Dagur - 10.07.1992, Page 9
Föstudagur 10. júlí 1992 - DAGUR - 9
Hvaðeraðgerast?___________________
Norðurland:
Gunnar og Jónas gera
víðreist næstu daga
Gunnar Guðbjörnsson, tenór og
Jónas Ingimundarson, píanó, halda
tónleika á Norðurlandi um helgina
og í næstu viku.
Fyrstu tónleikarnir verða í félags-
heimilinu á Hvammstanga á morg-
un, laugardaginn 11. júlí kl. 16. A
sunnudagskvöld, 12. júlí kl. 21,
syngja þeir í félagsheimilinu Breiðu-
mýri í Reykjadal og á mánudags-
kvöld, 13. júlí kl. 20.30, verða þeir í
Safnahúsinu á Húsavík. Á þriðju-
dagskvöldið, 14. júlí kl. 20.30,
verða Gunnar og Jónas með tón-
leika í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju og síðustu tónleikar þcirra
félaga verða í Miðgarði í Skagafirði
miðvikudagskvöldið 15. júlí kl. 21.
Efnisskráin er mjög fjölbreytt, ný
og gömul lög íslenskra höfunda auk
laga eftir Schubert, Sibelius, Strauss
og ítölsk tenórlög.
Framundan eru tónleikar í boði
Wigmore Hall í London. Þar munu
þeir flytja hliðstæða Söngskrá og í
þessari ferð um Norðurland.
1 haust keinur út geisladiskur með
söng og leik þeirra félaga þar sem
þeir flytja eingöngu lög eftir
íslenska höfunda.
Tónleikarnir á Hvammstanga
verða í samvinnu við Tónlistarfélag
Vestur-Húnavatnssýslu og gilda fé-
lagsskírteinin sem afsláttarkort.
Sumartónleikar á Norðurlandi:
Prjú selló og orgel á Húsa-
vik, Hólum og Akureyri
Sumartónleikar á Norðurlandi
halda aðra tónleikaröð sína helgina
10.-12. júlí. Það eru þau Inga Rós
Ingólfsdóttir, Judith Janin van Eck,
Sebastian van Eck, sellóleikarar og
Hörður Áskelsson, orgelleikari,
sem leika í Húsavíkurkirkju í kvöld,
föstudaginn 10. júlí kl. 20.30, í
Dómkirkjunni á Hólum í Hjaltadal
á morgun, laugardaginn 11. júlí kl.
17 og í Akureyrarkirkju nk. sunnu-
dag, 12. júlí kl. 17.
Tónlistarmennirnir voru við nám
á sama tíma í Dússeldorf og hafa
Um helgina fær Hjálpræðisherinn á
Akureyri heimsókn frá Danmörku.
Foringjarnir, hjónin Gudrun og
Carl Lydholm, verða með á sani-
komum laugardag og sunnudag.
Gudrun er hálf íslensk, faðir hennar
var Gestur Árskóg, foringi í Hjálp-
þau spilað saman öðru hvoru síðan
þá. Eitt af áhugamálum þeirra er
samleikur á mörg selló og hefur
Sebastian van Eck umsamið fjölda
verka fyrir sellósamspil m.a. nokkur
sem verða flutt að þessu sinni. Á
efnisskránni verða verk m.a. eftir
Pachelbel, Bartok, Marcello og
Hándel.
Petta verða fyrstu Sumartón-
leikarnir sem haldnir verða á Hólum
í Hjaltadal og eru allir heimamenn,
nærsveitafólk og ferðamenn boðnir
velkomnir, að sjálfsögðu einnig í
ræðishernum, en hann starfaði lengi
í Danmörku.
Samkomur helgarinnar eru aug-
lýstar annars staðar í blaðinu.
Allir eru hjartanlega velkomnir á
samkomurnar.
kirkjurnar á Húsavík og Reykjahlíð
við Mývatn. Aðgangur að tónleik-
um sumarsins er ókeypis.
Borgarbíó
Hin vinsæla mynd Ógnareðli verður
áfram sýnd í Borgarbíói á Akureyri
um helgina og hefst sýning hennar
kl. 20.45. Klukkan 21 verður sýnd
myndin Náttfatapartý, sem er fjörug
músíkmynd. Klukkan 23 verður
sýnd Kona slátrarans (The Butchers
Wife) og kl. 23.10. verður sýnd
mótorhjólamyndin Svellkalda klík-
an (Stone Cold). Á barnasýningum
á sunnudag kl. 15 verða myndirnar
Benni og Birta í Ástralíu og Fievel
goes west.
Hótel KEA
Hljómsveit Finns Eydal ásamt
Helenu Eyjólfsdóttur sér um fjörið
á Hótel KEA á Akureyri annað
kvöld, laugardagskvöld. Ingimar
Eydal leikur fyrir matargesti bæði í
kvöld og annað kvöld.
Borðapantanir eru í síma 22200.
Akureyri:
Hjálpræðisherinn fær
heimsókn frá Danmörku
tÁrni Bjamarson
Fæddur 4. febrúar 1910 - Dáinn 29. júní 1992
Mánudagurinn 29. júní rann upp
skír og fagur, en það breyttist
snögglega því hann afi okkar
varð skyndilega mikið veikur og
kvaddi þennan heim sama kvöld.
