Dagur - 11.07.1992, Page 10

Dagur - 11.07.1992, Page 10
10 - DAGUR - Laugardagur 11. júlí 1992 Hann er Súgfírðingur en fluttist tíu ára að Ytri Kárastöðum nokkru fyrir norðan Hvammstanga - hafði þá misst föður sinn og fékk skjól eins og hann orðar það hjá móðursystur sinni. Hann kvað þau hafa verið fjögur systkinin og eflaust verið þröngt í búi móður sinnar þegar fyrirvinnan var fallin frá. Síðan hefur Vestur-Húnavatnssýsla verið heimkynni hans. Hann telur sig Vestfirðing með borgararéttindi í Húnavatnssýslu og er fyrir löngu orðinn einn af þekktari íbúum sýslunnar. Hann heitir Ingólfur Guðnason og er sparisjóðsstjóri á Hvammstanga. Degi var tekið að halla þegar ég heimsótti hann í sparisjóðinn. Gjaldkerarnir höfðu gert upp kassana og flestir starfsnienn horfnir á braut. Síminn hélt þó áfram að hringja og Ingólfur svaraði og ég heyrði að hann var að leysa vanda við- skiptavinar. Skyldu landsbyggðarsparisjóðirnir hafa annan hátt á hvað viðskiptavinina varðar þegar hefðbundnum skrifstofutíma er lokið? Ingólfur brosti - hallaði sér afturábak í stólnum og sagði fátítt orðið að afgreiða menn utan venjulegs vinnutíma. Slíkt hefði þó tíðkast áður fyrr og ekki óalgengt að hann hafi komið heim af fundum og samkomum með vasana fulla af víxilblöðum frá viðskiptavinum sem þurftu að fá fram- lengingu. Ingólfur ólst upp hjá frænku sinni á Ytri Kárastöðum og eftir barnaskóla lá leiðin að Reykjum í Hrútafirði eins og margra, sem hafa alist upp í Húnavatnssýslum. Síðar stundaði hann nám við Samvinnuskólann sem þá var staðsettur í Reykjavík og tók að því loknu til starfa við Kaupfélagið á Hvammstanga. Ekki átti þó fyrir honum að liggja að setjast að á Hvammstanga fyrir fullt og allt. Hann flutti burt - raunar ekki langt heldur að Laugabakka í Miðfirði þar sem hann rak bílaverkstæði ásamt fleirum í rúman áratug. Einn af frumbyggjum Laugabakka Þéttbýlið á Laugabakka varð til á fimmta áratugnum og hefur byggð þar aukist hægt og hægt í gegnum árin. Ingólfur er þannig einn af þeim sem stóðu að myndum þessa þorps. En af hverju varð byggðakjarni til þarna í miðri sveitabyggðinni? „Laugabakki byggðist fyrst og fremst upp í kringum þjónustu við sveitirnar. Eftir stríðið hófst vélvæðingin í landbúnaði og Húnvetningar voru farnir að tileinka sér hana að nokkru leyti. Bændur höfðu drátt- arvélar eftir því sem efnahagur gaf tilefni til og innflutningsleyfi fengust fyrir. Einnig flestir á henni. Ég man eftir bónda norður á Vatnsnesi. Þetta var stór fjölskylda og hann hafði átt í mesta basli með að framfleyta sér og sínum. Svo tók hann sig til, byggði íbúð- arhús og keypti sér Farmall dráttarvél um svipað leyti. Eg held að ýmsir hafi álitið að hann myndi stranda með þetta. Aldrei geta greitt skuldirnar og hreinlega fara á haus- inn. En hann komst frá þessu og ég er ekki efins um að hann hafi hagnast á framförun- um. Margir voru þó hræddir við að leggja út í miklar fjárfestingar á þessum árum minnugir þess sem gerðist eftir fyrra stríðið og bjuggust við nýrri kreppu með tilheyr- andi samdrætti og atvinnuleysi." Ingólfur lætur hugann reika og hallar sér aftur í stólnum. „Gífurlegar breytingar áttu sér stað í sveitunum á þessum árum. Nánast allt var byggt upp. Moldarkofarnir hurfu og nýjar byggingar risu á hverjum bænum eftir annan. Vélvæðingin gerbreytti störfum manna. Bændur fóru raunar inn í annan heim hvað allt verklag varðaði.