Dagur - 04.06.1993, Blaðsíða 2
Stuttur pistill
frá Hvammstanga
Tónlistarfélag Vestur-Húnvetninga hefur
haft þaö á stefnuskrá að halda tónleika
mánaðarlega yfir starfsárið sem stendur
frá september fram til maí. Síðasta starfs-
ár byrjaði reyndar í ágúst, en þá kom
fiðluleikarinn Laufey Sigurðardóttir í
heimsókn og spilaði í Hvammstanga-
kirkju. I september kom Einar Kr. Ein-
arsson gítarleikari og lék hann einnig í
kirkjunni og má segja að þá fyrst hafi
starfsárið hafist. 21.október jassaði Tóm-
as R. Einarsson í Vertshúsinu á
Hvammstanga ásamt hljómsveit sinni
sem samanstóð af mjög ungum og upp-
rennandi tónlistarmönnum. Reynir Jónas-
son og Grettir Björnsson harmonikku-
leikarar fóru á kostum í hljóðfæraleik og
kitluðu hláturtaugar okkar þcgar þeir
spiluóu í Vertshúsinu í nóvember. Des-
embertónleikar sem vera áttu, féllu niður
vegna slæmrar færðar norður heiðar,
þ.e.a.s frá Reykjavík. Hinir árlegu stór-
tónleikar félagsins áttu að vera í janúar
en var frestað vegna veðurs. 24.febrúar
héldum við tónleika í Asbyrgi á Laugar-
bakka og þar léku þau Símon Ivarsson
gítarleikari og Hlíf Sigurjónsdóttir fiðlu-
leikari. Einnig héldu þau hljóðfærakynn-
ingu í Grunnskólanum á Hvammstanga
vió góðar undirtektir nemenda. I mars
tókst loksins aö halda okkar árlegu stór-
tónleika þar sem fram komu eingöngu
heimamenn og tókust þeir með ágætum.
Söngkvartettinn Voces Thules flutti mið-
aldatónlist í Hvammstangakirkju aö
kvöldi Pálmasunnudagsins 4.apríl. Tíu
dögum síðar var komið að rokkinu.
Hljómsveitin Todmobil kom fram eftir
nokkurt hlé í Félagsheimilinu Hvamms-
tanga þann 14.apríl, en þá hafði hljóm-
Reynir Jónasson og Grettir Björnsson.
sveitin ekki haldið tónleika síðan í des-
ember '92 og þá í Reykjavík, en ekki ut:
an Reykjavíkur síóan sumarið 1991. í
síðasta mánuði var síðan endapunkturinn
settur á starfssemi vetrarins í Hvamms-
tangakirkju en það var Marteinn H. Frió-
riksson dómorganisti sem flutti orgeltón-
list. Það er oróinn fastur liður hjá Tón-
listarfélaginu að enda starfsárið með org-
eltónleikum. Til gamans, má láta þess
getið hér að samanlagt komu á þessa tón-
leika eitthvað á 7.hundrað manns. Að
lokum má geta þess að Tónlistarfélagið
stendur fyrir aukatónleikum núna í mán-
uðinum, nánar tiltekið á Jónsmessunni
þ.23.júní á Hótel Vertshúsi. Sigurður
Flosason, Pétur Östlund, Eyþór Gunnars-
son og fleiri koma beint af Listahátíóinni
í Hafnarfirði á Hvammstanga, en fara
síðan á Jazzhátíðina á Egilsstöðum.
Um aðra menningarstarfsemi er það
að segja að Leikflokkurinn á Hvamms-
tanga setti í vetur upp leikritið Hrepp-
stjórinn á Hraunhamri eftir Loft Guð-
mundsson. Leikstjóri var Hörður Torfa-
son. Sýningar voru 7 alls og aðsókn með
ágætum. Leiklistaráhugi á Hvammstanga
er töluverður ef marka má aðsókn á leik-
listarnámskeið sem haldið var í haust, en
þar var aðsókn grunnskólans mikil. Um-
sjón með námskeióinu hafði Guðjón Sig-
valdason leikstjóri.
Helgina 17-18 apríl var haldið kirkju-
kóramót kirkjukóra Húnavatnsprófasts-
dæmis í nýja íþróttahúsinu á Laugar-
bakka í Miðfirði. Milli 120-130 manns
komu saman í þessum söngbúðum og
Skólaárió 1992-1993. 28. starfsár.
Nemendur voru 165.. Kennarar 7 auk
skólastjóra.
Að venju voru tvennir jólatónleikar og
þrennir vortónleikar nemenda. Þá eru
músíkfundir haldnir reglulega, auk þess
koma nemendur fram við ýmis tækifæri í
bænum, bæði „Blásarasveitin" og ýmsir
hópar.
Þá gekkst skólinn fyrir tónleikahaldi
og fékk hingað ágætis listafólk.
15. nóvember voru tónleikar Þorsteins
Gauta Sigurðssonar, píanóleikara.
Tómas R. Einarsson.
u.þ.b. 110 manns söng í sameiginlegum
kór sem myndaður var af kórfólki úr 10
kórum af svæðinu. Gestur mótsins var
Haukur Guólaugsson söngmálastjóri
þjóðkirkjunnar.
Hin árlega söngskemmtun Lóuþræla
var haldin í Félagsheimilinu Hvamms-
tanga þann 24.apríl og var hún með hefð-
bundnu sniói. Stjórnandi kórsins er Ólöf
Pálsdóttir. Gestur kvöldsins var Rökkur-
kórinn úr Skagafirði.
Hér hefur verið stiklað á stóru í upp-
talningu á tónlistar-og leiklistarviðburó-
um vetrarins. Eins og sjá má er tónlista-
ráhugi töluverður og mætti ætla að flestir
hafi fundið eitthvað við sitt hæfi af þeirri
dagskrá sem hefur verið boðið uppá í
vetur. Guðrún Helga Bjarnadóttir.
21. janúar kom hingað 74ra manna
blásarasveit frá Mit háskólanum í
Massachusetts í Bandaríkjunum.
Stjórnandi: John D. Gorley. Metaösókn
var en alls komu um 360 manns.
13. febrúar voru tónleikar Ingibjargar
Guðjónsdóttur, sópransöngkonu, og
Jónasar Ingimundarsonar, píanóleikara.
Að lokum: Minningartónleikar um Pál
Isólfsson, tónskáld. Flytjendur: Ingibjörg
Marteinsdóttir, sópran, Þorgeir
Andrésson, tenór, og Lára Rafnsdóttir,
píanó. Eva Snæbjarnardóttir.
Tónlistarskólinn
á Sauðárkróki
2