Dagur - 24.11.1992, Side 9
Þriðjudagur 24. nóvember 1992 - DAGUR - 9
Halldór Arinbjarnarson
Ómar Þorsteinn Árnason sundkappi:
,Árangur fslendinga er í Mu samræmi við aöstæöumar“
r sem 2 sigrar
Ómar Þorsteinn Arnason,
sundkappi úr Óðni á Akureyri,
hefur verið að gera góða hluti
að undanförnu. A unglinga-
meistaramóti Islands fyrir
skömmu sigraði hann í 4 grein-
um og setti 3 Akureyrarmet. í
bikarkeppni SSÍ helgina eftir
bætti hann svo einu metinu
enn í safnið. Hann sagðist
reyndar ekki hafa tölu á þeim
Akureyrarmetum sem hann
hefur sett.
„Ætli það séu ekki orðin 7 ár
síðan ég fór að æfa sund reglu-
lega,“ sagði Ómar þegar Dagur
fékk hann í viðtal nú á dögunum.
Upphaflega var það vinur hans
sem dró hann með sér en nú er
strákurinn kominn í fremstu röð
á íslandi í sínum flokki og löngu
hættur að vera efnilegur. Hann er
einfaldlega góður. „Vissulega er
þetta skemmtilegt því annars
væri maður ekki í þessu, en þetta
er líka mjög erfitt og tekur mik-
inn tíma.“ Eins og er eru æfingar
6 sinnum í viku en eftir áramót
verður þeim fjölgað og þá farið
að æfa 7-8 sinnum. Hver æfing
tekur allt upp í 2 tíma. Auk
sundæfinganna hefur verið æft
með lóðum og einnig hlaupið úti
fyrr í haust.
Þýska
knattspyman
Útslit:
Saarbrúcken-HSV 0:3
Bochum-Dresden 2:2
Númberg-Wattenscheid 2:1
Stpttgart-Dortmund 1:0
Uerdingen-Kaiserslautern 0:5
Schalke-Frankfurt 0:0
Karlsruhe-Köln 3:1
Leverkusen-Bayern Múnchen 2:4
Bremen-Mönchengladbach 2:0
Staðan:
Bayern Múnchen 14 9-4-1 30:15 22
Fránkfurt 14 6-7-1 26:16 19
Bremen 14 7-5-2 24:16 19
Karlsruhe 14 8-2-4 31:24 18
Leverkusen 14 5-6-3 27:15 16
Dertmund 14 7-2-5 24:19 16
Stvttgart 14 6-4-4 21:20 16
Kaiserslautem 14 7-1-6 24:15 15
Númberg 14 6-3-5 13:14 15
Diesden 14 4-5-5 18:2113
Saarbrúcken 14 4-5-5 21:23 13
Schalke 14 4-5-5 16:2113
HSV 14 3-6-5 17:18 12
Wattenscheid 14 3-4-7 21:30 10
Uerdingen 14 3-4-7 15:29 10
Kölni 14 4-1-9 17:26 9
Mönchengladbach 14 2-5-7 18:30 9
Bochum 14 1-5-8 16:26 7
Þau eru mörg verðlaunin sem
Ómar hefur safnað á þessum 7
árum. „Ætli verðlaunapening-
arnir séu ekki um 180 og síðan 30
bikarar og styttur." sagði Ómar.
Aðspurður um hvað það væri
helst sem hann fengi út úr sund-
inu svaraði hann að bæði félags-
skapurinn og hreyfingin væri það
sem héldi honum við efnið. Hann
sagðist mikið spá í heilsusamlegt
líferni, sérstaklega mataræði
o.þ.h. „Aðvitað er erfitt að
standast allar freistingar en t.d.
fyrir Evrópumeistararmótið í
ágúst þá var maður í algeru
nammibindindi síðustu 2 mánuði
fyrir mót.“ Ómar sagðist stefna á
Ómar Þorsteinn Árnason. Mynd: HA
að halda áfram í sundinu í ein-
hver ár í viðbót og vera bjartsýnn
á góðan árangur í framtíðinni.
