Dagur - 11.07.1992, Blaðsíða 7

Dagur - 11.07.1992, Blaðsíða 7
Laugardagur 11. júlí 1992 - DAGUR - 7 íslenskur skinnaiðnaður hf.: Séu gæðin og þjónustan í lagi skiptír verðið minna máli - segir Alvaro Crociani, umboðsmaður íslensks skinnaiðnaðar hf. á Ítalíu en hann selur rúmlega helminginn af framleiðslu fyrirtækisins Alvaro Crociani á milli þeirra Vilborgar Jóhannsdóttur markaðsstjóra og Bjarna Jónassonar framkvæmdastjóra Islensks skinnaiðnaðar hf. Mynd: -t>H Stærsti markaður íslensks skinnaiðnaðar hf. hefur á síð- ustu árum verið Ítalía. Þangað selur fyrirtækið skinnfatnað fyrir um 500 milljónir króna sem er rúmlega helmingur árs- sölunnar. Það þarf því að sinna þeim markaði vel og í því skyni voru hér á ferð umboðsmaður Islensks skinnaiðnaðar á Ítalíu ásamt tveimur helstu kaupend- um sínum til skrafs og ráða- gerða við forráðamenn fyrir- tækisins. Umboðsmaðurinn heitir Alvaro Crociani og sagði hann blaðamanni að það sem hann væri mest hissa á væri af hverju íslendingar klæddust ekki flíkum úr íslensku skinni meira en raun bæri vitni. „Þessar flíkur henta best hér á landi,“ sagði hann og hristi hausinn. 65 milljón manna markaður Hann sagði að stundum gæti ver- ið erfitt að standast samkeppnina á ítalska markaðnum því hún væri hörð. „Það eru einkum Spánverjar, Frakkar og Englend- ingar sem við þurfum að keppa við. í þeirri samkeppni er mikil- vægt að starfa náið með framleið- andanum að þróun fatanna, gæða- þróun, litavali oþh., svo þau séu alltaf í samræmi við kröfur mark- aðarins." En eru íslensku skinnin sam- keppnisfær í verði? „Þau eru ekki ódýr, en ef gæð- in og þjónustan við viðskiptavin- inn er í lagi skiptir verðið minna máli. Við erum ekki að keppa við ódýrustu fötin og heldur ekki fín- ustu merkin, við erum rétt ofan við miðju á markaðnum hvað verðið snertir." Alvaro Crociani hefur annast sölu á framleiðsluvörum íslensks skinnaiðnaðar frá árinu 1987 og segir hann að aukningin hafi ver- ið jöfn og stöðug allan tímann. „Það vinnur enginn þennan markað með einhverjum látum og hjá okkur ríkir engin sigur- víma. Það sem skiptir máli er að hafa rétta framleiðslustefnu, leggja hart að sér, fylgjast með tækninni og starfa í anda gagn- kvæmrar virðingar milli framleið- anda og viðskiptavinar.“ En getur Crociani selt allt það sem Islenskur skinnaiðnaður sendir honum? „Á Ítalíu búa 65 milljónir manna. Þið eruð 260 þúsund og framleiðsla fyrirtækisins nægir í um 85.000 flíkur á ári. Það er ekki stór markaðshlutdeild. Ég er að vísu ekki spámaður, en ég held að ég gæti selt meira ef stefna fyrirtækisins breytist ekki. Ég er með fasta viðskiptavini sem hafa reynst tryggir og ég kapp- kosta að halda í þá.“ „Hef enga sektarkennd“ Skinnklæðnaður hefur að undan- förnu átt undir högg að sækja vegna andróðurs þeirra sem telja það ósiðlegt að farga dýrum til þess að nota af þeim pelsinn. Hefur sú barátta haft áhrif á sölu- starf Crocianis? „Nei, hún hefur engin áhrif á sölu fatnaðar úr lambsskinni. Barátta dýraverndunarfólks beinist fyrst og fremst gegn því að dýr séu drepin til þess eins að nota af þeim skinnið. Maðurinn hefur hins vegar borðað lamba- kjöt frá örófi alda svo sú ásökun á ekki við. Og persónulega hef ég enga sektarkennd af því að selja flíkur úr lambsskinni," segir Alvaro Crociani og brosir. Bjarni Jónasson framkvæmda- stjóri Islensks skinnaiðnaðar hf. segir að Crociani komi hingað til lands 2-3 á ári og að nú hafi verið rætt um haustvertíðina, ef svo má að orði komast, en hún hefst í október. „Við höfum verið að ræða um liti og annað sem snýr að útliti skinnanna því við viljum tryggja að hann fái þær vörur sem hann telur samkeppnishæfar. Á þessum markaði skiptir mestu að vera með rétta hluti á réttum tíma því tískan breytist ört. Og viðskiptavinir hans vildu sjá hvort skinnin sem við höfum að bjóða féllu ekki að kröfum þeirra." En hverjir skyldu vera tískulit- irnir á skinnklæðnaði þetta haust- ið? „Pastellitir eru vinsælir um