Dagur


Dagur - 24.11.1992, Qupperneq 16

Dagur - 24.11.1992, Qupperneq 16
MWJR Akureyrí, þriðjudagur 24. nóvember 1992 myndstækkarinn frá KODAK Hágæöa litstækkun á 5 mínútum ^Pedíomyndir Skipagötu 16 - Sími 23520 Norðurland: Flestir Mar álögreglumaim á Blönduósi Á Norðurlandi eru flestir íbúar á hvern lögreglumann í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunn- arssonar (G-Vf) um umfang löggæslu. í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi búa 3969 manns. Lög- reglumennirnir eru 5 og því telj- ast 794 íbúar koma í hlut hvers. Á Sauðárkróki eru 7 lögreglu- menn og íbúatalan var 1. júlí sl. 4609, 658 íbúar á hvern lögreglu- mann. Á Húsavík eru 9 lögreglu- menn. íbúarnir eru 5892, sem gefur að 655 íbúa á hvern lög- reglumann. Á Akureyri/Dalvík eru 33 lögreglumenn. íbúarnir eru 19322, eða 586 íbúar að með- altali á lögreglumann. í Ólafsfirði eru 2 lögreglumenn, íbúarnir eru 1170, 585 íbúar að meðaltali á lögreglumann. Á Siglufirði eru 6 lögreglumenn. íbúarnireru 1771, eða 295 á hvern lögreglumann. óþh Bflvelta við Engimýri Lögreglunni á Akureyri barst tilkynning um bílveltu frá Engimýri í Öxnadal laust fyrir klukkan fjögur aðfaranótt sunnudagsins. Lögreglubíll sem og sjúkrabfll fóru á staðinn. Jón Kjell Seljeseth höfundur Landslagsins 1992: Hugsaði lagið fynr stóra hljómsveit Sigurvegarar kvöldsins, Guðrún Gunnarsdóttir, Pálmi Gunnarsson og Jón Kjell Seljeseth „Ég neita því ekki að þetta er mesti heiður sem ég hef til þessa orðið aðnjótandi,“ sagði Jón Kjell Seljeseth þeg- ar Ijóst var að lag hans, Eg man hverja stund við texta Jónasar Friðriks Guðnason- ar, hafði verið valið Lands- lagið 1992 í Sjallanum á Akureyri sl. föstudagskvöld. „Upphaflega er þetta „instru- mental“-lag, samið fyrir um tveim árum og ég hugsaði það fyrir stóra hljómsveit. Ég hafði ekki hugsað mér að senda lagið í þessa keppni, en Björgvin Halldórsson hvatti mig til þess og þetta varð niðurstaðan,“ sagði Jón og var að vonum kampakátur með úrslitin, enda hlaut hann eina milljón króna í verðlaun. Þau Pálmi Gunnarsson og Guðrún Gunnarsdóttir sungu lag Jóns Kjell og hlutur þeirra var stór. Dómnefndin valdi þau bestu flytjendur keppninnar og því náðu þau þeim frábæra árangri að vinna tvöfalt. „Ég verð að viðurkenna að úrslitin komu mér mjög á óvart,“ sagði Guðrún Gunnarsdóttir, en hún tók nú í fyrsta skipti þátt í keppninni um Landslagið. „Mér finnst þetta vera viður- kenning og ávöxtur mikillar vinnu í gegnum árin,“ bætti hún við. Guðrún sagðist hafa verið afar hrifin af lagi Jóns Kjell, það hefði verið þess eðlis að ekki hafi verið hægt annað en að syngja það vel. Pálmi Gunn- arsson var sammála Guðrúnu um að lagið væri afar fallegt. „Petta er stór tónsmíð, melodí- an er afar sterk.“ Pálmi sagðist telja að mikil breidd hafi verið í Landslagskeppninni að þessu sinni og „það gleður mig hversu margir ungir tónlistarmenn eru að koma upp.“ Pálmi gat þess að Stöð 2 hafi staðið með sér- staklega myndarlegum hætti að Landslagskeppninni í ár. Umgjörð keppninnar hafi verið glæsileg og verðlaun til höfund- ar sigurlagsins væru sérlega vegleg. Auk verðlauna fyrir sigurlag- ið og bestu flytjendurna var veitt viðurkenning fyrir athygl- isverðasta lag keppninnar. Dómnefnd var sammála um að hún skyldi koma í hlut höfunda lagsins Til botns, Akureyring- anna Jóns Andra Sigurðarsonar og Trausta Heiðars Haraldsson- ar. Þeir voru að vonum ánægð- ir. „Við höfðum stefnt að þessu, en vissulega kom þetta okkur á óvart. Þessi viðurkenning gefur okkur mikla möguleika og hvet- ur okkur til að halda ótrauðir áfram og það munum við örugg- lega gera. Við viljum koma á framfæri sérstöku þakklæti til Þorvaldar B. Þorvaldssonar fyr- ir hans hlut,“ sögðu þeir Jón Andri og Trausti Heiðar. Ingimar Eydal, hljómlistar- maður á Akureyri, sem var for- maður dómnefndar Landslags- keppninnar, var heiðraður sér- staklega