“ Og Ingólf- ur heldur áfram. „Við sem þekktum mold- arkofana og handverkfærin álitum mörg að þegar við vorum komin inn í almennileg hús og höfðum fengið verkfæri í hendur sem vetninga fyrsta nóvember 1959. Á þessum 33 árum hefur margt breyst - hver byltingin hefur rekið aðra eins og Ingólfur kýs að orða það og í dag er margt með öðrum hætti í lánastofnunum en fyrir rúmum þremur áratugum. Ingólfur gekk með mér um kjall- ara undir húsi sparisjóðsins. Þar hefur hann komið fyrir gömlum vélum úr starfsemi sjóðsins auk húsgagna og einstakra færslu- bóka. „Sparisjóðurinn verður 75 ára á þessu ári og hugmyndin er að gefa út yfirlit yfir sögu hans af því tilefni. Ég hef því verið að útbúa hér einskonar söguhom um búnað og tæki við bankareksturinn til að ljósmynda fyrir fyrirhugaða útgáfu.“ Gamlar reiknivélar - allt frá fyrstu tíð - eru í hillum og á gólfinu og á elsta skrifborði stofnunarinnar hefur Ingólfur komið fyrir fyrstu margföldunarvélinni - handsnúinni vél með lykli fyrir hverja einingu í þeim upphæðum sem margfalda þurfti ásamt dag- bók frá sjötta áratugnum. Éinnig vaxtatöflu sem notuð var til að flýta fyrir við útreikning vaxta. Taflan náði yfir ársvexti á bilinu frá 4%-8!/2%. Á þessum tíma hefur menn ekki dreymt um hærri vexti enda fyrir daga óðaverðbólgunnar. En fleira hefur breyst á þessum áratugum en reiknivélar og vextir? Ingólfur játar að svo sé. „Þegar ég kom hér til starfa var ég einn í sparisjóðnum og hafði opið hálfan daginn. Eg var þó alltaf með skrifstofu en á þessum tíma voru marg- ir sparisjóðir á landsbyggðinni inni á heimil- um sparisjóðshaldaranna er unnu að spari- sjóðsrekstrinum í aukastarfi - oft með búskap eða annarri vinnu. Margir sinntu þannig bankaþjónustunni í hjáverkum í dreifbýlinu á þessum árum. Viðskiptahættir voru einnig allt aðrir. Fólk var ekki alltaf að koma í bankana og sparisjóðina. Þá greiddu flestir út í hönd fyrir það sem þeir keyptu. Fólk kom ef til vill eina ferð í sparisjóðinn - náði í peninga en sá síðan sjálft um að ráð- stafa þeim. Nú kaupir fólk flesta hluti með greiðsluskilmálum og greiðir þá með allt að 15 til 20 afborgunum, sem fara allar í gegn- um bankakerfið. Þannig hefur pappírsfærsl- an margfaldast á þessum áratugum. Engin leið er lengur að sinna bankastörfum með gamla laginu. Auk stóraukinnar pappírs- færslu hefur vaxtakerfið einnig margfaldast að verulegu leyti þann mun sem nú er á færslufjölda hér og sambærilegra stofnana sem eingöngu þjóna þéttbýlisbyggð. Sveita- fólkið fer færri ferðir í banka.“ Afgreiddi viðskiptavini á förnum vegi Með auknum pappírsfærslum og tölvunotk- un hafa hin persónulegu viðskipti banka- manna og viðskiptavina minnkað. Hefur ekki orðið veruleg breyting að því leyti? Ingólfur kvað svo vera. „Með aukinni tækni eru fjármunir færðir í auknum mæli á milli reikninga án þess að viðskiptavinurinn komi í bankastofnunina. Nú geta menn fært fé á milli reikninga í bönkum og sparisjóð- um frá heimili sínu eða vinnustað. Með beinni tengingu frá tölvu viðkomandi ein- staklings við tölvukerfi þeirrar bankastofn- unar er hann hefur viðskipti við getur hann fært til fjármuni innan ákveðins ramma sem samningur hans við bankastofnunina segir til um.“ Ingólfur kvað ákveðna eftirsjá vera í hin- um miklu persónulegu samskiptum sem bankastarfsemin hafði í för með sér í dreif- býlinu hér áður fyrr. Hann minntist þess að algengt hafi verið að hann afgreiddi við- skiptavini á förnum vegi - ekki síst á mannamótum. „Menn notuðu tækifærið ef þeir hittu sparisjóðsstjórann tii þess að ganga frá málum sínum. Ef maður fór af bæ - á samkomu eða fund var algengt að koma heim með fulla vasa af víxilblöðum frá við- skiptavinum sem þurftu að framlengja. Þar fóru viðskiptin fram og báðir undu glaðir við sitt.