Næst var hann spurður um
aðstöðu til sundiðkunnar á Akur-
eyri. „Það er auðvitað ekki hægt
að líkja aðstöðunni hér á landi
við það sem þekkist erlendis. Ég
tel að árangur íslensks sundfólks
sé fyllilega í samræmi við þá
aðstöðu sem boðið er uppá. Að
mínu mati er óraunhæft að gera
mikið meiri kröfur um árangur
meðan aðstæðurnar eru ekki
betri en raun ber vitni. Við þurf-
um að æfa meðan almenningur er
í sundi sem skapar allskonar
vandamál. Bæði þarf að hafa
laugina heitari en æskilegt er
miðað við sundæfingar og síðan
eru alltaf einhverjir að flækjast
fyrir okkur.“
Ómar stundar nám í Mennta-
skólanum á Akureyri og sagðist
vera bjartsýnn á framtíðina.
Næsta stórmót innanlands er
innanhússmeistaramótið í mars.
„Núna er ég að reyna að ná lág-
mörkum fyrir Luxemborgarmót-
ið í apríl. Það er reyndar búið að
herða lágmörkin, bæði fyrir Evr-
ópumeistaramótið og Luxem-
borgarmótið en ég stefni þó
ótrauður á að ná þessum lág-
mörkum, allavega í 100 m. flug-
sundi, sem er mín aðal grein.
Að lokum var rætt um þátt
fjölmiðla í umfjöllun um íþróttir
Og þar sagði Ómar að margt væri
að. „í flestum einstaklings-
íþróttagreinum þarf að leggja
harðar að sér til að ná góðum
árangri en í ýmsum hópíþróttum.
Samt fá hópíþróttirnar miklu
meiri umfjöllun. Ég er ekki bara
að tala um sundið heldur flestar
greinar fyrir utan handbolta og
fótbolta. Þarna finnst mér að
fjölmiðlar gætu gert betur,“ sagði
sundkappinn Ömar Þorsteinn
Árnason að lokum.
Herrakvöld
hjá KA
Herrakvöld KA verður haldið
á föstudagskvöldið.
Þar verða í boði hin ótrúleg-
ustu skemmtiatriði og ýmis
skemmtileg happdrætti og hluta-
veltur í gangi. Áhugasamir geta
haft samband upp í KA-hús í
síma 23482. Vissara er að tryggja
sér miða í tíma þar sem búast má
við fullu húsi og vel það.
Handbolti yngri flokka:
ÞórmeðMthús
Um heigina var keppt í
íslandsmóti 3. ttokks og
stóðu Akureyrarliðin sig
ágætlega.
Kvennalið KA keppti í 2.
deild. Liðið vantar reynslu þar
sem það var ekki með f 1. fjöl-
liðamótinu. Það tapaði 2 leikj-
um, gerði 1 jafntefli og vann 1
leik. Strákarnir í KA kepptu í
2. deild og komust ekki upp að
þessu sinni. Liðið tapaði
aðeins einum leik, á móti FH,
sem komst upp í 1. deild.
Þórsarar kepptu í 3. deild.
Liðið vann alla sína leiki
örugglega og komst upp í 2.
deild þar sem liðið leikur í
næsta fjölliðamóti.
Nánar verður sagt frá leikj-
um liðanna á morgun.
Handbolti
- bikarkeppnin
ÍH-KA 21:27
Haukar-Fram-b 35:18
Víkingur-UMFA 22:19
FH-b-Valur 19:32
ÍR-b-Grótta 23:27
ÍBV-ÍR 31:27
Selfoss-HK 29:25
Fram-UBK 27:22
Bayera að stínga af?
