Dagur - 24.11.1992, Blaðsíða 4

Dagur - 24.11.1992, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 24. nóvember 1992 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLIG. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Úr takti við aflt og afla Ríkisstjórnin ákvað á næturfundum um helgina að fella gengi íslensku krónunnar um 6 af hundraði. í gær kynnti Davíð Oddsson forsætisráðherra síðan aðrar þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hyggst beita til að styrkja stoðir atvinnulífs í landinu. Ljóst er að bæði gengisfellingin og efnahagsráðstaf- anirnar falla í grýttan jarðveg. Forsvarsmenn í sjávar- útvegi benda á að aðgerðir ríkisstjórnarinnar nægi ekki til að koma atvinnugreininni á réttan kjöl. Tals- menn verkalýðshreyfingar, vinnuveitenda og stjórnar- andstöðu eru almennt ósáttir við fyrirhugaðar aðgerð- ir og benda á að ríkisstjórnin hafi ekki haft minnsta samráð við þá. Óánægjan er alls ráðandi. Gagnrýnin á efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar er fyllilega réttmæt. Forsætisráðherra lýsti því yfir fyrir síðustu helgi að engin ástæða væri til að fella gengi íslensku krónunnar, nema gengi norsku krónunnar félli. Það hefur styrkst í sessi síðustu daga en samt var gengi íslensku krónunnar fellt í gær! Gengisfellingin og aðrar aðgerðir, sem ríkisstjórnin hefur nú boðað, hafa í för með sér að rekstrarstaða sjávarútvegsins batnar talsvert. Eftir sem áður er fyrirsjáanlegt að greinin í heild verður rekin með tapi sem nemur 4-6 af hundraði. Sú niðurstaða er með öllu óviðunandi en samt bendir ekkert til þess að ríkisstjórnin ætli að láta málið frekar til sín taka. Hún virðist ætla að láta mark- aðslögmálin ráða ferðinni þannig að þau fyrirtæki, sem ekki geti borið þetta tap, verði einfaldlega látin „rúlla". Ríkisstjórnin hefur ákveðið að fella aðstöðugjaldið niður en hins vegar hefur hún ekkert ákveðið um það með hvaða hætti eigi að bæta sveitarfélögunum tekju- missinn. Fyrst í stað verður það gert með beinum greiðslum úr ríkissjóði. Þetta er til marks um það hve handhófskennd vinnubrögð hafa verið stunduð á ríkisstjórnarheimilinu síðustu mánuði. Ríkisstjórninni gafst tækifæri til að freista þess að ná mjög breiðri samstöðu í þjóðfélaginu um nauðsyn- legar efnahagsráðstafanir. Hún kaus hins vegar að láta samráð við aðila vinnumarkaðarins og stjórnar- andstöðuna lönd og leið. Hún hyggst hækka tekju- skatt og bensíngjald en lækka barnabætur og hús- næðisbætur. Hún hyggst taka upp virðisaukaskatt á húshitun, bækur, blöð og ferðaþjónustu. Hún vill hins vegar ekki hrófla við fjármagnseigendum. Ríkisstjórn- in kynnir engar nýjar séraðgerðir til að efla atvinnulíf- ið í landinu. Gengisfellingin og hækkun þátta eins og bensíngjalds og húshitunar bjóða heim hættunni á nýrri kollsteypu í efnahagslífinu. Ríkisstjórnin hefur sett verðbólguhjólið af stað á ný. Þess vegna er fátt gott hægt að segja um þær efna- hagsráðstafanir sem ríkisstjórnin hefur nú kynnt. Það er illa að þeim staðið og ljóst að ný þjóðarsátt um efna- hags- og atvinnumál er fyrir bí. Ríkisstjórnin virðist úr takti við allt og alla um þessar mundir og aðgerðir hennar bera þess glöggt merki. BB. íþróttir fyrir þroskahefta Að undanförnu hefur staðið yfir kynning á skólastarfi í fræðsluumdæmi Norðurlands eystra. Greinin sem hér fer á eftir er framlag Hvamms- hlíðarskóla á Akureyri til kynningarátaksins. Að auki mun birtast grein frá skólan- um síðar í vikunni sem ber nafnið „Tákn með tali - táknmál“. Ritstj. íþróttir og íþróttaiðkun tilheyrir orðið hinu daglega lífi nútíma- mannsins. Sumir láta sér nægja að fylgjast með úr fjarlægð, en þó eru það æ fleiri sem á einn eða annan hátt stunda reglulega líkamsþjálfun og taka þátt í íþróttum. Þess má til gamans geta að árið 1986 þegar íslend- ingar voru 244.009 samkvæmt tölum Hagstofu íslands, þá voru u.