“ Ingólfur kvaðst ekki muna til þess að nokkurn tfmann hafi komið upp missætti vegna viðskipta af þessu tagi. „Þessir við- skiptahættir heyra nú liðinni tíð til. Bæði er afgreiðslutíminn lengri og umferð fólks mik- ið meiri en áður var. Ekki síst sveitafólksins en að sjálfsögðu voru það einkum sveita- mennirnir sem áttu viðskipti við sparisjóðs- stjórann utan hins hefðbundna vinnutíma. Menn hafa annan hátt á í dag. Og þótt sakna megi þessa mannlega þáttar viðskipt- anna þá álít ég að manneðlið hafi sjálft ekkí breyst - heldur aðstæðurnar. Getum ekki þjónað hver öðrum endalaust - Ingólfur Guðnason, sparisjóðsstjóri á Hvammstanga, ræðir um sjálfan sig, bankamálin fyrr og nú og landsins gagn og nauðsynjar í helgarviðtali tóku bílar að koma í sveitirnar - einkum Willis-jepparnir. Vegna innflutningshaft- anna var þó oft erfitt að fá nokkra varahluti. Þótt bændur gætu fengið leyfi fyrir takmörk- uðu magni af dráttarvélum var oft erfitt að fá nauðsynleg fylgiverkfæri flutt til landsins." Ingólfur sagði að þeir hefðu smíðað nokkuð af landbúnaðartækjum til notkunar við dráttarvélar á þessum árum - einkum ýtur sem settar voru framan á vél- arnar. „Vélvæðingin útheimti ákveðna þjónustu við bændur sem ekki væri staðsett í of mikilli fjærlægð. Byggðin á Laugabakka varð því fyrst og fremst til í kringum bíla- og búvélaverkstæðin og síðar komu fleiri iðn- aðarmenn og settust að á staðnum." „Bændur sem tóku vélvæðinguna í þjónustu sína högnuðust flestir á henni“ „Þetta eru erfiðir tímar“ - þessa hugsun leggur Indriði G. Þorsteinsson, rithöfundur, kaupfélagsstjóranum í Landi og sonum í munn er hann talar við unga piltinn sem stendur á þeim tímamótum að velja um hvort hann taki við jörðinni eftir föður sinn eða hverfi á braut. Erfiðir tímar - en áttu bændur ekki í erfiðleikum með að fjárfesta í vélum og tækjum á þessum árum? Nei - Ingólfur telur að svo hafi ekki verið. Ekki að öllu leyti. „Þeir bændur sem tóku vélvæðinguna í þjónustu sína högnuðust auðvelduðu dagleg störf á margan hátt - þá hefði átt sér stað ákveðin bylting sem ekki kæmi aftur. Að sjálfsögðu var þetta bylting. En hvað hefur gerst síðan. Hlutirnir eru sífellt að taka breytingum og ein bylting verður eftir aðra. Við fáum sífellt nýja hluti í hendur." Ingólfur lítur á tölvuna sem er til hliðar á skrifborði hans. „Þegar ég var að fást við skrúflyklana á verkstæðinu á Lauga- bakka þá hefði mér alls ekki getað dottið í hug að ég ætti eftir að nota svona tæki. Að sitja við tölvuskjá og vinna störf mín á þann hátt. Og nú er maður orðinn háður þessari tækni. Við gætum lokað og best væri að gera það strax ef tölvurnar færu úr sambandi. í nútíma bankavinnslu er engin leið að sinna venjulegri starfsemi án þeirra. Ekki vinn- andi vegur. Þessi þróun hefur sýnt manni að byltingarnar halda áfram.