Dagur - 10.07.1992, Page 2
2- DAGUR - Föstudagur 10. júlí 1992
Fréttir
3!l!!8i wsainiuö
miaii
HOTEL KEA
Laugardagskvöldið 11. júlí
Hljómsveit Finns Eydal
ásamt Helenu Eyjólfsdóttur
leikur fyrir dansi
★
Ingimar Eydal leikur fyrir matargesti
föstudags- og laugardagskvöld
★
Borðapantanir í síma 22200.
W
Sumarveöriö
Á vinstri myndinni má sjá aðaldrætti veðurkortsins frá miðjum maí fram í miðjan júní á norðurhveli jarðar. Heit
tunga frá austurhluta Atlantshafs teygir sig yfir Skandinavíu og veldur miklum þurrkum. ísland er á mörkum hita-
svæðis og kuldasvæðis og skýrir það vætusaman júnímánuð enda er vætusamt og óvenjulega kalt svæði ekki fjarri
- við suðurhluta Grænlands og norðausturhluta Kanada. Suður-Evrópa upplifir reykvískt sumarveður.
Á hægri myndinni er sýnt veðurkerfi norðurhvels jarðar frá miðjum júní og fram í byrjun júlí. Þar má sjá að
ísland er enn við veðurskil. Vætusöm svæði eru bæði vestan við Grænland og yfir íslandi og Noregshafi enda var
einnig mikil úrkoma síðari hluta júnímánaðar. Af óþekktum ástæðum halda þurrkar áfram í Suður-Skandinavíu.
ísland tilheyrir fremur kalda svæðinu og ískaldir straumar að norðan valda Jónsmessuhreti. Kuldakastið er hið
versta síðan 1959 en þá snjóaði talsvert norðanlands þann 17. júní. Athygli vekur að sama ár voru miklir þurrkar
í Skandinavíu en fyrri hluti sumars í ár einkennist einmitt af hita og miklum þurrkum í Noregi og Danmörku. Að
sögn Þórönnu Pálsdóttur, veðurfræðings á Veðurstofu íslands, er samhengið í samræmi við reynslu af veðurkerfi
á norðurhveli jarðar. Mynd: Agnete Holk
Samhengi milli kuldakasts hér og þurrka í Skandinavíu:
Úrkoma 50% rneiri en venjulega í júní
Júnímánuður var vætusamur
um mest allt land. Suðlægar
áttir voru ríkjandi fram að
Jónsmessu þegar ískaldir
straumar að norðan ullu versta
kuldakasti hér á landi síðan
1959. Þóranna Pálsdóttir,
Akureyrarvöllur
SAMSKIPA
TbV
Föstudaginn 10. júlí kl. 20.00
Mœtum öll
tímanlega
og styðjum
KA-menn
tll sigurs!
olís
Okkar
styrkur...
Örn Viðar Arnarson.
HMHH
veðurfræðingur á Veðurstofu
íslands, staðfesti í samtali við
Dag að samhengi væri líkast til
á milli Jónsmessuhretsins og
mikilla þurrka í Skandinavíu í
sumar. Árið 1959 var einmitt
síðasta þurrkasumar í Skandi-
navíu.
Taisverð hlýindi voru um
norðanvert landið fram til 23. júní
enda voru suðlægar áttir ríkjandi.
Þá gerði Jónsmessuhret og snjó-
aði talsvert norðanlands; jafnfall-
inn snjór á Jónsmessu þann 24.
júní mældist tugi cm á Lágheið-
inni.
Úrkoma á Akureyri var 43 mm
sem er rúmlega 50% umfram
meðalúrkomu í júnímánuðum.
Sama aukning var í Reykjavík og
mældist úrkoma þar 80 mm. Sól-
skinsstundir mældust 184 á Akur-
eyri sem er ellefu stundum meira
en meðaltalið frá 1951-1980. í
Reykjavík voru sólskinsstundir
hins vegar færri en venjulega eða
149 talsins.
Á Akureyri var meðalhitinn í
júní 9,6 gráður á Celsíus sem er
hálfri gráðu yfir meðallagi. Á
sunnanverðu landinu var hins
vegar svalt og rigning flesta daga
og var júnímánuður með þeim
köldustu í sjö áratugi. GT
Sparnaðurinn í skólakerfmu:
íþróttahöUin tapar tekjum
Vegna sparnaðar í skólakerfinu
skerðast leigutekjur Iþrótta-
hallarinnar á Akureyri nokkuð
næsta vetur. Verkmenntaskól-
inn á Akureyri mun alls greiða
rúmum 1.2 millj. kr. minna
í leigu en áætlanir gerðu ráð
fyrir og Menntaskólinn um
390.000 kr. minna.
Verkmenntaskólinn mun fækka
tímum í íþróttasal um 304 og
nemur það 395 þúsund kr. Þá
hefur skólinn einnig leigt hús-
næði fyrir kennslustofur og mun
sú leiga lækka um rúmar 850 þús-
und kr. Menntaskólinn fækkar
tímum um 100 á mánuði sem
þýðir 390.000 kr. sparnaður.
Aðalsteinn Sigurgeirsson, for-
stöðumaður Iþróttahallarinnar,
segir að tekjutap íþróttahallar-
innar verði væntanlega ekki jafn
mikið og þessar tölur segi til um.
íþróttakennslan fari fram í
nokkrum sölum í einu og reynt
verði að raða tímum þannig nið-
ur að kennslu ljúki fyrr á daginn
svo hægt verði að leigja salina út
til annarra aðila. Þá hafi tjald-
stæðið leigt tvær af kennslustof-
unum í sumar auk þess sem reynt
verði að leigja einhvern hluta af
því húsnæði út sem svefnpláss
fyrir hópa í vetur enda húsnæðið
upphaflega innréttað sem slíkt.
Því tekjutapi sem eftir standi
verði reynt að mæta með sparn-
aði á viðhaldsliðum. JHB
Skrifstofur Oxarfjarðar-
hrepps í nýtt húsnæði
HHnHBi
Þessa dagana standa yfír flutn-
ingar á skrifstofu Öxarfjarðar-
hrepps af neðri hæð gamla
kaupfélagshússins upp á þá
efri, en þar hefur að undan-
förnu verið unnið að innrétt-
ingu húsnæðis fyrir skrifstofur
og fundarsal.
í þessu nýja húsnæði er ekki
aðeins ætlunin að halda hrepps-
nefndarfundi, heldur einnig
nefndarfundi. Einnig hefur verið
innréttuð lítil íbúð á hæðinni til
bráðabirgða fyrir Steinar Harðar-
son, sveitarstjóra, þangað til
hann fær íbúðarhús til umráða í
október.
Til þess að koma efri hæðinni í
gott horf þurfti m.a. að mála,
leggja gólfdúk og lagfæra lagnir.
í gær var unnið að því að þrífa
húsnæðið og gert er ráð fyrir að
flutt verði í það einhvern næstu
daga. óþh