Dagur - 24.11.1992, Síða 3
Þriðjudagur 24. nóvember 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Svanbjörn Sigurðsson, raf-
veitustjóri, hefur sótt um 8
mánaða launað leyfi til endur-
menntunar veturinn 1993-
1994.
■ Akureyrarbæ hefur verið
boðið til kaups býlið Fífil-
brekka við Þórunnarstræti.
Bæjarráð samþykkti að bæjar-
sjóður leysti til sín ræktun
erfðafestulanda og girðingar
býlisins og heimilkði að gefinn
yrði út lóðarsamningur fyrir
íbúðarhúsið.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
álagningu og gjalddaga fast-
eignagjalda fyrir næsta ár.
Fasteignaskattur af íbúðar-
húsnæði verður 0,45% og
1,25% af öðru húsnæði.
Bæjarráð leggur til að gjald-
dagar fasteignagjalda verði
átta, fyrsti dagur hvers mánað-
ar frá febrúar til september.
Þá verður vatnsgjald 0,18% og
fráveitugjald 0,18%.
■ Bygginganefnd hefur sam-
þykkt umsókn A. Finnssonar
hf. um lóð við Krossanesbraut
til að byggja á iðnaðarhús.
Byggingafrestur er 18 mánuð-
ir.
■ Skotveiðifélag Eyjafjarðar
hefur sótt um að æfingasvæði
félagsins við Glerá verði fram-
tíðarsvæði fyrir starfsemi
félagsins. Skipulagsnefnd sam-
þykkti að vísa erindinu til
athugunar hjá skipulagsdeild
og tæknideild.
■ Einhildur Sveinsdóttir hef-
ur fært Matthíasarsafninu á
Akureyri peningagjöf að upp-
hæð kr. 100 þúsund, sem varið
skal til viöhalds og styrktar
safninu. Gjöfin er til minning-
ar unt eiginmann hennar,
Martein Sigurðsson, en hann
var einn aðal hvatamaður að
stofnun safnsins og umsjónar-
maður þess meðan heilsa
leyfði. A fundi menningar-
málanefndar nýverið voru
bókaðar þakkir fyrir þessa
höfðinglegu gjöf.
■ Listasafn Islands hefur tek-
ið jákvætt í hugmyndir að
samstarfi við væntanlegt lista-
safn á Akureyri.
■ Á fundi íþrótta- og tóm-
stundaráðs 18. nóvember sl.
var rætt um að halda hátfðlegt
25 ára afmæli skíðalyftunnar í
Hlíðarfjalli, þann 2. desember
nk., en hún var fyrsta stóla-
lyftan sem var reist hér á
landi. Einnig var ákveðið að
halda hátíðlegt 10 ára afmæli
íþróttahallarinnar, en þann 5.
desember nk. eru 10 ár liðin
frá því mannvirkið var tekið í
notkun.
■ H.J.Á. hf. hefur óskað cft-
ir styrk til atvinnumálanefndar
vegna kaupa á búnaði til fram-
leiðslu gólflista. Erindinu var
synjað.
Sauðárkrókur:
Vel sótt hátíðarhöld
- í tilefni af 100 ára afmæli kirkjunnar
Mikið var um dýrðir á Sauðár-
króki sl. sunnudag, en þá var
haldið upp á 100 ára afmæli
kirkjunnar. Eftir hátíðarmessu
var gestum boðið til kaffiveislu
í Félagsheimilinu Bifröst og að
því loknu hófst leikin og sung-
in dagskrá í kirkjunni undir
heitinu „Kirkjan okkar“. Mikill
mannfjöldi tók þátt í hátíðinni.
Biskup íslands, hr. Ólafur
Skúlason, predikaði við hátíðar-
messuna sem hófst kl. 14.30.
Sóknarpresturinn sr. Hjálmar
Jónsson þjónaði fyrir altari ásamt
þeim sr. Gísla Gunnarssyni presti
í Glaumbæ og sr. Bolla Gústavs-
syni vígslubiskupi á Hólum.
Kirkjukór Sauðárkróks söng
undir stjórn Rögnvalds Valbergs-
sonar organista og Ólöf As-
björnsdóttir söng einsöng. Ávarp
Þorsteins Pálssonar kirkjumála-
ráðherra féll niður.
Að lokinni messu var boðið
upp á kaffi og glæsilegar veitingar
í Félagsheimilinu Bifröst. Jón
Karlsson formaður sóknarnefnd-
ar bauð gesti velkomna. Ragn-
hildur Helgadóttir, dóttir sr.
Helga Konráðssonar fyrrum
Sr. Hjálmar Jónsson ásamt dóttur sinni, Ástu Sólveigu. Við hlið hans situr
sr. Þórir Stephensen.
sóknarprests, færði kirkjunni 100
sálmabækur að gjöf í minningu
föður síns. Fyrrverandi prestar
sóknarinnar, sr. Þórir Stephen-
sen og sr. Tómas Sveinsson fluttu
ávörp. Þá töluðu Halldór Þ.
Jónsson sýslumaður Skagafjarð-
arsýslu, Knútur Aadnegard for-
seti bæjarráðs Sauðárkróks, sr.
