Dagur - 11.07.1992, Side 18

Dagur - 11.07.1992, Side 18
18 - DAGUR - Laugardagur 11. júlí 1992 Kvikmyndasíða Jón Hjaltason Chaplin lifnar aftur Hinn þekkti leikstjóri Richard Attenborough hefur nýlega lokið við að kvikmynda ævi hins þekkta gamanleikara Charlie Chaplins. Þetta er ekki í fyrsta sinnið að Attenborough tekur að sér að kvikmynda ævisögur manna, hver man ekki kvikmyndir hans Gandhi og Cry Freedom. Af hverju ekki Englending? I hlutverki Chaplins er bandarísk- ur leikari, Robert Downey yngri. Það vakti að sjálfsögðu athygli þegar Attenborough kaus að ganga fram hjá bresku leikarstétt- inni eins og hún lagði sig í leit að manni í hlutverk hins fræga enska gamanleikara. Og að hann skyldi á endanum velja bandarískan karl til að túlka Chaplin heitinn hneykslaði ófáa landa hans. Að sögn Attenboroughs var valið ekki jafn einfalt og ætla mátti. Leitin að réttum manni stóð í þrjú ár. „Við leiddum hugann að öllum enskumælandi leikurum, sem get- ið höfðu sér gott orð og við töld- um að gætu tekist á við hlutverk- ið. Við ræddum við um það bil 30 einstaklinga og reyndum sjö þeirra í upptöku. Robert var einn þeirra fyrstu er við athuguðum og einhvemveginn var það svo að alltaf leitaði hugurinn til hans aft- ur, alveg sama hversu marga við athuguðum. Og þegar öll kurl komu til grafar reyndist hann standa upp úr og valið varð ekki véfengt." Attenborough skýrir valið: „í fyrsta lagi varð leikarinn að geta leikið Chaplin á sannfærandi hátt á því árabili sem myndin spannar sem er frá aldrinum 18 til 83. I öðru lagi varð hann að vera réttr- ar hæðar. Það er ef til vill hægt að gera mann sem er lítill í raunveru- leikanum að hávöxnum manni á hvíta tjaldinu en það gengur ekki á hinn veginn, það yrði aldrei falið alveg sama hvaða brögðum væri beitt. í þriðja lagi varð leikarinn að líkjast Chaplin og þá á ég ekki aðeins við undir farða í hlutverki flakkarans heldur einnig sem hinn raunverulegi Chaplin utan sviðs. Þá varð leikarinn að vera líkam- lega vel á sig kominn og hæfur dansari. Við skulum hafa í huga að hinn frægi Nijinsky lýsti Chaplin sem hinum besta ballett- dansara án þess þó að hafa nokkru sinni verið ballettdansari. Seinast en ekki síst varð leikarinn, sem við leituðum, að vera frábær á sínu sviði. Ekki minni maður en Lawrence Olivier sagði eitt sinn að Charlie hefði verið fremstur allra leikara, sá besti. Robert upp- fyllti öll þessi skilyrði," segir Attenborough, „og ég hef aldrei, ekki eina einustu mínútu, þurft að harma val mitt. Robert hefur raun- ar farið fram úr öllum mínum björtustu vonum.“ Maðurinn sem Attenborough talar svo fagurlega um, Robert Down- ey, á að baki sér ansi litríkan feril í skemmtanabransanum. Aðeins 5 ára gamall byrjaði hann að koma fram á samkomum en þegar tímar liðu tók hann að láta að sér kveða á hvíta tjaldinu. Meðal nýjustu mynda hans má nefna Air America og Soapdish. Downey hefur orðið að tileinka sér nýjan framburð Cockney enskunnar, hinn sama og var Chaplin eigin- legur. „Ég er stoltur af því að hafa fengið að túlka Chaplin á hvíta tjaldinu," segir Downey, „og ég get aðeins vonað að Chaplin líti með velþóknun á frammistöðu mína. Eg hef að minnsta kosti lagt mig allan fram, enginn dagur hef- ur liðið án þess að ég hafi ekki þurft að reyna mig við eitthvað nýtt, eitthvað sem ég gat ekki áður. Með hverjum degi sem hef- ur liðið hefur aðdáun mín á Chaplin og virðing fyrir honum aukist og ég finn mjög til þeirrar ábyrgðar er á mér hvílir að túlka Attenborough leikstýrir Robert Downey (eða er þetta kannski sjálfur Chaplin kominn aftur á stjá?). hann sem allra best.“ Það segir sína sögu um breskan kvikmyndaiðnað í dag að af þeim 1.8 miljarði íslenskra króna er kostar að gera kvikmyndina kem- ur ekki ein einasta króna úr bresk- um vasa. „Þetta er vissulega sorg- legt,“ segir Attenborough, „því að ef myndin gefur eitthvað í aðra hönd mun allur gróðinn fara til útlendinga." í aukahlutverkum eru engir aukvisar. Kanadamaðurinn Dan Akroyd fer með veigamikið hlut- verk, Kevin Kline er Douglas Fairbanks eldri, Penelope Anne Miller bregður fyrir og Geraldine, dóttir Chaplins í raunveruleikan- um, leikur ömmu sína, móður föð- ur síns. Meðal þeirra síðustu til að koma um borð voru bresku leikar- amir Atnhony Hopkins og John Thaw, betur þekktur sem lögreglumaðurinn