ætluðum að halda námskeið fyrir sjómennina. Með því vild- um við setja pressu á okkur sjálfa til að hrinda þessu í framkvæmd og eins að láta sjómennina vita um áformin,“ segir Gísli Svan. Þroskar vitund sjómanna í desemberbyrjun var búið að vinna allt undirbúningsstarf vegna námskeiðanna og fyrsta skipshöfn Skagfirðings hf. settist á skólabekk. Það var áhöfn Hegranessins sem byrjaði, en í janúar gekk áhöfn Skaftans í gegnum það sama og síðastir voru piltarnir á Skagfirðingi í lok janúar. Námskeiðið sjálft er þannig uppbyggt að leiðbeinendur fara yfir ákveðið námsefni með áhöfninni á tveimur dögum. Eftir tvær til þrjár vikur kemur hópur- inn síðan saman aftur og fer yfir verkefni sem áhafnarmeðlimum er gert að vinna í millitíðinni og málin rædd út frá þeim. En hvernig skyldi sjómönnunum sjálfum líka við námskeiðin? segir Gísli Svan. í allan sannlcikann um gerla. „Að mínu mati er þetta af hinu góða og kemur tii með að þroska vitund manna um hvað þeir eru að aðhafast um borð. Með minnkandi kvóta hljóta menn að gera sér grein -fyrir því að það verður að gera sem mest úr því sem inn kemur. Auðvitað erum við farnir að hugsa mikið um þessi mál, en námskeiðið hjálpar okkur við að útfæra hlutina á betri veg, eins og t.d. þrifin. Við erum byrjaðir að nota þá aðferð við þrif sem bent er á á nám- skeiðinu, en fáum þar betri útfærslu á henni. Svo þó að fátt komi okkur á óvart í því efni sem farið er yfir þá fáum við betri vitneskju um hlutina," sagði Kristján Helgason, skipstjóri á Skagfirðingi, þegar Dagur ræddi við hann á öðrum degi nám- skeiðsins. Vekur menn til umhugsunar Dagur heyrði einnig hljóðið í Páli Rúnarssyni, öðrum stýrimanni á Skagfirðingi og Kolbeini Sigur- jónssyni bátsmanni. Peir tóku í sama streng og Kristján skipstjóri og töldu námskeiðið mjög gagnlegt. „Maður er eiginlega hálfhissa á að þetta skuli ekki hafa verið gert fyrr, að láta okkur á ísfisktogur- unum fara í gegnum svona nám- skeið, því þetta hjálpar mikið til við að vekja menn til umhugsun- ar um hlutina. Allavegana held ég að þetta verði til þess að við förum að ræða meira um þessi mál og skoðanir verða örugglega eindregnari en fyrir námskeiðið. Nú þarf ekkert að vera að deila um hlutina, því á námskeiðinu erum við búnir að hlusta á menn sem vita hvað þeir eru að tala um,“ sagði Páll Rúnarsson. Jákvætt frumkvæði Á námskeiðinu er farið í meðferð og gæði hráefnis, gerlagróður og hreinlætismál, mannleg sam- skipti, vinnslurásir og verkunar- aðferðir, öryggi á vinnustöðum, tengsl vinnu og heilsu og líkams- beitingu. Jörundur Garðarsson, fisktæknir, er einn þeirra sem leiðbeina á námskeiðinu, en hvað skyldi honum finnast um þetta? „Árið 1986 hófust hin svoköll- uðu starfsfræðslunámskeið fyrir fiskvinnslufólk og voru þá tengd kjarasamningum. Fram að þessu hafa sjómennirnir hinsvegar gleymst eða verið út undan og það er mjög jákvætt að frum- kvæðið skuli koma frá fiskvinnslu- fyrirtæki, en Fiskiðjan á Sauðár- króki átti hugmyndina að þessu. Hugsunin á bak við þetta er að fræðslan skili sér í framleiðslunni og verði með því hluti í gæða- stjórnun, auk þess sem ætlast er til að þetta auki vellíðan starfs- mannsins. Fyrst og fremst á nám- skeiðið þó að gera sjómennina meðvitaðri um hver tilgangurinn með þeirra starfi sé þannig að þeir séu alltaf vakandi fyrir að hugsanlega sé hægt að laga og breyta aðstöðu og aðferðum. Þeir vita manna best hvar pottur er brotinn í þeim efnum og eiga því að geta komið með ábending- ar um hvað hægt sé að lagfæra þannig að allt gangi fyrir sig á sem bestan og skiívirkastan hátt,“ segir Jörundur Garðars- son.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.