Dagur - 27.06.1992, Qupperneq 20
Hraðfrystistöð Þórshafnar:
Skólafólk
Bátar hafa lítið komist á sjó frá
Þórshöfn að undanförnu. III-
viðri hefur hamlað veiðum,
sem er óvanalegt yfir há bjarg-
ræðistímann. Af þeim sökum
er vinna í hraðfrystistöðinni
með minna móti um þessar
mundir.
Þær upplýsingar fengust hjá
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. að
lítið hafi borist af fiski að undan-
förnu. Fast starfsfólk hefur hald-
ið dagvinnu, en sumarfólkið
sent heim
ekki. Skólafólk frá Akureyri hef-
ur sótt vinnu til Þórshafnar en
búið er að senda það heim.
Rekstur hraðfrystistöðvarinnar
er byggður upp af afla smábáta
frá Þórshöfn og Geir ÞH, sem er
stærstur bátanna, er í slipp. Til
hraðfrystistöðvarinnar hefur fisk-
ur einnig borist frá Raufar-
höfn og Vopnafirði. Stakfellið
ÞH, togari Þórshafnarbúa er á
frystingu og hefur gengið sæmi-
lega. ój
Prýði á Húsavík:
Vinna að heíjast á ný
1 Á I'Wt/fm x :
K:' : * 1*. 1 | m
f § % í Mw
Skipt
„Það þýðir ekkert að væla og
þetta verður að spilast af fíngr-
um fram,“ sagði Guðmundur
Hákonarson, framkvæmda-
stjóri saumastofunnar Prýði á
Húsavík. Vinna hefst þar á ný
á mánudaginn eftir nokkurra
Rauðinúpur ÞH:
umaðal-
vél í haust
Stjórn útgerðar Rauðanúps
ÞH frá Raufarhöfn hefur tekið
ákvörðun um, að skipt verði
um aðalvél í togaranum í kjöl-
far þeirra bilana sem urðu á
aðalvél sl. vetur.
Rauðinúpur ÞH hélt til veiða á
fimmtudagskvöldið eftir löndun á
60 tonnum. Full vinna hefur ver-
ið hjá Fiskiðju Raufarhafnar hf.
að undanförnu þar til í byrjun
vikunnar. Lokað var á mánudag
og þriðjudag. Fisk vantaði til
vinnslu.
„Tryggingafélagið bætti okkur
það tjón er varð vegna vélarbil-
ananna í janúar og febrúar með
23 milljónum. Nú er ákveðið að
kaupa nýja aðalvél því við treyst-
um ekki þeim varahlutum er við
fáum frá japönsku framleiðend-
unum. Engar skýringar hafa
fengist er varðar bilanirnar í
gömlu vélinni. Um miðjan júlí
fara menn frá okkur til viðræðna
við þá japönsku. Við ætlum að
hittast í Hollandi. Allt að fimm
mánaða afgreiðslufrestur er á
nýrri vél og hún verður ekki
keypt frá Japan. Ráðgcrt er að
Rauðinúpur ÞH fari í slipp í
október/nóvember og þá innan-
lands. Togarinn verður frá veið-
um í allt að tvo mánuði vegna
þessara framkvæmda," sagði
Haraldur Jónsson, útgerðarstjóri
Rauðanúps. ój
daga stopp, einnig var stopp í
nokkra daga í maí, en Guð-
mundur reiknar með að næg
vinna verði fram í miðjan júlí
þegar lokað verður vegna
sumarleyfa.
Guðmundur sagði að það væri
reitingur að gera en þó aldrei
alveg nóg og því hefði verið grip-
ið til þess ráðs að loka nokkra
daga í einu vegna verkefna-
skorts. Frá áramótum hefur
saumastofan sjálf flutt út fram-
leiðslu sína og saumað ullarjakka
á markað í Þýskalandi, Hollandi
og Danmörku. „Þetta cr eina
leiðin til að bjarga sér, það er
enga vinnu að hafa hjá öörum.
