Dagur - 11.03.1992, Side 11

Dagur - 11.03.1992, Side 11
Miðvikudagur 11. mars 1992 - DAGUR - 11 IÞRÓTTIR Jón Haukur Brynjólfsson Urvalsdeildin í körfuknattleik: Stólarnir voru lítt sannfærandi - en lögðu þó Snæfell í síðasta heimaleiknum Tindastóll tók á móti Snæfelli í síðasta heimaleik sínum í riðla- keppni úrvalsdeildarinnar á þessum vetri. Enn einn sigur- inn í röð komst í höfn hjá Stól- unum þrátt fyrir að Snæfelling- ar velgdu heimamönnum tölu- vert undir uggum, en leiknum lauk 111:104 fyrir Tindastól. Snæfellingar byrjuðu leikinn betur og náðu forystu á fyrstu mínútunum sem þeir héldu fram á 7. mín. hálfleiksins. Þá komust Stólarnir yfir 22:21 og næstu mín- úturnar var jafnt á með liðunum, en síðan sigu heimamenn hægt og bítandi fram úr gestunum. Stað- an á 18. mín. var 53:48 fyrir Tindastól, en þá kom fjörkippur í leik þeirra og þegar flautað var til hálfleiks var staðan orðin 66:50. Seinni hálfleikurinn var svipt- ingalítill framan af. Stólamir juku forskotið lengi vel, en um miðbik hálfleiksins fóru Snæfellingar aftur að draga á heimamenn. Tuttugu stiga forysta Tindastóls minnkaði og þegar tvær mínútur voru til leiksloka var staðan orðin 105:97. Þessi endasprettur gest- anna kom hinsvegar of seint og sigurinn varð Stólanna, 111:104. „Ég er í sjálfu sér sáttur við þennan leik. Við náðum ekki að halda í við þá í seinni hluta fyrri hálfleiks og eins byrjuðum við þann seinni illa. Hinsvegar náð- um við okkur á strik undir lokin og það vantaði ekki mikið upp á að við jöfnuðum leikinn," sagði Hreinn Þorkelsson, þjálfari og leikmaður Snæfells, eftir leikinn. „Ég vil helst gleyma þessum leik sem fyrst, enda varnarleikur- inn í molum hjá okkur eins og sést á því að Snæfellingar náðu að skora 104 stig á útivelli. Við eigum ennþá möguleika á að komast í úrslitin og ég gæti alveg eins trúað Snæfelli til að vinna KR-inga heima. Leikurinn sem við eigum eftir, í Borgarnesi, gæti hinsvegar orðið erfiður og ef við mætum í þann leik með vit- lausu hugarfari þá töpum við honurn," sagði Valur Ingimund- arson, þjálfari og leikmaður Tindastóls, að leik loknum. Bestu menn Snæfells í leiknum á Sauðárkróki voru Bárður Eyþórsson og Tim Harvey, en hjá Tindastól stóðu Ivan Jonas og Valur Ingimundarson sig einna best. SBG Stig Tindastóls: Valur Ingimundarson 22, Pétur Guðmundsson 20, Ivan Jonas 19, Haraldur Leifsson 19, Ingi Pór Rúnars- son 11, Björn Sigtryggsson 9, Einar Ein- arsson 7, Hinrik Gunnarsson 4. Stig Snæfells: Bárður Eyþórsson 33, Tim Harvey 23, Rúnar Guðjónsson 23, Hreinn Þorkelsson 11, Sæþór Þorgríms- son 6, Eggert Halldórsson 5, Högni Högnason 3. Dómarar: Víglunður Sverrisson og Brynjar Þór Þorsteinsson. Dómgæslan var í meðallagi. Ómar Amason vann tvenn gullverðlaun á sundmóti KR - Þingeyingar með flölmörg silfur og brons Norðlendingar náðu ágætum árangri á sundmóti KR sem haldið var í Reykjavík um síð- ustu mánaðamót. Hæst ber árangur Omars Árnasonar úr Oðni en hann sigraði í tveimur greinum á mótinu. Keppendur frá HSÞ voru einnig áberandi og kræktu í nokkur silfur- og bronsverðlaun. Ómar hlaut gullverðlaun í 100 m flugsundi pilta (1:02,96) og 100 m skriðsundi pilta (57,44). Lilja Friðriksdóttir, HSí>, hafnaði í 2. sæti í 100 m flugsundi meyja á rúmri 1:24 mín., og 3. sæti í 100 m baksundi (1:27,27) og 100 m skriðsundi (1:12,52). Fleiri keppendur úr HSÞ komu við sögu því Þórunn Harðardóttir hafnaði í 2. sæti í 100 m skrið- sundi telpna (1:06,29) og 3. sæti í 100 m baksundi (L 17,04), Þór- hallur Stefánsson í 2. sæti í 100 m bringusundi sveina (1:34,47), Oddsskarð: Fyrsta risasviginótið á íslandi 21. mars Laugardaginn 21. mars verður fyrsta risasvigmótið haldið á Islandi. Mótið verður haldið á skíðasvæði Austfirðinga í Oddsskarði og verður keppt í karla- og kvennafiokki. Risasvig hefur ekki verið stundað á íslandi hingað til enda hafa brekkurnar tæpast boðið upp á það. Það eru Skíðamið- stöðin í Oddsskarði og skíða- deildir Þróttar í Neskaupstað, Austra á Eskifirði og Vals á Reyðarfirði sem gangast fyrir þessu fyrsta móti í greininni. Keppt verður um Oddsskarðs- bikarinn en einnig verður dregið úr 10 efstu sætunum í hvorum flokki og hljóta þau heppnu utan- landsferðir með Flugleiðum. Skráningar í mótið fara fram til 19. mars í síma 97-41101 eða fax 