- Eyjólfur kom inn á og lagði upp mark
Nú um helgina fór fjórtánda
umferð þýsku úrvalsdeildarinnar
í knattspyrnu fram. Lið Bayern
Munchen er firnasterkt þessa
dagana og á laugardaginn tókst
liðinu að ná í bæði stigin til
Leverkusen þar sem Bayer Lever-
kusen tók á móti því í toppbar-
áttuslag. Heiko Scholz náði for-
ystunni fyrir heimamenn á 11.
mín. en á 57. mín. náði Ziege að
jafna fyrir Bayern. Þá var komið
að Lothar Mattháus, leikmanni
Bayern og fyrirliða þýska lands-
liðsins, að sýna hvað í honum
býr. Hann hefur mátt þola mikla
gagnrýni undanfarið vegna dapr-
ar frammistöðu með liði Bayern
sem hann hóf leik með nú í vetur
eftir að hafa leikið á Ítalíu
undanfarin ár. Hann sleit kross-
bönd í hné sl. vor og menn hafa
gagnrýnt hann fyrir að hafa byrj-
að of snemma að spila aftur, sem
og þjálfara hans hjá Bayern og
þýska landsliðinu fyrir að velja
hann yfirleitt í lið. Ribbeck,
þjálfari Bayern, og Vogts lands-
liðsþjálfari hafa hins vegar staðið
við bakið á honum og á 69. mín.
leiksins í Leverkusen þakkaði
Matthaus þeim traustið með því
að skora stórglæsilegt mark með
því að taka boltann viðstöðulaust
á lofti á 20 metra færi og hamra
hann efst í markhornið fjær. Hol-
lenski landsliðsmaðurinn Jan
Wouters bætti síðan þriðja mark-
inu við fyrir Bayern á 75. mín.
Andreas Thom minnkaði muninn
síðan fyrir Leverkusen með
marki á 87. mín. en Bruno Labba-
dia innsiglaði sigur Bayern
Munchen með marki á síðustu
mínútu leiksins. Bayern hefur nú
náð þriggja stiga forystu í deild-
inni og eins og staðan er í dag
virðist fátt geta komið í veg fyrir
að liðið nái að vinna meistaratitil-
inn.
■ Eftir að hafa fengið aðeins eitt
stig úr síðustu þremur leikjum
virðist Stuttgart eitthvað aðeins
vera að rétta úr kútnum, en liðið
lagði Borussia Dortmund að velli
1:0. Leikurinn þótti að vísu ekk-
ert mjög vel leikinn og leikmenn
Stuttgart mega þakka markverði
sínum, Eike Immel, að ekki fór
verr. Eyjólfur Sverrisson sat á
bekknum aðra helgina í röð en
núna fékk hann þó að koma inn á
HM í lyftingum:
Kári Elíson náði 6. sæti
- Guðni Siguijónsson krækti í silfurverðlaun
Kári Elíson lyftingamaöur frá
Akureyri er nú staddur í Birm-
ingham í Englandi þar sem
hann tekur þátt í Heimsmeist-
aramótinu í lyftingum. Kári
keppti á föstudaginn í 75 kg.
flokki og hafnaði í 6. sæti sem
verður að teljast mjög góður
árangur.
Kári lyfti 235 kg. í réttstöðu-
lyftu, 177,5 kg. í bekkpressu og
288 kg. í hnébeygju. Samtals eru
þetta 692,5 kg., sem tryggðu
Kára 6. sætið. Auk þess eru veitt
verðlaun fyrir hverja einstaka
<ári Elíson lyfti 288 kg í hnébeygju á Heimsmeistara-
nótinu.
grein og þar krækti Kári í silfur-
verðlaun í bekkpressu. Heims-
meistari í þyngdarflokki Kára
varð Bandaríkjamaðurinn Dave
Ricks. Guðni Sigurjónsson heims-
meistari í 110 kg flokki ná?; ekki
að verja titil sinn þó litlu mun-
aði. Guðni náði -úfurverð-
laununum sem er frábæi t:'"ur.
