Dagur - 21.03.1992, Blaðsíða 18

Dagur - 21.03.1992, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 21. mars 1992 BÍLAR Golfinn verður eftir sem áður fáanlegur í mörgum útgáfum og með margs konar vélum. Bíllinn sem ég ók var CL-gerðin, 4-dyra með 75 ha. 1,8 I vél. Innréttingin í CL-gerðinni er ágætlega fram- bærileg og í bílnum voru samlæs- ingar og speglar sem stilla má innanfrá. Sætin eru ágæt og styðja vel við bak og síðu, en ég væri til í að hafa setuna svolítið lengri í framsætunum. Bíllinn er rúmgóður og sýnist ekki vera smábíll lengur. Gott er að ganga um hann og sérstaklega eru aftur- dyrnar þægilega stórar. Farang- ursrýmið er auðvitað í minna lagi eins og í flestum bílum með sams konar byggingarlag, en það er reglulegt í laginu og afturhlerinn opnast alveg niður að gólfi. Mælaborðið er mjög svipað því sem er í VW-Passat og þar eru mælar og stjórntæki vel staðsett. Miðstöð og loftræstikerfi hafa fengið nýja stillihnappa sem vinna vel og eru mjög þægilegir í notkun. Mikið er af ýmsum hólf- um og hirslum fyrir smádót. Útsýnið er ágætt, ef frá er talið að öftustu þakstólparnir skyggja á útsýni aftur úr bílnum, en þeir hafa alltaf verið sérkenni á Golf. Allur frágangur er að sjálfsögðu til fyrirmyndar eins og venjulega á þessum bæ. Nýi Golfinn sýnist ekki aðeins stærri bíll en sá gamli heldur reynist hann einnig „stærri“ í öllu viðmóti. Hann er líka heldur þyngri. Vélin sem er 1,8 lítra og 75 hö. kemur nú í stað 1,6 lítra vélar með sömu hestaflatölu. Talsverður munur er á kraftinum þó hámarksafköstin séu þau sömu og mér þótti bíllinn alveg bærilega frískur, a.m.k. tómur, en ég hafði ekki tækifæri til að reyna hann fulllestaðan. Vélin er seig á litlum snúningshraða, og er þýðgeng og hljóðlát. (Sama vélin fæst einnig 90 ha.) Þessir eigin- leikar koma reyndar ekki á óvart þar sem hér er um að ræða þrautreynda og mjög þróaða smíði frá VW sem hefur þjónað bæði í Golf og Passat í ýmsum útgáfum. Gírkassinn er 5 gíra og VW hefur tekist að velja mjög heppi- leg gírhlutföll. Gírskiptingin er óvenju nákvæm og lipur. Fjöðrunin er bæði slaglöng og tiltölulega mjúk án þess að það hafi áhrif til hins verra á aksturs- eiginleika bílsins. Golfinn er þannig mjög þægilegur við flestar aðstæður og við það má svo bæta að hljóðeinangrun er mun betri en í eldri gerðinni. Bíllinn er afar stöðugur og rásfastur á öllu undirlagi, líka á malarvegi. Hann liggur vel í beygjum og skyndi- legar sveiflur eða breyting á inn- gjöf setja hann ekki úr jafnvægi við venjulegar aðstæður. Bíllinn hefur nærri hlutlausa stýrieigin- leika í beygjum (ólestaður). Vökvastýrið er mjög gott, sérlega nákvæmt og veitir góða tilfinn- ingu fyrir veginum. Sömuleiðis eru hemlarnir öflugir. Allt þetta kemur svo sem heldur ekki á óvart, því eldri Golfinn hafði einnig mjög góða og örugga aksturseiginleika, en þessi nýi er tvímælalaust ennþá betri, stöð- ugri, hljóðlátari og þægilegri. Nýi Golfinn fæst í mörgum útgáfum, CL, GL, GT, GTI, D og VR6 (síðar einnig GTI16V og