Dagur - 11.07.1992, Page 9

Dagur - 11.07.1992, Page 9
Kvikmyndarýni Laugardagur 11. júlí 1992 - DAGUR - 9 Jón Hjaltason Kona slátrarans Gcorgc Dzundza og Demi Moorc; eiginmaður og ciginkona í Konu slátrar- ans. Borgarbíó sýnir: Konu slátrarans (The Butcher’s Wife). Leikstjóri: Terry Hughes. Aðalhlutverk: Demi Moore, Jeff Daniels og George Dzundza. Paramount Pictures 1991. Höfuðpersónan í Konu slátrarans er um margt lík hinum ástralska Krókódíla-Dundee. Hún kemur frá afskekktum stað í stórborgina, búin dásamlegu hrekkleysi, vill allt fyrir alla gera, hræðist engan og er öllum góð. Um tvennt er hún þó frábrugðin Dundee hinum ástralska - hún er hún (sem er kostur þegar Demi Moore á í hlut) og að auki búin forsagnaranda. Þetta er raunar svolítið fyndin per- sóna, kona slátrarans. Hún hefur allt sitt stutta líf verið að bíða eftir væntanlegum eiginmanni sínum. Þegar hann loksins kemur, þreytt- ur og sveittur á litlum árabáti, stekkur hún á hann, umvefur, faðmar og kyssir og daginn eftir eru þau gift. Hún hefur séð hann í draumi, ýmis tákn hafa orðið sem boðuðu væntanlega kontu hans og stjömumar hafa ekki heldur legið á liði sínu. Samt sem áður veit bíófarinn að hún hefur gert mis- tök. Slátrarinn (George Dzundza) Sá svellkaldi Borgarbíó sýnir: Svellköldu klíkuna (Stone Cold). Aöalhlutverk: Brian Bosworth og Arabella Holzbog. Stone Group Pictures 1991. Eins og nafnið ber með sér er þetta ein af þessum töffaramynd- um þar sem hetjunni er ekkert ómögulegt. Joe Stone (Brian Bosworth) er einhverskonar lögga (held ég) sem hefur unnið sér eitt- hvað til óhelgis. Að minnsta kosti hefur han verið leystur frá störfum tímabundið. En eins og nærri má geta hafa yfirvöldin ekki efni á því að missa sinn besta mann í fyrirskipað leyft, jafnvel þó ekki sé nema í örfa daga. Mótor- hjólaklíka hefur hótað að taka völdin í einu fylkja Bandaríkjanna og Joe Stone er sá eini sem getur kokið í veg fyrir þá áætlun ill- mennanna. Hann fer nauðugur á staðinn, stór og mikill. Já ég gleymdi að minnast á það að hann á mótor- hjól. Rétt eins og að pissa undir vegg kemst hann í klíkuna og er þegar orðinn hægri hönd höfuð- paursins. Og nú byrjar hann að grafa undan klíkunni. Svellkalda klíkan er klisju- mynd. Ekki fer á milli mála hverj- ir eru vondir, og hverjir góðir. Slagsmálin eru hrikaleg en enginn bólgnar eina tommu. Þetta er rétt eins og í Valhöll, dauðir um dag- inn en rísa upp þegar kvöldar, drekka og berjast örlítið í viðbót. Gjörsamlega innantóm veröld, yf- irborðlegar persónur og þunnildis- legur söguþráður einkenna Svell- köldu klíkuna. Hún er á sama stigi og léleg klámmynd; þið takið eftir að ég segi léleg klámmynd því að öndvert við álit margra þá eru til bæði góðar og slæmar slíkar. Á klaufalegan hátt er reynt ítrekað að undirstrika karlmennsku Stone’s og illmennsku fantanna. Honum er jafnvel ætlað að gerast klókur undirhyggjumaður en klókindin renna út í líkamlega baráttu þar sem sá sterkasti vinn- ur. Þannig er hún fyrir gýg tilraun aðstandenda Svellköldu klíkunnar til að draga upp mynd af einum svaka hörðum nagla reiðandi vitið í þverpokum. getur ekki átt að verða eiginmaður þessa gullfallega náttúrubams. En þessi mislestur náttúrunnar leiðir Moore til stórborgarinnar og í New York gerist sagan nánast öll, í hverfi þar sem slátrarinn hef- ur búðina sína. Þetta er skeinmti- legt svið. Gamlar konur sitja á gangstéttinni og horfa á sjónvarp- ið, vandræðaunglingurinn reynir að láta rætast eitthvað úr fyrir sér, kirkjukórsstjómandinn reynir að yfirvinna feimni sína og konur eru í karlaleit. Gegnt slátrarabúðinni býr sálfræðingurinn (Jeff Dani- els) sem á í vök að verjast eftir að Moore kemur í bæinn. Hún sér fyrir óorðna hluti og er ófeiminn að gefa ráð. Fyrir vikið er hún nánast orðinn samkeppnisaðili sál- fræðingsins um sjúklinga. Þannig eru þeir tveir megin- þræðimir sem eru raktir í Konu slátrarans; annars vegar sá sem verður til þegar rennur upp fyrir ungu hjónunum að þeim var alls ekki ætlað að eigast og hins vegar örlagaþráðurinn á milli eiginkon- unnar og sálfræðingsins. Þetta er gert á notalegan hátt. Myndin er falleg, hugljúf og ekki laus við að vera fyndin, rétt eins og til var ætlast í upphafi. En eins og stund- urn vill verða með kvikmyndir þá er fyrri hlutinn mun betri en sá seinni. Það er eins og hugmynda- flugið vilji stundum þrjóta þegar kemur að sköpun niðurlags. Þrátt fyrir þetta er Kona slátrarans alls ekki slæm mynd, það er bara að fyrri parturinn hefði átt skilið betri seinni part. Heim úr hafi Komi einhverju sinni sá tími, að laxinn snýr ekki aftur, veit maðurinn, að honum hefur mistekist enn einu sinni, og færst nær því að hverfa endanlega. Roderick Haig-Brown, rithöfundur Villtir laxastofnar í löndum við Norður Atlantshafið eru nú taldir vera um 10% af því, sem þeir voru fyrir 300 árum og innan við 3% af því, sem þeir voru við landnám Islands. Við höfðum til virðingar Islendinga fyrir íslenskri náttúru, hvar sem þeir búa á landinu, og biðjum þá að veita villta laxinum fullt frelsi til að leita í heimaárnar, og hafbeitarlaxinum heim af afréttinum. Island bannaði laxveiðar í sjó fyrir 60 árum og hefur á alþjóðavettvangi verið forystuafl á sviði verndunar og laxastjórnunar með aðgerðum gegn úthafsveiðum á laxi. Með þessa vitneskju í huga er það metnaðarmál, * að Islendingar sjálfir stundi ekki ólöglegar laxveiðar í sjó. AT/ Verðum fyrirmynd annarra þjóða í þessu efni sem öðrum, 5*^ er snerta umhverfisvernd. ÖN v NORÐURATLANTSHAFS LAX SJÓÐURINN alþjóðleg verndunarsamtök með aðsetur á íslandi Eiður Guðnason Umhverfsráðherra Halldór Blöndal Landbúnaðarráðherra

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.