“ Margt með öðrum hætti í lánastofnunum en fyrir 30 árum En verkstæðisreksturinn átti ekki eftir að verða ævistarf Ingólfs Guðnasonar og raun- ar má segja að hann hafi undirbúið sig til annarra verka - meðal annars með námi sínu við Samvinnuskólann. Hann hafði byrjað að starfa að verslunarmálum hjá kaupfélaginu á Hvammstanga þegar vél- væðing sveitanna kallaði hann á vettvang. En hann snéri aftur - aftur til Hvammstanga og tók við stjórn Sparisjóðs Vestur-Hún- og orðið mikið flóknara frá því sem áður var. Vaxtaflokkar eru fleiri auk þess sem vextir breytast mjög ört. Nú er tæpast vinn- andi vegur að reikna þá út með handvirkum aðferðum." Ingólfur rifjar upp vaxtareikn- ing liðinna áratuga. „Við unnum sleitulítið við vaxtareikninginn í síðari hluta desem- ber, um jólin og áramótin til þess að hafa áramótauppgjörið tilbúið á réttum tíma. Nú vinnur tölvan þetta á meðan við sofum og síðan er hægt að kalla nýjustu upplýsingar fram á hverjum morgni." Sveitafólk fer sjaldnar í banka Sveitamenn fóru sjaldnar í banka. En hafa þeir náð kaupstaðarbúum í bankarápi eða er eitthvað eftir af kyrrð landsbyggðarinnar í þessu efni? Ingólfur segir að samsetning byggðarinn- ar hafi áhrif á fjölda þess fólks sem komi í bankastofnanir. Hann bendir á fjölda afgreiðslna í sparisjóðnum hjá sér og sam- bærilegra stofnana í Vestmannaeyjum, í Ólafsfirði og Siglufirði. „í þessum sparisjóðum fara fleiri færslur fram þótt umsetningin sé ekkert meiri. Fólkið fer aðeins mun oftar í sparisjóðinn. Þessir sjóðir, sem ég nefndi, þjóna allir ein- göngu í þéttbýlisbyggð. Helmingur við- skiptavina sparisjóðsins á Hvammstanga búa inn í þéttbýlinu sjálfu en hinn helming- urinn í nærliggjandi sveitum. Ég álít að sú skipting á milli sveita og kauptúnsins skýri Bankamaðurinn með víxilblöð en dýralæknirinn með skepnulyf á mannamótum Síminn á skrifborði Ingólfs hringir enn. Hann talar stund og að samtalinu loknu segj ir hann að þetta hafi verið dýralæknirinn. „Hann hefur frá samskonar reynslu að segja hvað hin persónulegu viðskipti varðar. Við höfum oft rætt þetta. Þegar von var á hon- um fram í sveit - til dæmis á samkomu eðg fund hringdu bændurnir til hans og báðij hann að hafa hin og þessi Iyf með sér sem þá vanhagaði um vegna búpeningsins. Hann mætti því oft á mannamót með apotek jí farteskinu og síðan var tími hans meira og minna upptekinn við að veita ráð og leið- beiningar. Hann var mættur á staðinn og því sjálfsagt að nota tækifærið og ræða nauð- synleg málefni við hann. Fólk ekki óskilvísara en margir áttuðu sig ekki á verðtryggingunni Ýmsar breytingar hafa orðið á viðskipta- háttum manna á undanförnum árum. Ingólfur hefur áður minnst á þá breytingu að fólk greiði eftir á - með mörgum greiðsl- um sem fari í gegnum bankakerfið. Menn hafa tekið á sig erfiðar fjárhagsskuldbind- ingar í auknum mæli á undanförnum árum. En hafa þessar breytingar dregið úr öryggi í Laugardagur 11. júlí 1992 - DAGUR - 11 Ingólfur Guðnason á skrifstofu sinni í Sparisjóðnum á Hvammstanga. viðskiptum. Felst meiri áhætta í því að treysta fólki en áður? „Ég álít að fólk sé ekki almennt óskilvís- ara. Hitt er svo annað mál að margir hafa spilað djarft og því lent í meiri vanda en áður. Þetta má að einhverju leyti rekja til þeirra sviptinga sem verið hafa í fjármálum þjóðarinnar - meðal annars þeirrar miklu verðbólgu sem hér var viðvarandi um tíma. Verðtryggingin var tekin upp til varnar sparifé en ég álít að margir hafi átt ákaflega erfitt með að átta sig á hvernig hún virkaði. Fólk hafði kynnst því að fá peninga í hendur frá lánastofnunum sem það síðan þurfti ekki að greiða nema að litlu leyti til baka. Verð- bólgan sá um afganginn. Vel má vera að okkur bankamönnum hafi ekki tekist nægi- lega vel að útskýra þessa hluti fyrir fólki. Sýna viðskiptavinum okkar fram á hvað þeir þyrftu í raun að greiða til baka þegar lánin hækkuðu sjálfkrafa miðað við annað verð- lag í landinu. Verðtryggingin var búin að vera