SYNCRO). Vélarnar eru 4 strokka bensínvélar 1,4 1, 1,8 1, 2,01, og 2,81 og 1,91 dísel. Það er því úr nægu að velja og því ætti það ekki að koma í veg fyrir að viðskiptavinir Volkswagen finni Golf við sitt hæfi. Það verður raunar að teljast líklegt að Volks- wagen takist að halda sínum hlut í harðnandi samkeppni á bíla- markaðinum í Evrópu með þeim afbragðs bíl sem nýi Golfinn virðist vera. Op/ð: Laugard. ogsunnud. frá kl. 13-17 [h]HEKLAHF Möldur hf. mmm Volkswagen Golf kom fyrst á markað 1974 og var ætlað það erfiða hlutverk að leysa af hólmi „VW-bjölluna“ sem hafði þá ver- ið framleidd frá því fyrir 1940. Bjallan var óumdeildur sölumet- hafi í bílaheiminum þá og margir spáðu því að VW tækist vart að endurtaka leikinn með Golfin- um. Það hefur þó gengið betur en margir gerðu ráð fyrir og nú þeg- ar 3. kynslóðin af Golf lítur dags- ins ljós höfðu selst meira en 12 milljónir bíla af þessari gerð, og Golfinn hefur lengst af verið mest seldi bíll í Evrópu og átt meira en 30% af markaðinum í sínum stærðarflokki. Þetta verð- ur að telja allgóðan árangur. VW-verksmiðjurnar hófu und- irbúning að smíði 3. kynslóðar af Golf fyrir meira en 5 árum. Nýja gerðin er byggð á mikilli reynslu sem fengist hefur af Golfinum og því er ekki um að ræða stórkost- legar byltingar í smíði bílsins, en framfarirnar eru þó miklar á flestum sviðum. Nýi Golfinn er heldur stærri en sá gamli og það skilar sér í auknu rými fyrir far- þega og farangur. Yfirbyggingin sver sig nokkuð í ættina og hefur skýr Golf-einkenni. Bíllinn er nú straumlínulagaðri en áður og nokkru sterkbyggðari þannig að Volkswagen fullyrðir að hann sé sterkasti bíll í þessum stærðar- flokki og bjóði þar með upp á mesta vernd í óhöppum. Þá var veruleg áhersla lögð á notkun endurvinnanlegra efna í bílnum. BÍLASÝNINC Sýnum allt þaö nýjasta frá Volkswagen og Mitsubishi Sérstök kynning á nýjum Golf MITSUBISHI MuTORS Fylgist með nýjungunum Komið og reynsluakið Gerð: Volkswagen Golf CL, 5 manna, 5 dyra fólksbíll, vél að framan, drif á framhjólum. Vél og undirvagn: 4 strokka, fjórgengis bensínvél, vatnskæld, yfirliggjandi knastás, bein eldsneytisinnspýting, slagrými: 1781 cm3, borvídd: 81,0 mm, slaglengd: 86,4 mm, þjöppun 9,0:1, 75 hö við 5000 sn/mín, 140 Nm við 2500 sn/mín, hvarfakútur (kata- lysator). Framhjóladrif, 5-gíra gírkassi. Sjálfstæð fjöðrun að framan með þríhyrndum þverarmi að neðan, gormlegg og dempara. Að aftan samtengdir langsarmar með gormlegg og dempara. Jafnvægisstöng að framan. Aflstýri, aflhemlar, diskar að framan, skálar að aftan, hand- bremsa á afturhjólum. Hjólbarðar 175/70 R 13, eldsneytisgeymir 55 lítra. Mál og þyngd: Lengd 402,0 cm; breidd 171,0 cm; hæð 142,0 cm; hjólahaf 247,5 cm; sporvídd 146/144,4 cm; eigin þyngd ca. 1.005 kg. Hámarkshraði 168 km/klst. Framleiðandi: Volkswagen AG (VAG), Þýskalandi. Innflytjandi: Hekla hf., Reykjavík. Umboð: Höldur sf., Akureyri. Verð: Ca. kr. 1.125.000. Bíll ársins í Evrópu 1992

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.