Dagur - 21.03.1992, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 21. mars 1992
Stjörnuspá
„Án ábyrgöar“
■Hrútur*
21. mars - 19. apríl
Sólin hóf innreiö sína í hrútsmerkið í dag
og þar meö er vorið hafið. Tími hrútsmerk-
isins er tími mikilla umhleypinga. Náttúran
öll ræðst af ótrúlegri bjartsýni gegn drunga
vetrarins. Sama á við um eðli fólksins sem
fætt er í hrútsmerkinu. Það er allsstaðar í
hlutverki brautryðjandans. Boðberar nýrra
tíma. Vikan verður fín, enda splunkuný.
7\)aut
20. apríl - 20. maí
Það verða einhverjir erfiðleikar nú um
helgina. Einhver spenna af tilfinningaleg-
um toga sem hin rólyndu og jarðbundnu
naut fá ekki alveg höndlað. Þaö léttir til
eftir helgina, en bestu dagar vikunnar
verða fimmtudagur og föstudagur, þegar
allt gengur eins og í sögu. Sérstaklega
það sem snýr að peningum.
Tvíb ur*ar
21. maí- 20. júní
K^abbi
21. júní - 22. júlí
Þetta verður einstaklega ánægjuleg helgi
fyrir krabba. Ýmislegt er að gerast í ástar-
málunum og allt er það af hinu góða.
Segja má að þessi helgi verði einstaklega
hagstæð til ásta. Jafnt fyrir einhleypa sem
tvíhleypa. Þú verður hins vegar í mikilli
slysahættu á fimmtudag og föstudag.
Farðu sérlega varlega þá.
J_jóu
23. júlí - 22. ágúst
Það verður komið illa aftan að þér nú um
helgina. Þetta byrjar í dag. Þú finnur að
eitthvað er í loftinu sem þú áttar þig ekki á.
Þú reynir ef til vill að leiða það hjá þér, en
ekki er víst að það takist. Heimtir þú spilin
á borðið, gætirðu fengið að heyra ýmislegt
sem þú vilt alls ekki heyra. Þetta er
klemma. Hún leysist á mánudag.
AÁeyja
23. ágúst - 22. september
Vertu viðbúin(n) einhverju mótlæti á
mánudag, þriðjudag og miðvikudag.
Sennilega talarðu af þér. Hefur trúarskoð-
anir einhvers í flimtingum eða þessháttar.
Alltént verður eitthvert ofstæki í gangi
þessa dagana og bókabrennufnykur í loft-
inu. Ekki alveg þín deild. Helgin, sem og
fimmtudagur og föstudagur, verða átaka-
lausir dagar.
Þetta verður umhleypingasöm vika. Helg-
in verður óvenju skemmtileg, tilvalin til
upplyftingar af einhverju tagi. Mánudagur,
þriðjudagur og miðvikudagur munu ein-
kennast af eiröarleysi og ósvinnu ýmiss
konar. Fimmtudagur og föstudagur verða
aftur á móti sérlega vel skipulagðir og jafn-
vel gróðavænlegir.
Sigfús E. Arnþórsson
fyrir vikuna 21. - 27. mars 1992
1 V°9
23. september - 22. október
y Steirvgeit
T mj 22. desember -19.
22. desember- 19.janúar
Eftir tíðindalitla helgi heilsar mánudagur
þér með ánægjulegum fréttum langt að,
eða jafnvel ferðalagi. Og fjörið heldur
áfram á þriðjudag og miðvikudag. Á
fimmtudag og föstudag skaltu fara þér
hægt, það er hætta á einhverjum smá-
óhöppum. Þá gæti gráðugt fólk ráðist á þig
með dollaramerkjum. Lofaðu engu.
Þú ert undir dálitlu huglægu álagi þessa
dagana, sennilega einhver leyndarmál
sem hefta þig. Aftur á móti blómstrar ástin
sem aldrei fyrr. Þó svo að helgin verði að
sönnu skemmtileg, eru það þó þeir
fimmtudagur og föstudagur sem stela sen-
unni sem bestu dagar vikunnar. Þá er rétti
tíminn til hvers sem er.
