Dagur - 05.11.1992, Síða 5

Dagur - 05.11.1992, Síða 5
Fimmtudagur 5. nóvember 1992 - DAGUR - 5 Hvemig má þetta vera? - er þetta sanngjarnt og siðlegt? Hér legg ég fram spurningu, sem mér þætti vænt um að fá svar við, ekki bara sjálfs mín vegna, held- ur allra þeirra, sem svipað hafa reynt. Hinn 25. apríl 1991 var ég boð- aður á fund hjá menningarmála- nefnd Akureyrar, en hinn 5. apríl sama ár hafði ég orðið áttræður. Á þessum fundi var mér afhent peningaupphæð, kr. 100.000, sem viðurkenning úr menningar- sjóði Akureyrar vegna margra áratuga starfs að tónlistarmálum á Akureyri. Þetta var algjörlega óvænt, og að sjálfsögðu varð ég bæði hrærð- ur og þakklátur fyrir þessa hlýju og vinsamlegu kveðju. Ég leit ekki á þetta sem styrk, enda hafði ég aldrei sótt um hann, heldur sem „viðurkenningu“ fyrir tilgreind störf, eins og stóð á meðfylgjandi skjali. Vegna þessarar viðurkenning- ar barst mér seinna launamiði, þar sem þessi upphæð var kallað- ur „styrkur", og eftir síðustu ára- mót álagningar- og innheimtu- seðill, þar sem tilkynnt var, að mér bæri að greiða 40% af fyrr- greindri upphæð í skatt. Mér fannst þetta sannast sagna Áskell Jónsson. dálítið kuldaleg kveðja, þar sem hér var um að ræða heiðursgjöf og viðurkenningu fyrir áratuga starf að tónlistarmálum. Þetta kemur mér undarlega fyrir sjónir. Mér þykir órökrétt að veita mönnum viðurkenningu vegna starfa, þótt í formi pen- ingaupphæðar sé, ef á eftir fylgir valdboð frá skattheimtunni um, að skila beri til baka miklum hluta upphæðarinnar. Er þetta sanngjarnt og siðlegt? Ég bendi á, að réttast væri fyrir stjórn menningarsjóðs Akureyr- ar að kynna sér hjá skattayfir- völdum fjárhag þeirra, sem þeir vilja heiðra. Ef við þá rannsókn kemur í ljós, að eftirlaun, ellilíf- eyrir og tekjutrygging þeirra sé það há, að mikið af því fé, sem sjóðsstjórnin hefur komið sér saman um að veita, muni koma flæðandi til baka, þá er betra að sleppa þessari fyrirhöfn. Þegar ég sit hér við skrifborðið mitt og tek saman þessar línur, liggja tvö bréf mér sitt til hvorrar handar. Á öðru bréfinu er stimp- ill skattstjóra. í því bréfi er alger neitun um, að fallið verði frá skatti, eins og ég hafði þó farið fram á bréflega. - Hitt bréfið er stimplað „Sýslumaðurinn á Ak- ureyri“. E*ar er mér bent á, hvert framhald málsins verður, ef ég þverskallast: Fjámám og uppboð með óafturkræfum kostnaði. Hvernig má þetta vera? Þökk fyrir birtinguna. Áskell Jónsson. Afinæliskaffi í HKíð í fyrradag voru 30 ár liðin frá því að fyrstu íbúarnir fluttu inn í Elliheimili Akureyrar, sem nú heitir Dval- arheimilið Hlíð. Af því tilefni var efnt til veglegs kaffihófs í Hlíð og var margt um manninn. Meðal gesta voru konur í kvenfélaginu Framtíðinni, sem í öll þessi ár hafa stutt uppbyggingu Hlíðar. Mynd: Robyn Rekstraraðilar í Sunnuhlíð: Færa Bamadeild FSA sérstakan hitamæli að gjöf Fyrir nokkru afhentu rekstrar- aðilar í Sunnuhlíð barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri sérstakan barnahitamæli að gjöf. Mælirinn er keyptur fyrir ágóða af leiktækjum sem eru í verslunarmiðstöðinni. Hann er frábrugðinn öðrum líkamshita- mælum á þann hátt að hann mæl- ir hitann í eyra og aðeins tekur örskamma stund að mæla við- komandi einstakling. Hitamælir- inn er til mikilla þæginda - bæði vegna þess hversu skamman tíma tekur að mæla hitann og mælirinn veldur engum óþægindum eins og þegar munn- eða endaþarmsmæl- ar eru notaðir. Barnaliitamælirinn í notkun á Barnadeild Fjórðungssjúkrahússins. Hús til sölu Einbýlishús eða tvær íbúðir Til sölu er Laugarbrekka 14, Húsavík, tveggja hæða steinhús með stórri og góðri lóð. Húsið er byggt 1947, endurnýjað og lagfært töluvert 1978-82 og 1991-92. Húsið er til sölu í heild eða hvor íbúð fyrir sig. Allar nánari upplýsingar um húsið og sölu þess gefur Stefán Jón Bjarnason, Norðurvöllum 20, Keflavík. Heimasími 92-14070, vinnusími 92-15200. SJALLINN

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.