Morse. Kvikmyndir í burðarliðnum ALLT I OLLU Nei, þetta er ekki nafn á nýrri kvikmynd - jafn ágætt og það þó væri. Þetta er hins vegar ágæt lýs- ing á Robert De Niro. Ekki fyrir svo mörgum árum síðan lét hann lítið fara fyrir sér en nú er öldin önnur. Síðastliðið ár sáum við hann fara með aðalhlutverk í bæði Awakenings og Guilty By Steve Martin með fangið fullt af Goldic Hawn í Leap of Faith. Astand fjallvega Condition of mountain tracks Astand fjallvega Kortið sýnir ástand fjallvega vikuna 9. júlí til 15. júlí 1992. Vegir á skyggðum svæðum eru lokaðir allri umferð þar til annað verður auglýst. Næsta kort verður gefíð út af Vegagerð ríkisins 16. júlí næstkomandi. Suspicion. Á þessu ári hefur hann þegar birst í Cape Fear og bráð- lega verður hann á hvíta tjaldinu í Mistress. Auk þess hefur hann verið að leika í Night and the City á móti Jessicu Lange og This Boy’s Life þar sem Ellen Barkin er mótparturinn. Og svo ég geri nú obboðlítinn hlykk á bænina þá hefur De Niro tekist að finna tíma á milli myndskota til að slá sér upp með hinni gullfallegu Naomi Campbell, fyrirsætunni þeldökku, og til að undirbúa frumraun sína í leikstjóra-hlutverkinu. Myndin sú, sem á að gerast á 7. áratuginum, er þegar komin í vinnslu og hver haldið þið að fari með aðalhlut- verkið? Jú mikið rétt, sá heitir Ro- bert De Niro. THE MAN WITHOUT A FACE Mel Gibson er nú sömuleiðis að reyna sig við leikstjórahlutverkið í fyrsta sinnið. Hann hefur nýlega lokið við að leika í The Best Of Daniel, svo ég minnist nú ekkert á Banvæna vopnið númer þrjú sem ku gera það nokkuð gott í Amer- íku og Reykjavík. Gibson ætlar sér þó ekki að gefa leikinn upp á bátinn og fer sjálfur með aðalhlut- verkið í þessari nýjustu mynd sinni. Þar er hann í hlutverki fyrr- verandi fanga sem gerir örvænt- ingarfulla tilraun til að flýja fortíð sína. Hann flytur aðsetur sitt til nýrrar borgar en fortíðin verður ekki snudduð af eins og seinfær hlaupari í treinak. Og meðal ann- arra orða; Gibson þykist ekki hafa áhuga á James Bond, hann segir hlutverkið ekki nógu krefjandi fyrir metnaðarfullan leikara. Svo talaði Hamlet. CLEAR AND PRESENT DANGER Harrison Ford situr ekki auðum höndum þessa dagana, ekkert frekar en þeir tveir framantaldir. Hann hefur nýlega lokið við Pat- riot Games og heggur í sama knérunn í Clear and Present Dan- ger. Þar er hann aftur í hlutverki CIA-manns. Stopp, stopp, ég gleymdi einu - áður en Ford hleypur í CIA-gervið ætlar hann að bregða sér á hestbak í Hickock og Cody. Og úr því að við erum að ræða kúrekamyndir, sem virð- ast vera að sækja í sig veðrið þessa dagana, þá hefur félagi Fords, River Phoenix, sá sem lék Indy ungan í Indiana Jones and the Last Crusade, rétt lokið við Robert De Niro, önnum kafinn miðaldra maður. vestra sem Sam Shepard leik- stýrði. Ekki minni menn en Alan Bates, Richard Harris og Dermont Mulrony fara með hlutverk í þessari mynd. AT RISK Ekki veit ég hvað sá ágæti leikari Andy Carcia hefur látið leiða sig út í hér. Að vísu eru ágætir menn með honum; Jonathan Demme leikstýrir en hann var einnig við stjómvölinn í Silence of the Lambs. Efnið er hins vegar svolít- ið ískyggilegt, nefnilega eyðni og fordómar. LEAP OF FAITH Sá fyndni Steve Martin er enn far- inn á kreik eftir annir að undan- fömu við gerð Father of the Bride og Grand Canyon. Nú á hann að vera einhverskonar trúboði með ekki alltof hreint mjöl í poka- horninu. Mótleikarinn er Goldie Hawn. Og rétt aðeins um sam- keppnina. í fyrstu var hlutverkið ætlað Michael Keaton en hann varð undir f samkeppninni og þvr fór sem fór - hugsið ykkur, sjálfur Batman fær stundum súrt epli að bíta í. VÖÐVAKARLARNIR A, ha, nú plataði ég ykkur aftur; þetta er ekki nafn á kvikmynd heldur samheiti yfir Dolph Lund- gren, hinn sænska, og Belgíu- manninn Jean-Claude Van Damme. Sá fyrmefndi er enn að bjástra við leik. í Joshua Tree er hann saklausi maðurinn sem lendir í vondum málum þegar ein- hverjir óþokkar í löggunni stimpla hann glæpamann. George Segal er mótleikarinn. Damme er enn á uppleið og hefur nýlega gert samning við Columbia. Fyrsta verkefnið verð- ur spennutryllir, Crossing The Line. Handritshöfundur er sjálfur Joe Eszterhas sem gerir það nokk- uð gott í Borgarbíó um þessar mundir með sköpunarverki sínu, Basic Instincl.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.