Dagur - 11.07.1992, Síða 20

Dagur - 11.07.1992, Síða 20
Stillt en sólarlítið Norðlendingar munu lítið verða varir við sól og hita um helgina og næstu daga ef spá Veðurstofu íslands gengur eftir. Veður verður þó stillt og þokkalegt en einhver þræsing- ur mun læðast með norður- ströndinni á sunnudag. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni verður suðaustan gola um austanvert landið í dag en norðaustan gola um landið vestanvert. Hætt er við súld á annesjum norðvestanlands. Á sunnudag verður hæg norð- læg eða breytileg átt með skúrum við norður- og austurströndina. Á mánudag er gert ráð fyrir hæg- viðri og sól víðast hvar með síð- degisskúrum inn til landsins. Hit- inn um helgina verður 6-17 stig og hlýjast fyrir sunnan. SS Fiirantíu árígær síðan stærstí flugulaxinn veiddist í Laxá Á slaginu kl. 9.30 í gærmorg- un kastaði Jakob Hafstein Jock Scott flugu númer tvö út í Höfðahyl í Laxá í Aðaldal. Tilefnið var að fyrir nákvæm- lega 50 árum fékk faðir hans, Jakob V. Hafstein, úr þess- um hyl stærsta lax sem hefur til þessa veiðst á flugu á ís- landi. Laxinn var 36 pund að þyngd og tók viðureignin við þann stóra 111 mínútur, sam- kvæmt frásögn Jakobs heitins í bók hans Laxá í Aðaldal, sem Menningarsióður gaf út árið 1965. Fjölskylda Jakobs V. Haf- steins, fyrrum veiðifélagar hans og fleiri voru á bökkum Laxár í gær og heiðruðu minningu hans með því að afhjúpa minningar- skjöld, sem settur hafði verið á stein við Höfðahyl. Jakob Hafstein sagði i samtali við Dag að trúlega hafi það ver- ið Indriði G. Þorsteinsson, rit- höfundur og fyrrverandi veiði- félagi Jakobs V. Hafsteins, sem fyrstur kom með þá hugmynd að minnast hans og hinnar frækilegu veiði 10. júlí árið 1942 Sírenuvæl á Akureyri: Slökkviliðið gerði lukku á leikskólum hafa þennan fisk heldur en að hafa fólkið heima á launum. En við komumst aldrei að þessu án þess að gera tilraun og það er í athugun að Kaldbakur geri til- raun með vinnslu á þessum fiski í ágúst.“ Ásgeir segir viðmælendur úti hafa gefið í skyn að þar væru fyrirtæki sem ættu kvóta en vant- aði skip til veiðanna. Því sé ekki útilokað að íslensk skip komist til veiða í Barentshafi en það hafi lítið verið athugað. JHB Kaldbakur hf. á Grenivík: f athugun að gera tilraun með vinnslu á fiski úr Barentshafi Hugsanlegt er að Kaldbakur hf. á Grenivík geri í næsta mánuði tilraun með vinnslu á flski úr Barentshafl. Ásgeir Arngrímsson, framkvæmda- stjóri Kaldbaks, og Valtýr Hreiðarsson, viðskiptafræð- ingur, komu nýlega heim úr ferð til Murmansk þar sem þeir könnuðu möguleika á kaupum á hráefni til vinnslu hér heima. Ásgeir og Valtýr áttu fund í vikunni með þeim fyrirtækjum sem að þessum athugunum standa en það eru nokkur þjón- ustufyrirtæki á Akureyri, frysti- hús við Eyjafjörð og á Húsavík. Ásgeir segir að einkum hafi verið hugað að kaupum á rækju og frystum fiski en einnig hafi komið í ljós að möguleikar séu á að fá ferskan fisk. „Það er ljóst að þetta hráefni er mjög misjafnt að gæðum og það hefur komið í ljós hjá Norðmönnum sem hafa hafn- að hluta af þessum fiski. Hins vegar er þetta hráefni það dýrt að það er alls óljóst að afurðirnar sem við náum að vinna úr því standi undir kaupunum. Það er kannski helst að þetta komi til greina ef frystihúsin eru hráefnis- laus, þá er sennilega betra að með þessum hætti. „Þetta er þakklætisvottur til hans frá okk- ur öllum, ekki bara fjölskyld- unni, heldur ekki síður gömlum veiðifélögum,“ sagði Jakob. í áðurnefndri bók Jakobs V. Hafsteins lýsir hann í smáatrið- Á bökkum Laxár í gær. Standandi f.v. Áslaug Hafstein, Júlíus Hafstein, Birna Hafstein og Jakob Hafstein. Sitjandi eru Júlíus Hafstein (t.v.) og Jakob Hafstein. Á innfelldu myndinni kastar Jakob Haf- stein flugu út í Höfðahyl. Á skjöldinn er letrað: Jakob V. Hafstein veiddi stærsta flugulax sem veiðst hefur á Islandi, 36 punda hæng hér í Höfðahyl 10. júlí 1942. Minnst af veiðifélögum 10. júlí 1992. „Vinur, slíkt er gott að gera, gott með náttúrunni að vera.