Dagur - 14.04.1993, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 14. apríl 1993 - DAGUR - 7
JÚdÓ:
Glæsilegur sigur Venna
á móti í Skotlandi
sigraði alla andstæðinga sína á ippon
Nú um helgina tóku 4 júdó-
menn úr KA, ásamt fleiri Is-
Iendingum, þátt í mjög sterku
alþjóðlegu móti unglinga í
Skotlandi. Vernharð Þorleifs-
son náði þeim glæsilega árangri
Rúnar Snæland og Sævar Sigursteinsson stóðu sig einnig vel í Skotlandi.
Skíðaganga, Flugleiðatrimmið:
Sól og sæla
að leggja alla keppinauta sína
og krækja þar með í gullverð-
launin. Árangur Venna vakti
að sögn Jóns Óðins Óðinsson-
ar, landsliðsþjálfara unglinga,
mikla athygli, enda vann hann
allar glímur sínar á ippon.
Vernharð keppi í +86 kg
flokki. Flestir keppinautar hans
voru þó talsvert þyngri og gerir
það sigurinn enn glæsilegri. Rún-
ar Snæland stóð sig einnig mjög
vel. Hann komst í 4. umferð og
hafnaði í 7. sæti. Þeir Sævar Sig-
ursteinsson og Max Jónsson náðu
báðir 9. sæti í sínum flokkum.
Mótið var mjög sterkt. Keppend-
ur voru 600 talsins frá 12 þjóðum
og var Jón Óðinn ánægður með
frammistöðu sinna manna. Von
er á íslendingunum heim næst-
komandi fimmtudag en á Iaugar-
daginn fer íslandsmótið í júdó
fram í Reykjavík.
Vernharð Þorleifsson er orðinn einn sterkasti júdómaður landsins og er hon-
um spáð miklum frama í íþróttinni.
Þessir ungu skíðamenn stungu alla af í 4 km göngunm.
Frá vinstri: Baldur, Helgi og Gísli.
Hið árlega Flugleiðatrimm fór
fram samkvæmt venju á
páskadag. Undanfarin ár hef-
ur veðrið sett strik í reikning-
inn en sl. sunnudag lék veðrið
við þátttakendur. Boðið var
uppá 2 vegalengdir og vegleg
verðlaun í boði.
Tæplega 30 keppendur gengu á
Sigurvegarinn Dan Hcllström, haf-
inn á loft af lærisveinum sínum þeirn
Þóroddi og Kára.
tíma og voru veitt verðlaun fyrir
3 efstu sætin í hvorri vegalengd.
Auk þess gengu um 70 trimmarar
án sérstakrar tímatöku. Allir sem
gengu fengu happdrættismiða þar
sem verðlaunin voru flugferðir
milli Akureyrar og Reykjavíkur
og ein helgarferð. Gangan var
sérlega vel heppnuð að þessu
sinni enda veðrið eins og best
verður á kosið. Úrslit hjá þeim
sem gengu á tíma voru eftirfar-
andi:
4 km:
1. Helgi H. Jóhannesson
2. Gísli Harðarson
3. Baldur H. Ingvarsson
4. Grétar O. Kristinsson
5. Jóhann Þórhallsson
6. Jón Þór Guðmundsson
7. Andri Steindórsson
12.27
12.28
15,17
16,20
18,47
19,07
19,40
20 km:
1. Dan Hellström
2. Þóroddur Ingvarsson
3. Kári Jóhannesson
4. Ingþór Bjarnason
5. Sigurður Sigurgeirsson
6. Jóhannes Kárason
7. Þorlákur Sigurðsson
24,19
25,38
26,29
26,57
27,42
28,04
30,26
íslandsganga, Skíðastaðatrimmið:
Sigurgeir reyndist fljótastur
Sólin skein glaft sl. föstudag
þegar fram fór í Hlíðarfjalli
svokallað Skíðastaðatrimm
sem var hluti af Islandsgöng-
unni. í boði voru 2 vegalengd-
ir, 8 og 20 km og hófst gangan
upp við Strýtu.
Ólafsfirðingar unnu tvöfaldan
sigur í flokki 17-34 ára hjá þeim
sem gengu 20 km. Sigugeir Svav-
arsson varð fyrstur og Ólafur
Björnsson annar. Jóhannes
Kárason vann flokk 35-49 ára og
Björn Þór Ólafsson flokk 50 ára
og eldri. Þóroddur Ingvarsson
vann flokk 10-16 ára sem gengu 8
km og hjá körlum 17 ára og eldri
var Siglfirðingurinn Ólafur Vals-
son hlutskarpastur. Annars urðu
úrslit þessi:
20 km:
Karlar 17-34 ára:
1. Sigurgeir Svavarsson, Ól. 41,52
2. Ólafur Björnsson, Ól. 42,34
3. Dan Hellström, Ak. 44,36
4. Kári Jóhannesson, Ak. 49,19
5. Sigurður Sigurgeirsson, Ól. 53,03
Karlar 35-49 ára:
1. Jóhannes Kárason, Ak. 50,15
2. Ingþór Bjarnason, Ak. 50,39
3. Sigurður Aðalsteinsson, Ak. 57,15
4. Konráð Gunnarsson, Ak. 1:00,30
Karlar 50 ára o.e.:
1. Björn Þ. Ólafsson, Ól. 52,39
2. Rúnar Sigmundsson, Ak. 57,18
3. Þorlákur Sigurðsson, Ak. 58,49
4. Ólafur Dan Snorrason, Ak. 1:11,12
5. Atli Benediktsson, Ak. 1:15,18
8 km:
Piltar 10-16 ára:
1. Þóroddur Ingvarsson, Ak. 23,14
2. Gísli Harðarson, Ak. 24,50
3. Helgi H. Jóhannesson, Ak. 25,16
4. Björn Blöndal, Ak. 37,00
Karlar 17 ára o.e.:
1. Ólafur Valsson, Sigl. 25,18
2. Pálmi Einarsson, Ak. 28,45
3. Þórarinn Hjartarson, Dal. 30,04
Umbótanefnd ÍSÍ í kvennaíþrótt-
um og FH standa fyrir ráðstefnu
um íþróttir kvenna undir yfir-
skriftinni „Konur og íþróttir“ í
Kaplakrika, Hafnarfirði, laugar-
4. Guðmundur Guðmundsson, Ak. 32,26
5. Páll Pálsson, Ak. 38,01
6. Kristján Jósteinsson, Ak. 42,23
7. Ólafur Steánsson, Ól. 49,44
8. Ólafur Aðalbjörnsson Ak. 52,20
daginn 17. apríl nk. Þátttaka til-
kynnist á skrifstofu ÍSÍ, síma 91-
813377 fyrir 15. apríl nk. Ráð-
stefnugjald er 1500 kr.
Fréttatilkynning
Sigurgeir Svavarsson sló hvergi af í Skíðastaðagöngunni. Mynd: Robyn.
Konur og íþróttir