SporðcKe ki
23. október-21. nóvember
Vatrvsberi
20. janúar -18. febrúar
Þetta er þín helgi. Hvaðeina sem þér dett-
ur í hug gengur upp og þú blómstrar í að-
alhlutverkinu hvar sem þú ferð. Þegar
sporðdrekar eru í stuði ganga þeir alltaf
skrefi lengra en almenn siðsemi leyfir.
Sporðdrekar gera reyndar alla hluti af
ástríðu og síðan að ástríðu. Þú nærð þér
niður eftir helgina en ferð síðan aftur á flug
á fimmtudag.
13ocjm\c\c)iai*
22. nóvember - 21. desember
Það er bjart yfir bogmönnum núna. Hug-
mynda- og framkvæmdagleðin í hámarki.
Þetta verður svona út mánuðinn. Ein-
hverjar irringar eru í ástarmálunum, en
það gengur yfir eftir þrjár vikur eða svo.
Mánudagur, þriðjudagur og miðvikudagur
eru þínir dagar þessa vikuna. Helgin verð-
ur átakalaus, sem og fimmtudagur og
föstudagur.
Þú kemst að einhverju óþægilegu núna
um helgina. Einhverju sem snertir þig
djúpt. Að hætti vatnsbera bregstu senni-
lega ókvæða við, en málið er líklega flókn-
ara en svo að við verði komið einhverri
heiðskírri vatnsberaskynsemi. Andrúms-
loftið fer að léttast á mánudag og vikan
verður átakalaus.
HiskaÞ
19. febrúar - 20. mars
Nú er rétti tíminn fyrir einhleypa fiska að
krækja sér í maka, ef það hefur á annað
borð verið á dagskránni. Og jafnvel hjá
þeim sem ekkert hafa ráðgert í þeim efn-
um. Ástin er á næsta götuhorni. Jafnvel í
kvöld. í öllu falli verður helgin hagstæð,
fyrri hluti vikunnar hálf-ráðvilltur og
fimmtudagur og föstudagur ánægjulegir.
Hlspeki
Einar Guðmqnn
Stjóm hugar í þágu Kkamans
vísindamenn horfast í augu við hið ómögulega
Við höfum ekki ósjaldan heyrt
talað um að Yogar geti gert eitt
og annað sem að öllu venjulegu
telst óhugsandi. Það er einmitt
myndin sem kemur upp í hug-
ann hjá vesturlandabúum þegar
hugsað er um Yoga. Menn
hugsa til hins ótrúlega sem þeir
geta gert. Talað er um að þeir
geti haft stjórn á meltingunni,
lokað fyrir sársauka, lagst ofan
á naglaspjald án þess að finna
fyrir því, stöðvað andardrátt-
inn, stöðvað hjartsláttinn og
jafnvel dáið þegar þeim sýnist á
fyrirfram ákveðnum tíma. Það
að stunda svona sýningarstarf-
semi á opinberum vettvangi
(það að deyja flokkast þó varla
undir sýningarstarfsemi eins og
hér um ræðir) er ekki það sem
tilgangur og eðli Yoga snýst um.
Enda eru ekki margir Yogar sem
reyna að láta mikið á sér bera
opinberlega með því að halda á
lofti hæfileikum sínum. Algeng-
ara er að þeir kjósi frekar að
láta lítið á sér og sínum hæfi-
leikum bera.
Vísindamenn hafa þó tekið til
athugunar margt af því sem
Yogar geta gert og krufið ofan í
kjölinn. Með nýjustu tækni er
auðvelt að fylgjast með hjart-
slætti, heilabylgjum, öndun,
taugaboðum og hitastigi líkam-
ans. Þannig hafa menn athugað
hvort Yogar geti raunverulega
gert það sem þeir segjast geta.
Yoginn Swami Rama er orðinn
nokkuð þekktur hér á vestur-
löndum fyrir hæfileika sína.