f Sjallanum fyrir ára- tuga starf hans að íslenskri dægurtónlist. Er óhætt að segja að Ingimar hafi verið vel að þeirri viðurkenningu kominn, enda vitnaði langvinnt lófa- klapp gesta í Sjallanum um það. óþh Norðlenskir Edinborgarfarþegar fóru lengri leiðina heim: í rútum norður frá Reykjavík - „farþegar hafa sýnt stóíska ró,“ segir Anna Guðmundsdóttir Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknarlögreglunni á Akur- eyri voru auk ökumanns þrír farþegar í bílnum. Er á slysstað var komið reyndist einn farþeg- anna það slasaður að flytja þurfti hann til slysadeildar Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. Sam- kvæmt upplýsingum frá tals- manni Slökkviliðs Akureyrar var hinn slasaði sendur suður til Reykjavíkur á sjúkrahús. Upp- lýsingar fengust ekki í gær um meiðsl eða líðan hins slasaða. Bíllinn er talinn gjörónýtur. ój Nú er verið að kanna mögu- leikann á því að leigja út versl- unarrekstur útibús Kaupfélags Eyfirðinga í Hrísey, en stjórn KEA hefur veitt heimild til að það verði skoðað. Ráðning í stöðu frystihússtjóra í Hrísey er til umfjöllunar hjá stjórn Kaupfélags Eyfirðinga. Staðan var auglýst á sínum tíma og nær tuttugu umsóknir bárust. Fimmtudaginn 19. nóvember fóru eitt hundrað og fimmtíu farþegar í beinu flugi frá Akur- eyri til Edinborgar á vegum Jóhann Þór Halldórsson, sem gegnt hefur um árabil útibús- stjórastöðu Kaupfélags Eyfirð- inga í Hrísey er hættur störfum. Útibússtjórinn fyrrverandi er fluttur austur á land þar sem hann hefur tekið við fram- kvæmdastjórastöðu útgerðarfyr- irtækis. Jón Þór Gunnarsson hef- ur til bráðabirgða sinnt verslun- ar- og frystihússrekstri Kaupfé- lags Eyfirðinga í Hrísey. Úrvals-Útsýnar hf. Heimflug tii Akureyrar var ráðgert sunnudaginn 22. og samkvæmt flugáætlun var lendingatími á „Nú í vikunni verður gengið frá ráðningu frystihússtjóra. Uti- bússtjórastaða er ekki til umfjöllunar að svo komnu máli. Heimild liggur fyrir hjá stjórn kaupfélagsins að leigja verslunar- reksturinn út. Þann möguleika er nú verið að kanna,“ segir Sigurð- ur Jóhannesson, fulltrúi kaupfé- lagsstjóra Kaupfélags Eyfirðinga. ój Akureyri áætlaður kl. 21.20. Þegar til kom var ekki hægt að lenda á Akureyrarflugvelli vegna lélegra bremsuskilyrða. Lent var á Keflavíkurflugvelli. „Farþegar biðu átekta á Keflavíkurflugvelli fram yfir miðnætti í von um að hægt yrði að fljúga norður. Klukkan 00.30 var flugi aflýst þar sem bremsu- skilyrðin höfðu versnað enn frekar. Farþegum var ekið til Hótels Loftleiða þar sem þeir höfðu næturdvöl. Ékki var hægt að fá flug fyrir fólkið á mánu- dagsmorguninn frá Reykjavík til Akureyrar. Því var brugðið á það ráð að flytja farþegana norður í rútum sérstaklega í ljósi þess að veðurspá gerði ráð fyrir mjög versnandi veðri er liði á daginn og því óvíst um allt flug. Á þess- um árstíma er allra veðra von og því hafa farþegar sýnt stóíska ró. Óánægjuraddir hafa ekki heyrst um skipan mála,“ segir Anna Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri Úrvals-Útsýnar hf. á Akureyri. ój Bakkus blótaður stíftá Akureyri Mjög bar á ölvun á Akur- eyri aðfaranótt laugardags- ins. Lögreglumenn höfðu í mörgu að snúast. Aðfara- nótt sunnudagsins var mun rólegri. Að sögn talsmanns lögregl- unnar á Akureyri var f mörg horn að líta um helgina. Fjöl- menni var á dansstöðum og Bakkus blótaðúr stíft. Menn fengu pústra og höfuðáverka, föt voru tætt utan af mönnum og rúða var brotin í miðbæn- um. Tveir voru teknir ölvaðir undir stýri. Annar var tekinn þar sem hann ók á umferðar- merki og bifreið hins kom inn á radar á yfir 100 kílómetra hraða. Auk þessa þurfti lög- reglan að hafa afskipti af ölv- uðu fólki í heimahúsum sem oftast um helgar. ój Kaupfélag Eyfirðinga í Hrísey: Hugsanlegt að verslunar- reksturinn verði leigður út - frystihússtjóri ráðinn í vikunni

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.