Dagur - 18.03.1992, Síða 1
Vel s f •• 1 fo 1 klæddur tum frá ,!KRNMARDI lerrabudin
J | HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur:
Byijunarkvóti á loðnu gefínn út í sumar
- gefa út 4-500 þúsund upphafskvóta í júlí,“ segir formaður Útvegsmannafélags Norðurlands
Hjálmar Vilhjálmsson, fiski-
fræðingur á Hafrannsókna-
stofnun, segir að gefinn verði
út byrjunarkvóti á loðnu í
sumar. „Menn verða ekki látn-
ir byrja á núlli eins og síðast,“
sagði Hjálmar í samtali við
Dag í gær. A þessu stigi er ekki
fyrirliggjandi hve mikill þessi
byrjunarkvóti verður en allt
stefnir í að tillögur um hann
verði lagðar fyrir sjávarútvegs-
ráðherra í júní.
„Ég þykist hafa séð sjálfur nú
þegar hver þessi byrjunarkvóti
skuli vera en get ekkert um það
sagt fyrr en það hefur verið borið
undir aðra aðila. Það eina sem ég
get og er tilbúinn til að segja að
öðru leyti um næstu loðnuvertíð
er að útlitið er ágætt hvað varðar
loðnugengd en hitt er aftur annað
mál hvernig mönnum mun ganga
að ná henni,“ sagði Hjálmar.
Hann segir að gert sé ráð fyrir
að tillögur Hafrannsóknastofn-
unar um fiskveiðiheimildir líti
dagsins ljós í júní og þar með
verði tillögur um byrjunarkvóta á
loðnu. Sjávarútvegsráðherra
verði svo að meta hvenær hann
gefi út þennan kvóta.
Norðlenskir hagsmunaaðilar
þrýstu mjög á Hafrannsókna-
stofnun í fyrra að fá útgefinn
upphafskvóta í loðnu og segir
Sverrir Leósson, útgerðarmaður
Súlunnar, það fagnaðarefni ef
kvóti verði gefinn út í sumar.
Hann segist þeirrar skoðunar að í
Ijósi reynslunnar eigi að gefa út
Flug íslandsflugs hf. til Sigluíjarðar:
Kemur til greina að lækka
fargjöld í ákveðinn tíma
Gunnar Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri íslandsflugs hf.,
segir að komi til greina að
lækka fargjöld á leiðinni
Reykjavík-Siglufjörður-
Reykjavík og reyna þannig að
fá fleiri farþega. Unnið er að
sumaráætlun félagsins og er
þessi lækkun til alvarlegrar
skoðunar. Veruleg fækkun
Ólafsfjarðarhöfn:
Dýpkun er
aðkallandi
- framkvæmt fyrir 7,9
milljónir í ár
Gert er ráð fyrir að fram-
kvæma fyrir 7,9 milljónir
króna við Olafsfjarðarhöfn í
ár. Um er að ræða viðlegukant
við Vesturhöfn, tengibraut á
milli Austur- og Vesturhafnar
auk viðhalds.
Þorsteinn Björnsson, bæjar-
tæknifræðingur, segir að auk
þessa sé aðkallandi að dýpka
höfnina. Gífurlegur sandburður
er inn í Ólafsfjarðarhöfn, sem
gerir það að verkum að dýpka
þarf höfnina reglulega. Það má
orða það svo að nú sé kominn
tími á dýpkun. Þorsteinn segir að
starfsmenn Hafnamálastofnunar
hyggist mæla hversu mikið þarf
að dýpka og í framhaldi af því
verður ákveðið hvað verður gert.
Fjárveiting ríkisins til hafnar-
framkvæmda í Ólafsfirði á þessu
ári er 11 milljónir króna. Þar af
fara 3 milljónir til uppgjörs vegna
eldri framkvæmda. Eftir standa
um 8 milljónir króna til fram-
kvæmda. Hlutur ríkisins er 75%
af kostnaði á móti Ólafsfjarðar-
bæ. óþh
farþega hefur orðið á þessari
leið á undanförnum árum og er
fjarri því að Siglufjarðarflugið
standi undir sér.
Árið 1990 voru farþegar milli
Siglufjarðar og Reykjavíkur 4376
talsins en 3240 árið 1991. Gunnar
segir líklegustu skýringarnar á
þessu þær að Siglfirðingum hafi
fækkað umtalsvert og atvinnu-
ástand þar verið frekar bágborið
auk þess sem flugið hafi orðið
undir í samkeppninni við bílinn.
Gunnar segir að því sé ekki að
leyna að verulegt tap hafi verið á
Siglufjarðarfluginu. „Það er nú í
skoðun hvort rétt sé að lækka far-
gjöld á þessari leið um einhvern
ákveðinn tíma. Þá hefur komið
til tals að fækka ferðum til Siglu-
fjarðar. Ég á von á því að innan
skamms verði tekin ákvörðun um
þetta. Við munum ekki halda
þessu áfram í óbreyttri mynd,“
sagði Gunnar.
