Dagur - 24.11.1992, Síða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 24. nóvember 1992
ÍÞRÓTTIR
Blak, 1. deild karla:
Auðveldur sigur KA
- unnu Þrótt Neskaupstað tvívegis 3:0
Áki Thoroddsen lék vel fyrir KA.
„Það er alltaf gott að vinna,
enda mál til koinið,“ sagði
Stefán Jóhannesson þjálfari
karlaliðs KA í blaki þegar lið
hans hafði tvisvar á jafn mörg-
um dögum, borið sigurorð af
Þrótti frá Neskaupstað. KA
vann báða leikina 3:0, enda lið
KA talsvert sterkara.
í seinni leiknum byrjaði Þrótt-
ur reyndar betur og komst í 5:3.
Þá komu 11 stig í röð hjá KA.
Þróttur náði síðan að bæta tveim
stigum við áður en KA kláraði
|hrinuna. í næstu hrinu tók KA
! völdin strax í upphafi og hélt for-
Blak, 1. deild kvenna:
Tvöfalt hjá
stelpunum í KA
1. deildar lið KA og Þróttar frá
Neskaupstað áttust tvívegis við
í Islandsmótinu í blaki um
helgina. Báðir leikirnir voru í
KA-húsinu og unnu KA-stelp-
ur þá báða. Fyrri leikurinn
vannst 3:1 en sá seinni var í
meira lagi köflóttur.
Líkast til hefur lið KA mætt
helst til sigurvisst til leiks í seinni
viðureign liðanna. í 1. hrinunni
voru þær hreinlega ekki með í
leiknum. Þær skoruðu að vísu 2
íyrstu stig hrinunnar en síðan
komu 14 stig í röð hjá Þrótturum.
Hjá þeim var leikgleðin í fyrir-
rúmi og trú á því sem þær voru að
gera. Algert baráttuleysi ein-
kenndi lið KA og virtist engin
stelpnanna ná sér á strik. Þróttur
vann hrinuna 15:3. Þróttarstelpur
byrjuðu næstu hrinu af sama
krafti, en eftir að KA hafði skor-
að 2 fyrstu stigin, var sem allur
vindur væri úr liðinu og var það
óþekkjanlegt frá fyrri hrinu.
Sama má reyndar segja um lið
KA. Þegar staðan var 12:0 fyrir
KA virtist sem Þróttarstelpur
vöknuðu smá stund. Þær náðu þó
ekki að skora stig og KA kláraði
hrinuna 15:0.
KA byrjaði 3. hrinuna betur og
komst í 7:3. Þá datt botninn úr
leik liðsins og 9 stig í röð hjá
Þrótti breytti stöðunni í 7:12. Þá
komst KA aftur inn í leikinn og
náði að skora 4 stig en Þróttar-
stelpur voru ekki á því að gefa
eftir og unnu hrinuna 5:11. í 4.
hrinu náði KA stemmningunni
aftur upp og þá var ekki að sök-
um að spyrja. Öruggur 15:1 sigur
þeirra var aldrei í hættu. í odda-
hrinunni voru KA-stelpur einnig
sterkari og unnu hana 15:5 og þar
með leikinn 3:2. Sveiflurnar í
leiknum voru ótrúlega miklar og
virtist sem hvorugt liðið þyldi
smá mótbyr. Þá datt leikur þeirra
niður. Er þetta hlutur sem þjálf-
arar liðanna hljóta að taka fyrir.
Sigur KA var sanngjarn enda
talsverður getumunur á liðunum.
Hrefna Brynjólfsdóttir og Halla
Halldórsdóttir fyrirliði áttu báðar
góðan leik og þá var Jasna Popo-
vic sterk og átti sérlega góðan
leik í 4. hrinu. Stelpurnar í KA
kræktu því í 6 stig um helgina en
Þróttarstelpur í 3.
Aðalheiður Sigursveinsdóttir gaf hvergi eftir í leikjum helgarinnar og skellti
grímmt á ÞrÓttara. Mynd: Robyn
ystunni allan leikinn. Stefán not-
aði skiptimennina talsvert og lof-
aði flestum að reyna sig. í þessari
hrinu átti Áki Thoroddsen mjög
góðan leik og réðu Þróttarar
hreinlega ekkert við hann. 3.
hrina leiksins var áberandi
skemmtilegust fyrir þá sök að
Þróttarar sýndu meiri mótspyrnu
en í fyrri hrinum. Þeir komust í
8:2 og 10:3. KA-menn hafa líkast
til verið of sigurvissir og litlu
mátti muna að þeir hleyptu Þrótti
of langt frá sér. Baráttan kom þó
um síðir hjá KA og náði það að
jafna leikinn 12:12 og síðan gerði
það út um leikinn 15:12. í þess-
um tveim leikjum náði liðið ekki
að sýna hvað í því býr þar sem
umtalsverður getumunur var á
liðunum. Það sýndi þó talsverðan
styrk að náð að vinna upp forskot
Þróttara í 3. hrinunni. Eins og
Stefán Jóhannesson sagði þá er
erfitt fyrir mannskapinn að halda
einbeitingu undir svona kringum-
stæðum og því sagðist hann vera
sæmilega sáttur við leik liðsins.
