Dagur


Dagur - 24.11.1992, Qupperneq 11

Dagur - 24.11.1992, Qupperneq 11
Þriðjudagur 24. nóvember 1992 - DAGUR - 11 Kvikmyndarýni Jón Hjaltason Skautað af lífs og sálarkröftum Borgarbíó sýnir: Á hálum ís (Cutting Edge). Leikstjóri: Paul M. Glaser Aðalhlutverk: D. B. Sweeney og Moira Kelly. MGM 1991 A hálum ís er bíómynd um skautafólk, íshokkýspilara og skautadansara af hinu gagnstæða kyni. íshokkýleikmaðurinn (D. B. Sweeney), sem er auðvitað bestur sinna meðgöngumanna í faginu, verður fyrir því óhappi að slasast í leik og skaðast á auga þannig að sjónin daprast honum eitthvað lítilsháttar. Fyrir vikið vill ekkert atvinumannalið fá hann í sínar raðir og framtíðin er heldur dökk. Kemur þá til hans þjálfari skauta- drottningar einnar (sem Moira Kelly leikur) og vill fá hann til að dansa á móti stúlkunni. Hún reynist vera hið mesta skass, einkabam og ofdekruð. Enginn skautamaður hefur þolað hana til lengdar. Sweeney er seinasta hálmstrá þjálfarans en bæði hann og föður stúlkunnar dreymir um að henni takist að vinna til gull- verðlauna á Olympíuleikum. Byrjar svo glíma þeirra tveggja, stúlkunnar, sem gerir Sweeney allt til böivunar, og hins fyrrverandi íshokkýleikmanns. Eftir þessu getið þið ímyndað ykkur sögukaflana sem fylgja á eftir. Hitt sjáið þið ver að þrátt fyrir að Á hálum ís sé nánast í alla staði venjuleg samsuða íþrótta- mynda og fjandvinabíósins þá er hún bara ansi skemmtileg, bæði vel unnin og vel leikin. Leikstjórinn fær ekki nema um það bil þrjár mínútur til að gera Sweeney að íshokkýhetju í augum bíófarans. Hann notar þennan skamma tíma vel og tekst ætlun- arverkið. Þegar æfingar þeirra tveggja hefjast, Kelly og Sweeney, gengur allt á afturfótun- um fyrir hokkýspilaranum sem hefur ekki hugmynd um eðli og tilgang tannahrauksins framan á skautunum sem honum er sagt að bera. Þannig fær Sweeney tvær hindranir að yfirstíga; aðra að ná valdi yfir skautunum og um leið dansinum en hin er öllu erfiðari, að halda geðheilsu sinni í návist Kelly. Framan af er það þetta tvennt sem heldur myndinni gang- andi. Aðrir leikarar eru varla til annars en uppfyllingar, jafnvel faðirinn er ekki annað en skuggamynd. Það er helst að þjálfarinn fái einhverja rullu að spila en hún er óveruleg. Á hálum ís snýst fyrst og fremst í kringum parið; fyrst fjandvinasamband þeirra og síðan ástvina. Og þau Sweeney og Kelly eru svo sannarlega leikarar sem geta staðið undir 90 mínútna (eða þar um bil) langri kvikmynd. Frammistaða þeirra er afbragðs- góð, jafnt í sorg sem gleði, leik sem keppni, tekst þeim að halda sínu striki og bíófaranum vakandi. D. B. Sweeney hugar aö kylfu sinni en Moira Kelly horfir á grunsam- lega sakleysisleg á svip. ' D. B. Sweeney hugar að kylfu sinni en Moira Kelly horfir á grunsamlega sakleysisleg á svip. Samtök fámennra skóla: Vilja fá að taka virk- an þátt í umræðimni - um tilfærslu kostnaðar vegna grunn- skólahalds frá ríki til sveitarfélaga Undanfarið hefur sveitarfélaga- nefnd kynnt áfangaskýrslu sína um aukið hlutverk sveitarfé- laga. Þar er m.a. gert ráð fyrir því að allur kostnaður vegna grunnskólahalds verði færður yfir á sveitarfélögin 1. ágúst 1994. Vegna þess vilja Samtök fá- mennra skóla ítreka þá skoðun sína að stjórnvöld færi ekki kostnað af grunnskólahaldi yfir á sveitar- félögin nema að undangenginni mjög ítarlegri umræðu allra sem málið varðar. „Samtökin leggja ríka áherslu á að fá að taka virkan þátt í þeirri umræðu enda er mikilvægt að hagsmuna og sérstöðu fámennra skóla sé vandlega gætt. Hinn fámenni skóli er menningarlegur og uppeldislegur hornsteinn síns byggðarlags og því mikilvægt að hann fái að eflast og dafna um ókomna framtíð í íslensku sam- félagi,“ segir í frétt frá samtökum fámennra skóla. Þess má geta að Samtök fá- mennra skóla eru samtök allra grunnskóla á landinu, sem þurfa vegna fámennis að kenna tveim- ur eða fleiri árgöngum saman í einni deild. .PJODUiyi AIVIBRA TOLVUR A FRABÆRU KYIUIUIMQARVERÐI 24.-30. IUOVEMBER Nýherji og Tölvutæki bjóða AMBRA tölvur á sérstöku kynningarverði dagana 24.-30. nóvember. Þetta er sama tilboð og Nýherji var með í Reykjavík þegar um þrjú hundruð tölvur seldust á fjórum dögum. AMBRA er ný hágæða tölva og hefur þegar slegið í gegn á íslenskum tölvumarkaði vegna ótrúlegra gæða og lágs verðs. Nýttu þér þetta einstaka tækifæri á markaðinn það gefst. AMBRA Sprinta 386SX, 25 MHZ tiftíðni, 4 MB innra minni, 80 MB diskur, SVGA litaskjár, mús, DOS 5.0, Windovw3.1 Kynningarverfi: AMBRA Sprinta 486SX, 25 MHZ tiftlðni, 4 MB innra minni, 100 MB diskur, SVGA litaskjár, mús, DOS5.0, Windows 3.1 Kynningarverð: AMBRASprinta 486DX, 33 MHZtiftlöni, 4 MB innra minni, 100 MB diskur, SVGA litaskjár, mús, DOS 5.0, Windovw 3.1 Kynningarverð: 93.000 131.000 170.000

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.