“ J.V.H. Myndir: Golli um viðureign sinni við 36 punda laxinn. Meðal annars segir þar: „Ég gef flugunni dágóðan tíma til að sökkva, en dreg hana svo fremur hægt að mér. Allt í einu sé ég boða í vatnsborðinu; þeir smáaukast, verða gríðarmiklir, og laxinn tekur fluguna ákveðið og með miklum þunga, en frem- ur hægt. Hann tekur á sig sveiflu, sporðblakan kemur næstum upp úr vatninu. Síðan stingur hann sér niður í græn- golandi dýpið. Mér er þegar ljóst, að um stórlax er að ræða.“ óþh Akureyringum brá í brún síð- astliðinn flmmtudag og það oftar en einu sinni við sírenu- væl í bílum slökkviliðsins. Ekki sáu menn þó reyk stíga til himins enda hvergi kviknað í heldur voru slökkviliðsmenn í heimsókn á leikskólum bæjar- ins. Að sögn varðstjóra hjá slökkvi- liðinu á Akureyri fóru slökkvi- liðsmenn í heimsókn á nokkur barnaheimili í vor og nú var verið að ljúka þessum kurteisis- og kynningarheimsóknum. Börnunum var leyft að skoða slökkvibíl og fikta í honum og skiljanlega höfðu mörg þeirra áhuga á sírenunum. Mæltist þetta mjög vel fyrir hjá börnunum og fengu þau í leiðinni fræðslu um starfsemi slökkviliðsins. Tíðindalítið var hjá slökkviliði og lögreglu á Eyjafjarðarsvæðinu og Norðurlandi vestra sl. fimmtu- dag og fram eftir gærdeginum. Danski fáninn komst þó í frétt- irnar en eintaki af honum var stolið fyrir utan Alþýðuhúsið á Akureyri á fimmtudaginn og hafði lögreglan ekki haft neinar spurnir af honum í gærmorgun. SS Verkalýðsfélag Austur-Húnvetninga: Stjóm og trúnaðarmannaráð frestaði verkfafli til hausts Stjórn og trúnaðarmannaráð Verkalýðsfélags Austur-Hún- vetninga samþykkti á fundi sínum í fyrrakvöld að fresta boðuðu verkfalli, sem átti að hefjast á mánudag, til 14. sept- ember. Valdimar Guðmanns- son, formaður félagsins, segir ástæðuna vera að verkfall á þessum tíma myndi bitna mest á þeim sem síst skyldi, þ.e. skólafólki sem hafl aðeins sumartímann til að afla sér tekna. Full mæting var í stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins á fimmtudag og var ályktun um þetta efni samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Þar segir m.a. að lítil viðbrögð hafi komið frá vinnuveitendum og sýnt þyki að þeir beiti sumarafleysingafólki og skólanemendum fyrir sig í kjaradeilunni. Þá samþykkti fundurinn að fela formanni í samráði við stjórn að undirbúa og boða til ráðstefnu á Blönduósi um launamisrétti í landinu helg- ina 5.-6. september. Valdimar Guðmannsson sagði í samtali við Dag að Vinnuveit- endasambandið og Vinnumála- samband samvinnufélaganna hefðu ekki verið til viðræðu en vinnuveitendur á svæðinu sem stæðu utan þessara samtaka væru margir hverjir tilbúnir til við- ræðna. Krafa félagsins er að fá inn í samninga grein um sam- ræmda desemberuppbót. „Við vonum að þessi tími verði notað- ur til að ná samningum því mönnum ætti að vera orðið ljóst að við ætlum ekki að gefast upp,“ sagði Valdimar. JHB Hugsanlegt að eyflrskt hey verði selt til Svíþjóðar Búnaðarsamband Eyjafjarð- ar athugar nú möguleikana á því að útvega sænskum aðilum 500-1000 tonn af heyi en einhverjir sænskir bændur sjá fram á heyskort vegna þurrka. Fyrirspurnin barst upphaf- lega frá Svíþjóð til Búnaðar- sambands Islands sem kom henni áleiðis til Búnaðarsam- bands Eyjafjarðar. Ævar Hjartarson, ráðunautur, sagði að málið væri á frumstigi enda hefði fyrirspurnin borist mjög nýlega. Hey hefur áður verið selt út fyrir landsteinana, m.a. til Færeyja og Noregs fyrir all- mörgum árum. Ævar sagði ljóst að bændur í Eyjafirði væru aflögufærir með hey og ekki yrði vanda- mál að útvega þetta magn en mörg mál væru óleyst áður en af hugsanlegri sölu gæti orðið, t.d. væri alls óljóst hvaða verð þessir aðilar vildu greiða. Framleiðsluverð á heyi mun vera um 15-16 kr. á kílóið og ef miðað er við þá tölu og 1000 tonn er verið að tala um 15-16 milljónir. Ævar sagði hins veg- ar ómögulegt að segja til um neinar upphæðir á þessu stigi. JHB

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.