Dagur - 11.07.1992, Síða 19
Laugardagur 11. júlí 1992 - DAGUR - 19
Popp
Magnús Geir Guðmundsson
Cult í klípu (og þó ekki)
Eins og stundum áður hefur mátt
lesa hér í Poppi, hafa popp- og
rokkstjörnur komist í kast við lög
og dóm eða verið hótað slíkum
afskiptum af ýmsum ástæðum.
Má til dæmis í þessu sambandi
rifja upp „málshótunina" sem
Sykurmolarnir urðu fyrir um dag-
inn út af Carpenterslaginu Top of
the world, sem svo aðeins reynd-
ist vera blaðaupphlaup og svo
auðvitað allskyns smá- og stór-
mál varðandi Guns N’ Roses,
Madonnu og fleiri sem ýmist eru
að kæra aðra eða eru kærð.
Eitt slíkt mál sem nú vekur
athygli er varðandi rokkhljóm-
sveitina bresku The Cult út af
mynd sem prýðir nýjustu plötu
hennar Ceremony. Er myndin,
eins og sjá má hér, af ungum
Sioux indíánadreng, en textarnir
á plötunni fjalla einmitt um þá og
hlutskipti þeirra. En rétt eins og
Sykurmolarnir gerðu, þá mun
Cult og útgáfufyrirtæki þeirra
hafa notað myndina af drengnum
án þess að biðja um leyfi, til í
þeirra tilfelli foreldra drengsins.
Af þeim sökum hafa foreldrarnir
því stefnt hljómsveitinni fyrir dóm
og krefjast fjallhárra skaðabóta
eftir því sem fregnir herma frá
New York, þar sem málið er tekið
fyrir. í ákærunni kemurfram m.a.
að auk þess sem foreldrarnir séu
sárir út af því að vera ekki
spurðir, þá telji þau að hann hafi
hlotið „tilfinningalegan skaða“
við birtinguna á myndinni. lan
Astbury söngvari Cult vill hins
vegar ekki trúa slíku og segir
strákinn og félaga hans örugg-
lega hafa orðið hreykna af að sjá
myndina. Það mun líka vera lítil
hætta á því að hljómsveitin verði
sakfelld, því Astbury hafði keypt
birtingarréttinn af henni af Ijós-
myndaranum sem tók hana, en
hann rakst á myndina í bók einni
og hreifst strax af. Virðast því
engin lög um óleyfilegar mynd-
birtingar hafa verið brotin.
lan Astbury og félagar í Cult eiga nú í lagastappi vegna myndarinnar framan
á nýjustu plötunni Ceremony, sem sést á innfelldu myndinni.
Ur ýmsum áttum
Rokkhljómsveitin Wedding
Present frá fótboltaborginni
Leeds hefur verið skemmtilega
frumleg í útgáfu sinni á árinu.
Hefur hún nefnilega gefið út eina
smáskífu í hverjum mánuði árs-
ins með frumsömdu lagi á A-hlið
en síðan túlkanir sínar á ýmsum
lögum annarra á B-hlið. Er útgáf-
an takmörkuð við 10.000 eintök
og hafa þau flest ef ekki öll selst
upp á skömmum tíma. Nú mun
svo komin út plata þar sem þessi
lög er að finna auk annarra og
nefnist hún The hit parade
volume 1.
Hljómsveitir ættaðar frá Seattle
halda áfram að vekja athygli
í rokkheiminum og virðast nær
engin takmörk fyrir hversu marg-
ar góðar sveitir koma þaöan.
Tvær af þessum hljómsveitum
eru Screaming Trees og My
sister’s Machine. Sú fyrrnefnda
hefur reyndar verið að í nokkur
ár og sent frá sér einar þrjár plöt-
ur og er sú nýjasta af þeim Uncle
Anesthesia, nú að koma út á
alþjóðlegum markaði. My sisters
Machine er hins vegar ung sveit
sem þykir mjög efnileg af tónleik-
um hennar að dæma. Mun hún
senda frá sér nýja EP plötu síðla
sumars, sem ætlunin er svo að
fylgja eftir með tónleikaferð m.a.
um Bretland.
Eins og oft má heyra í fréttum
frá Ameríku þá er ýmislegt
ööruvísi þar en annars staðar og
að þar eru atburðirnir óvíða
öfgafyllri. Þetta á ekki hvað síst
við um lög og laganna verði þar
vestra, sem oftar en ekki snúast
upþ í andhverfu sína gegn þegn-
unum. Er ágætt dæmi (eða öllu
heldur sorglegt dæmi) um það,
sú þolraun sem ungur aðdáandi
rokksveitarinnar Van Halen
gengur nú í gegnum og sér ekki
fyrir endann á.