Það tekur sinn tíma að finna
markaði og það þýðir ekkert ann-
að en að vera bjartsýnn," sagði
Guðmundur. Starfsmannafjöldi á
Prýði skilar sem svarar 10 dags-
verkum. IM
Fundarmcnn á fundinum í gær. Standandi frá vinstri Aulis Piilonen, mcnningarfulltrúi í Lahti, Kari Salmi, aðstod
arborgarstjóri Lahti, Uno Williamsson, borgarstjóri Vásterás, Pallc Dinesen, borgarstjóri Randcrs, Björn Huscby,
borgarstjóri Álasunds, Kjell Arne Slinning, forseti borgarstjórnar Álasunds og Tórben Emil Lynge, menningarfull-
trúi Vásterás. Sitjandi frá vinstri Björn Slinning, menningarfulltrúi Álasunds, Halldór Jónsson, bæjarstjóri Akur-
eyrar, Lars Luttropp, forscti borgarstjórnar Vásterás, Björn Jósef Arnviðarson, bæjarfulltrúi Akureyri, Keld Huttl,
forseti borgarstjórnar Randers og Erik Ravn, menningarfulltrúi Randers. Mynd: GT
Vinabæjasamstarf heldur áfram
Á fundi forsvarsmanna Akur-
eyrarbæjar og fjögurra vina-
bæja Akureyrar á Norðurlönd-
uni, Randers í Danntörku,
Álasunds í Noregi, Vásterás í
Svíþjóð og Lahti í Finnlandi á
Akureyri í gær var tekin
ákvörðun um að halda áfram
vinabæjasamstarfí bæjanna
næstu fímm árin.
Halldór Jónsson, bæjarstjóri á
Akureyri, var ánægður með
niðurstöðu fundarins. „Það var
tekin ákvörðun um að halda
áfram þessu vinabæjasamstarfi
næstu fimm árin, en í eilítið
breyttri mynd. Vinabæjamót
vcrður haldið árlega og munu
bæirnir skiptast á að halda mótin
eins og verið hefur. Hins vegar
var ákveðið að minnka umfang
mótanna og vcrður hámarks-
fjöldi þátttakenda 20 frá hverju
landi og rætt er um að útlagður
kostnaður fyrir þann bæ sem
heldur mótið hverju sinni verði
ekki meiri en 100 þúsund danskar
krónur, eða um ein milljón
íslenskar krónur, en til saman-
burðar leggur bærinn 3,5 milljón-
ir króna til þessarar vinabæja-
viku," sagöi Halldór.
Rætt er um að árið 1993 verði
vinabæjamótið haldið í Dan-
mörku, 1994 veröi það í Ála-
sundi, árið 1995 í Vástcrás, árið
1996 í Lahti og árið 1997 á Akur-
eyri. óþh
Starfsfólk Skóverksmiðjunnar Striksins í fimm vikna sumarleyfi í gær
að liðnum tveimur mánuðum af uppsagnarfresti:
Til úrslita verður að draga á næstu 20 dögum
- segir Haukur Ármannsson, framkvæmdastjóri
Starfsfólk Skóverksmiðjunnar
Striksins á Akureyri fór í fímm
vikna sumarleyfí um hádegi í
gær og verður framleiðsla
stöðvuð á meðan. Tveir mán-
uðir eru liðnir af uppsagnar-
fresti starfsfólksins en fyrir-
tækið er nú í fjárhagsendur-
skipulagningu sem hefur geng-
ið mun hægar fyrir sig en gert
var ráð fyrir í upphafí. Haukur
Ármannsson, framkvæmda-
stjóri Striksins, segir að það
ráðist á næstu 15-20 dögum
hver framtíð fyrirtækisins
verði, komi 5 milljóna hluta-
fjárframlag frá Byggðastofnun
innan þessa tíma fylgi í kjölfar-
Lögreglan á Akureyri:
Hundur defsar í barn
Störf lögreglumanna á Akur-
eyri voru hefðbundin á
fímmtudagskvöldið og aðfara-
nótt föstudagsins.
Lögreglan þurfti að hafa
afskipti af ökumanni er ók vísvit-
andi á móti einstefnu og annar
var tekinn vegna hraðaksturs á
Drottningarbraut. Einn maður
var tekinn vegna ofurölvunar á
knattspyrnuleik KA og Fram.