9741106. Tékkneska júdómótið: íslendingarnir allir úr leik í 1. umferð Þrír íslendingar, Freyr Gauti Sigmundsson, Sigurður Berg- mann og Eiríkur Ingi Kristins- son, tóku þátt í opna tékkneska meistaramótinu í júdó um síð- ustu helgi en féllu allir úr keppni í 1. umferð. íslendingarnir voru óheppnir þegar dregið var til fyrstu umferð- ar og lentu allir á móti geysisterk- um mótherjum. Freyr Gauti lenti t.a.m. á móti tékkneska meistar- anum í -78 kg flokki og tapaði og komst ekki áfram þar sem Tékk- inn lenti á inóti heimsfrægum Þjóðverja í 2. umferð og tapaði þar. Opna tékkneska meistaramót- ið er geysisterkt A-mót og voru flestir keppendur að reyna að ná ólympíulágmörkum. Viðar Örn Sævarsson í 3. sæti í 100 m bringusundi pilta (1:13,22) og A-meyjasveit HSÞ hafnaði í 3. sæti í 4x50 m fjórsundi (2:45,72). Allir keppendur HSÞ bættu árangur sinn verulega á mótinu en þeir koma frá Húsavík og Mývatnssveit. Keppendur frá USVH unnu einnig til verðlauna á mótinu, Harpa Þorvaldsdóttir hafnaði í 3. sæti í 100 m bringusundi meyja (1:32,98) og A-sveinasveit USVH í 2. sæti í 4x50 m fjór- sundi (3:08,76). Eitt íslandsmet var sett á mót- inu, A-stúlknasveit SFS synti 4x50 m fjórsund á 2:11,32. íslandsmótið í kraftlyftingum: Kári Elíson var maður mótsms - vann besta afrekið og 30. titilinn Islandsmótið í kraftlyftingum var haldið í Garðuskóla í Garðabæ uni síðustu liclgi. Akureyringurinn Kári Elíson var maður mótsins, vann besta árangurinn í bekk- pressu, réttstöðulyftu og samanlögðu og tryggði sér íslandsmeistaratitilinn í 75 kg flokki. Þetta var 30. íslands- meistaratitill Kára í greininni. Kristján Falsson frá Akureyri varð íslandsmeistari í +125 kg flokki en FIosi Jónsson mátti sætta sig við 2. sætið í 100 kg flokki. Kári vann besta afrekið í samanlögðu og hlaut fyrir það sérstakan verðlaunaskjöld. Einnig voru veittir bikarar fyrir besta afrekið í hverri grein og hreppti Kári tvo þeirra, í bekk- pressu og réttstöðulyftu. Árang- ur Kára í santanlögðu er nýtt Akureyrarmet en hann á enn töluvert í land nteð að ná íslandsmeti Skúla Óskarssonar. I 100 kg flokki var búist við miklum slag milli Kjartans Guðbrandssonar og Flosa Jóns- sonar frá Akureyri en þeir mættust í mikilli rimmu á stór- móti á Akureyri sl. sumar og hafði Flosi þá betur. Kjartan jafnaði hins vegar metin núna enda hafði Flosi átt við meiðsli að stríða og verið í erfiðleikum með undirbúning vegna þeirra. Kjartan vann besta afrek móts- ins í hnébeygju. Jóhannes Éiríksson setti tvö íslandsmet í 60 kg flokki, lyfti 200 kg í hnébeygju og 192,5 kg í réttstöðulyftu. Auöunn Jóns- son setti unglingamet í 90 kg flokki þegar hann lyfti 275 kg. Úrslitin'úr mótinu fara hér á eftir. Tölurnar standa fyrir árangur í hnébeygju/bekk- pressu/réttstöðulyftu=saman- lögðu: Kári Elíson. 60 kg flokkur 1. Jóhannes Eiríksson 75 kg flukkur 1. Kári Elison 2, Dagur Agnarsson 82,5 kg flokkur 1. Halldór Eyþórsson 2. Ingimundur Ingimundars. 3. Már Óskarsson 90 kg flokkur 1. Bárður Olsen 2. Auðunn Jónsson 3. Björgúlfur Stefánsson 100 kg flokkur 1. Kjartan Guðbrandsson 2. Flosi Jónsson 3. Magnús Bess 110 kg flokkur 1. Magnús Sieindórsson 2. Helgi V. Jóhannsson +125 kg flokkur Kristján Falsson 200/87,5/192,5=480 230/175/275= 705 180/92,5/170=442,5 265/120/255=640 240/145/255=640 250/115/237,5=612,5 270/157,5/300=727,5 270/160/275 =705 250/190/250=690 310/200/290=800 295/172,5/295 =762,5 260/190/230=680 320/180/330= 830 210/100/230=540 265/155/240=660 Jft m Syntu 17075 m Nýlega stóð sundfélagið Óðinn á Akureyri fyrir svokölluðu krónusundi til fjáröflunar fyrir félagið. 35 sundmenn syntu þá í 10 mínútur hver og reyndu að komast sem mesta vegalengd á þeim tíma. Safnað var áheitum og fyrir- tæki á Akureyri tóku þátt í firmakeppni sem fólst í að geta upp á heildar- vegalengdinni sem synt var. Lengst syntu þeir Ómar Þorsteinn Árnason og Baldur Már Helgason, 800 m, en Þorgerður Benediktsdóttir synti lengst stúlknanna, 790 m. Alls voru syntir 17075 m sem eru um 488 m að meðaitali á hvern sundmann. Hagkaup á Akureyri sigraði í firmakeppninni en fyrir- tækið skaut á 16900 m. Á myndinni hér að ofan cru sundmenn á fullri ferð en á litlu myndinni sést Wolfgang Sahr, þjálfari Óðins. Myndir: jhb

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.