Pað er ótrúlegt að dauðinn
berji að dyrum svona snöggt og
maður fær engu um það ráðið.
Það er erfitt að hugsa til þess að
við fáum aldrei að sjá afa okkar
aftur, en hann verður ávallt í
huga okkar því söknuðurinn er
mikill. Pað var dásamlegt að
koma á heimili afa og ömmu, þau
vildu allt fyrir okkur systkinin
gera og aldrei máttum við fara
fyrr en við vorum búin að þiggja
eitthvert góðgæti frá þeim. Alltaf
var afi boðinn og búinn að gera
hvað sem var fyrir okkur. Pað var
allt sjálfsagt, hvað sem það var.
Pað er stórt tómarúm í hjört-
um okkar, því hann var sá yndis-
legasti afi sem nokkur getur
hugsað sér. Elsku Guð, viltu
varðveita ömmu í sorg hennar og
megi minningarnar um afa aldrei
hverfa frá okkur.
Með þessum orðum langar
okkur til að kveðja afa og við vit-
um að vel verður tekið á móti
honum.
í morgun sastu hér
undir meiði sólarinnar
og hlustaðir á fuglana
hátt upp í geislunum
minn gamli vinur
en veist nú í kvöld
hvernig vegirnir enda
hvernig orðin nema staðar
og stjörnurnar slokkna.
(Hannes Pétursson)
Megi blessun Guðs hvíla yfir
minningu hans.
Jóhann Gunnar,
Gerður Guðrún,
Edda Björk.
Ritgerðasafh Þórarins kemur út í haust
Senn líður að því að ritgerða-
safn Þórarins Þórarinssonar,
fyrrverandi alþingismanns og
ritstjóra Tímans, komi út.
I frétt frá útgáfunefnd bókar-
innar er þeim vinsamlegu tilmæl-
um beint til væntanlegra áskrif-
enda að þeir staðfesti áskrift sína
svo fljótt sem við verður komið
og ekki síðar en 10. ágúst næst-
komandi.
„Ef nafn áskrifanda á að birt-
ast í heillaóskaskrá, er þetta
tímamark nauðsynlegt, því að
fyrirhugað er að bókin komi út
um 20. september nk. Verð
hennar er áætlað 2.500-2.900
krónur og ræðst af endanlegum
útgáfukostnaði og áskriftarlof-
orðum. Gert er ráð fyrir að
áskriftargjald verði innheimt
með gíróseðli, nema um annað
semjist.
Pess er vænst að sem flestir
taki þátt í að heiðra Þórarin Pór-
arinsson með þvi að gerast áskrif-
endur aö bók hans svo tímanlega
að nöfn þeirra vcrði á heilla-
óskaskrá," segir ennfremur í frétt
útgáfunefndar.
Heimilisfang útgáfunnar er:
Skrifstofa Framsóknarflokksins,
Hafnarstræti 20, 101 Reykjavík.
Síminn þar er 91-624480.
------------------------------------------------------------------s
AKUREYRARB/tR
Sumarleyfi
Hita- og Vatnsveitu
Flestir starfsmenn Hita- og Vatnsveitu Akureyrar
veröa í sumarleyfi tímabiliö 20. júlí til 7. ágúst.
Á þessu tímabili verða ekki lagðar heimtaugar né
framkvæmdar hústengingar.
Hita- og Vatnsveitustjóri.
Hestaíþróttir!
Héraðsmót HSÞ í hestaíþróttum verður'
haldið dagana 17.-18. júlí á Húsavík.
Þátttökugjald kr. 200 pr. grein.
Skráning hjá Bjarna Páli s. 41148 og Guðrúnu
Láru s. 43522 fyrir miðvikudagskvöldið 15. júlí.
Ath. í tengslum við mótið verður haldið nám-
skeið fyrir byrjendur í íþróttinni dagana 14.-16.
júlí á Húsavík.
Þátttaka ókeypis!
Skráning og nánari uppl. hjá Bjarna Páli s.
41148.
Héraðssamband Suður-Þingeyinga.
Látum fara vel um barnið,
og aukum öryggi þess
um leið!
| UMFERÐAR
Iráð
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRHILDUR JÓNSDÓTTIR,
Lyngholti 6, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 13. júll
kl. 13.30.
Margrét Ásgrímsdóttir, Benjamín Antonsson,
Heba Ásgrímsdóttir, Hallgrímur Skaptason,
Jón Ævar Asgrímsson, Jórunn Sæmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð
og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengda-
föður og afa,
BJÖRNS OTTÓS KRISTINSSONAR,
Hríseyjargötu 20, Akureyri.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Dvalarheimilisins Hlíð-
ar Akureyri, fyrir hlýhug og góða umönnun.
Guð blessi ykkur.
Halldóra Gunnlaugsdóttir,
Gunnlaugur Björnsson, Ester Steindórsdóttir,
Elsa Björnsdóttir, Gestur E. Jonasson,
Björn Kr. Björnsson, Lára Ósk Heimisdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför systur okkar og frænku,
IÐUNNAR SIGFÚSDÓTTUR,
kjólameistara,
Gilsbakkavegi 9, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við Zontaklúbbi Akureyrar.
F.h. ættingja:
Bára Sigfúsdóttir,
Bragi Sigfússon,
Sigfús Jónasson.