þ.b. 96.000 manns skráðir í hin ýmsu íþróttafélög og íþróttahópa í landinu. Þetta samsvarar að tæplega 40% af allri þjóðinni hafi stundað íþróttir árið 1986 (sjá: Gils Guðmundsson; „íþrótta- samband íslands 75 ára“, Prent- smiðjan Oddi hf., Reykjavík 1987). Hreyfíng er holl og nauðsynleg Það er alkunna að til að halda vél í góðu standi þarf að smyrja hana vel og nota hana reglulega til þess að hún geti skilað sínu hlutverki. Það sama gildir með mannslík- amann, það þarf holla og góða fæðu og reglulega hreyfingu til að halda honum í góðu formi. í þjóðfélagi nútímans, þar sem hraðinn er ríkjandi og störf fólks einkennast af streitu, kyrrsetu og/eða einhæfum hreyfingum, eykst þörfin á mótvægi, þ.e. lík- amlegu álagi og innri ró. Nú mun margur segja: „Heimilisstörfin veita mér nú alveg nóga hreyf- ingu“ eða „vinnan í garðinum er sko alveg nóg og erfið“. En stað- reyndin er sú að þessi störf eins og svo mörg önnur kalla á of einhliða álag á líkamann til þess að þau geti talist mótvægi við „kyrrsetulífsvenjur" okkar. Jóhanna Jessen. íþróttir fyrir fatlaða og þroskahefta íþróttir, séu þær stundaðar á rétt- an hátt einkennast af alhliða álagi líkamans, og slökun, sem ryður sér æ meira til rúms við iðkun íþrótta, er mjög gott mótvægi við streitu nútímamannsins. Auk þess erum við mannfólkið félags- verur og iðkun íþrótta í góðum hópi er hin mesta skemmtun. En ef íþróttir eru svona mikil- vægar og hollar okkur sem höfum vit og líkamlega getu til að stunda þær hvaða þýðingu hafa þær þá fyrir þá einstaklinga sem fatlaðir eru líkamlega og/eða vitsmunalega? Nú eru 80 ár liðin síðan íþróttasamband íslands var Úr leikfimitíma í Hvammshlíðarskóla. stofnað. Þó eru ekki nema um 20 ár síðan íþróttir fyrir fatlaða voru kynntar hér á landi. Hinn 30. maí 1974 var fyrsta íþróttafélag fatl- aðra, „íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík", stofnað hér á landi. Þroskaheftir voru enn seinna teknir inn í myndina og fyrst 16. maí 1978 var fyrsta íþróttafélag þroskaheftra á íslandi stofnað, íþróttafélagið Eik á Akureyri. íþróttafólk á heimsmælikvarða En við íslendingar erum fljótir að læra þegar við loks komumst á bragðið og erum duglegir að sækja okkur vitneskju og kunn- áttu frá öðrum þjóðum. Og nú er svo komið að við eigum íþrótta- fólk á heimsmælikvarða í röðum fatlaðra og þroskaheftra sem standa sig með afbrigðum vel á alþjóðamótum eins og t.d. ný- liðnir ólympíuleikar þroskaheftra (Paralympics) á Spáni bera með sér, en þar vann okkar fólk til 10 gullverðlauna, 6 silfurverðlauna og 5 bronsverðlauna; vægast sagt frábær árangur. Hér er um afreksíþróttafólk að ræða, sem á að baki mikla og þrotlausa vinnu til að geta náð slíkum árangri. Markmið Aðalmarkmið með ástundun íþrótta fatlaðra og þroskaheftra er hins vegar: - Að koma í veg fyrir, minnka eða bæta úr rangri þróun þroska, hindrun þroska, hægfara þroska og vöntun þroska. - Að uppræta eða bæta úr höft- um og/eða fyrirstöðum og þjálfa upp og bæta getu fullvirkra lík- amshluta. - Að styðja við og bæta persónu- lega hæfileika, félagslega hæfi- leika og íþróttahæfileika ein- staklingsins, þ.e. hæfileikann til að athafna sig í hinu daglega lífi. - Að koma á, styðja og tryggja jafnrétti fatlaðra og þroskaheftra gagnvart þeim sem ekki eru fatl- aðir og/eða þroskaheftir. Þegar talað er um þroska í þessu sambandi er átt við bæði líkamlegan og vitsmunalegan þroska þar sem annar getur verið afrakstur eða afleiðins hins. Hlutverk Hlutverk íþrótta fyrir fatlaða og þroskahefta er margþætt, s.s.: - uppeldislegs eðlis, - félagslegs eðlis, - sem fyrirbyggjandi aðferð, - sem endurhæfing, - sem frístundagaman. Barnið þroskast og lærir af umhverfi sínu og það barn sem ekki getur vegna vitsmunalegs og/eða líkamlegs þroska síns, leitað uppi eða tekið við upplýs- ingum frá umhverfinu, á á hættu að lokast inni í sínum eigin tak- markaða heimi og jafnvel skaðast enn frekar vitsmunalega og/eða líkamlega ef ekkert er að gert. Sjúkraþjálfun er nauðsynleg þessum einstaklingum til að vinna upp á móti líkamlegum höftum og (sér-)kennsla hvers konar er nauðsynleg til að þroska vitsmunasvið einstaklingsins. íþróttirnar koma inn á báða þessa þætti auk þess sem þær styðja undir félagsþroska ein- staklingsins. Ánægja og gleði við leik og íþróttaiðkun létta undir starf og þroska sem síðan eykur vellíðan. Jóhanna Jessen. Höfundur er íþróttafræðingur að mennt og kennari í Hvammshlíðarskóla á Akur- eyri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.