Dagur - 11.03.1992, Síða 5
Miðvikudagur 11. mars 1992 - DAGUR - 5
Kvikmyndarýni
Jón H|altason
Kúrekar 20. aldar
Rourke og Johnson í Harley Davidson og Marlboro inanninum.
Borgarbíó sýnir: Kúrekaljónin (Harlcy
Davidson and the Marlboro man).
Leikstjóri: Simon Wincer.
Aðalhlutverk: Mickey Rourke og
Don Johnson.
MGM-Pathe 1991.
Bandaríska þjóðin á sér heima-
borna sögu, að vísu ekki ýkja
langa en þó sígilda. Þessa sögu
hefur hún reynt að mikla með
ýmsum ráðum og á tíðum brugð-
ið yfir ltana væminni slepju helgi-
sögunnar. Bíóið hefur verið sá
miðill sem hvað mest hefur afrek-
að við að frægja fortíð Banda-
ríkjanna og gera mikla. Hver
kannast ekki við hetjur eins og
Buffalo Bill og David Crockett?
Þjóðarsagan og þjóðsagan, hug-
arburðurinn og staðreyndirnar
renna saman í eitt. Gerir einhver
stóran mun á Wyatt Earp og
Morgan Kane? Kúrekinn er ekki
einu sinni afstæður. Þjóðfélagið
breytist að vísu og langflest
mannfólk með en kúrekinn er
alltaf hinn sami, jafn óbundinn af
tíma og rúmi og dauðinn sjálfur.
Vegna þessa er hægt að gera
myndir eins og Harley Davidson
og Marlboro manninn. Hinn ein-
þykki, úrræðagóði maður, gull
hið innra, sterkur en á þó til við-
kvæmni barnsins, fífldjarfur en
þó ekki heimskur, einfari en þó
traustur vinur, - slíkir eru eigin-
leikar kúrekans - og við þá er
gælt ríkulega í Harley Davidson.
Mickey Rourke er einfarinn,
Don Johnson sá viðkvæmi. Báðir
eiga þeir sér litla fortíð og þjást
ekki af neinum miðaldra manna
komplexum. Þeir hafa lifað í 40
ár eða svo, lifað fyrir daginn í dag
og nærst á minningum gærdags-
ins. Morgundagurinn er hugtak
sem þeir kunna ekki skil á. En
allt í einu er þetta breytt þegar
vini þeirra er gert að greiða
nokkurra milljón dala leigu fyrir
kráarholu er hann starfrækir.
Kúrekinn er vinur í raun; Rourke
og Johnson, sem aldrei hafa átt
bót fyrir rassinn á sér upphugsa
leið til að hjálpa góðgerðarmanni
sínum. Eins og gefur að skilja er
úrræðið ekki alveg Iöglegt og þeir
eiga fótum sínum fjör að launa -
og myndina á enda eru þeir í
stöðugri lífshættu.
Samferðamaður minn annar
sagði um Harley Davidson að
ekki hefði þurft mjög stórfelldar
lagfæringar til að útkoman hefði
orðið prýðileg. Að skaðlausu
hefði mátt draga örlítið úr
gæjastælunum og gönguferðir
morðingjanna hefðu einna helst
minnt á hersveitir Napoleóns
Bonaparte. Þá hefði Johnson
mátt taka sig svolítið á en
Rourke hefði á ltinn bóginn stað-
ið sig með ágætum og náð vel
töktum fyrrverandi göturóna og
dópista. Auðvitað reyndi ég að
sannfæra þennan dómharða bíó-
fara um að sumt hefði verið ofskil-
ið hjá honum og annað vanskilið
en ég hefði eins vel getað talað
við steininn.
Harrison Ford í stuði
Borgarbíó sýnir: Henry
(Kegarding Henry).
Leikstjóri: Mike Nichols.
Aðalhlutverk: Harrison Ford og
Annette Bening.
Paramount 1991.
Kvikmyndin um lögfræðinginn
Henry er töluvert frábrugðin því
sem ég átti von á. í stað þess að
vera enn ein Hollywood-útgáfan
á lögmannalífi þá tekur hún
óvænta kúvendingu þegar Henry
lendir í slysi og bíður af varanleg
örkuml. Slys er þó líklega ekki
rétta orðið yfir óhapp Henrys því
að það sem hendir hann er að
verða á vegi smákrimma sem
skýtur hann niður álíka samvisku-
laust og íslendingar dunda sér
við að skemma jólaljós eða stela
(sem er þó alltént skiljanlegra).
Henry, sem hefur verið duglegur
í starfi en að sama skapi lélegur
heimilisfaðir, tekur algjörum
stakkaskiptum við slysið. Sinna-
skiptin verða þó ekki á einni
nóttu, mest vegna þess að byssu-
kúlurnar hafa skaðað líkamann
og breytt Henry úr harðskeyttum
lögmanni í nánast örvita. Kvik-
myndin fylgir því svo eftir hvern-
ig Henry kemst smám saman til
heilsu, gjörbreyttur maður og
gjörsamlega búinn að gleyma
uppruna sínum og fortíð.
