Dagur - 11.07.1992, Blaðsíða 2

Dagur - 11.07.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 11. júlí 1992 Fréttir Daglegar áæflunarferðir milli Akur- eyrar og Hraftiagils heflast á mánudag Á mánudaginn hefjast dagleg- ar áætlunarferðir á milli Hrafna- gils og Akureyrar á vegum Hreiðars Hreiðarssonar sem rekur Hótel Vin þar fram frá. Að sögn Hreiðars er þetta til- raun sem væntanlega er til þess fallin að auka hlut hótelsins í Aætlunarbifreiðin er af gerðinni Ford Econoline og tckur hún ellefu far- þega. Ekið verður daglega frá Hrafnagili og frá Akureyri. Mynd: GT Þormóður rammi: Rækjuviimslubúnaður settur í Sunnu SI Þessa dagana er verið að setja nýjan vinnslubúnað um borð í Sunnu SI, fjölveiðiskip Þor- móðs ramma á Siglufirði, sem áður hét Yaka SU. Olafur Marteinsson, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma, segir að bún- aðurinn kosti á bilinu 30 til 40 milljónir króna. Um er að ræða fullkominn rækjuvinnslubúnað, sem mun bæta nýtingu aflans og auka verð- mæti hans til muna. Þegar Þor- móður rammi festi kaup á Sunnu var ákveðið að setja þessa vinnslulínu um borð í skipið. Að sögn Ólafs er vinnslulínan dönsk, en danski framleiðandinn fékk undirverktaka hér á landi til þess að vinna að verkinu, Síldar- verksmiðjur ríkisins, Jón og Erling og Rafbæ á Siglufirði og Odda á Akureyri. Sunna kom úr sínum þriðja rækjutúr í lok júní og hún mun liggja allan þennan mánuð og fram í ágúst við bryggju á Siglu- Íþróttir firði, en gert er ráð fyrir að vinnslubúnaðurinn verði kominn á sinn stað þann 8. ágúst. óþh Fnjóskadalur: Plöntuðu tíu þúsund plöntum Laugardaginn 4. júlí sl. var haldinn skógræktardagur í Fnjóskadal og mættu á milli 30 og 40 manns á Hálsmelum fyrir vestan Háls og plöntuðu tæp- lega 10 þúsund plöntum. Gróöursetningin gekk vel og að afloknum góðum starfsdegi bauð Skógræktin á Vöglum öllum upp á pylsur og kók. Þetta er annað árið sem plönt- ur eru gróðursettar á þessum stað og er þess að vænta að eftir nokk- ur ár hafi þessir melar breyst í fallegan skóg. MGG Hálsi. ferðamálaflóru Eyjafjarðar en öðrum en hótelgestum stendur að sjálfsögðu einnig til boða að nýta sér áætlunarferðirnar. Farið verður frá Hótel Vin að Hrafnagili kl. 7:45 á hverjum morgni. Ekið verður til Akureyr- ar og er viðkomá á flugvellinum en endastöðin er við Umferða- miðstöðina í Hafnarstræti 82. Þaðan verður farið kl. 18:00 og ekið fram í fjörð. Að sögn Hreiðars er reiknað með að aukaferðir verði farnar þegar tilefni gefst til. í því sam- bandi nefnir Hreiðar að aka megi á móts við Egilsstaðarútuna en sérleyfisbílarnir eru í samvinnu við Hótel Vin hvað varðar ferða- menn að austan sem panta gist- ingu á hótelinu eða vilja gista á tjaldstæðinu á Hrafnagili. Áætlunarbifreiðin er ný, af gerðinni Ford Econoline og tekur hún ellefu farþega. Að sögn Hreiðars er enn óvíst hvert far- gjaldið verður. Ekki er reiknað með að sjálfur rekstur áætlunar- ferðanna beri sig en með Hreið- ari í reksri og akstri er sonur hans, Hreiðar Bjarni. Áætlunar- ferðirnar hefjast á mánudaginn að öllu forfallalausu og verður þeim fram haldið þar til hótelinu verður lokað í haust