Dagur - 18.03.1993, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 18. mars 1993
Aðalfundur
Skátafélagsins Klakks
verður haldinn fimmtudaginn 25. mars kl. 21.15
í Hvammi.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Allir skátar 15 ára og eldri eru hvattir lil aö mæta.
Stjórn Skátafélagsins Klakks.
IAZZ-TÓNLEIKAR í KVÖLD
Norsha jazzsöngkonan
MAGNIWENTZEL
og
JAZZTRÍÓ AKUREYRAR
M. 21.00
SJALLINN
Restaurant
staðurLnn á toppnum
Föstudagur 19. mars
Jóna Einarsdóttir
harmonlkusnilllngur fer á kostum
á nikkmini fyrir matargesti
Ii lboðsmatseðill
Silunga- og stórlúðuterrin „Chantilly“.
Rósasteikt andarbringa með ávöxtum í kryddrjóma.
KafB og heimalagað konfekt kr. 2.190.
Pasta með tómatconcasse og smokkflski
kr. 870.
*☆*
Auk þess er boðið upp á fjölbreyttnn
sérréttamatseðil.
*☆*
Athugið: Fiðlarhm4. hæð
Dansleikur Líf og Fjör.
Jóna lítur við og þenur nikkuna
og kemur öllum í stuð.
Borðapantanir í síma 27100.
*☆*
Fólk í gjafahugleiðingum.
Munið gjafakort Fiðlarans,
skemmtileg gjöf við öll tilefni.
Fréttir
Dvalarheimilið Skjaldarvík:
Starfshópur ákveði endur-
ráðningar og tflfærslur
Félagsmálaráð Akureyrar hef-
ur skipað fimm manna starfs-
hóp til að ákveða fyrir hönd
ráðsins hvernig staðið verði að
endurráðningum í störf á dval-
arheimilinu Skjaldarvík og til-
færslum starfsmanna þaðan í
önnur störf innan öldrunar-
deildar.
Eins og fram kom í Degi sl.
laugardag hefur félagsmálaráð
samþykkt að fækka stöðugildum
í Skjaldarvík um 4,8, en það var
lagt til í rekstrarúttekt ráðgjafar-
fyrirtækisins „Rekstur og ráð-
gjöf“ hf. I bókun félagsmálaráðs
frá 26. febrúar sl. var samþykkt
að það muni fá þeim starfsmönn-
um, sem láta af störfum í Skjald-
arvík, önnur störf.
í þessum fimm manna starfs-
hópi eru Björn Þórleifsson,
deildarstjóri öldrunardeildar
Akureyrarbæjar, Karolína
Guðmundsdótdr, forstöðumaður
dvalarheimilisins Skjaldarvík,
Jón Björnsson, félagsmálastjóri
Akureyrarbæjar, trúnaðarmaður
STAK í Skjaldarvík og trúnaðar-
maður Einingar í Skjaldarvík.
óþh
Úrvinnslan hf. á Akureyri:
Stofnfundur
í næstu viku
- algjörlega mengunarlaus iðnaður
sem dregur úr sorpmagni
Ákveðið hefur verið að stofn-
fundur nýs atvinnufyrirtækis,
Úrvinnslunnar hf., verði hald-
inn í næstu viku, nánar tiltekið
fímmtudaginn 25. febrúar. Á
fundinum verður gengið frá
stofnun hlutafélags um rekstur
endurvinnslufyrirtækis er í
fyrstu mun helga sig endur-
vinnslu úr pappír og plastefn-
um.
Hið nýja fyrirtæki verður til
húsa við Réttarhvamm 3 á Akur-
eyri og mun Akureyrarbær leggja
helming andvirðis hússins fram
sem hlutafé. Gert er ráð fyrir að
starfsemi hefjist með vorinu eða í
júní næstkomandi. Ákvörðun
hefur verið tekin um kaup á véla-
samstæðu frá Þýskalandi til
úrvinnslunnar og með þessu
fyrirtæki gefst kostur á að
minnka umfang á því sorpi er
losna þarf við á Akureyri og í
nágrenni auk þess sem ætlunin er
að endurvinna rúlluplast frá
sveitabæjum.
Ákveðið er að pappír og plast-
efni verði flutt til Úrvinnslunnar í
lokuðum gámum eða flutninga-
vögnum og geymd í lokuðu hús-
næði eða geymslutjaldi þar til
úrvinnsla þeirra fer fram.
Vinnsluferli úrvinnslunnar fer
þannig fram að fyrst eru úrgangs-
efnin tætt í grófum tætara, sem
skilar þeim í safnker. Úr safnker-
inu fara efnin síðan í svokallaða
skrúfupressu þar sem þau eru
pressuð saman. Við pressunina
hitna þau í allt að 100 til 120
11.-27.
mars
HHHHHHHHHHHHHHHHHNHHHHHHHHHHHHHHH
gráður en við þann hita nær plast-
ið að bráðna og binda efnin
saman. Að pressun lokinni eru
lengjurnar skornar niður í viðeig-
andi stærðir. Eins og fram hefur
komið verður hin endurunna
framleiðsla fyrst um sinn notuð í
brettakubba en um 2,5 milljónir
slíkra kubba eru fluttir inn til
brettaframleiðslu á hverju ári.