við lýði í mörg ár áður en fólk fékkst almennt til að trúa því hversu mikill munur væri á verðtryggðum og óverðtryggðum skuldbindingum þegar kæmi til greiðslu. Ég álít að vandi margra felist í þessu. Menn hafa einnig verið að reikna - fram og til baka - og talið sig finna ákveðnar misvísanir á milli verðtryggingarinnar og launa. Vera má að slíkt megi finna á tilteknum tímabil- um en skýringanna á vandræðum fólks með að fást við skuldbindingar sínar er fyrst og fremst að leita í ákveðnu skilningsleysi á áhrifum verðtryggingar." Ingólfur segir að fólk sé aftur farið að huga meira að sparnaði. Eftir að almennur skilningur á áhrifum verðtryggingar hafi vaxið hafi hann einnig leitt til aukins áhuga á sparnaði. Þá sé að vaxa upp kynslóð í landinu sem ekki þekki annað en að greiða verði skuldir að fullu til baka. Hugsunar- hátturinn sé því sem betur fer að breytast og áhrif verðbólguáranna fari hverfandi þegar um bankaviðskipti sé að ræða. Eitt leiðir af öðru í félagsmálum Ingólfur Guðnason hefur víðar komið við. Hann hefur tekið þátt í stjórnmálum og sat á Alþingi í eitt kjörtímabil fyrir kjördæmi sitt. Hann neitar því að hann sé pólitískur að eðlisfari og kvaðst aldrei hafa gengið með þingmann í maganum - aldrei hafa stefnt leynt eða ljóst að þingmennsku. Hann kvaðst hins vegar hafa tekið að sér ýmis störf er tengdust félagsmálum í gegnum árin. Hann sagði að í félagslífinu leiði eitt af öðru þegar menn gefi sig að því á annað borð. „Já það er rétt. Ég sat eitt kjörtímabil á Alþingi. Ég lít störf mín á þingi ekki öðrum augum en annað sem ég hef fengist við um dagana en þau voru engu að síður ágætur skóli. Já, þingmennskan kom mér á ýmsan hátt á óvart. Ég var á sama báti hvað hana varðar og margir aðrir þingmenn sem komu nýir inn á þing í desemberkosningunum 1979. Ég fór ekki í framboð á sínum tíma til þess að komast inn á þing heldur mikið fremur til þess að geta tjáð mig um þau málefni sem ég hafði áhuga fyrir á fundum og mannamótum sem tengdust kosningun- um.“ Þingmaðurinn lokar aldrei Hvað dregur menn til þingmennsku? Ingólf- ur hugsar sig um. „Að minnsta kosti voru það ekki launin. Þegar ég kom á þing vissi ég til þess að margir þeirra sem voru kjörnir í fyrsta skipti á þing á sama tíma fóru úr bet- ur launuðum störfum til þingsetunnar. Vera má að sviðsljósið sem þingmennskan veitir höfði til sumra en tæpast vinnutíminn því segja má að vinnutími þingmanna sé óend- anlegur. Þingmaður er í raun á vakt 24 tíma á sólarhring allt árið hvað sem setu á fund- um Alþingis líður. Ég get til dæmis lokað sparisjóðnum klukkan fjögur á daginn og haft lokað frá föstudegi til mánudags. En þingmaðurinn lokar aldrei. Sá þingmaður sem hyggur á endurkjör lokar ekki á fólk sem vill ná fundi hans og athygli. Hann verður að ræða við það - hlusta eftir erind- um þess og meta hvort hann og hvernig get- ur beitt sér fyrir framgangi þeirra mála sem Viðtal og mynd: Þórður Ingimarsson ieitað er til hans með. Á þingi kynntist ég því einnig á hvern hátt vinskapur getur myndast með mönnurn. Þrátt fyrir daglegt karp í þinginu er algengt að þingmenn úr mismunandi stjórnmálaflokkum verði kunningjar. Ekki síður en samherjarnir. Gamalreyndur þingmaður, Þorvaldur Garð- ar Kristjánsson, sagði einhverju sinni við mig að þingmenn úr andstæðum flokkum þyrftu í raun ekki að keppa innbyrðis eins og samflokksmenn. Þetta er rétt hjá honum. Samflokksmenn eru sífellt að keppa - þeir keppa um setu í nefndum og eftir ýmsum vegtyllum