en ætlunin er að ferðirnar haldi áfram næsta sumar. GT Mývatnssveit: Hætta á að eyðing refa og minka dragist saman Ákveðið hefur verið að hið opinbera hætti að taka þátt í kostnaði við eyðingu refa og minka á svæðunum inn af Bárðardal og Mývatnssveit. Er þar um stórt landssvæði að ræða og falla Herðubreiðar- lindir meðal annars utan þess ramma sem veiðar verða fram- vegis stundaðar með kostnað- arþátttöku ríkisins. Nokkuð hefur verið um refi og minka á þessu svæði og hefur minkur einkum sótt í Herðubreiðar- lindir þar sem lífsskilyrði eru góð fyrir hann. Sigurður R. Ragnarsson, sveit- arstjóri í Mývatnssveit, sagði að eitt refagreni hefði verið unnið í Herðubreiðarlindum í vor auk þess sem þrjú karldýr hefðu náðst. Hvað umræddar breyting- ar á kostnaði við veiðar varðar sagði hann að nú væri eingöngu undir sveitarstjórnum, sem land eiga að viðkomandi svæðum, komið hvort framvegis verði unn- ið að eyðingu refa og minka á þessum slóðum. Hann sagði að sjálfsögðu mætti deila um hvað leggja eigi mikla áherslu á fækk- un þessara dýra en benti á að nauðsynlegt væri að halda stofn- um þeirra niðri. Sérstaklega væri mikilvægt að mink fjölgi ekki úr hófi á þeim stöðum sem nauðsyn- Knattspyrna, 3. deild: „Orðlaus yfir lánleysi liðsins - sagði Guðjón Guðmundsson, þjálfari Dalvíkinga, eftir tapið gegn Skallagrími 66 Einn leikur var í þriðju deild knattspyrnunnar á fimmtu- dagskvöld. Dalvíkingar urðu þá að sætta sig við tap á heima- velli gegn Skallagrími, 1:2, þrátt fyrir að hafa verið mun betri aðilinn í leiknum. „Ég er alveg orðlaus yfir lán- leysi liðsins þessa dagana. Við fengum fullt af færum, nýttum þau ekki og fáum á okkur klaufa- mörk í staðinn. Það býr mikið í liðinu og við verðum bara að bíta á jaxlinn og gera betur,“ sagði Guðjón Guðmundsson, þjálfari og leikmaður Dalvíkurliðsins. Heimamenn voru sterkari til að byrja með og fengu nokkur ágæt færi en tókst ekki að skora. Það tókst hins vegar gestunum strax á fimmtándu mínútu þegar þeir brutust upp kantinn og sendu fyrir markið. Boltinn barst yfir á fjærstöng og var skallaður aftur inn í markteiginn og fyrir markið. Þar var Finnur Torlacíus réttur maður á réttum stað og skallaði í netið, 0:1. Örskammri stund síðar var Skallagrímur aft- ur á ferðinni með sitt annað mark, Valdimar Sigurðsson slapp þá einn í gegn, lék á Jónas Þór Guðmundsson, í markinu, og skoraði. Staðan í leikhléi var 0:2. Þrátt fyrir fjöldann allan af fær- um í síðari hálfleik tókst heima- mönnum ekki að skora fyrr en rétt undir lokin. Garðar Níelsson skoraði markið en það kom of seint til þess að menn næðu að rífa sig upp og jafna. Staða Dalvíkurliðsins er að verða alvarleg þar sem liðið er komið í næst neðsta sæti deildar- innar. SV legt sé að vernda fuglalíf. Sigurð- ur sagði ennfremur að sú lækkun kostnaðarhlutdeildar ríkisins við refa- og minkaveiðar, sem ákveð- in var fyrr á þessu ári komi sér illa fyrir sveitarfélögin þar sem leggja þurfi í nokkurn kostnað við að halda þessum dýrastofnum í skefjum. Hann benti einnig á að kostnaður við veiðar geti oft ver- ið hærri þegar um fá dýr er að ræða, sem tekin séu á hlaupum en