Hann er einn af þeim Yogum
sem hafa boðist til þess að vera
tilraunadýr vísindamanna sem
eru að kanna þessi mál og svo
sannarlega má segja að hann
standi fyrir sínu. Vísindamenn
við Menninger stofnunina í
Topeka í Kansas gerðu alls kyns
tilraunir á honum. Þegar kynnt-
ar voru niðurstöðurnar kom
fram að oft hefðu Yogar fullyrt
að þeir gætu t.d stöðvað blæð-
ingar úr sárum og komið sér í
ástand sem gerir þeim kleift að
vera um langan tíma án matar
og drykkjar og jafnvel súrefnis
en aldrei hefði verið athugað
hvort þær fullyrðingar stæðust
fyrr en nú. Svo reyndist þó
vera.
Eitt af því sem Swami Rama
sagðist ætla að gera í einni af
ótal tilraunum var að hækka
hitastig hægri helmings annarr-
ar handar sinnar nokkrum gráð-
um hærra en hinn helming sömu
handar. Mælingar sýndu að það
var nákvæmlega það sem gerð-
ist en það gengur þvert ofan í þá
skoðun margra vísindamanna
að slíkt sé óhugsandi.
En ein aðal tilraunin fólst í
því að stöðva hjartsláttinn. í
skýrslunni frá Menninger stofn-
uninni kom fram að Swami
Rama segðist geta stöðvað
hjartsláttinn í þrjár mínútur.
Vísindamennirnir vildu þó ekki
taka þá áhættu og svöruðu því
til að 10 sekúndur væri meira en
nóg. Eftir að Swami Rama
hafði einbeitt sér ákaft í svolitla
stund hægðist á andardrættinum
þar til hann stöðvaðist að
lokum. Rétt eftir það sýndu all-
ar mælingar það að allt blóð-
rennsli í hjartanu væri stoppað.
Þ.e.a.s hjartað hætti að slá sem
venjulega leiðir til dauða. En
hægt og sígandi „ræsti“ hann
hjartsláttinn að nýju. Smátt og
smátt náði hann eðlilegum
aridardrætti og hjartslætti eftir
að hafa verið 17 sekúndur í
ástandi sem kallast gæti gervi-
dauði.
Niðurstöðurnar úr þessum
rannsóknum mætti túlka á
marga vegu. En Swami Rama
lítur á þetta á sinn sérstaka hátt.
Hann heldur því fram að hann
geti kennt nánast því hverjum
sem er að gera það sama og
hann getur. Það aftur á móti
hefur þá þýðingu að maður sem
hefur góða stjórn á hug sínum
og líkama getur komið í veg fyr-
ir eða læknað t.d magasár með
því að þurrka út þær tilfinningar
og þá taugaspennu sem er
orsökin. Einnig gæti hann lækn-
að eða komið í veg fyrir höfuð-
verk eða of háan blóðþrýsting
með því að takast á við þá and-
legu og líkamlegu spennu sem
er orsökin. Hann segir einnig að
nemi geti haft þau áhrif á heila-
bylgjur sínar að hann verði
móttækilegri fyrir lærdómi og
nái betri einbeitni. Einnig gæti
íþróttamaður stórlega bætt þol
sitt og getu.
Dr. Elmer Green, við Menn-
inger stofnunina bendir á það
sem möguleika að stjórn hugar
og líkama gæti hugsanlega verið
hægt að beita á þann hátt að
sjúklingur geti t.d hindrað vöxt
krabbameinsfrumna í heilanum
með því að loka fyrir streymi
blóðs í þeirri æð sem færir
krabbameinsvefnum blóð sem
verður aftur á móti til þess að
vefurinn á erfiðara með að
vaxa. Svona æfingar eru eins og
við vitum ekki á hvers manns
færi. Swami Rama hefur iðkað
Yoga frá fjögurra ára aldri sem
gerir hann að vissu leyti sérstak-
an. En engu að síður ætti þetta
að segja okkur að hugurinn get-
ur áorkað meiru en okkur hefur
fram til þessa grunað.