Dagur - 24.11.1992, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 24. nóvember 1992 - DAGUR - 5
pgfÉp
Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson EA 10 er fullkomnasti togari flotans ásamt Vigra RE
Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja hf.
Baldvin Þorsteinsson EA10
heldur til veiða í kvöld
- mannfjölda dreif að um helgina
til að skoða togarann
Um helgina dreif að mannfjölda
til að skoða togarann Baldvin
Þorsteinsson EA 10, sem kom
nýr frá Flekkefjord í Noregi til
heimahafnar á Akureyri sl.
föstudag.
Baldvin Þorsteinsson EA er
1500 brúttólesta togari og er tal-
inn fullkomnasti togari flotans
ásamt Vigra RE. Samkvæmt
upplýsingum útgerðarstjóra Sam-
herja hf. er ráðgert að togarinn
haldi til veiða er líður á kvöldið.
Skipstjóri í fyrstu veiðiferðinni
verður Þorsteinn Vilhelmsson,
sem hefur verið með Akureyrina
EA lengst af, og aflað skipstjóra
mest. ój
Um helgina dreif að mannfjölda til að skoða togarann. Myndír: Robyn
Lesendahornið
Blómaskálínn auglýsir
eftir Innbæingi
í Degi dags. 19. nóv. leggur Inn-
bæingur fegurðarlegt mat á
blómaskálann, sem verið er að
byggja norðan við „Höepfner“,
en virðist ekki þora að geta nafns
síns.
Innbæingurinn minnir óneitan-
lega á manninn, sem sló boxar-
ann á meðan hann var enn að
reima á sig skóna, og hljóp síðan
í burtu. Blómaskálinn er nefni-
lega enn að reima á sig skóna, því
á bygginguna eiga eftir að koma
hvorki meira né minna en 12
turnar og útskot, og er því fráleitt
að tala um að byggingin hafi tek-
ið á sig þá mynd sem hún verður
í, eins og Innbæingurinn orðar
það.
Mikið væri nú annars gott, ef
leyniskyttan sýndi þá karl-
mennsku, að stíga út í dagsljósið,
það væri þá sem best hægt að
senda viðkomandi persónu teikn-
ingar og aðrar þær upplýsingar,
sem að gagni mega koma.
F.h. Glerhúsa hf.,
Steinþór K. Sigurðsson.
Þorsteinn Vilhelmsson, skipstjóri, í brúnni á nýja togaranum.
Dagana 16. nóv.-5. des.
Félagsmannatilboð
í verslun okkar að Lónsbakka
og í útibúum KEA
15% afsláttur
af leppum, drcglum, dúkum og moltum
IO% afsláttur
af rafmagnsvcrkfærum
15% afsláttur
af baðkörum og slurlubotnum frá BETTE,
IFO hrcinlætistækjum og MORA blöndunartækjum
15°/o afsláttiir
af handvcrkfærum
Afsláttur miðast við staðgreiðslu
BYGGIHGAVÖRUR
LONSBAKKA• 601 AKUREYRI
~ 96-30321, 96-30326, 96-30323
FAX 96-27813