Að sögn aðstandenda Úrvinnsl-
unnar er engin mengun samfara
þessari framleiðslu. Engin
brennsla fer fram og engar loft-
tegundir losna úr Iæðingi. Ein-
göngu rafmagn er notað til orku,
til að knýja tætara og skrúfu-
pressu. Að framleiðslu lokinni
verður brettakubbunum pakkað
inn á vörubretti og flutt á markað
í gámum. Þess má geta að við-
ræður standa nú yfir um flutning
Endurvinnslunnar, sem nú er til
húsa við Þingvallastræti í ná-
grenni íþróttahúss KA að Réttar-
hvammi. Með því móti yrðu þrjú
endurvinnslufyrirtæki staðsett
þar á sama svæði því auk hins
nýja fyrirtækis er Gúmmívinnsl-
an til húsa við Réttarhvamm 1.
ÞI
Missögn
leiðrétt
Vegna fréttar í Degi í gær um
umræður í bæjarstjórn Akureyr-
ar sl. þriðjudag um málefni
þrotabús Niðursuðuverksmiðju
K. Jónssonar hf., óskaði Halldór
Jónsson, bæjarstjóri og stjórnar-
maður í ÚÁ, eftir því að fram
kæmi að hann hafi ekki fengið
vitneskju um það í gegnum
útvarp að kvöldi sunnudags að
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
myndi ekki taka þátt í stofnun
rekstrarfélags sem tæki þrotabú
K. Jónssonar á leigu.
í frétt Dags í gær er sagt að
Ríkisútvarpið hafi haft eftir
Gunnari Ragnars að kvöldi sl.
sunnudags að ÚA tæki ekki þátt í
stofnun nefnds rekstrarfélags, en
það er rangt. Hið rétta er Ríkis-
útvarpið hafði eftir Gunnari í
kvöldfréttum sl. föstudag að ÚA
væri ekki í viðræðum um stofnun
rekstrarfélagsins. Beðist er vel-
virðingar á þessari missögn. óþh
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ íþrótta- og tómstundaráð
hefur samþykkt að veita Jóni
Óðni Öðinssyni, júdóþjálfara,
35 þúsund króna styrk til að
sækja æfingabúðir og þjálfara-
námskeið í júdó í Edinborg 9.
til 15. apríl nk.
■ Á sama fundi íþrótta- og
tómstundaráðs var rætt um
íþróttaskemmuna og kom
fram að þak hennar er mjög
illa farið, „heldur ekki vatni
og verður eflaust stórhættulegt
gestum hússins innan tíðar,
verði ekkert að gert.“ í bókun
segir að íþrótta- og tóm-
stundaráð minni á að gera
þurfi við þakið, burtséð frá þvf
hver framtíð Skemmunnar
verði sem íþróttahúss. Því
beindi ráðið því til bæjarráðs
að það leitaði leiða til að fjár-
magna viðgerð á Skemmunni
sem allra fyrst. Þetta mál var
tekið fyrir á fundi bæjarráðs
11. mars og var því vísað til
endurskoðunar fjárhagsáætl-
unar síðar á árinu.
■ Á fundi atvinnumálanefnd-
ar 2. mars sl. var samþykkt að
veita Slippstöðinni-Odda hf.
kr. 250 þúsund til hönnunar,
þróunar og framleiðslu á nýrri
ísvél.
■ Á sama fundi var samþykkt
að veita Katli Guðmundssyni
kr. 150 þúsund til hönnunar og
framleiðslu á húsgögnum sem
eiga að nýtast vel í litlum
íbúðum. Á fundinum var lögð
fram greinargerð frá Iðn-
þróunarfélagi Eyjafjarðar um
málið.
■ Um miðjan apríl er fyrir-
huguð í Lahti í Finnlandi ráð-
stefna um atvinnumál, sem
vinabæir á Norðurlöndum
standa að og hefur Akureyrar-
bæ verið boðin þátttaka. Af
hálfu bæjarins fara á ráðstefn-
una þeir Heimir Ingimarsson
(G) og Guðmundur Stefáns-
son (B), sem báðir eiga sæti í
atvinnumálanefnd bæjarins.
■ Félagsmálaráð hefur sam-
þykkt eftirfarandi styrkveit-
ingar: SÁÁ-N 1.150.000 kr.,
Fjólan-líknarfélag 460.000,
Styrktarfélag vangefinna
ásamt Foreldrafélagi barna
með sérþarfir v. sérstaks verk-
efnis 800.000, Félag aldraðra á
Akureyri 100.000, Æskulýðs-
samband kirkjunnar 175.000,
Barnaheimilið Ástjörn
175.000, Geðverndarfélagið á
Akureyri 135.000, K.F.U.M.
og K. 175.000, AA-samtökin
80.000, Mæðrastyrksnefnd
100.000, Kvennaráðgjöfin
Reykjavík 50.000, Stígamót
Reykjavík 60.000, Samtök um
kvennaathvarf Reykjavík
170.000, Landssamtökin
Vernd 50.000, Kvennasam-
band Akureyrar 50.000, Nátt-
úrulækningafélagið Akureyri
50.000, Samtök um sorg og
sorgarviðbrögð 50.000, Sam-
tök um menningarmiðstöð f.
fatlaða 150.000, Nemar í
sveigjanlegu fósturnámi
220.000 og Félag dagmæðra á
Akureyri 50.000 kr.