Eins og sjá má er söguþráður-
inn ekki alveg nýr af nálinni, hver
kannast ekki við náungann er
missir minnið, vaknar upp í
ókunnu rúmi, ókunnri borg, vit-
andi ekkert um fortíð sína og
minna um hvert stefnir. Þetta
yrkisefni hefur orðið rithöfund-
um og leikstjórum ákaflega hug-
leikið yrkisefni. Desmond Bagley
hefur skrifað að minnsta kosti
tvær bækur er leggja út af þessu
grunnstefi og Norman Mailer
leikstýrði sjálfur kvikmynd eftir
bók sinni um hörkutólin er stíga
Harrison Ford sem lögmaðurinn
Henry; leikur hans er vægast sagt
stórkostlegur í þessari hægu en
hugljúfu kvikmynd.
ekki dans. Þar glímdi hann að
vísu ekki við algjört minnisleysi
heldur aðeins svarta nótt í lífi
drykkjumanns - en gleymskan er
engu að síður spennuvaldurinn í
Fimmtudagskvöldið 12. mars kl.
20 flytur dr. Gordon Graham,
heimspekikennari við háskólann
í St. Andrews, opinberan fyrir-
lestur við Háskólann á Akureyri
um kvenfrelsishugmyndir að
fornu og nýju.
Dr. Gordon Graham, sem
kennt hefur nokkrum íslenskum
nemendum í Skotlandi, er þekkt-
ur heimspekingur á Bretlandseyj-
um og hefur m.a. skrifað víðlesn-
ar byrjendabækur í stjórnmála-
heimspeki. Hann hefur einnig
sinnt almennri siðfræði, fagur-
fræði og trúarheimspeki. Fyrir-
sögunni. Þrátt fyrir þetta er kvik-
myndin um Henry alls ekkert
útvötnuð. Hún er sannfærandi,
svolítið væmin á köflum en aðal-
lega þó hugljúf og falleg. Þetta er
engin átakamynd en segir þó frá
miklum sálrænum erfiðleikum
persónanna og hvernig þær reyna
að skapa sér nýtt líf, byggt á
breyttum forsendum.
Það er óhætt að segja að Harri-
son Ford vinnur stóran leiksigur í
þessari mynd um lögmanninn
Henry. Þær eru ekki færri en
þrjár persónurnar sem hann túlk-
ar - fyrst lögmanninn, síðan
vanvitann og seinast góðmennið
- og öllum kemur hann til skila á
stórbrotinn hátt. Ekki er getið á
plakati hver leikur dóttur hans,
unga 12 ára stúlku, en hún hæfir
hlutverki sínu vel og undirstrikar
breytta eðlisþætti í persónu
föðurins.
lestur hans að þessu sinni nefnist
„Frjálslyndur og róttækur femín-
ismi“ og þar mun hann bera sam-
an kvenfrelsishugmyndir frá síð-
ustu öld, í verkum Johns Stuart
Mill, við róttæk afbrigði þeirra
nú á dögum. Hafa þessar nýju
hugmyndir leyst hinar eldri af
hólmi?
Fyrirlesturinn, sem haldinn er
á vegum Háskólans á Akureyri
og Félags áhugafólks um heim-
speki, verður fluttur á ensku í
húsi Háskólans við Þingvalla-
stræti og er öllum opinn meðan
húsrúm leyfir.
Háskólinn á Akureyri:
Opinber heimspeki-
fyrirlestur um kvenfrelsi
Aðalfundur
Iðnráðs Akureyrar
verður haldinn í Ánni, Norðurgötu 2 b laugardaginn
14. mars 1992 kl. 14.00.
Iðnráð Akureyrar.
7ÉLRG TyiÁ-r .TVlTTmmTlRTtTmttl^TRhg.tR
Málmiðnaðar-
fyrirtæki
Minnt er á svæðisfund Félags málmiðnað-
arfyrirtækja að Hótel KEA fimmtudaginn
12. mars kl. 16.00.
Framsögumenn Skúli Jónsson og Ingólfur
Sverrisson.
Mætið irel og stundvíslega.
Rækjuverksmiðja
Til sölu eru eignir þrotabús Árvers hf.
Um er að ræða verksmiðjuhús að Fossbrún 6,
Árskógshreppi í Eyjafirði ásamt vélbúnaði til rækju-
vinnslu.
Einnig vörubíll M. Benz 1619 árg. 1972, frystigámur,
fiskikassar og kör, skrifstofubúnaður o.fl.
Leiga á verksmiðjunni um takmarkaðan tíma, kemur
einnig til greina.
Tilboðum skal skilað til undirritaðs í síðasta lagi hinn
18. mars 1992.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Undirritaður veitir frekari upplýsingar í síma 96-
25919 eða fax 96-21499.
Akureyri, 10. mars 1992.
Arnar Sigfússon, hdl.
bústjóri.
Vistheimilið Sólborg
Staða fulltrúa á skrifstofu Vistheimilisins Sól-
borgar er laus til umsóknar.
Um er að ræða V2 starf.
Almenn reynsla af skrifstofustörfum er nauðsynleg.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Sólborgar frá kl.
13-16 í síma 21755.
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
ÁskriftarlSr 96-24222