innan þingsins að ógleymdri keppninni um sæti á framboðslistum við næstu kosningar. Því er oft óhægara um vik að mynda vináttutengsl undir slíkum kring- umstæðum. Getum ekki þjónað hver öörum endalaust En frá þingmennskunni og áhrifum hennar á menn til þeirra málefna sem brenna nú á Vestur-Húnvetningum og raunar bænda- samfélaginu öllu um þessar mundir. Fækk- un sauðfjár og samdráttur í framleiðslu mjólkur eru boðorð sem heyrast á degi hverjum þrátt fyrir stöðugan samdrátt undanfarinna ára. Og nú eru þessi boðorð flutt með meiri alvöruþunga en áður. Á hvern hátt getur þessi landbúnaðarbyggð brugðist við þvílíkum samdrætti? Ingólfur sagði að þéttbýlið á Hvamms- tanga hafi að lang mestu leyti orðið til vegna þjónustu við sveitabyggðir. Þar hafi byggst upp verslun. Þar hafi járn- og úrsmiður snemma haft aðstöðu og veitt þjónustu sína. Síðar komu trésmiðja og vélaviðgerðir til sögunnar. Hvammstangi er einnig miðstöð fyrir ýmsa opinbera þjónustu. Þar á meðal er sjúkrahús. Þegar farið var að veiða inn- fjarðarækju í Húnaflóa var rækjuvinnsla sett á stofn á Hvammstanga og er hún nú stærsti atvinnurekandinn á staðnum. Ingólf- ur sagði að fólksfjöldi hafi staðið nokkurn veginn í stað í sýslunni á undanförnum árum en búsetubreytingarnar einkum verið fólgnar í þvf að fólk hafi flutt úr sveitunum í þéttbýlin og fjölgaði íbúum á Hvamms- tanga eftir að rækjuvinnslan var sett á stofn. „Nú bendir allt til þess að enn meiri fækk- un fólks eigi sér stað í sveitunum. Því er ákaflega mikilvægt að þéttbýlin hér á svæð- inu - á Laugabakka og Hvammstanga geti tekið við einhverju af því fólki sem verður að hverfa frá landbúnaði. Að öðru kosti hlýtur þetta fólk að hverfa úr byggðarlag- inu. Af þeim sökum brenna atvinnumálin mest allra mála á Húnvetningum um þessar mundir og á hvern hátt er unnt að skapa atvinnu fyrir fólk sem kemur til með að þurfa að hverfa frá núverandi störfum ef fram fer sem horfir í landbúnaðarmálunum. Ég tel að menn séu vel meðvitaðir um þess- ar aðstæður en betur má ef duga skal varð- andi atvinnumálin og að aðrar starfsgreinar geti tekið við horfnum störfum úr landbún- aði. Vandinn en hins vegar sá að okkur hef- ur gengið illa að koma auga á framleiðslu sem þolir samkeppni á mörkuðum út í hin- um stóra heimi. Við höfum byggt upp mikla atvinnu við að þjóna hver öðrum en ein- hvern tímann hlýtur að koma að því að slík atvinnusköpun gengur ekki lengur. Að því leyti eru ýmis áhyggjuefni framundan." Sparisjóðurinn var of langt í burtu - en er nú miðsvæðis Sparisjóðurinn á Hvammstanga er uppi í brekkunni fyrir ofan höfnina. Ingólfur segir að þegar farið var að huga að byggingu hússins hafi ekkert skipulag verið til af svæðinu. Hann hafi því farið á fund Zophoníasar Pálssonar, sem þá hafi verið skipulagsstjóri ríkisins, og rætt hugmyndina að staðsetningu við hann. „Zophoníasi leist ekkert á þetta í byrjun. Við vildum reisa húsið of langt frá byggðinni að hans dómi. Ég reyndi að sýna honum fram á að við hefðum ekkert annað pláss til þess að byggja yfir sparisjóðinn og hann féllst á það sjónarmið að lokum.“ Við göngum út í kvöldkyrrðina. Enn er hreyfing á athafna- svæði Meleyrar - rækjuvinnslunnar á Hvammstanga og Ingólfur bendir á byggð- ina í kringum sparisjóðshúsið og segir: „Við byggðum og síðan hefur sparisjóðurinn orð- ið miðsvæðis.“ Glöggt dæmi um þá upp- byggingu sem átt hefur sér stað á Hvamms- tanga á undanförnum áratugum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.