Bjarni Þórhallson var sterkur að
vanda og einnig átti Áki Thor-
oddsen góðan leik. Næsti leikur
liðsins er á heimavelli gegn HK.
Bjarm Þorhallsson fyrirliði KA getur verið ánægður með árangur helgarinnar þai
og 6 stig eru í höfn.
íslandsmót í íshokkí:
Meiri spenna en í fyrra
- ijöldi útlendinga í deildinni
A laugardaginn hófst Islands-
mótið í íshokkí með leik
Bjarnarins og SR sem þeir
síðarnefndu unnu 11:1. Eins
pg í fyrra eru 3 Iið með í
íslandsmótinu en auk þeirra
sem þegar hafa verið nefnd er
það Skautafélag Akureyrar.
Akureyringar eru nú í óða önn
að búa sig undir tímabilið en þeir
eiga titil að verja þar sem liðið
stóð uppi sem sigurvegari síðast-
liðið vor. Næstkomandi laugar-
dag er fyrsti leikur liðsins gegn
Birninum og verður leikið fyrir
sunnan.
Mótið í ár er með nokkuð
breyttu sniði frá fyrra ári. Sem
fyrr er það Bauer-umboðið á ís-
landi sem er aðal styrktaraðili
mótsins og ber það nafn fyrir-
tækisins. Mótið verður í tvennu
lagi. Fyrst er leikin forkeppni í 3
umferðum og 2 efstu lið forkeppn-
innar leika síðan til úrslita þar
til annað liðið hefur unnið 3 leiki.
í úrslitakeppninni er leikið til
þrautar og fer fram vítakeppni
verði jafnt að lokinni framleng-
ingu. Er þetta gert að erlendri
fyrirmynd og er búist við að með
þessu komi aukin spenna í mótið.
Eins og skýrt hefur verið frá í
blaðinu, er finnski þjálfarinn
Pekka Santanen nú mættur til
Skautafélags Akureyrar og mun
þjálfa alla flokka félgsins í vetur
ásamt því að leika með meistara-
flokki. Hin félögin 2 hafa styrkt
sig nokkuð frá fyrra ári. Skauta-
félag Reykjavíkur er einnig með
Bikarkeppnin
í körfubolta
UBK-Grindavík
ÍBK-ÍS
Valur-ÍR
SkallagE-Þór
Snæfell-Haukar B
84:78
125:60
93:55
110:78
120:55
finnskan þjálfara og nú fyrir
stuttu réðu það til sín mjög sterk-
an markvörð frá Finnlandi. Auk
þess leika tveir Rússar úr sendi-
ráðinu með þeim. Björninn er
með 5 Bandaríkjamenn af Kefla-
víkurflugvelli á sínum snærum.
Það verður því mikið um erlenda
leikmenn í mótinu í vetur. Áhugi
á íshokki hefur vaxið með undra-
verðum hraða á síðustu árum.
Akureyringar riðu á vaðið með
opnun vélfrysta skautasvellsins í
Innbænum og síðan hefur einnig
verið sett upp skautasvell í Laug-
ardalnum í Reykjavík. Því má
búast við spennandi keppni í vet-
ur og framtíðin er björt fyrir
íshokkí hér á landi. Um það vitn-
ar hinn mikli fjöldi sem sækir
æfingar hjá SA í hinum ýmsu
aldursflokkum.
Pekka Santanen þjálfari SA stjórn-
aði sínum mönnum af mikilli rögg-
semi þegar Ijósmyndari leit við á
æfingu um helgina. Mynd: Robyn
Bikarkeppnin í körfuknattleik:
Þórsarar máttu
játa sig sigraða
Körfuknattleikslið Þórs mátti
sætta sig við fyrsta tap vetrar-
ins þegar það mætti úrvals-
deildarliði Skallagríms á föstu-
dagskvöldið. Leikurinn var í
16 liða úrslitum bikarkeppni
KKÍ og fór fram í Borgarnesi.
Heimamenn unnu sanngjarnan
sigur 110:78.
Heimamenn byrjuðu leikinn af
miklum krafti og náðu snemma
20 stiga forskoti. Undir lok fyrri
hálfleiks náðu Þórsarar að klóra í
bakkann og í leikhléi var munur-
inn 12 stig. í síðari hálfleik tóku
Borgnesingar aftur öll völd á vell-
inum og sigruðu sem fyrr segir
með 32 stiga mun, 110:78. Það
sem helst fór úrskeiðis hjá Þórs-
liðinu var að hittnin var í algeru
lágmarki og náðu menn sér eng-
an veginn á strik í langskotunum.
Á sama tíma gekk allt upp hjá
Borgnesingum og þeir röðuðu
inn stigunum. Virtist nokkuð
sama hvað þeir reyndu, allt rat-
aði ofan í körfuna. Lið Skalla-
gríms er talsvert hávaxnara en
Þórsliðið og sást það greinilega á
leik liðanna. Tíð brot Borgnes-
inga settu leiðinlegan svip á leik-
inn og sló þetta hið unga lið Þórs
nokkuð út af laginu. Sem fyrr
segir náðu Þórsarar sér ekki á
strik í leiknum. Konráð Óskars-
son var stigahæstur með 27 stig,
en frammistaða annarra er vart
til frásagnar.