Dagur - 01.04.1992, Page 3

Dagur - 01.04.1992, Page 3
Miðvikudagur 1. apríl 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Sveitarfélög: Samband hús- næðisnefiida stofiiað í haust - heimili og varnar- þing þess á Akureyri Stofnfundur Sambands hús- næðisnefnda verður á Egils- stöðum í haust. Heimili og varnarþing þess verður á Akureyri. Þetta var ákveðið á fundi flestra stærstu húsnæðisnefnda landsins á Akureyri síðastlið- inn föstudag. Húsnæðisnefnd Akureyrarbæjar boðaði til fundarins og þar var rætt um stofnun Sambands húsnæðis- nefnda fyrir landið allt, sam- ræmingu á reglum um útleigu á félagslegum íbúðum, sam- ræmingu reglna um mat á endursöluíbúðum og að hús- næðisnefndir landsins vinni sameiginlega að kerfi til notk- unar við skráningu á félagsleg- um íbúðunt hjá húsnæðis- nefndum. Fundurinn samþykkli drög að samþykktum fyrir Sam- band húsnæðisnefnda í land- inu og skal helsti tilgangur þess vera að efla samstarf húsnæðisnefnda og koma fram fyrir þeirra hönd gagnvart Alþingi, ríkisstjórn og stofn- unum sem fara með hús- næðismál þegar um almenn mál er að ræða. Einnig að vinna að þróun og stefnu- mörkun innan félagslega íbúðakerfisins. Kosin var fimm manna undirbúningsnefnd og skipa hana þau Birna Bjarnadóttir, Kópavogi, Einar S. Bjar'na- son, Akureyri, Hilntar Guð- laugsson, Reykjavík, Jón Karlsson, Sauðárkróki og Kristinn Kristinsson, Egils- stöðum. JÓH Ull og band á Hvammstanga: Verið að viirna lopa „Þegar búið var að þvo og flokka þá ull sem við fengum inn sl. haust, þá áttum við um 3 tonn af hreinni ull, sem við erum að vinna lopa úr núna,“ segir Rafn Benedikts- son, forsvarsmaður verkefn- ishóps um ullarvinnsluna Ull og band á Hvamms- tanga. Ull og band var stofnað fyr- ir tilstuðlan Átaksverkefnis Vestur-Húnavatnssýslu og hefur framleitt lopa í íslensku sauðalitunum síðustu tvö árin. Að sögn Rafns voru gerðar endurbætur á vinnslunni í vet- ur sem eiga að skila betri framleiðsluvöru, en lítið hefur verið selt enn sem komið er. Rafn segir að aðallega séu það verkefnishópar og ein- staklingar í ullarvörufram- leiðslu, sem kaupi lopa og þvegna ull frá Ull og bandi. Dálítið magn af ull hefur farið árlega til Kanada, en það er nærri því það eina sem fer erlendis. Að sögn Rafns stendur til að fara að koma lopanum í verslanir á Norður- landi vestra, en lítið af fram- leiðslunni hefur verið selt á þann hátt hingað til. Einn starfsmaður er um þessar mundir hjá Ull og bandi og sér hann bæði um iopaspuna og ullarþvott. SBG Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjaíjarðar: Byggðastofiiun neitar að fella niður lán vegna Fóðurstöðvarinnar sálugu - stofnrækt kartaflna hefst væntanlega aftur á næsta ári Mynd: -ÞH I gær var verið að landa úr Björgvin í Dalvíkurhöfn. Dalvík: Björgvin landar 170 tonnum Dalvíkurtogarinn Björgvin kom inn til heimahafnar í fyrradag með 170 tonn eftir níu daga veiðiferð. Aflinn var að mestu leyti ufsi sem fer til vinnslu í frystihúsi KEA á Dalvík, en aflann fékk skipið suður af Reykjanesi. Hinn togari Útgerðarfélags Dal- víkinga, Björgúlfur, fór á veið fyrir helgi og hefur ekki geng neitt allt of vel, að sögn Vah mars Bragasonar. Skipið sel síðast afla sinn í Þýskalandi i fékk ágætt meðalverð, 104 k: fyrir farm sem að mestu leyti v karfi en slatti af grálúðu með. Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar var haldinn í gær í Víkurröst á Dalvík. Um fjöru- tíu manns sátu fundinn sem hófst kl. 10 árdegis með skýrslu formanns, Péturs O. Helgasonar frá Hranastöðum. í ræðu hans kom ma. fram að Byggðastofnun hefur neitað að fella niður lán sem tryggt er með veði í eignum Búnaðar- sambandsins en það var tekið á sínum tíma til uppbyggingar Fóðurstöðvarinnar á Dalvík sem varð gjaldþrota. Lánið var að upphæð tvær millj- ónir króna árið 1985 og setti Byggðastofnun það skilyrði að það yrði tryggt með veði í fast- eign. Nú stendur lánið í 3,4 millj- ónum króna og þrátt fyrir ítrek- aða umleitun Búnaðarsambands- ins hefur stofnunin neitað að fella lánið niður. Þessi í stað hefur hún boðið annað lán á hagstæðari kjörum til greiðslu á eldra láninu. Eru samningaviðræður um málið að hefjast. Pétur gat þess einnig að Bún- aðarsambandið hefði lagt hlutafé að upphæð þrjár milljónir króna í endurreisn ullariðnaðarins á Akureyri. Af því lagði Fram- leiðnisjóður fram tvær milljónir. Vegna þessa framlags fékk sam- bandið mann í stjórn Foldu og gat formaður þess að fyrirtækinu farnaðist vel og það skilað hagn- aði eftir þrjá fyrstu mánuðina. Velta Búnaðarsambandsins á árinu sem leið var tæplega 40 milljónir króna og hefði orðið liðlega þriggja milljóna króna hagnaður ef skuldin við Byggða- stofnun er ekki talin með. í skýrslum starfsmanna Búnað- arsambandsins kom fram að starfsemi þess var að flestu leyti með hefðbundnu sniði á síðasta ári. Erfiðleikar komu upp í tengslum við flutning á fósturvís- um úr Galloway-nautunum úr Hrísey í land en afraksturinn af þeim varð aðeins fimm kálfar. Hins vegar hafa nytjaskógar bænda blómgast vel, búið er að setja niður um 750.000 trjáplönt- ur í um 300 hektara lands og árangurinn lofar víðast hvar góðu. Loðdýrabúum hefur fækkað mikið á svæðinu og eru þau aðeins níu en voru 30 þegar flest var. Refaræktin er aftur á upp- leið og gæti staðið undir sér ef ekki kæmi til fortíðarvandi, en Komi ekkert óvænt upp ætti ný stofnrækt að geta hafist á næsta ári. Einungis fjögur smit af hring- roti fundust á síðasta ári og juk- ust vonir manna við það um að takast mætti að hefta útbreiðslu þessa skaðvalds. Loks má geta þess að á síðasta ári var Ólafur Jónsson dýralæknir ráðinn til eftirlits með hollustu mjólkur og heilsufari mjólkurkúa á félagssvæðinu. Skoðaði hann hartnær þúsund kýr og tók sýni úr 700 þeirra. Kom í ljós að 62% kúnna reyndust vera með júgur- bólgu af völdum sýkla í sýklahópi 1 en 17% af völdum sýkla úr sýkl- ahópi 2. Liðlega 21% kúnna voru heilbrigðar. Búnaðarsamband Eyjafjarðar á 60 ára afmæli á þessu ári og verður þess minnst síðar á árinu. -ÞH minkaræktin glímir enn við Iágt verð sem frekar fer niður á við. Stofnrækt kartaflna er í undir- búningi á tveimur bæjum í Eyja- firði en eins og menn muna varð hún fyrir miklu áfalli vegna hringrots. Tveir kartöflubændur, Stefán Árnason á Þórustöðum og Stefán Júlíusson á Breiðabóli, hafa stundað framræktun á heil- brigðum stofnum og hafa nú í geymslu 3,1 tonn af gullauga og 1,3 tonn af rauðum íslenskum. Frá aðalfundi Búnaðarsambands Eyjafjarðar í Víkurröst, Pétur Ó. Helgason formaður í ræðustóli. Mynd: ÞH TIL SÖLU Fasteign þrotabús Pólstjörnunnar hf. á Dalvík er til sölu. Um er að ræða 285 fm stálgrindarhús með hlöðnum veggjum, byggt árið 1979. Rúm- mál hússins er 1069 m3. Húsið sem stendur við Sandskeið 26 á Dalvík var síðast notað sem lifrarbræðsla og niðurlagninga- verksmiðja, en húsið býður upp á ýmsa notkunar- möguleika, bæði með hliðsjón af rými og staðsetn- ingu. Brunabótamat hússins er kr. 11.984.000,- og fast- eignamat kr. 5.400.000,- Á húsinu hvílir lán frá Byggðastofnun á 1. veðrétti, að höfuðstól kr. 3.000.000,- pr. 31.10.1990 til sjö ára, staða í dag ca. 4.500.000,- Einnig er til sölu lyftari þrotabúsins sem er Still R-14 lyftari árgerð 1987, staðsettur í Reykjavík. Lyftarinn er nýyfirfarinn. Upplýsingar gefur bústjóri þrotabús Pólstjörnunnar hf., Asgeir Björnsson hdl., Lögmannastofunni Lauga- vegi 178, Reykjavík, sími 624999, fax 624599. Lögmannastofan Laugavegi 178, Ásgeir Björnsson hdl., Brynjar Níelsson hdl., sími 624999, fax 624599. Félag kartöflubænda við Eyjafjörð Framhaldsaðalfundur F.K.B.E. verður á Hótel KEA fimmtudaginn 2. apríl kl. 20.30. Áríðandi mál á dagskrá. Félagar fjölmennið á fundinn. Stjórnin.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.