Bolli Gústavsson vígslubiskup og
Otto Michelsen. Loks ávarpaði
Akureyri:
Sjónvarvottar að ofbeldis-
verki gefi sig fram
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri lýsir eftir sjónarvottum að
ofbeldisverki er framið var á
skemmtistaðnum 1929 aðfara-
nótt laugardagsins.
„Um kl. 2.30 var ungur maður
skallaður fyrirvaralaust í andlitið
þar sem hann var að dansa. Mað-
urinn hlaut talsverðan áverka
m.a. kom í ljós við læknisskoðun
á slysadeild að hann var nefbrot-
inn. Sjónarvottar þessa atburðar
eru beðnir að gefa sig fram við
rannsóknarlögregluna á Akur-
eyri sem og sá sem brotlegur
var,“ segir talsmaður rannsókn-
arlögreglunnar. ój
Akureyri:
Sambýli f\rir geðfatlaða
forailega aflient
Sl. laugardag afhent Kiwanis-
hreyfingin á Islandi Geðvernd-
arfélagi Akureyrar formlega
húsið Álfabyggð 4 á Akureyri,
sem hýsir sambýli fyrir geðfatl-
aða. Kiwanishreyfingin hefur
látið hluta afrakstrar af sölu K-
lykils undanfarin ár renna til
uppbyggingar sambýla.
Það voru þeir Ástbjörn Egils-
son formaður K-dagsnefndar og
Steindór Hjörleifsson fráfarandi
Umdæmisstjóri Kiwanishreyfing-
arinnar sem afhentu Brynjólfi
Ingvarssyni geðlækni húsið að
viðstöddum Kiwanismönnum,
starfsfólki og heimilisfólki. Að
Álfabyggð 4 geta dvalið um 10
manns hverju sinni, en fram kom
við afhendinguna að Kiwanis-
hreyfingin hyggst halda áfram
aðstoð við starfsemi Geðverndar-
félags Akureyrar, og hafa hug-
myndir um verndaðan vinnustað
helst verið uppi á borðum. Næsti
K-dagur verður haustið 1995.
GG
biskup íslands, hr. Ólafur Skúla-
son, veislugesti.
Kl. 17.30 var leikverkið
„Kirkjan okkar“ flutt fyrir troð-
fullu húsi í kirkjunni. Verkinu
stjórnaði höfundurinn, Jón Orm-
ar Ormsson, aðstoðarleikstjóri
var Edda V. Guðmundsdóttir.
Flytjendur voru félagar úr Leik-
félagi Sauðárkróks, nemendur úr
Fjölbrautaskólanum, börn úr
hópi fermingarbarna 1993 og
Kirkjukóri Sauðárkróks. Sögu-
maður var Haukur Þorsteinsson.
Að loknum flutningi verksins
ávarpaði sóknarpresturinn sr.
Hjálmar Jónsson kirkjugesti. sþ
Húnaþing:
Deilt um
graðhesta
Nú nýverið var slátrað 17
graðhestum frá Króksstöðum
í Miðfirði, en tilvist þessara
hrossá hafði valdið nokkrum
nágrannaerjum. Jón ísberg
sýslumaður segir slík mál í
raun heyra undir sveitar-
stjóm og hreppstjóra en ekki
sýslumann og segir þetta mál
hafa verið leyst í góðu sam-
komulagi allra aðila.
Króksstaðir og Skarðshóll í
Miðfirði eru samliggjandi jarðir
og er ekki girt á milli og hafa
hross á bæjunum gengið
saman. Bóndinn á Króksstöð-
um átti um 20 graðhesta og
vildu bændur á Skarðshóli
ekki una því að þeir gengju
lausir. Þeir kvörtuðu við sýslu-
mann, sem kveðst hafa vísað
þeim á rétta leið í málinu.
Hreppstjóri og oddviti gengu í
málið og samdist svo um að
bóndinn á Króksstöðum sá
sjálfur um að smala hrossum
sínum saman og var 17 grað-
hestum slátrað með fullu sam-
þykki bóndans, að sögn Jóns
Isbergs. Þeir folar sem eftir
voru eru í húsi.
„Þetta var með góðu sam-
komulagi eiganda, oddvita og
hreppstjóra. Ég kom raunveru-
lega" ekkert nálægt þessu,“
sagði Jón. Hann sagðist vilja
ítreka að í málum sem þessunt
ættu menn að snúa sér beint til
sveitastjórna eða hreppstjóra.
SÞ
#1%
<y5
4
tk
A
&
tryi
alltaftilað
ggja atvimiu
Vorum að taka heim
úrval af stórglœsilegum ítölskum
leðursófasettum
og hornsófum
Fróbœrt verð • Margar tegundir og litir
raðgreiðslur
Við aflicndinguna sl. laugardag. Ástbjörn Egilsson, Steindór Hjörlcifsson
og Brynjólfur Ingvarsson.
Sófasett 3+1+1 • Módel 865 • Kr. 133.200 stgr.
húsgagnaverslun
Tryggvabraut ?4
BOB Akuregrl
Síml 9B-BI4IO