Hann lyfti samtals 915 kg. og
setti nýtt íslandsmet. Þá krækti
hann í gullverðlaun í réttstöðu-
lyftu þar sem hann setti einnig
Islandsmet með því að lyfta 316
kg-
og það var einmitt hann sem
lagði upp eina mark leiksins á 84.
mín. Eftir að Gaudino, sem einn-
ig var varamaður í þessum leik,
hafði misst boltann rétt utan víta-
teigs náði Eyjólfur honum, lék
inn í teiginn framhjá þremur
varnarmönnum Dortmund og
renndi boltanum síðan til Walt-
ers sem þurfti ekki annað en að
stýra boltanum í autt markið.
■ Kaiserslautern hefur leikið vel
í undanförnum leikjum og á laug-
ardaginn tók liðið Bayer Uerd-
ingen í bakaríið. Leikurinn, sem
fór fram í Uerdingen, endaði 0:5.
Kaiserslautern, sem sló Fram út í
Evrópukeppni félagsliða nú í
haust, mætir Ajax Amsterdam í
sömu keppni í kvöld (þriðjudag).
Liðið virðist til alls líklegt þrátt
fyrir að margir leikmenn liðsins
séu á sjúkralista. Hotic, Daninn
Goldbaek, Marin og Witeczek
(tvö) skoruðu mörk liðsins gegn
Uerdingen.
■ Leiðinlegasti leikur umferðar-
innar var án efa leikur Schalke og
Frankfurt. Hann endaði með
markalausu jafntefli sem leik-
menn beggja liða virtust sáttir við
Eyjólfur Sverrisson lagði upp sigur-
mark Stuttgart um helgina.
en áhorfendur voru ekki eins
ánægðir og púuðu og blístruðu á
leikmenn liðanna síðustu mfnút-
ur leiksins.
■ Karlsruhe tókst að rífa sig upp
í fjórða sætið með góðum sigri á
heimavelli gegn Köln 3:1. Leik-
menn Kölnar voru afskaplega
þægilegir gestir í Karlsruhe á
laugardaginn og til marks um það
skoraði Rudy glæsilegt sjálfs-
mark á 15. mín. Kirjakow og
Bender bættu síðan tveimur
mörkum við fy.rir heimamenn en
Henri Fuchs minnkaði síðan
muninn fyrir gestina á 76. mín.
■ Werder Bremen vann örugg-
an sigur á lélegu liði Borussia
Mönchengladbach 2:0. Sigurinn
hefði getað orðið miklu stærri en
það var ekki fyrr en á 62. mín. að
Bode náði að skora fyrir Brem-
en. Tveimur mínútum síðar skor-
aði síðan Austurríkismaðurinn
Herzog, eða „Alpa Maradonna"
eins og hann er kallaður í þýsk-
um fjölmiðlum.
■ Að venju fóru þrír leikir fram
á föstudagskvöldið. Bochum og
Dresden skildu jöfn 2:2. Stevic
skoraði bæði mörk Dresden í
fyrri hálfleik en í upphafi þess
síðari fékk hann að líta rauða
spjaldið fyrir ljótt brot. Leik-
menn Bochum tvíefldust og
Reekers og Dressel náðu að
jafna leikinn. Mark Dressels kom
á 90. mín.
■ Eitthvað virðist vera að lifna
yfir liði Hamburger. Eftir af-
spyrnuslakt gengi í vetur hefur
liðið nú unnið tvo leiki í röð 3:0.
í þetta sinn gerði liðið góða ferð
til Saarbrucken. Báron, sem kom
inn á sem varamaður, gerði tvö
mörk og Schoor það þriðja.
■ Nurnberg, sem á í gífurlega
miklum fjárhagserfiðleikum um
þessar mundir, lagði lið Watten-
scheid að velli 2:1. Emmerling
náði forystunni fyrir gestina í
fyrri hálfleik en Olivares og Eck-
stein náðu að svara fyrir heima-
menn í síðari hálfleik og tryggja
því þar með sigur.
Árni Hermannsson.