Maðurinn gisti fangageymslur til
föstudagsmorguns.
„Hundur glefsaði í nef sjö ára
drengs við Lundargötu. Hundur-
inn var laus en Iöglega skráður og
tryggður. Faðir drengsins kom
með barnið á lögreglustöðina, en
formleg kæra hefur ekki verið
lögð fram enn," sagði talsmaður
lögreglunnar á Akureyri. ój
ið fjárhagsendurskipulagning
sem treysti stoðir fyrirtækisins
fyrir næstu ár en ef ekki sé fátt
annað framundan en endalok
skóverksmiðjunnar.
Á sínum tíma var 40-50 aöilum
boðið að kaupa hlutafé í skó-
verksmiðjunni en áætlanir mið-
uðust við að auka hlutafé um 15
milljónir. Rúmlega 20 aðilar lof-
uðu hlutafé, sanrtals 15 milljón-
um og þar á meðal var Byggða-
stofnun með 5 milljónir. Þetta
framlag hefur enn ekki borist en
að því fengnu, sem og öðrum lof-
orðum, fær verksmiðjan afurða-
lán úr viðskiptabanka sínum að
upphæð 27 milljónir en það væri
fyrsta afurðalán verksmiðjunnar
frá upphafi.
Haukur Ármannsson segir
Byggðastofnun nú bíða ársreikn-
ings frá fyrirtækinu en ekki hafi
verið svarað af eða á hvort hluta-
fé komi eins og lofað var. „Þessu
verður að linna á næstu 15 til 20
dögum, af eða á. Á því leikur
ekki vafi," sagði Haukur. Að-
spurður segir hann að gangi fjár-
mögnun eftir eins og ætlað er sé-
ekki vafi að reksturinn gjörbreyt-
ist. „Við höfum lært ýmislegt á
þessum rekstri á þessum tíma og
þurfum að taka okkur saman í
andlitinu að ýmsu leyti. En með
þessu yrðurn við öruggir önnur
fjögur ár að minnsta kosti. Fari
biðinni ekki að linna þá hætti ég
þessu og þá detta út þau tæplega
40 störf sem hér eru. Þá þyrfti að
greiða starfsfólkinu samtals í
atvinnuleysisbætur á tveimur
mánuðum um sem svarar þeirri
upphæð senr við bíðum eftir frá
Byggðastofnun," sagði Haukur
Ármannsson. JÓH
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Erfiður markaður fyrir
mikið uimiirn fisk
„Það er allt í jafnvægi hjá okk-
ur og nóg að gera miðað við
það sem áformað var,“ sagði
Tryggvi Finnsson, framkvæmda-
stjóri Fiskiðjusamlags Húsa-
víkur, aðspurður um hvernig
hráefnisöflun gengi hjá fyrir-
tækinu.
„Því miður hefur verið á bratt-
ann að sækja hvað varðar mark-
að fyrir mikið unninn fisk. Af
markaðsástæðum hafa menn því
leiðst út í að framleiða of mikið í
hraðunnar pakkningar af bolfiski.
Markaðurinn almennt er erfiður
og menn ekki tilbúnir að fram-
leiða á lager til lengri tíma,“
sagði Tryggvi.
Tryggvi sagði að svipaður
fjöldi skólafólks hefði fengið
vinnu í sumar í Fiskiðjusamlag-
inu og undanfarin ár.
„Það hefur verið heldur minni
rækjuafli en við reiknuðum með,
en við erunr með það marga báta
að nóg hefur verið að gera,“
sagði Tryggvi. Að undanförnu
hefur verið unnið á þremur vökt-
um í Rækjuvinnslunni, tveim
föstum vöktum og þeirri þriðju
sem verið liefur mismunandi
löng.
„Þetta gengur allt slétt og fellt
hjá okkur núna,“ sagði Tryggvi.
Um verslunarmannahelgina
verður nokkurra daga stopp í
frystihúsinu, samkvæmt venju.
IM