þessar mundir, en auk þess eru þessir sígildu leðurlitir alltaf vin- sælir hjá konum og jarðlitirnir hjá körlum. En þótt við séum að tala um sígilda liti þá merkir það ekki að þeir gamlir, heldur taka þeir stöðugri þróun. Blæbrigðin eru svo mörg,“ segir Crociani. -ÞH Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra: Komið verði á fót sjálfseignarstoftiun í húsnæðismálum meðal þeirra mála sem ákvörðun var tekin um á þinginu Húsnæðismál fatlaðra var aðalumræðuefni á 26. þingi Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, sem haldið var síð- ustu daga maí-mánaðar. I því sambandi tók þingið meðal annars þá ákvörðun að komið verði á fót sjálfseignarstofnun Sjálfsbjargar í húsnæðismálum er hafi það verkefni að vinna að hagsmunum félagsmanna um allt land með því að kaupa og reka íbúðarhúsnæði á félagslegum grundvelli er taki tillit til þarfa þeirra er eiga við hreyfihömlun að stríða. Þá lagði þingið einnig áherslu á að lögfest verði nú þegar ákvæði um húsaleigubætur til handa þeim er búa í lciguhúsnæði þannig að leigjendur fái til- svarandi bætur og þeir sem búa í eigin húsnæði njóta vaxtabóta. Á meðal annarra mála er til umfjöllunar voru á þinginu var hin mikla skerðing Trygginga- stofnunar ríkisins á styrk til kaupa á hjálpartækjum. Þingið mótmælti einnig þeirri ákvörðun heilbrigðis- og tryggingaráð- herra, sem fram kemur í dreifi- bréfi tryggingayfirlæknis til lækna frá 24. apríl síðast liðnum, að ekki verði tekið við umsóknum um afgreiðslu á sérsmíðuðum hjálpartækjum nema frá bæklun- arlæknum, endurhæfingarlækn- um og gigtarlæknum þar sem þessir sérfræðingar hafi einungis aðsetur á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Þessi ákvörðun geri því fötluðu fólki í öðrum lands- hlutum oft erfitt fyrir urn að verða sér úti um nauðsynlegan búnað án þess að taka á sig auka- kostnað vegna ferðalaga og uppi- halds fjarri heinrili sínu. í ályktun þingsins um trygg- ingamál er þess meðal annars krafist að þær breytingar verði gerðar á örorkubótum að þær verði tveir flokkar að stofni til - það er að segja grunnörorkulíf- eyrir og síðan tekjutrygging. Þess er krafist að heildarupphæð beggja bótaflokkanna verði jöfn skattleysismörkum sem nú eru 60,030 krónur á mánuði. Þá verði einnig veitt heimild til að greiða frckari uppbætur á örorkulífeyri ef sýnt þykir að öryrkinn geti ekki komist af án þeirra. Einnig er þess krafist að ör- orkulífeyrir verði greiddur út án tillits til hjúskaparstöðu viðkom- andi einstaklinga og verði enn- fremur óháður tekjum. Tekju- tryggingu skuli þó eingöngu reikna út frá tekjum viðkomandi öryrkja en þó verði ekki tekið mið af tekjum maka þegar um hjón sé að ræða. Þá er lagt til að öllum öryrkjum verði greiddur bensínstyrkur til greiðslu ferða- kostnaðar og einnig verði heimilt að greiða slíkan styrk til framfær- enda fatlaðra og sjúkra barna þegar um er að ræða nauðsyn á rekstri bifreiðar vegna viðkom- andi hreyfihömlunar. Lagt er til að greiða þeim aðilum er annast umönnun fatlaðra í heimahús- um sambærilegar bætur og um- önnunarbætur barna. Lögð er áhersla á að heimildarbætur sam- kvæmt 20. grein almannatrygg- ingalaga verði undanþegnar tekjuskatti, þar sem skattlagning sé ekkert annað en endurgreiðsla á þeim kostnaði sem af fötluninni leiðir. í því sambandi er átt við bensínstyrk og uppbót vegna mikils lyfja- og sjúkrakostnaðar. Þá- beindi landsþing Sjálfs- bjargar þeim eindregnu tilmælum til félagsmála- og umhverfisráðu- neytisins að fram fari við fyrsta hentugleika gagnger endurskoð- un á byggingar- og skipulagslög- um með aðgegni fatlaðra að leið- arljósi auk þess sem unnin verði ákveðin framkvæmdaáætlun um breytingar á eldra húsnæði með sama markmið að leiðarljósi. ÞI Stórliýsi Öryrkjabandalagsins við Hátún í Reykjavík. Þrátt fyrir mikið átak skortir enn tilfinnanlega aðgengilegt húsnæði fyrir fatlaða á Islandi - ckki síst á landsbyggðinni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.