Dagur - 24.11.1992, Page 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 24. nóvember 1992
Ingimar Eydal, formaður dómnefndar Landslagskeppninnar, og Ásta Sigurðardóttir. Ingimar var heiðraður sérstak-
lega fyrir framlag hans til íslenskrar dægurtónlistar.
Veglegt Landslag í SjaDanum
Sigrún Eva Ármannsdóttir „slappar
af“ áður en átökin hófust.
Óhætt er að segja að Landslag-
ið 1992 hafi verið haldið með
miklum glæsibrag í Sjallanum
sl. föstudagskvöld og voru þeir
gestir sem blaðamaður ræddi
við sammála um að aðstand-
endur keppninnar gætu borið
höfuðið hátt.
Umgjörð keppninnar var öll
hin glæsilegasta. Strax og komið
var inn í húsið var gestum boðið
upp á fordrykk og síðan tóku við
sokkabuxna- og ilmvatnskynn-
ingar. Allar konur í húsinu fengu
sokkabuxur að gjöf og á borðum
voru ilmvatnsglös fyrir bæði karla
og konur. Maturinn var ekki af
verri endanum. í forrétt var graf-
inn nautahryggsvöðvi með romm-
rúsínusósu, ávaxtaískrap í milli-
rétt, glóðuð nautalund og lamba-
fille að hætti Argentínu í aðalrétt
og Pina Colada ís með suðrænum
ávöxtum í eftirrétt.
Landslagskeppnin sjálf gekk
snurðulaust fyrir sig, enda kunn-
áttumenn við takkaborðin. Að
keppni lokinni lék hljómsveitin
Stjórnin fyrir dansi fram á rauða
nótt. óþh
Guðrún Gunnarsdóttir og Pálmi Gunnarsson flytja sigurlagið Ég man hverja
stund eftir Jón Kjell Seljeseth.
Um 300 manns snæddu kvöldverð í Sjallanum.
Póstur og sími semur
um lagningu sæsímastrengs
Póstur og sími mun taka þátt í
lagningu og rekstri á CANT-
AT-3 sæsímanum sem verður
lagður frá Kanada til Bret-
lands, Danmerkur og Þýska-
lands, með greinum til Fær-
eyja og íslands. CANTAT-3
sæsíminn er ljósleiðarastrengur
með þremur Ijósleiðarapörum,
tveimur fyrir Qarskiptaflutning
og einu til vara. Á strengnum
er hægt að flytja 60.000 tal-
símasambönd samtímis en það
er fjórföld flutningsgeta
stærstu ljósleiðarastrengja sem
nú liggja yfir Atlantshafið.
Eigendur sæsímans eru síma-
stjórnir í Bretlandi, Danmörku,
íslandi, Þýskalandi og Kanada en
auk þeirra hafa 15 aðrar síma-
stjórnir í Evrópu, N.-Ameríku
og Asíu keypt afnotarétt á
honum. Heildarkostnaður við
lagningu sæsímans er 384 millj-
ónir Bandaríkjadala og hlutur
Pósts og síma af því er 22 millj-
ónir Bandaríkjadala. Samningar
um þetta voru undirritaðir 8. og
9. október sl.
Sæstrengurinn mun að nokkru
leysa gervihnattasambönd af
hólmi hér á landi þótt áfram
verði hér rekin jarðstöð til vara.
Til lengri tíma litið verður notk-
un sæstrengsins ódýrari heldur en
leiga á gervihnattasamböndum
og með aukinni notkun má gera
ráð fyrir að gjöld til notenda
lækki.
Talið er að fjárfesting Pósts og
síma geti borgað sig upp á nokkr-
um árum og að strengurinn verði
notaður í um 25 ár. Áformað er
,að hann verði tekinn í notkun 1.
október 1994 en strengurinn
kemur í land í Klaufinni í Heima-
Hljómsveit Ingimars Eydal flutti nokkra gamla slagara við frábærar undir-
tektir. Gestir ærðust af fögnuði þegar Þorvaldur Halldórsson söng lagið góð-
kunna, Á sjó. Myndir: Robyn
Landslagiö 1992
Ég man hverja stund
Höfundur lags: Jón Kjeli Seljeseth
Texti: Jónas Friðrik Guðnason
Ég man hverja stund hvern stað sem bros þitt kyssti.
Hver stjarna sem skín, ný veröld sem ég gisti.
Þú vaktir úr vetrarfjötrum
von og þrá og kveiktir eld á ný.
Og þú leiðir mig um lífsins braut,
þá Ijúfu töfraslóð.
Á stað sem enginn annar sér,
þar sem allan heiminn eignast ég með þér.
Þeim heimi sem var og huldist dimmum skýjum
ég heilsa I dag svo töfrandi og nýjum.
Þú kysstir af köldu hjarta
klakabönd og vaktir gleymdan yl.
Og nú hlusta ég við ástareld
á unaðslegan söng
á stað sem enginn annar sér,
þar sem allan heiminn eignast ég með þér.
Ég man sérhvert orð hvert augnatillit geymi.
Því ekkert jafn dýrt er til í þessum heimi.
Þú sýndir mér huliðsheima,
helga jörð, og valdir okkur stað.
Og ég uni mér við augu þín
og okkar draumaspil.
Ástað sem enginn annar sér.
Þar sem allan heiminn eignast ég með þér,
með þér,
þar sem allan heiminn eignast ég með þér.
Alltaf með þér.
Kortið sýnir leiðina sem Ijósleiðarinn verður lagður.
ey. Á fjárlögum næsta árs er gert erlent lán til að fjármagna þessar
ráð fyrir að Póstur og sími taki framkvæmdir.