Dagur - 01.04.1992, Side 6

Dagur - 01.04.1992, Side 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 1. apríl 1992 Spurning VIKUNNAR Hvor akureyrsku framhalds- skólanna vinnur úrslit í spurningakeppni framhalds- skólanna nk. föstudag? Þórður Halldórsson: „VMA, þeir eru góðir." Viðar Haraidsson: „VMA, þeir eru miklu betri." Sigrún Finnsdóttir: „Ég tippa á Verkmenntaskól- ann. Mér finnst þeir eiga skilið að vinna. MA-ingarnir unnu í fyrra og því finnst mér sanngjarnt að VMA sigri í ár.“ Þórólfur Jónasson: „Ég hef nú ekki fylgst með þessari keppni, en ætli ég veðji ekki á Verkmenntaskólann." Kristín Norquist: „Ég veðja á Menntaskólann. Maður skyldi ætla að þeir læri svolítið betur og viti rneira." Blásarasvcit æskunnar á æfingu síðastliðið fimmtudagskvöld. Blásarasveit æskimnar stoftmð á Akureyri - „virkilega gaman að taka þátt í þessu tónlistarstarfi, “ segja þær Lovísa Björnsdóttir, Anna María Kristinsdóttir og Helga Sigurðardóttir Blásarasveit æskunnar hefur verið stofnuð á Akureyri. Sveitin samanstendur af ungl- ingum á aldrinum 15 til 20 ára er stundað hafa nám í leik á blásturshljóðfæri á undanförn- um árum. Allt að 30 ungmenni taka að staðaldri þátt í æfing- um sveitarinnar en alls eru hljómsveitarmeðlimir 34. Nokkur ungmennanna stunda nú skólanám í Reykjavík en taka áfram þátt í tónlistarstarfi félaga sinna, sem unnið hafa saman á undanförnum árum. Stjórn Blásarasveitarinnar er skipuð þremur fulltrúum for- eldrafélags hennar og tveimur hljómsveitarmeðlimum, þeim Lovísu Björnsdóttur og Onnu Maríu Kristinsdóttur, sem ásamt Helgu Sigurðardóttur ræddu um starfsemi sveitarinn- ar við blaðið. Lovísa leikur á horn með blás- arasveitinni en hún hefur einnig lagt stund á tropmetleik. Anna María leikur á trompet og Helga leikur á klarínett. Þær hafa allar stundað tónlistarnám frá unga aldri og starfað áður með blás- arasveit. Lovísa kvaðst vera búin að spila með blásarasveit í níu ár. Anna María í sjö ár og Helga hefur spilað með hljómsveit í sex ár. Kjarni Blásarasveitar æskunn- ar starfaði áður með Blásarasveit Tónlistarskólans á Akureyri og hafa þessir unglingar því flestir unnið saman á undanförnum árum. Lovísa og Anna María sögðu að starfsemi þeirrar sveitar hefði þróast í takt við nám og vaxandi getu hljómsveitarmeð- limanna. Þau hefðu sífellt tekist á við viðameiri verkefni og það hefði þjappað hópnum saman á vissan hátt auk þess að stuðla að hraðari framförum. Nýir meðlimir hefðu síðan komið inn fyrir þá sem hættu. Oftast vegna þess að fólk hefði flust af svæðinu vegna framhaldsnáms í Reykjavík. Blásarasveit Tónlistarskólans náði mjög góðum árangri í starfi sínu og hlaut meðal annars gull- verðlaun fyrir leik sinn á tónlist- armóti í Hollandi fyrir tæpum þremur árum. Tveimur árum áður hafði sveitinni hlotnast bronsverðlaun á móti í Noregi. Á síðastliðnu vori lék sveitin einnig inn á geisladisk, sem kom út fyrir síðastliðin jól og ber starfi henn- ar glöggt vitni. Þær Lovísa, Anna María og Helga sögðu að þegar stjórnandi sveitarinnar Roar Kvam hefði hætt störfum við Tónlistarskól- ann á Akureyri hefðu málefni hennar verið í óvissu. Roar hefði byggt sveitina upp á löngum tíma og haldið utan um starfsemi hennar. Hann hefði auk þess fylgst mjög náið með getu hljóð- færaleikaranna og valið viðfangs- efni með það í huga að þeir fengju áframhaldandi þjálfun - að þeir tækjust á við það sem hæfni þeirri gæfi tilefni til á hverj- um tíma. Á því hefðu framfarir í starfi sveitarinnar byggst. Utan- landsferðirnar, sem foreldrafélag hennar hefur staðið fyrir hafi einnig verkað mjög hvetjandi á þau sem hljóðfæraleikara. í þess- um ferðum hafi þeim gefist tæki- færi til þess að öðlast samanburð við aðrar blásarasveitir og etja við þær kappi. í starfi blásara- sveitarinnar hafi einnig mikil áhersla verið lögð á flutning klassískra verka auk blásaratón- listar á borð við marsa. Sem dæmi um verkefnaval nefndu þær Carmina Burana, sem meðal annars hafi oft verið spilaðir kafl- ar úr á æfingum og einnig Finn- landíu Síbelíusar. Þær stöllur sögðu að nýr stjórnandi Blásarasveitar Tónlist- arskólans hefði virst hafa önnur markmið í huga. Verkefnavalið hafi verið með þeim hætti að þeim hafi fundist þær fara nokkur ár til baka í hljómsveitarstarfinu. „Okkur fannst að við gætum ekki haldið áfram að starfa við þau skilyrði,“ sagði Lovísa Björns- dóttir og hinar tóku undir það sjónarmið. Því hefði orðið úr að meirihluti meðlima sveitarinnar hefði tekið sig saman ásamt for- eldrum sínum og stofnað form- lega nýja blásarasveit. Síðan hafi þau fengið sinn gamla stjórnanda til liðs við sig og hefur sveitin nú hlotið nafnið Blásarasveit æsk- unnar. Blásarasveit æskunnar stendur að jafnaði saman af fimm trompetleikurum, fimm flautu- leikurum og fimm klarínettu- leikurum. Þá leika tveir hljóm- sveitarmeðlimir á horn, þrír leika á saxafóna, tveir á básúnur og tveir á slagverk. Þá er einn strengjahljóðfæraleikari í blásara- sveitinni og leikur hann á kontra- bassa. Þessi hópur myndar hinn fasta kjarna sveitarinnar en eins og greint er frá hér að framan búa nokkrir hljómsveitarmeðlim- ir í Reykjavík og bætast í hópinn þegar þeir dvelja á heimaslóðum. Blásarasveitin æfir nú meðal annars fyrir þátttöku í móti blás- arasveita sem haldið verður á Höfn í Hornafirði í júní næst komandi og nokkrum vikum síð- ar - í júlí er fyrirhugað að sveitin haldi til Sviss og taki þar þátt í alþjóðlegu móti blásarasveita. Þær Lovísa, Anna María og Helga sögðu að vissulega stefndu þau nokkuð hátt. Árangur næð- ist hins vegar einungis í svona starfi með góðri ástundun, mikilli ögun og samstarfsvilja en að fenginni reynslu af samstarfi þessara ungmenna í gegnum árin og þeim árangri, sem náðst hafi séu þau mjög bjartsýn um að vel takist til á þessum mótum. Áhug- inn sé mikill og virkilega gaman að taka þátt í þessu tónlistar- starfi. ÞI Lovísa Björnsdóttir, Helga Sigurðardóttir og Anna María Kristinsdóttir ásamt Roari Kvam stjórnanda Blásarasveitar æskunnar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.