Hefur pilturinn, sem er frá
Arkansasfylki, það eitt sér til
saka unniö að hafa látið sjá sig á
almannafæri í stuttermabol með
áletrun nýjustu plötu Van Halen,
For unlawful carnal knowledge, á
brjóstinu. Var hann handtekinn
og kærður á þeirri forsendu að
um brot á reglum um „velsæmi-
legan klæðnaö á almannafæri”
væri að ræða, sem gæti þýtt allt
að eins árs fangelsi eða 60 þús-
und kr. sekt. Mun nú reyna á það
fyrir dómi hvot áletrunin, sem
þýða má „í þágu óravitundar”
standist velsæmisreglur eða ekki
og hvort strákgreyið þarf að
gjalda fyrir eitthvað sem hann
hafði ekki hugmynd um að væri
saknæmt.
Er málið nú komið til kasta Van
Halen og ætlar hljómsveitin að
aðstoða drenginn eftir föngum og
ef í hart fer að greiða sakarkostn-
að hans. Eins og nærri má geta
þá þykir þetta hiö hlálegasta mál
og ekki til að auka tiltrú ungs
fólks á laga- og réttarkerfi í
Bandaríkjunum.
Nú síðustu misserin hefur
það veriö vinsælt sem aldrei
fyrr að maka krókinn með alls-
kyns framleiðslu og útgáfu efnis
tengdu látnum popp- og rokk-
stjörnum. Er t.d. skemmst að
minnast í þessu sambandi æðis-
ins sem varð í kringum myndina
um Jim Morrison og Doors í fyrra
og malaði aldeilis gullið. Jimi
heitinn Hendrix hefur heldur ekki
farið varhluta af slíkri starfsemi,
því nánast allur grefillinn hefur
verið grafinn upp um þennan
mikla gítarsnilling til að græða á
því. Er það nú síðast myndband
með honum sem geymir nýfundna
upptöku frá popphátið í Atlanta,
sem um er að ræða, en þar sést
Hendrix m.a. taka lög eins og
Red House, Hey Joe, All along
the wathtower, Purple Haze og
fleiri fræg lög sín.
eir Bernard Summer úr New
Order og Johnny Marr fyrr-
um gítarleikari Smiths sálugu,
sem skipa ofurtvíeykið Electron-
ic, eru nú nýbúnir að senda frá
sér nýtt lag sem kallast Dis-
appointed. Er þeim til aðstoðar í
laginu Neil Tennant úr Pet Shop
Boys, en hann syngur aðalrödd í
því auk þess sem hann samdi
það í félagi við tvímenningana.
Var Tennant einnig með þeim í
fyrsta smáskífulaginu þeirra,
Getting away with it.
Hljómsveitaskiþanin á
rokkhátíðinni við Donington
í ár, sem tíunduð var í Poppi fyrir
skömmu og þótti mjög líkleg, hef-
ur nú hins vegar breyst töluvert.
Verður ekkert af því að Black
Sabbath og Faith No More komi
þar fram, en á hinn bóginn þykir
nær öruggt að ásamt Iron
Maiden verði það Skid Row,
W.A.S.P., Slayer, Thunder og
Almighty sem spili þar. Verða
Skid Row „sérstakir gestir”,
næstsíðust á svið, en Almighty
oþnunarhljómsveit hátíðarinnar.
Kaffihlaðborð
sunnudag kl. 14-16
Hótel VIN Hrafnagili
frá Odda hf.
Söluumboð
t
Dagsprent hf.
Símar: 24166 & 24222
Vélstjóri
Vélstjóra vantar á Harald EA 62.
Skipiö er 214 tonna stálskip með 800 ha. vél.
Skipið er á línuveiðum og frystir aflann um borð.
Upplýsingar í símum 96-61368 og 985-34162.
Hjartans þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför elsku litlu dóttur okkar, systur, barnabarns
og barnabarnabarns,
MARGRÉTAR RÖGNVALDSDÓTTUR,
Álagranda 10, Reykjavík.
Unnur Bjarnadóttir, Rögnvaldur Dofri Pétursson,
Nanna Kristín Magnúsdóttir,
Margrét Rögnvaldsdóttir og fjölskylda,
Sigrún Jóhannesdóttir og fjölskylda,
Hlin Stefánsdóttir.