þegar heilu grenin væru unnin og því sé varasamt að bera saman kostnaðartölur og veiddan dýra- fjölda þegar verið sé að meta kostnað við refa- og minkaveið- ar. Sigurður sagði verulega hættu á að minni áhersla verði lögð á að halda þessum dýrategundum í skefjum nú eftir að ríkið hefur dregið sig út úr kostnaðarþátt- töku í auknum mæli og alveg á sumum svæðum. Hvað Mývatns- sveit varðar sé þetta slæmt þar sem verja þurfi náttúrulíf - ekki síst fugla og vatnalíf á viðkvæm- um landssvæðum sem öll þjóðin telji sig eiga tilkall til. ÞI Hitaveita og Vatns- veita Akureyrar: Stefnt að sameiningu Á fundl bæjarráðs Akureyr- ar á fimmtudag var sam- þykkt einróma að stefna skyldi að sameiningu Hita- veitu Akureyrar og Vatns- veitu Akureyrar um næstu áramót. Áður hafði veitu- stjórn gert tillögu um það. Málið verður tekið til umræðu í bæjarstjórn á þriðjudaginn. Sameining fyrirtækjanna er í raun þegar hafin. Sami mað- ur veitir nú báðum fyrirtækj- um forstöðu og þau eru komin undir sama þak að Rangár- völlum þar sem þau hafa sam- eiginlegt lager- og skrifstofu- hald. Sigurður J. Sigurðsson, for- maður bæjarráðs, segir ýmsa kosti fylgja því að samcina rekstur fyrirtækjanna. „Þetta einfaldar alla hluti og hefur í för með sér hagræðingu í rekstri. Þetta hefur ekki mikil áhrif fyrir starfsmenn en kem- ur fyrst og fremst fram í betri nýtingu fjármuna." JHB Stöplar hf.: Þrír sóttu um Þrjár umsóknir bárust um stöðu framkæmdastjóra Stöpla hf., nýstofnaðs hluta- félags um atvinnuuppbygg- ingu í Reykjahverfi. Stjórn félagsins fjallaði um umsóknirnar á fundi sl. þriðju- dagskvöld, verið er að ræða við umsækendur þessa dagana og fljótlega verður gengið frá ráðningu í stöðuna. Umsæk- endur eru: Hermann J. Ólafs- son, Hvammstanga, Hlynur Tryggvason, Blönduósi og Kristján Karl Kristjánsson, Þórshöfn. Stjórnarformaður Stöpla hf. er Tryggvi Óskarsson, Þverá og aðspurður um væntanlegar framkvæmdir á vegum félags- ins sagði hann: „Það er mikill hugur í okkur og við erum opnir fyrir öilum hugmynd- um.“ 1M Akureyri: Jónína Sigríður Magnúsdóttir er látin Jónína Sigríður Magnúsdótt- ir, síðast til heimilis að Dval- arheimilinu Hlíð á Akureyri, lést að morgni 8. júlí sl., 101 árs að aldri. Hún var þriði elsti íbúinn á Akureyri. Jónína Sigríður var fædd 30. desember 1890 á Saurbæ í Kol- beinsdal. Eiginmaður hennar var Jón Sigfússon. Þau bjuggu í Langhúsum í Viðvíkursveit á árunum 1924-1927, en það ár keyptu þau Ytri-Hofdali og bjuggu þar á móti Guðrúnu Bergsdóttur, móður Sigríðar og síðari manni hennar, Sigtryggi Guðjónssyni. Árið 1945 fluttu þau hjón til Akureyrar og þar hefur Sigríður dvalið síðan, lengst af á Grenivöllum 26 hjá Þorsteini syni hennar og Elínu Halldórsdóttur konu hans. Jón eiginmaður Sigríðar lést í byrjun árs 1969. Þau áttu fjögur börn, Þorstein Björn, Margréti, Magnús Guðberg og Sigurlínu. Jónína Sigríður átti við van- heilsu að stríða undir það síð- asta, en fylgdist vel með og ekki eru margir dagar síðan hún gluggaði í dagblöðin. Hún verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju nk. föstudag. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.