Gunnar er áhyggjufullur vegna
erfiðra aðstæðna á flugvellinum á
Siglufirði og segir að af
þeim sökum hafi margsinnis þurft
að lenda á Sauðárkróki og flytja
farþega og vörur landleiðina til
Siglufjarðar. Þetta hafi haft í för
með sér stóraukinn kostnað
fslandsflugs við Siglufjarðarflug-
ið. Gunnar segir að slitlag flug-
vallarins sé mjög lélegt og því
hafi hann oft lokast vegna aur-
bleytu. Til þess að ráða bót á
þessu þurfi nýtt slitlag, en því
miður séu ekki horfur á því á
næstunni. Hvorki sé gert ráð fyrir
fjárveitingu í flugvöllinn í ár né
árið 1993. Það sé fyrst árið 1994
sem gert sé ráð fyrir 3,3 milljóna
króna fjárveitingu til að athuga
endurbætur við flugvöllinn á
Siglufirði. „Verði þessari áætlun
ekkert breytt eiga Siglfirðingar
því miður von á skertri flugþjón-
ustu á næstu árum,“ sagði
Gunnar. óþh
4-500 þúsund tonna upphafs-
kvóta og það í júlí.
„Ég er þeirrar skoðunar að
þeir sem vilja byrja veiðar þá eigi
að hafa til þess möguleika. Þess
vegna á upphafskvótinn að liggja
fyrir í júlí og miðað við vísbend-
ingar er það ekki óeðlilegt,"
sagði Sverrir.
Hann segir að útgáfa á miklum
kvóta á miðju veiðitímabili, eins
og gerðist á yfirstandandi vertíð,
brengli markað fyrir loðnuafurðir
og því sé mun heppilegra að ver-
tíðin nái yfir lengri tíma og fyrir-
fram sé nokkuð ljóst af hvaða
stærðargráðu vertíð verði hverju
sinni. Út frá þessu sé heppilegra
að fá veglegan upphafskvóta í
júlí auk þess sem á tímabilinu
júlí til október sé loðnan afurða-
mest og því þjóðinni mikilvægt
að veiðar fari fram á þessu tíma-
bili. JÓH
Þessir nemendur við Menntaskólann á Akureyri voru að velta fyrir sér hæð „turnsins“ á heimavistinni, þegar ljós-
myndari Dags átti þarna leið um í gær. Með þeim var kennari þeirra, Þórir Sigurðsson. Mynd: Golli.
Unglingameistaramót íslands á skíðum fært til ísaljarðar:
Siglfirðingar óhressir
með tímasetningu mótsins
Skíðasamband íslands hefur
ákveðið að flytja Unglinga-
meistarmót íslands í skíða-
íþróttum frá Siglufírði til ísa-
fjarðar vegna snjóleysis fyrir
norðan. Mótið mun hefjast 23.
mars næstkomandi, viku fyrir
Skíðamót íslands sem enn er í
lausu lofti vegna Iélegra
aðstæðna á Dalvík og í Ólafs-
firði.
Baldvin Valtýsson hjá Skíða-
félagi Siglufjarðar sagði að
aðstæður fyrir skíðamenn væru
nú hrikalegar í skíðalandi Sigl-
firðinga og ákvörðun Skíðasam-
bandsins um að flytja Unglinga-
meistaramótið væri því skiljan-
leg. Hann gagnrýnir hins vegar
hve mótið er snemma á ferð.
Siglfirðingar sóttu um frestun en
þeirri ósk var neitað.
„Mótið var sett á þennan til-
tekna dag og frá því virtist ekki
mega hvika. Okkur finnst það
allt of snemma á ferðinni og við
erum vægast sagt óhressir með
þessa ákvörðun Skíðasambands-
ins, ekki síst vegna þess að tíma-
setningin virðist helgast af
alþjóðamótum sem sambandið
stendur fyrir í apríl og því hefur
Unglingameistaramótið verið
fært fram. Krakkarnir eru ekki
komnir í nægilega góða æfingu á
þessum tíma,“ sagði Baldvin.
ÓlafsQarðarvegur:
Bifreið mikið skemmd
eftir veltu í gær
Fólksbifreið valt á Ólafsfjarð
arvegi í gærmorgun, skammt
sunnan við brúna yfir Þor-
valdsdalsá. Talið er að öku-
maður hafi misst stjórn á bif-
reiðinni í hálku. Hann kenrdi
eymsla í hálsi og var fluttur á
heilsugæslustöðina á Dalvik.
Bifreiðin, sem var af gerðinni
Renault Clio, var á suðurleið.
Ökumaður, sem var einn í bif-
reiðinni, missti stjórn á henni í
beygjunni sunnan við brúna með
þeim afleiðingum að hún enda-
stakkst austur af veginum og fór
eina veltu áður en hún lenti á
hjólunum á nýjan leik. Ætla má
að öryggisbelti hafi bjargað öku-
manni frá frekari meiðslum.
Að sögn lögreglunnar á Dalvík
er bifreiðin mikið skemmd, ef
ekki ónýt. óþh
Hann sagði að Siglfirðingar
hefðu komið þeirri ósk á fram-
færi við Skíðasambandið að mót-
inu yrði frestað, ekki út af snjó-
leysinu heldur með tilliti til þess
hve skíðafólkið hefði haft
skamman æfingatíma, en ekki
var orðið við þeirri ósk.
Aðspurður sagði Baldvin að
Siglfirðingar hefðu ekki verið
búnir að leggja í tiltakanlegan
kostnað við undirbúning mótsins
og því ekki um beint fjárhagsiegt
tap að ræða, en vissulega missti
bæjarfélagið spón úr aski sínum
þegar það sæi á eftir Unglinga-
meistaramótinu. SS